Þjóðviljinn - 19.02.1967, Side 5
Sunnudagur 19. febrúar 1967 — ÞJÖÐVHJXNN — SfDA g
Þeir hlutu gullmerki Handknattleiksráðs Reykjavíkur. Frá vinstri: Hannes Þ. Sigurðsson, Sigurð-
ur G. Norðdahl, Valdimar Sveinbjörnsson, Grímar Jónsson og Árni Árnason.
Handknattleiksráð
Reykjavíkur 25 ára
Skíðamót og skíða-
kennsla á Húsa vík
Engan sem stóð að stofnun
Handknattleiksráðs Reykjavík-
ur fyrir 25 árum mun hafa ór-
að fyrir því að eftir 25 ár yrði
það eitt af stórveldunum innan
íþróttahreyfingarinnar í dag.
Það hefði engum dottið í hug
að handknattleiksmenn hér
gætu boðið beztu liðum heims
jafnan leik, og að einmitt
handknattleikur væri sú íþrótt
á íslandi sem lengst væri kom-
in allra íþrótta á alþjóðamæli-
kvarða.
í dag, eftir þessi 25 ár, geta
brautryðjendurnir litið yfir
farinn veg með nokkru stolti
og glaðst með þeim sem tekið
hafa upp merkið á hverjum
tíma og flutt það lengra og
lengra framávið og við þessi
tímamót náð þessum árangri.
Það var stjórn íþróttasam-
bands íslands, sem stofnaði
þetta handknattleiksráð 29.
jan. 1942, eftir að hafa þrem
dögum áður samþykkt reglur
fyrir það til að starfa eftir.
Fyrsti formaður ráðsins var
kjörinn af ÍSÍ Baldur Krist-
jónsson fimleikakennari. Á
stofnfundinum voru kjörnir sem
fulltrúar í ráðið þessir menn:
Þráinn Sigurðsson Fram, Sig-
urður Ólafsson Val, '-Sigurður
G. Norðdahl Ármanni, Sigur-
jón Jónsson KR, Þorlákur Þórð-
arson Víking og Sigurpáll Jóns-
son ÍR.
Til að byrja með var starf-
semin ekki stórbrotin og sner-
ist mest í kringum handknatt-
leiksmót þau, sem haldin voru
hér í Reykjavík og fóru þá
fram í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar, og til gamans má
geta þess áð í lok fyrsta
starfsárains voru hreinar
eignir ráðsins kr. 235,55.
Hálogalandshúsið
Verulegur skriður kemst þó
ekki á starfsemina fyrr en
íþróttafélögin fá til umráða
Hálogalandshúsið eftir stríðs-
lok. Afnot þess var stórt stökk
framávið, og satt að segja eitt
af ■ furðum tímans, hve langt
handknattleiksmenn náðu við
þau skilyrði. Og satt að segja
hefur það brotið í bág við
allar kenningar um möguleika
til þroska i svo litlu húsi. Það
hefur orðið ráðgáta margra
gesta sem hingað hafa komið
og leikið í Hálogalandi.
Annað atriði í starfi ráðsins
hafði gífurleg áhrif á þroska
og þróun handknattleiksins og
það var, þegar breytt var um
mótafyrirkomulag, og svo
deildaskiptíngin. Þetta hafði
ennfremur í för með sér aukna
og . báetta fjárhagsafkomu, ( en
þó fyr*t og fremst betri íiýt-
ingu keppnistímabilsins.
Þá voru samskiptin við er-
lend handknattleikslið, og þá
fyrst við norræn lið sem höfðu
sín miklu og góðu áhrif. Þá
fóru menn að sjá hvernig góð
erlend lið léku, og um leið að
reyna getu sína við þau. Það
var ójafn leikur til að byrja
með, en 'það sótti stöðugt í
rétta átt, og þar var Hand-
knattleiksráð alltaf hinn virki
kraftur, sem stuðlaði að öllu
þessu með ráðum og 'dáð.
