Þjóðviljinn - 24.01.1967, Side 2
2 SfBA' —- ÞJÖÐ^ÍIíJINM —- terSSwðagur- 24. Janðar- M6t-
KM
m
Max Nielsen var ein aðalstjarna danska landsliðsins í heimsnieistarakeppninni í Sviþjóð og sést hann hér skora eitt aí mörkunum
í hlnum þýðingarmikla leik Dana við Júgóslava. Max Nielsen verður í hópi Kaupmannahafnarúrvalsins sem væntanlegt er hing-
að í næstu viku og leikur i Laugardalshöllfnni 4. og 5. febrúar n.k. Aðrir leikmenn Hafnarúrvalsins verða: Arne Andersen, Gert
Andersen, Ove Ejlertsen, Jörgen Frandsen, Werner Gaard, Bent Jörgensen, Gunnar Júrgens, Morten Petersen, Steen Sörensen og
Börge Thomsen.
Handknattleikur:
Tékkar urðu heimsmeistarar,
□ Þau urðu úrslit heimsmeistarakeppninnar
í handknattleik, að Tékkar hrepptu meistaratitil-
inn í fyrsta sinn; sigruðu I)ani í alljöfnum og
tvísýnum úrslitaleik á laugardaginn með 14 mörk-
um gegn 11. Rúmenarnir, fyrrverandi heims-
meistarar, tryggðu sér 3. sæti í keppninni á eftir
Dönum með því að sigra sovézka liðið.
Til-
valið
Mennimir sem eiga Al-
menna byggingarfélagið hafa
boðizt til að gefa þjóðinni
hlutdeild í eign sinni. Þeir
ætla að breyta félagi sínu
í almenningshlutafélag, gefa
hverjum landsmanni kost á
að kaupa hlutabréf og sækja
arð þegar stundir líða íram,
þótt hinir upphaflegu eigend-
ur ætli að sjálfsögðu að á-
skilja sér tvöfaldan rétt á við
aðra- Til munu þeir sem
halda því fram að ástæðan
fyrir þessari fyrirkomulags-
'' breytingu sé ekki sú að pen-
ingamennirnir vilji gefa þjóð-
inni hlutdeild í arði sínum,
heldur þurfi þeir á fjármagni
að halda vegna nýbygginga í
höfuðborginni og annarra
kostnaðarsamra umsvifa; þess
vegna muni naumast mikils
arðs að vænta á næstunni. En
auðvitað er forustumönnum
Almenna byggingarfélagsins í
lófa lagið að kveða þvílíkar
getsakir niður umsvifalaust.
Björn Ólafsson stórkaupmað-
ur, sá sem gerði grein fyrir
hinni væntanlegu tilhögun, á
sem kunnugt er heilsulind þá
sem sendir kókakóla á mark-
aðinn: Enginn efast um að sú
starfsemi skilar árvissum arði,
og því getur Bjöm sannað
hugsjón sína með því að gera
kókakólaverksmiðjuna að al-
menningshlutafélagi. Aðrir
eigendur Almenna byggingar-
félagsins eiga einnig Nýja
bíó, og alkunnugt er að það
kvikmyndahús er ekki rekið
með halla- Verði það einnig
gert að -almenningshlutafélagi
mun þjóðin verða þeim mun
fúsari -til að koma til liðs við
byggingarfélagið. Síðast en
ekki sízt er fyrir löngu orð-
ið tímabært að Morgunblað-
ið sýni trú sína í verki- Hluta-
félagið'Árvakur, sem á Morg-
unblaðið, hefur að undan-
förnu Verið eitthvert stórtæk-
asta gróðafélag iandsin.s, Verði
bað gert að almenningshluta-
félagi mun ekki aðeins
Almenna byggingarfélaginu
borgið að fullu, heldur kynni
mótelið í Hveragerði loksins
að öðlast þann hugsjónabak-
hjarl sem ekkert fær staðizt.
— Austri.
