Þjóðviljinn - 19.02.1967, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 19.02.1967, Blaðsíða 11
Sunnudagur 19. fébrúar 1967 — ÞJÖÐVTLJINN — SlÐA |J' Sjón er sögu ríkari Frámhald af 2. síðu. ir í góða værð þegar enn er bánkað, og kémið er með vega- bréf okkar .og farseðla — og allt í lagi. S Til Berlínar Lestin lagði af stað frá Warnemúndá' um miðnætti og kom innan skamms til Rostock — félagar mínir voru þá þeg- ar sofnaðir og virtust melta flotsúpu sína án þrauta. Á járnbrautarstöðinni í Ros- tock voru teknir, farþegar og farangur. Ég opnaði gluggann betur ög rak út höfuð og herð- ar til að sjá mig betur um. Að stundu liðinni kemur mað- ur undir gluggann og hrópar og spyr á þýzku, hvort við sé- um íslendingarnir, og játa ég því. Þá hrópar hann eitthvað fleira, en ég skil ekkert og tala því til Ingimars, sem var þó nokkuð fær í þýzku, og bið hann áð anza manninum. Hann var þá bara að segja okkur að þáð yrði tekig á móti okkur í Berlín, þegar við kæmum þangað með morgninum. Þessu hafði hann víst gleymt að skila um leið og hann afhenti okkur vegabréfin en ég hélt að hann Væri að banna mér að vera út um gluggann. ;Svo var lagt af stað frá Rostock út í kolsvarta nóttina. Ég bragðaði á koníaksblöndu sem ég átti • í glasi — það fékkst nefnilega svo ódýrt koníak um borð í járnbrautar- ferjunni að það var bara ekki hægt að standast það, eða um 140 kr. ísl.. þriggja pela flaska. Datt. mér í hug að kannski reyndist þetta gott svefnmeðal, en það varð nú samt ekki. En ágætlega leið manni í hvílunni — en þær snúa þversum í lestinni. Fljótlega hrekk ég við, því vatn gusast inn um gluggann, og loka hcnum í skyndi. Er nú farið að rigna með slíkum ó- sköpum, sem ég þekkti ekki fyrr, og síðan kveður við þrúmugnýr mikill og ljósblá bg Ijósrauð leiftur blika með stuttu millibili og lýsa upp klefann. Ekki var þetta nú skemmtilegt veður, þótt hins- vegar væri gaman fyrir mig .að, kynnast því., Það er auðheyrt að lestin fer ekki’ nærri fulla ferð, og svo stöðvast hún, og, er alllang- ur stanz — er mér nær að halda að þessi stanz hafi verið i sambandi við veðrið, því ekki varð ég var við nokkra af- gréiðsiustöð þarna. Síðan er haldið áfram og það smá dreg- ur úr regninu og þrumugnýn- um, myrkrið er biksvart. En vinir mínir sofa svefnin- um. væra og hafa engan grun urö' hvað á hefur gengið. . Það eru fáir viðkomustaðir,, það hættir að rigna og fer að birta.,Þegar lestin þýtur fram- hjá.hávöxnum beinstofna skógi er þyi .líkast sem trjáamergðin dansi villtan dans, og er það furðuleg sjón. Ög nú nálgumst við Berlín ]— það kemur hreyfing á Leif og Ingimar og þeir renna sér niður á gólfið. Nei — ég hef iekki sofnað blund en ögn bragðað á koníakinu. Þegar við förum fr'amhjá lágvöxnum laufskógi sjáum við lítil fá- tækleg hús ' í skóginum og þvott á snúrum. Eru þetta nú híbýli áumih'éjá fólksins hugs- um við'. En sýo’var ekki. Skóg- urinn. var swmarparadís borg- arbúa og þar þurfti ekki að kosta miklu til húsnæðis. Innan skamms erum við á járnbrautarstöðinni í Berlín. KIuTckah ér ííálf 6 að morgni. Guðrún oq Frank J • • • Oc ■ ■ Og þau biðu eftir okkur á stöðinni, hún Guðrún og hann Frank — Guðrún Hallgríms- dóttir frá Reykjavík, sem stundar nám í DDR og ætlaði að vera túlkur okkar, og A. Frank frá Berlín, sem átti að vera okkar leiðsögomaður og fræðari, og varð það með mikluna. ágaetum. Hann var meðalmaður á hæð, þrekvax- inn, byrjaður að grána á hár, góðlegur á svip, hæglátur. Hafði starfað í neðanjarðar* hreyfingunni frönsku á stríðs*- árunum og kannski ekki beðið þess bætur. Ég sá að honum varð furðu bylt við óvæntan skell, sem varð í nánd við okkur á gistihúsL Og ef ég lýsti Guðrúnu fyrir ykkur, sem ekki hafið séð liana né heyrt, þá mundi ég segja að hún væri allt í senn falleg, gáfuð og skemmtileg, og hefði gizkað á að hún væri Í8 ára. Hún túlkaði mikið og vel fyrir okkur og hlífði sér hvergi, þótt þetta væri þreyt- andi starf dag eftir