Eitt er enn sem sannarlega
hefur gert sitt til að bæta
handknattleikinn hér, og það
er, að dómarar hafa lagt sig
fram um að túlka leikreglur
sem næst anda þeirra. Kann
þetta að þykja furðuleg kenn-
ing, því að alltaf er grunnt
á aðfinnslum við dómarana, og
oft mikil sök hjá þeim fundin.
En maður sem hefur séð
dómara á stórmótum erlendis
hefur dálitla aðstöðu til að
gera samanburð, og hún er
sannarlega hagstæð íslenzkum
handknattleiksdómurum, þó að
þeir geti að sjálfsögðu verið
misjafnir.
Afmælishátíðahöld
Eins og sagt hefur verið frá,
efndi Handknatt.leiksráðið til
bæjakeppni milli Reykjavíkur
og Kaupmannahafnar, og fór
veí .á því, eins og borgarstjór-
inn, Geir Hallgrimsson, komst
að orði við hina smekklegu
setningu þess móts, og hann
bætti við „að það var ekki ráð-
izt á garðinn þar sem hann var
lægstur“.
- Handknattleiksmenn okkar
sýndu enn einu sinni að það
bezta erlendis er ekki á neinn
hátt óviðráðanlegt fyrir þá,
síður en svo, og þó voru þarna
margir ,silfurmenn“ frá Dan-
mörku. Margir munu þeir hafa
verið hér sem fyrirfram töldu
að í þetta sinn mundi. borgar-
lið okkar láta verulega í minni
pokann fyrir hinu ágæta liði
frá Kaupmannahöfn. — Dönsk
blöð höfðu einnig fyrir leikina
talið að þetta yrði léttur leik-
ur fyrir þetta danska lið sem
sent var. Raunin varð allt önn-
ur, bæði hvað snertir íslenzka
áhugamenn og danska íþrótta-
blaðamenn. Þetta mega kallast
verðug laun til HKRR fyrir
gott starf á liðnum '25 árum,
og kemur þægilega við áhuga-
manninn og stjórnendur hand-
knattleiksmálanna. Þessi heim-
sókn hinna dönsku handknatt-
leiksmanna er því merkilegur
þáttur í þessu hátíðahaldi
HKRR.
í sambandi við þennan leik
gaf Handknattleiksráðið út
mjög vandaða leikskrá, þar
sem rakin er frá ári til árs
stuttlega saga ráðsins í þessi
25 ár, og kemur þar ýmislegt
fram og fróðlegt.
Lokaþáttur þessara hátíða-
halda var samsæti það, er
HKRR gekkst fyrir á Hótél
Sögu s.l. sunnudagskvöld, en
það var framkvæmt með mikl- ■
um myndarskap, hugkvæmni
og hátíðleik, þar sem mikils
hófs gætti í hvívetna.
Dagskráin var hin skemmti-
legasta og vakti það ekki litla
athygli er öll ljós voru slökkt
og um sali gengu þjónar með
blysum þar sem fyrir var kom-
ið á hionn smekklegasta hátt:
í gamni og alvöru
Mörg ávörp voru flutt og
voru þau undursamlega
skemmtilegt sambland af gamni
og alvöru; það getur nefnilega
verið svo skemmtilegt að vera
ekki alltof hátíðlegur jafnvel
við hátíðleg tækifæri.
Veizlustjórinn byrjaði vel og
gaf „tóninn". Lýsti mikilli
undrun sinni yfir því að hafa
fengið þessa virðingarstöðu, og
skildi það ekki alveg.
Hann sagðist þó hafa viljað
reyna að kanna þetta, og fór
blátt strik uppá Þjóðminja-
safn og fletti þar 10 árgöngum
dagblaðanna, og honum til mik-
illa vonbrigða sá hann nafn
sitt þar hvergi í sambandi við
handknattleik, en hann sá ann-
að, að því er hann sagði: Ein-
mitt þegar að hann hætti að
iðka handknattléik tók leikn-
um að fara fram, og þá þótt-
ist hann skilja hversvegna hann
væri nú þarna kominn: Veizlu-
stjórinn var Valgarð Briem.