★ Úrslitaleikurinn var jafn-
ari en flestir höfðu búizt við;
enn komu Danir á óvart. Eink-
um var fyrri hálfleikurinn jafn,
en honum lauk þannig að hvort
Iiðið skoraði 8 mörk. í síðari
hálfleik höfðu Tékkar hinsveg-
ar nokkra yfirburði og skoruðu
þá 6 mörk á móti 3 mörkum
Dananna, þannig að Ieiknum
Iauk með 3 marka sigri Tékka,
14:11, sem fyrr var sagt.
★ Leikur Kúmena og Sovét-
manna á laugardaginn um 3.
sæti í keppninni var ekki síð-
ur tvisýnn og jafn. Eftir venju-
legan leiktíma, klukkustund,
var jafntefli, 18:18. Var þá
framlengt og tókst fyrrverandi
heimsmeisturum að skora 3
mörk í framlengingunni, en
sovézku leikmönnunum aðeins
eitt mark
Þrisvar i úrslitum
Sigur Tékkanna í heimsmeist-
arakeppninni kom ekki á óvart^
og var af flestum talinn mjög
sanngjarn. Þeir hafa löngum
verið í freinstu röð handknatt-
leiksþjóða heims, eins og bezt
sést af því, að tékknesk lið
hafa tvívegis áður komizt í
úrslit á HM! Má því segja að
tími hafi verið kominn fyrir
þá að vinna úrslitaleikinn.
Frábær frammistaða Dana
Frammistaða Dana í heims-
meistarakeppninni var það sem
mest kom á óvart og mjög
ánægjulegt að þeir skyldu
halda merki Norðurlandanna í
handknattleiknum svo hátt á
loft sem raun ber vitni. Mikl-
ar hrakspár höfðu fylgt danska
liðinu að heiman og margir
talið að það ætti lítið erindi
í heimsmeistarakeppnina eftir
hið svonefnda vodkahneyksli í
fyrra, er stór hluti landsliðsins
var sviptur keppnisrétti eftir
ferðalag til Sovétríkjanna. —
Þessar hrakspár urðu hinsveg-
ar til þess að dönsku liðs-
mennirnir mættu tvíafldir til
úrslitakeppninnar í Svíþjóð:
þeir höfðu fullan hug á því að
láta hrakspámenhina verða sér
til skammar — sem og varð.
Danir hafa ekki áður kom-
izt jafnlangt eða lengra í HM
í handknattleik. 1938 urðu þeir
í 4. sæti (aðeins 4 þátttöku-
þjóðir), og bezti árangur til
þessa var 5. sæti.
Urslit í lokakeppninni urðu
því sem hér segir:
1. Tékkóslóvakía,
2. Danmörk,
3. Rúmenía,
4. Sovétríkin,
5. Svíþjóð,
6. Júgóslavía,
7. Vestur-Þýzkaland,
8. Ungverjaland.
★ Það er athyglisvert — og
þættu tíðindi ef um aðrar
iþróttagreinar væri að ræða,
t.d. knattspyrnu — að stór
hópur llðsmanna í þessum
beztu handknattleiksliðum
Framhald á 7. síðu
ÍBK sigraöi ÍBA í
fyrsta leiknum í
íþróttaskemmunni
□ Sl. laugardag var í fyrsta skipti keppt u
nýju íþróttaskemmunni á Akureyri, — og vár
það jafnframt fyrsti leikurinn sem háður er í
íslandsmóti í handknattleik utan Reykjavíkur.
Þetta var leikur í 2. deild
karla milli Akureyringa og
Keflvíkinga. — Var leikurinn
mjög jafn. en honum lauk með
sigri Keflvíkinga, 21 marki
gegn 20.
Á sunnudaginn léku þessi
sömu lið aukaleik á sama stað
og varð þá jafntefli 23—23.
Áður en leikurinn á laugar-
daginn hófst flutti Svavar Otte-
sen. formaður Handknattleiks-
ráðs Akureyrar, ávarp. Gat
hann þess m.a. að handknatt--
leiksmenn Vals myndu koma til
Akureyrar um næstu helgi og
þreyta kappleiki við bæjar-
menn. Yrði hin nýja íþrótta-
skemma þá formlega vígð og^
tekin í notkun.