dag. Þau fóru með okkur á gisti- hús þar sem við gátum haft það gott næstu 3 tíma, en síð- an áttum við að halda áfram ferðinni til Leipzig í stórum farþegabíl, sem á þýzku var nefndur „búss“. Þau kynntu okkur áætlun um það sem við ættum í vænd- um í landinu, og síðan gengum við út um stund áður en lagt yrði af stað. Blíðviðri var og sól skein hátt á lofti, og þann- ig skein hún flesta dagana sem við vorum í landinu. Til Leipzig Það var lagt af stað kl. hálf 10 til Leipzig. Vegurinn var steinsteyptur og einstefnuakst- ur alla leið, og ók bílstjórinn með jöfnum hraða — ekki mjög hratt og varð maður þess lítið var að bíllinn væri á ferð. Það var mjög heitt þennan dag, og sérstaklega inni í bíln- um — sótti svefn á fólkið og sváfu ýmsir í sætum sínum. Þó voru ungir Rússar þarna svo sprækir að þeir hófu kátan söng — en með okkur' í bíln- um voru sendinefndir frá Sov- étríkjunum og Noregi. — Það voru sem sér þarna í landinu samtímis sendinefndir frá öll- um Norðúrlöndunum, og svo Sovétríkjunum, Póllandi og Vestur-Þýzkalandi, og var þessu þannig hagað vegna fyr- irhugaðrar setningar Eystra- saltsvikunnar í Rostoek næsta sunnudag, þann 10. júlí. En Eystrasaltshreyfingin er kunn friðarsamtök fólks í þeim löndum er liggja að Eystra- salti, þótt fólk frá fleiri lönd- um taki þátt í hátíðahöldum vikunnar, þar á meðal íslend- ingar. Allar voru þfessar sendi- nefndir mun fjölmennari. en við íslendingarnir, t.d. voru 30 frá Danmörku. Við tókum fljótt eftir því, að Sovétmenn og Pólverjar voru miklu létt- lyndari en Norðurlandabúarn- ir, en Norðmenn fannst mér einna léttlyndastir af Norður- landabúum. Mig sótti nú ákaft svefn þarna í bílnum, og lá við að dytti af mér hausinn hvað eft- ir annaðf en ég ætlaði alls ekki að láta það eftir mér að sofna á þessari ferð um hádaginn, heldur ætlaði ég að sjá land- ið. En víða var hávaxinn skóg- ur meðfram veginum og byrgði útsýnið, annarsstaðar var rýmra um og sá maður þá víð- lend ræktarlönd, mest korn- akra og var þroski kornsins vel á veg kominn. Tún voru hinsvegar víðast slegin og hirt og sumsstaðar var farið að slá kornið. Þá sá maður víðáttumikla akra af grænfóðri og garðá vöxtum, og var víðast í þeim unnið að illgresiseyðingu, bæði með handafli og véltækni. Hvarvetna var trjágróðurinn til skjóls og prýði líkt og í Danmörku, en virtist hér enn stórvaxnari. Við komum til Leipzig eftir fjögurra tíma akstur eða kl. hálf eitt, og var farið með okkur á Hótel Astoria. Fengum við þar eins manns herbergi með baði og dásamlegan mat, og nutum svo lífsins í hvíld síðari hluta dagsins og sofnaði ég þá iy2 tíma. Um kvöldið fórum við á ævagamla bjór- krá (450 ára) og þótti okkur það allskrýtinn staíiur. (Frh.). Kvikmyndaklúbhur Framhald af 7. síðu. Hann leitaði aðeins að efni- viði, sem hann gæti notað _til að segja frá dáserrtdum ír- lands, náttúru og þjóð. Þögli maðurinn eftir Maurice Walsh varð fyrir valinu. Aðalleikend- ur í kvikmynd Fords Þögla manninum eru John Wayne og Maureen O’Hara. — Þegar sýningu bandarísku kvikmyndanna er lokið sýnum við Oktobr, þögla kvikmynd sem Eisenstein gerði 1927—28 um Októberbyltinguna — og síðan þrjár nýlegar sænskar myndir. Tveimur þeirra, Barnavagh- inum og Kvarteret Korpen hefur Bo Widerberg stjórnað og er sú síðarnefnda tekin í fátækrahverfi í Stokkhólmi. Bo Widerberg rekur uppruna sinn sem kvikmyndastjóra til bókmenntanna og fyrstu af- skipti hans af kvikmyndum lofuðu ef til vill ekki sem beztu. Hann skrifaði grein sem nefndist Visionen i svensk film, þar sem hann reyndi að sýna fram á að sænsk kvik- myndagerð hefði rofnað úr tengslum við raunveruleikann. Hann fékk því orð í eyra hjá hinum „gömlu“ meisturum þegar fyrsta mynd hans Barna- vagninn var frumsýnd. Leiðar- ljós Widerbergs er Godard og Truffaut, sem sagt franska hrynjandin. Þrátt fyrir þetta skyldi eng- inn ætla að ekki eimi ennþá eftir af fyrirrennurum Wider- þérgs í myndum hans ekki sízt í Barnavagninum. Samband