í hófinu var margt góðra
gesta. þ.á.m. borgarstjórinn í
í Reykjavík og Gylfi Þ. Gísla-
son menntamálaráðherra.
Gylfi ávarpaði samkvæmið
og handknattleiksmenn, og
þakkaði HKRR gott starf í 25
ár, sem ætti sinn þátt í því að
handknattleikur á íslandi væri
á heimsmælikvarða. Hann
skýrði þetta fyrirbæri einfald-
lega með því að handknatt-
leiksmenn hefðu greindar-vísi-
tölu langt fyrir ofan meðallag,
og ef til vill mesta allra í-
þróttamanna á íslandi. Var
gerður sérlega góður rómur að
þessari uppgötvun mennta-
málaráðherrans!
Formaður Handknattleiks-
sambandsins var ekki lengi að
undirstrika þessi ummæli ráð-
herrans, og benti á, að ef far-
ið væri yfir nafnalistann í 25
ára sögu HKRR, væri allflest
af því fólki sem þar hefur
starfað nú í ábyrgðarstöðum í
þjóðfélaginu. Handknattleiks-
íþróttin hefur síðar notið. stuðn-
ings þessara manna og krafta
í uppbyggingarstarfinu, sagði
Ásbjörn ennfremur. — Hann
þakkaði ráðinu gott samstarf
og langa forustu um hand-
knattleiksmálin.
Baldur Möller formaður iBR
ávarpaði afmælisbarnið og árn-
aði því heilla og taldi það geta
horft björtum augum fram á
við, og gat í því sambandi
íþróttahallarinnar nýju. Bald-
ur sagðist og vilja taka það
fram vegna greindarvísitölu
handknattleiksmanna að hann
hefði auðvitað stundað hand-
knattleik lengi frameftir!
Þá flutti stutt erindi dr.
Finnbogi Guðmundsson um
handknattleik og kom víða við.
Finnbogi var á sínum tíma einn
bezti handknattleiksmaður hér
í borg, og þótt Finnbogi vekti
ekki sérlega athygli á greind-
arvísitölunni í ræðu sinni,
þótti okkur hinum sem þarna
væri enn ein sönnunin fyrir
kenningu ráðherrans!
Heiðursmerki
Ávarp flutti og formaður
handknattleikssambands Kaup-
mannahafnar, Börge Mathiesen,
og óskaði HKRR til hamingju
með afmælið, o^ þakkaði frá-
bærar móttökur! Hann lét i
Ijós þá ósk að gaman væri
að sjá borgarlið Reykjavíbur
í Kaupmannahöfn, en ekki
kvaðst hann geta ákveðið tíma.
I hófinu voru nokkrir menn
sæmdir heiðursmerkjum fyrir
vel unnin störf í þágu hand-
knattleiksins, og annaðist for-
maður ráðsins, Jón Magnússon,
það. Gullverðlaun hlutu 5 menn
en það voru: Valdimar Svein-
björnsson „faðir“ handknatt-
ieiksins hér á landi, Grímar
Jónsson. Sigurður G. Norðdahl,
Hannes Þ. Sigurðsson og Árni
Árnason.
Þá var öllum formönnum
ráðsins frá upphafi veitt merki
ráðsins á gylltum grunni, en
þeir eru auk Sigurðar Norð-
dahl, Hannesar Þ. Sigurðsson-
ar og Árna Árnasonar. sem
fengu gullmerkin:
Baldur Kristjónsson, Sigurð-
ur Ólafsson, Sigur.ður Sigurðs-
son. Sigurlaugur Þorkelsson,
Sigurður Magnússon, Bjarni
Guðnason, Hafsteinn Guð-
mundsson. Jón Erlendsson,
Karl G. Benediktsson, Stefán
Gunnarsson, Óskar Einarsson,
Magnús R. Jónsson, Birgir Lúð-
víksson, Jóhann Einvarðsson og
núverandi formaður Jón Magn-
ússon.
