Þjóðviljinn - 16.12.1966, Page 1
e
Sala „kínveria" er óleyfileg í Reykjavík
Föstudagur 16. desember 1966 — 31. árgangur— 288. tölublað.
Á þessum tíma árs ber nokk-
uð á því að unglingar reyni að
komast yfir sprengiefni og þá
sérstaklega „kinverja". Ssek.i-
ast unglingamir eftir að
sprengja kínveriana þar sem
fólk safnast saman og hefur
þetta verið áberandi þá daga
fyrir iól sem lögreglan hefur
bannað bifreiðaumferð um viss-
ar götur t.d. um Austurstrseti,
hefur reyndar orðið vart við
þesisar sprengingar undanfarið-
Sala á öllu slíku sprengiefni
er bönnuð í Reykiavík og ná-
grenni, aðeins er leyfð sala á
flugeldum og blysum. Vitað er
að á hveriu ári reyna einhveri-
ir að hagnast á útvegun kín-
verja, sem ýmist er smyglað til
landsins eða búnir til hér. Lög-
reglan óskar eftir aðstoð aUra
til að koma í veg fyrir þessar
sprengingar og skorar á for-
eldra og aðra forráðamenn ung-
linga að láta lögregluna vita
ef böm þeirra komast yfir
þessa hluti og ekki er síður
áríðandi að fá upplýsingar hvar
unglingarnir hafa fengið þá.
Stöðvunarstefnan í borgarstj órn Reykjavíkur:
STORAUKNAR ALOGUR HVERFA NU NÆ
ALLAR í HÍT REKSTRAR OG EYÐSLU!
Fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árið 1967 var
til 2. umræðu og afgreiðslu í borgarstjórn í nótt
■ Þetta fjárhagsáætlunarfrumvarp ber engan vott stöðvunarstefnu eða sparnaðar. Þvert
4 móti boðar það auknar álögur á borgarbúa, fyrst og fremst með stórfelldri hækkun
útsvaranna. Það boðar einnig aukna eyðslu og vaxandi þenslu í rekstri borgarsjóðs og
borgarstofnana og skort á allri viðleitni til að finna leiðir til sparnaðar og hagkvæm-
ari reksturs. Alvarlegast er þó, eigi hér að ganga frá fjárhagsáætlun, sem þýðir í raun
stórfelldan niðurskurð á þeim félagslegum framkvæmdum sem úrlausnar bíða og
brýnast er .að leyst séu af framsýni og myndarskap.
■ Þeir borgarfulltrúar, sem að slíku standa taka á sig þunga ábyrgð og sú ábyrgð er
ekki sízt þung gagnvart frmatíðinni,
Á þessa leið lauk Guðmundur I kvöld fyrir breytingartillögum
Vigfússon framsöguræðu sinni í borgarfulltrúa Alþýðubandalags-
borgarstjórn Reykjavíkur í gær- | ins við fjárhagsáætlunarfrum-
Vélrsen afgreiðsla
fjárlagafrumvarps
Afgreiðsla fjárlaga^rumvarpsins 1967 fór fram á Alþingi
i gær á þann vélræna hátt sem orðinn er hefðbundinn:
Allar breytingartillögur ráðherra, fjárveithiganefndar og
meirihluta stjómarflokkanna í fjárveitinganefnd eru sam-
þykktar, hver einasta tiliaga einstakra þingmanna feild.
Um einstakar tillögur þingmanna fóru fram athyglisverð-
ar atkvæðagreiðslur, og er rétt að almenningur fái að kynn-
ast því hvernig þingmennimir koma fram í einstökum
hagsmunamálum manna og landshluta- Verður skýrt frá
afdrifum helztu breytingatillagna við 3- umræðu fjárlag-
. anna í sérstökum fréttum hér í blaðinu í dag og næstu
daga-
varpið. Var fjárhagsáætlunin til
2. umræðu og átti að afgreiða
hana á fundi borgarstjórnár í
nótt.
