Þjóðviljinn - 19.02.1967, Qupperneq 4
<
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Sunmidagur 19. febrúar 1967.
CTtgefandi: Sa'meiningarflokkur alþýdt — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivai H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigur&ur Guömundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Siguróur T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann
Riístjórn, afgreiðsla. auglýsingar prentsmiðja Skólavörðust 19.
Sími 17500 (5 linur) — Áskriftarverð kr 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
Fólk sem vaknar
miklum óheilindum kyrja nú menn úr her-
námsflokkunum að enginn árangur hafi orðið
af áratuga baráttu Sósíalistaflokksins, Alþýðu-
bandalagsins, Þjóðvarnarflokksins og Samtaka
hernámsandstæðinga fyrir íslenzkum málstað í
hernámsmálunuim og minna á að enn sitji herinn
sem fastast og enn sé fsland í Atlanzhafsbanda-
laginu. Allir sem unnið hafa í þessum samtökum
hefðu að sjálfsögðu fagnað því að meira hefði á
unnizt, markinu um herstöðvalaust ísland, laust
úr hernaðarbandalagi, væri þegar náð. Hitt mun
sannast og sagan annast þann dóm, að án áratuga
baráttu þeirra aðila, sem nefndir voru, fyrir ís-
lenzka málstaðnum ög íslenzkum viðhorfum gagn-
vart hersetu og hernaðarbandalagi, væri íslenzka
þjóðin nú illa á vegi stödd og mun verr en nú- er. j
Hætt er við að lágt væri risið á íslenzkum mál-
stað ef Framsóknafflokkurinn og æskumenn hans
hefðu einir staðið á verðinum, áhugi ' á slíkum
málum.rgtt fyrir kosningar er auðvitað nokkurs
virði, en fast hafa flestir þeirra sofið á verðinum,
nema þeir sem verið hafa í Samtökum hernáms-
andstæðinga, og ólíkt meira farið fyrir Varðbergs-
deildinni. En Framsóknarflokkurinn hefur sem al-
kunnugt er alltaf skipt sér á örlagastundum her-
námsins og haft nógu marga þingmenn hernáms
megin til þess að vinna óhappaverkin ásamt hin-
um hemámsflokkunum.
það hefur ekki unnizt fullnaðarsigur í hemáms-
málum. Herinn situr enn og hreiðrar um sig,
æ.tlar að vera lengi fái hann því ráðið. Hermanna-
sjónvarpið hefur unnið sitt lævísa skemmdarverk
og beygt allmarga íslendinga svo djúpt sem sendi-
bréf „sjónvarpsáhugamanna“ til hins erlenda her-
stjórnanda ber vott um. Herinn og Bandaríkja-
stjórn hafa náð talsverðum árangri að gera ýms-
um íslendihgum hernámið eðlilegt, fleiri mann-
tegundir en „stjórnmálamenn og hórur“ eru farn-
ar að ástunda samneyti við hinn bandaríska her-
námslýð. En árangurinn af hinni þrautseigu bar-
áttu Sósíalistaflokksins, Alþýðubandalagsins, Þjóð-
varnarflokksins og Samtaka hernámsandstæðinga
er ekki sízt að sívaxandi hluti íslenzku þjóðarinn-
ar virðist vera að vakna til vitundar um að ósæmi-
legt sé að leggja ísland undir erlendar herstöðvar.
Stórir hópar af æsku landsins vilja ekki herstöðv-
ar né hernaðarbandalag. Manndómsmestu skáld
þjóðarinnar og listamenn skipa sér fast um ís-
lenzkan málstað. í sjálfum hernámsflokkunum rísa
menn til einbeittrar andstöðu gegn undirlægju-
hætti og ræfildómi ráðamanna flokkanna, í sjón-
varpsmálinu, í hernámsmálunum almennt. Það er
þessi hreyfing, þessi aukni hljómgrunnur hins ís-
lenzka málstaðar, sem veldur forystumönnum her-
námsflokkanna áhyggjum í nálægð þingkosning-
anna. En þeim verður tæplega treyst til að standa
uppréttir andspænis bandarísku valdi, svo oft og
fúslega og djúpt hafa þeir lotið. Þess vegna óttast
þeir kosningarnar í sumar. — s.
Frá Skákþingi Reykjavíkur
23. exf6
24. Rxf7+
Dxg3
Gefið.
Þégar þessar línur eru ritað-
ar, er lokið 4 umferðum af 7
í úrslitakeppni meistaraflokks
á Skákþingi 'Reykjavíkur. í A-
flokki er Benóný Benediktsson
efstur með 3'/j v. 2. Björn
Þorsteinsson 2V2 v. og biðskák.
3.—4. Gylfi Magnússon og
Trausti Björnsson, 2 vv 5.
Haukur Angantýsson, lVz v.
og biðskák. 6.—7. Jón Þór og
Tryggvi Arason, l1/, v. 8.
Frank Herlufsen, Vz v.