Áhorfendasvæðin í þessu
nýja íþróttahúsi Akureyringa
(sem reist er til bráðabirgða
eins og kunnugt er) rúma um
500 manns. Voru þau fullskip-
uð um helgina.
120 tókuþátt
ífírmakeppai
Firmakeppni Skíðaráðs Rvík-
ur var háð um helgina og tóku
120 firmu og fyrirtæki þátt í
henni. Riðlar voru tveir, 60
firmu í hvorum. Sigurvegari
varð Heildverzlun Kristjáns 6.
Skagfjörð, keppandi Jóhann
Vilbergsson frá Siglufirði. í
öðru sæti voru Dráttarvélar hf.,
keppandi Björn Ólafsson, og í
þriðja sæti Rafsýn, keppandi
Sigurður R. Guðjónsson.
Leiðrétting
Prentvilla slæddist inn í fyr-
irsögn á íþróttasíðunni á sunnu-
daginn, fyrirsögnina um lands-
leiki Evrópuliða í knattspyrnu
á síðasta ári. Eins og greinin
sjálf bar með sér urðu íslend-
ingar í 30. — þrítugasta —
sæti í yfirlitinu (af 32 þjóð-
um) en ekki í 10. sæti.
KR vann KFR og
IKF sigraði (S
Keppni í 1. deild á íslands-
mótinu í körfuknattleik var
haldið í Laugardalshöllinni á
sunnudagskvöldið. Þá sigruðu
KR-ingar lið Körfuknattleiksfé-
lags Reykjavíkur með 94 stig-
um gegn 60. Þá vann íþrótta-
félag Keflavikurflugvallar lið
íþróttafélags stúdenta með 73
stigum gegn 56.
Skíðamót Islands 1967 háð
á Sígiufirði 21.-26. marz
Q Skíðamót íslands 1967 fer fram á Siglufirði
dagana 21. til 26. marz næstkomandi. Jafnframt
verður skíðaþing háð þar 24. marz.
Mótsstjórnin hefur nú sent
frá sér dagskrá skíðalandsmóts-
ins, en formaður mótsstjórnar
er Sverrir Sveinsson og ritari
Hjálmar Stefánsson.
Dagskráin verður sem hér
segir:
Þriðjudaginn 21. marz kl. 15
verður mótið sett, en síðan
hefst keppni í göngu 20 ára
og eldri og göngu 17—19 ára.
Miðvikudaginn 22. marz kl.
15 verður keppt í stökki 20
ára og eldri og stökki 17—19
ára. Þann dag verður einnig
háð norræn tvíkeppni.
Fimmtudaginn 23. marz kl.
14 hefst keppni í stórsvigi karla
og kvenna og kl. 15 verður
keppt í boðgöngu.
Föstudaginn 24. marz kl. 10
árdegis verður skíðaþing háð.
Laugardaginn 25. marz kl.
14 verður keppt í svigi kvenna
og karla.
Sunnudaginn 26. marz kl. 14
hefst keppni í 30 km göngu og
kl. 15 hefst keppni í fiokka-
svigi. Um kvöldið, kl. 20, feí
fram verðlaunaafhending oa
síðan verða mótsslit.
Þátttökutilkynningar þurfa
að berast mótsstjórn eigi- aíð-
ar en 9. marz n.k., ásamt þátt-
tökugjaldinu sem er kr. 25,00
fyrir hvern keppanda í hverri
grein.
Mótsstjórnin áskilur sér- 'rétt
til að breyta dagskrá mótsinr
vegna veðurs eða annarra ófyr-
irsjáanlegra orsaka.
Skíðafél. Siglufjarðar, Skíða
borg, sér um mótið að þer,;u
sinni og býður alla kepþenflur
og aðra velunnara skíðaibrótt-
arinrar velk'nmna t'S Siglu-
fiarðar.