Fyrstur tók til máls Geir Hall-
grimsson borgarstjóri og gerði
grein f.vrir áætlun um fram-
kvæmdir borgarinnar á næstu
árum. Ræddi h’ann og ýms at-
riði fjárhagsáætlunarinnar.
Tryggja þarf aukið fjár-
magn til framkvæmda
Að lokinni ræðu borgarstjóra
tók Guðmundur Vigfússon til
máls og gerði ítarlega grein fyr-
ir breytingartillögum borgarfull-
trúa Alþýðubandalágsins, en þær
voru raktar hér í blaðinu í gær.
Rökstuddi Guðmundur bæði
nauðsyn þess að nota í rikara
mæli en gert er heimild laga til
álagningar aðstöðugjalda og að
koma við ýmiskonar sparnaði í
borgarrekstrinum. Þetta yrði að
gera til þess að tryggja aukið
fjármagn til byggingarfram-
kvæmda borgarinnar, bæði á
Framhald á 2. síðu.
V\AAAAAAA\AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/1 AAAAAAAAAWVAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAV* V
Skiiadagur H1)
□ í dag er skiladagur í Happ-
Þjóðviljans og verður aígreiðsla
Þjóðviljans að Skólavörðustíg 19
opin kl. 10—22 af því tilefni.
Einnig er tekið/ á móti skilum í
happdrættinu í Tjarnargötu 20.
□ N. k. föstudagskvöld, á Þorláks-
messu, verður dregið í happdrætt-
inu og er þetta því síðasta helgin
sem menn hafa til að gera skil.
Ættu menn að nota helgina vel en
afgreiðslan á Skólavörðustíg 19
verður opin til kl. 19 ,annað kvöld,
laugardag, og einnig verður tekið
á móti skilum á sunnudaginn.
Verður það nánar auglýst síðar/
DREGIÐ EFTIR 8 DAGA
Vtm«WMMWAMMW*WMWVVWMVWVWVVWWWVVWVHVVVWWVVVVVVtt»WVWWMWWMVWVWVWVWWWtt«»WWI
Sovétstjórn aðvarar Banda-
ríkin vegna árása á Hanoi
Björn Jónsson í umræðunum um verðstöðvunarmál á Alþingi í gær:
BRÝNNI ÞÖRF EN OFTAST ÁÐUR
AÐ BREYTA KJARASAMNINGUM
Því fer fjarri að verkalýðshreyfingin telji nú
efni til að falla að meira eða mirina leyti frá kröf-
um sínum um samningsbundnar kjarabætur. Þvert
á móti eru nú flestar ástæður þannig vaxnar að
brýnni þörf en oftast áður er á því að breyta kjara-
samningunum og reyna með því að tryggja hags-
muni vinnustéttanna, ekki sízt vegna þeirrar ó-
vissu og öngþveitis sem nú ríkir í efnahagsmálum.
Björn Jónsson mælti þessi orð í efri deild Al-
þingis í gær við 1. umræðu stjómarfrumvarpsins
um heimild til verðstöðvunar. Flutti Björn efnis-
mikla og rökfasta ræðu um efnahagsástandið og
verkalýðsmálin. Hann sagði m.h.:
Ei|ginn efi er á því að í þeim samningum sem nú
standa fyrir dyrum hlýtur það að verða ein megin-
krafa verkalýðssamtakanna að brúa að venulegu
leytkþað bil sem orðið er milli samningsbundinna
launa og þeirra tekna sem verulegur hluti verka-
lýðsstéttarinnar getur í núverandi ástandi aflað
sér með óhæfilegum vinnutíma og ósamnings-
bundnum yfirborgunum. En til þess að þetta tak-
ist þarf margt að koma til. Og þá ekki sízt aukið
samstarf ríkisstjórnar, atvinnurekenda og verka-
lýðssamtakanna um stórfellda styttingu vinnu-
tímans án tekjuskerðingar.