Frammistaða Benónýs er
mjög athyglisverð, því hann
hefur lítið teflt í kappmótum^.
undanfarin ár. Björn og Hauk- |
ur virðast einna helzt geta ;
ógnað sigri Benónýs, en bið- j
skák þeirra virðist heldur hag- j
stæðari fyrir Hauk.
í B-flokki er Bragi Björns-
son efstur með 4 v. 2. Pétur
Eiríksson, 2% v. 3. Jónas Þor-
valdsson, 2 v. og biðskák.
í I. flokki er Guðm. Vig-
fússon efstur, hefur hlotið 6%
v.^óg biðskák í 9 umferðum.
2. Ingólfur Hjaltalín, 6V? v. 3.
—4. Júlíus Friðjónsson og Jón
Þorvaldsson, 6. v.
Finnur Kr. Finnsson er efst-
ur í II. flokki með 6 v. af 8
mögulegurrt. 2.—3. Gunnar B.
Arnkelsson og Árni Magnús-
son, 5Vz v.
í unglingaflokki eru Barði.
Þorkelsson og Jóhannes Ás-
geirsson efstir eftir 6 umferðir
með 5 v. 3. Magnús Gylfáson,
3. v.
Við skulum svo að lokum
líta á þrjár skákir frá mótinu.
MEISTARAFLOKKUR
B-úrslit
Hvítt: Pétur Eiríksson.
Svart: Harvey Georgsson.
MIÐBRAGÐ
/ 1
1. e4 e5
2. d4 exd4
3. c3 d5
Öruggasta leiðin. Ef 3. —
dxc3 4. Bc4 (eða 4. Rxc3, d6 5.
Bc4, Rc6 6. Rf3 með þekktri
stöðu úr Skozka leiknum). 4.
—, cxb2 5. Bx)b2, 'd5 með flók-
inni stöðu, sem byrjanabækur
tefia hagstæða svörtum.
4. exd5 Dxd5
Enn öruggara er 4. —, Rf6.
5. Rf3 Bg4
6. Be2 Rc6
7. cxd4 0—0—0
8. Be3 Bb4+?
Biskúpinn stendur ekki vel
á b4. Betra var 8. —, Rf6 9.
Rc3, Da5 10. .0—0, Bd6 með
jafnri stöðu.
9. Rc3 Da5
10. 0—0 Bxc3
11. bxc3 Dxc3?
Sjálfsmorð. Betra var 11. —,
Rf6.
12. Hcl Da5
13. Hxc6!--------
Glæsileg fórn, sem tætir
sundur svörtu kóngsstöðuna.
13. ----Bxf3
Eftir 13. —, bxc6 14. Re5,
Bxe2 15. Dxe2 er svartur varn-
arlaus gegn hinum fjölmörgu
hótunum hvíts.
14. Bxf3 bxc6
15. Db3 Re7
16. Dxf7 Db4
Bezta vörnin, því svarta
drottningin bæði valdar Re7
og kemur í veg fyrir Hbl.
17. Bg5 Hde8
Eftir 17. —, Hhe8 18. a3, Dd6
19. Hel er svartur einnig glat-
aður.
18. De6f Kb7
Eftir 18. —, Kb8 19. Bxe7,
Hxe7 20, Dxe6 neyðist svartur
til að leika 20. —, Kc8 og
kemur þá upp sama staðan og
í skákinni.
19. Bxe7 Hxe7
Ekki dugar 19. —, Dxe7
vegna 20. Hblt og svartur
verður mát.
20. Dxc6 Kc8
21. Da8f Dd7
21. —, Db8 22. Bg4f, Hd7
23. Dxb8f, Kxb8 24. Bxd7 er
auðvitað jafn vonlaust fyrir
svartan.
22. Dxh8 Dxd4
Síðasta vonin, 23. Hdl??,
Dxdlf 24. Bxdl, Hel mát.
23. g3 og svartur gafst
upp.
I. FLOKKUR
Hvítt: Jón Þorvaldsson.
Svart: Björgvin Guðmundsson.
CARO-KANN
1. e4
2. d4
3 Rc3
c6
d5
dxe4
4. Rxe4 Rd7
5. Rf3 Rgf6
6. Rg3, e6
7. Bd3 Be7
8. 0—0 Dc7
9. c3 0—0
10. Dc2 c5
11. Bg5 h6
12. Bd2 b6
13. Dcl! e5?
14. Rf5 He8
15. Bxh6! gxh6
16. Dxh6 Bf8
17. Dg5f Kh8
18. Dh4f Kg8
19. Dg3f Kh8
20. Rg5 Rb8
21. dxe5 Bxf5
22. Bxf5 Bh6
II. FLOKKUR
Hvítt: Valdimar Tómasson.
Svart: Einar,-M. Sigux'ðsson.
SIKILEYJARVÖRN
1. e4
2. Rf3
3. - d4
4. Rxd4
5. Rc3
6. Bc4?
7. Dd3?
8. De2
9. Bf4
10. Dxc4
11. Rdb5
12. 0—0—0
13. a3
14. axb4
15. Bg3
Gefið.