stúdentsins við móður sína. þótt sú síðarnefnd', aldrei er dæmigert. Jörn Donner: Oft mistekizt... Sunnudagúr í september eft- ir Jörn Donner, síðasta mynd- in sem sýnd verður á þessu misseri, er sýnishorn af hjóna- bandi ungs manns og ungrar konu. Myndin skiptist í fjóra hluta, en upphafið er eins konar forleikur þar sem blaða- maður tekur fólk tali á götum Stokkhólms og spyr það spurningarinnar: Trúið þér á ástina? Svörin eru í hæsta móta ólík og verða hvert á sinn hátt að stefi í myndinni. Fyrsti hluti nefnist Ástin, annar Hjónabandið, þriðji'Rof- in og sá fjórði Skilnaðurinn. Myndin er sögð vera einkar sönn lýsing á Svíþjóð. Og það var einmitt sú staðreynd sem fór í taugarnar á gagnrýnend- um. Myndin er vitanlega göll- uð, mjög mörg atriði eru mis- heppnuð, en hún býr yfir ein- stökum og fágætum persónu- einkennum sem eru blessunar- lega laus við „klisju-modern- isma“. Jöm Donner hefur lengi unnið að kvikmyndagerð, oft- ast aðstoðað aðra leikstj., en nú hefur hann sjálfur tekið a. m.k. fjórar myndir: Að elska, sem nú er sýnd í Nýja bíói, Ævintýrin byrja hér, Sunnu- dagur í september og „Root- free“. Hann hefur sett sjálfum sér nokkur lögmál til grund- vallar kvikmyndastjórn sinni og lýsir hann þeim þannig: „Kvikmynd er leikur með víddir. Myndavélin skall með hreyfing- um sínum og færanleik koma á óvart og vekja forvitni. Kvikmynd er list eftirlíkingar- innar. Forðast ber að eltast um of við raunveruleikann. Þess skal ennfremur gætt að við- halda ætíð þeim eðlismun sem er á túlkun og meðferð mynda- vélarinnar annars vegar og augans eins hins vegar á sama fyrirbrigðinu. Hlutverk kvik- myndar er að endurskapa at- burðinn á sinn hátt, ekki að berma eftir. Forðast ber sálgreiningu. Myndin tjái hreyfingu. Óþarft að útskýra allt, aðeins segja sdguna. Fjarlægðin milli mín (þ.e. tökuvélarinnar) og leik- enda tjáir viðhorf siðferðis og fegurðar til veruleikans. Verk- efni mitt er að skapa og stjórna þessari afstöðu. — Oft hefur mér mistekizt: ýmist hefur myndavélin verið of nálægt eða of langt frá sviði atburð- Æ fleiri líta á kvikmyndir sem listgrein — Hvaða myndir sýnduð þið^ á fyrra misseri, Stefán? — Við sýndum indverskar, tékkneskar og franskar kvik- myndaseríur. Því miður feng- um við ekki fyrsta hluta þrí- leiks S. Ray um drenginn Apu en hinsvegar sýndum við tvær seinni myndimar í þríleiknum: Ófeig (Aparajito, 1956) og ^eim Apus (Apus Sansar 1959). Tékknesku myndirnar voru þrjár, sú fyrsta: Og óttinn sit-; ur fimmta hestinn eftir Z. Brynych. Myndin gerist í Prag 1941. Nazistar hafa öll ráð, óg Brynych sýnir hvernig fólkið skiptist í þrjá hópa: Þá sem hafnir eru yfir lögin, þá sem njóta lagaverndar og þá. sem svo að segja eru réttdræpir. Með þessari mynd var sýnd brúðumyndin Ruka eða Hönd- in sem sýnd var í íslenzka sjónvarpinu fyrir skömmu. í tékknesku seríunni var einnig Demantar næturinnar eftir Jan Nemec. Ástir ljós- hærðrar stúlku (1965) ætluðum við að sýna en gátum það ekki af ófyrirsjáanlegum ástæðum. Frönsku myndirnar voru Þokubakki sem Marcel Carnés tók 1938, og mynd Autant- Lara frá 1947: Holdið er veikt. í þessari seríu brást líka ein mynd: Jules et Jim eftir Truffaut. En 1 staðinn fyrir þær tvær myndir sem féllu út af dagskrá ef svo má segja, sýndum við aðrar myndir: Verzlunina við Aðalgötuna og Yoyo. — Að lokum langar mig til að spyrja þig að þvi Stefán hvort þú telur að grundvöllur sé fyrir starfsemi kvikmynda- klúbbs í Reykjavík með al- mennri þátttöku? — Ég er viss um að áhuginn er fyrir hendi; þeim fjölgar stöðugt sem líta á kvikmyndir sem list. Það er verið að kanná möguleika á stofnun slíks k)úbbs en spumingin er hvernig á að framkvæma hana. — R.H. Vidgerðir á skinn- og rúskinnsfatnaði. Góð bjónusta Leðurverkstæði Úlfars Atlasonar. Bröttugötu 3 B. Sími 24-6-78. Smurt brauð Snittur brauð bcer við Óðinstorg. Simi 20-4-90. Augiýsið í Þjóðviljanum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.