Eí það er meining ríkisstjórn-
arinnar að reyna að opna leiðir
til þess að verkalýðshreyfingin
eigi aðra kosti til þess að ná
árangri í kjarabaráttunni en þær
að hækka laun sín í krónutölu,
en þá leið hlýtur hún að fara ef
aðrar leiðir reynast ófærar eða
eru gerðar ófærar, þá þarf hún
að taka bæði verðlagsmálin og
efnahagsmálin í heild öðrum tök-
um en þetta frumvarp og þær
aðgerðir sem hún fyrirhugar í
þeim vanda sem bæði höfuðat-
MOSKVA, SAIGON 15/12 — Sovézka ríkisstjórnin sendi
þeirri bandarísku í dag harðorða orðsendingu þar sem mót-
mælt er loftárásum Bandaríkjamanna á Hanoi og næsta
umhverfi hennar. Um leið er varað við því, að áframhald-
andi loftárásir muni leiða M1 þess að viðsjár'aukist enn að
__________________________^miklum mun í alþjóðlegum
samskiptum.
Sovétríkin hafa ákveðið að
auka útgjöld sín til land-
varna, mest vegna aukinnar,
hernaðaraðstoðar við Norð-
ur-Vietnam.
Orðsending Sovétstjórnarinnar
er harðorðust viðbrögð sem hún
hefur um hríð látið frá sér fara
um hernað Bandaríkjamanna í
Vietnam. í henni er Bandaríkja-
stjórn m.a. minnt á yfirlýsingu
sem birt var eftir fund aðildar-
rikja Varsjárbandalagsins í sum-
ar, en þar eru þau skuldbundin
til að senda sjálfboðaliða til
Norður-Vietnam ef stjóm lands-
Banas/ys í SR
á Seyðisfírði
Það hörmulega slys varð í
Síldarverksmiðju Ríkisins á
Seyðisfirði í fyrradag að 17 ára
piltur, Birgir Magnússon frá
Þórshöfn, beið bana við vinnu
sína þar.
Slvsið varð með þeim hætti
að Birgir var að aka vörulyft-
ara inn um dýr verksmiðjunnar
er gálgi lyftarans rakst í og
féll ofan á hann. Hlífðargrind
er kringum ökumannssæti lyft-
arans, en þar sem gálginn féll
að ofan kom hún ekki að gagni,
og lézt Birgir stuttu síðár.
vinugreinarnar og launastéttirn-
ar standa frammi fyrir nú, vegna
þeirrar óðaverðbólgu, sem geys-
að hefur í landinu undanfarin
ár. Þar dugar engin sýndar-
mennska. Þó ríkisstjórnin þurfi
ef til vill ekki að lifa lengur en
til næsta hausts, þurfa undir-
stöðuatvinnuvegirnir og fólkið í
landinu að lifa lengur,'og við það
verðq, úrhæturnar að miðast.
Ræða Björns mun betur kynnt
hér í bl aðinu næstu daga.
ins æskir þess: Þar segir og, að
árásarstríð Bandaríkjamanna í
Vietnam sé hunzkasta afbrigði
bandarískrar heimsvaldastefnu og
stríði gegn öllum viðurkenndum
hugmyndum um þjóðarétt og sið-
gæði.
Æðstáráð Sovætríkjanna kom
saman til fundar í Moskvu í dag.
í ræðu Garbúspfs fjármálaráð-
herra um fjárlög ríkisins kom
Framhald á 2. ,síðu.
Walt Disney
er iátinn
LOS ANGELES 15/12 —
Walt Disneý, konungur
teiknimyndanna, lézt í Dur-
banck í Kaliforníu, 65 ára
að aldri. Fyrir tveim vik-
um var Disney lagður inn á
sjúkrahús þar til að fjar-
lægt yrði úr honum annað
lungað, og hafði nú verið
lagður inn i annað sinn til
eftirlits.
Disney bjó til flestar fræg-
uutu persónur teiknimynd-
anna, þeirra á meðal Mikka
mús, sem fæddist í vinnu-
stofu hans árið 1928.