\ c5
I Rc6
cxd4
Rf6
e6
Bb4
Re5
Dc7!
pxc4
Rxc4
0—0
a6!
axb5
Rxe4!
RxcS
Bragi Kristjánsson.
Hafsteinn Hansson við bil á annarri gryí.iunni í smurstöð sinni. í gryfjunum eru lyftur, sem geta
lyft bílunum aðeins frá gólfi. Mynd G. O.
- Um Verzlunarmannahelgina í
sumar var opnuð ný smurstöð
við Reykjavíkurveg í Hafnar-
firði, sem er vissulega nokkurr-
ar athygli verð, ekki sízt fyrir
þá sök, að sú þjónusta, sem
smurstöð vjeitir bíleigendum, er
einhver hin mikilvægasta, sem
þeir þurfa á að halda til við-
halds ökutækjum sínum.
Hafsteinn Hansson rekur
stöðina í leiguhúsnæði hjá Ol-
íufélaginu hf. (Essö). Þar inni
er rúmgott og bjart og snyrti-
legt, þó ekki hafí að vísu verið
gengið frá öllu til fullnustu.
Inni á stöðinni hittum við Haf-
stein að máli:
— Ég byrjaði að reka smur-
stöð hér í Hafnarfirði fyrir
þremur árum oog byrjaði bá
í gamalli stöð héma niðri í
Lækjargötu, en fór fljótlega að
JlUgsa til stækkunar. Þá fékk
ég þessa lóð hjá bænum, en
eftir því sem kaupin gerðust á
eyrinni urðu framkvæmdimar
mér ofurefili og lét ég Olíufé-
laginu lóðina eftir með for-
leigurétti að smurstöðinni. Hana<^.
teiknaði ég sjálfur og skipu-
lagði.
Eins og þú sérð hef ég tvær
gryfjur, sem bílarnir aká inn á,
en lyfta, sem hér á að vera er
ókomin. Það er nú einu sinni
svo, að margir menn viljaláta
lyfta bílunum upp til að geta
skoðað undir þá jafnframt þvf
sem smurt er.
Hér verður í framtíðinni
þvottastöð og hérna fyrirfram-
an er benzínsala og Bílanesti,
þar sem seldar eru ýmsarveit-
ingar, en þar er jafnframt bið-
stofa fyrir þá, sem eru að láta
smyrja, eða bíða eftir plássi
fyrir bfla sína. ' Þarna geta
menn svo fengið sér hressingu
ef menn vilja á meðan beir
bíða.
Þegar allur tækjaútbúnaður,
sem. hér á að vera í framtíð-
inni verður kominn f gang,
verður hægt að smyrja, bóna
og ryksuga bílinn undir sama
þakinu. Alls er húsið 440 fer-
metrar með benzínafgreiðsl-
unni, en hún er ekki á mínum
vegum.
Þegar lyftan er komin og öll
tæki, sem með þarf, væri hægt
að afgreiða hér um 100 bíla á
dag með því að vinna frá kl.
8 á morgnana til kl. 7 á kvöld-
in. Gryfjumar eru að mínuviti
til mikils tímaspamaðar. Sam-
gangur er á mi;lli þeirra og
mennimir þurfa ekki að koma
upp á ,,yfirborðið“, þó að þeir
fari að vinna að öðrum bíl.
Eitt er það nýmæli, sem ég
tók upp þegar í upphafi. Ég
held spjaldskrá yfir alla bfla,
sem hingað koma til þjónustu.
Þannig geta menn alltaf vitað
hvenær bíllinn var síðast
smurður, hvaða olíu er á hon-
um og hvort nokkuð sérstakt
hefur verið gert. Margir hirða
ekki um að halda slíka spjald-
skrá sjálfir og er að þessu mik-
ið hagræði bæði fyrir bflaeig-
enduma og sjálfan m’ig.
Ég vildi mega taka þaðfram
við þetta tækifæri, að við á
smurstöðvunum getum ekki
veitt eins fullkomna þjónustu
og við þó vildum, - vegna þess
að þetta mun vera eina bíla-
þjónustan fyrir utan dekkjavið-
gerðir, sem er háð verðlagseft-
irliti. Með því hámarksverði,
sem okkur er skammtað, getum
við ekki leyst af hendi margt
það sem væri til stórra hags-
bóta fyrir bíleigendur, sem vilja
vanda til viðhalds á bfhim sín-
um.
Það þarf náttúrlega ekki; að
taka það fram, að til þess' að
geta innt þessa þjónustu sómá-
samilega af hendi, þarf mikla
starfsreynslu og góða og tna.usta
menn, vandvirka og kúrináttu-
sama.
Um nýtingu þessarar atvinn.u-
greinar er það að seg.ia, að húri
er nokkuð jöfn allan ársips
hring, nema yfir sumarlpyfisi-
mánuðina, þá er of , miki.ð . .þð
gera. En það eru ekki nerna
þrír mánuðir af árinu.
Frá Raznoexport, U.S.S.R.