Aðrir í stjórn ráðsins eru:
Karl H. Sigurðsson Val, Birg-
ir Lúðvíksson Fram, Haukur
Þorvaldsson Þrótti, Birgir
Magnússon ÍR, Davíð Jónsson
Ármanni og Árni Árnason.
Hér er ráðinu ámað heilla
og velfamaðar.
Frimaun.
HÚSAVÍK — Fyrra sunnudag
efndi Skíðaráð í. F. Völsungs
til afmælismóts í svigi í Skála-
mel við Húsavík. Keppt var í
karlaflokki og þrem *aldurs-
flokkum unglinga.
Úrslit í karlaflokki urðu sem
hér segir:
1. Bjarni Aðalgeirsson
2. Hreiðar Jósteinsson
3. Aðalsteinn Karlsson.
í flokki drengja, 15 til 16
ára, urðu úrslit þessi:
1. Björn Haraldsson
2. Þórhallur Bjarnason
3. Bjarni Sveinsson.
í flokki drengja 13 til 14 ára:
1. Haraldur Haraldsson
2. Kristján Ásgrímsson
3. Benedikt Geirsson.
í flokki drengja 11—12 ára:
1. Jósteinn Hreiðarsson
Sveinameistaramót íslands i
frjálsum íþróttum innanhúss
var háð í Keflavík sunnudag-
inn 5. febrúar.
Helztu úrslit urðu sem hér
segir:
Hástökk án atrennu
Björn Kristjánss. KR 1,35
Skúli Arnarson IR 1,35
Elías Sveinsson ÍR 1,25
Kristinn Aðalsteinss. ÍR 1,20
Ólafur Sigurðsson KR 1,20
Þorsteinn Kristinss. ÍR 1,20
Hástökk með atrennu
Skúli Árnason ÍR 1,60
Stefán Jóhannsson Á 1,60
Elías Sveinsson ÍR 1,60
2. Böðvar Bjarnason
3. Sigfús Haraldsson.
í. F. Völsungur hefur komið
upp ágætri skíðalyftu í Skála-
mel. Er hún 300 metra löng og
skilar skíðamönnunum upp á
brún á 50 sekúndum.
Skíðamenn Völsungs hafa
staðið að þessari framkvæmd,
bæði ungir og gamlir. Öll vinna
við skíðalyftuna í Skálamel er
unnin í sjálfboðavinnu og hafa
unglingarnir verið sérstaklega
áhugasamir við þetta verk.
Um þessar mundir er á Húsa-
vík hinn landskunni skíðakappi
Svanberg Þórðarson frá Ól-
afsfirði og kennir ungum og
gömlum á skíðum. Hefur hann
mikið að gera. Hann er ráðinn
hingað til Húsavíkur á vegum
þriggja aðila, Barnaskóla Húsa-
víkur, Gagnfræðaskóla Húsa-
vikur og í. F. Völsungs.
Björn Kristjánss. KR 1,50
Ólafur Sigurðss. KR 1,50
Þorvaldur Baldurss. KR 1,45
Þristökk án atrennu
Árni Sigurðsson ÍA 8,25
Skúli Arnarson ÍR 8,04
Þorvaldur Baldurss. KR ' 8,02
Elías Sveinsson ÍR 7,66
Helgi Helgason KR 7,56
Stefán Jóhannsson Á 7,49
Langstökk án atrennu
Árni Sigurðsson ÍA 2,73
Elías Sveinsson ÍR 2,71
Skúli Arnarson ÍR 2,62
Þorvaldur Baldursson KR 2,62
Helgi Helgason KR 2,57
Steinar Jóhannsson ÍBK 2,54
Kuldajakkar og úlpur
í öllum stærðum. Góðar varur — Gott verð.
Verzlunin O.L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikbúsinu)-
(gntineníal
SNJÓHJÓLBARÐAR
MED NÖGLUM
sera settir eru í, meS olckar full-
komnu sjálívirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó ög
hálku.
Nú er allra veðra von. — BíðiS
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
F.Bj.
Sveinameistaramót-
ið háð í Kefíavík