Þjóðviljinn - 07.03.1967, Page 1
Þriðjudagur 7. marz 1967 — 32. árgangur — 55. tölublað.
Afttám herstöðva og
hlutleysi íslands
Hluti af þátttakendum i laudsnefndaríundi Samtaka hernámsandstæðinga.
□ Á landsíundi Samtaka
hernámsandstæðinga er
haldinn var um helgina
var samþykkt ályktun
þar sem hernámsand-
stæðingar voru hvattir til
að hvika ekki írá þeim
stefnumiðum sem sam-
þykkt voru á Þingvalla-
fundi um að Samtök her-
námsandstæðinga skyldu
„berjast fyrir afnámi
herstöðva á íslenzkrl
gruhd og hlutleysi ís-
lands í hernaðarátök-
\\
um .
Fundurinn var haldinn í Lind-
arbæ, og' hófst hann síðdegis á
laugardag með ávarpi sem Ragn-
ar Arnalds flutti. Vésteinn Ól-
afsson og Svavar Sigmundsson
voru fundarstjórar á landsnefnd-
arfundinum, en Friðrik Guðni
Þorleifsson og Einar Laxness
ritarar. Loftur Guttormsson
flutti skýrslu framkvæmda-
nefndar og greindi m.a. frá hinni
myndarlegu Listavöku sem hald-
Gils Guðmundsson ræðir bjargráð ríkisstjórnarinnar á Alþingi:
Veigamiklir þættir sjávarútvegs ai
þrotum komnir eftir 7 ára viðreisn
Við 1. umræðu „bjargráðafrumvarps“ ríkis-
stjórnarinnar í efri deild Alþingis í gær lagði ræðu-
maður Alþýðubandalagsins, Gils Guðmundsson, á-
herzlu á hversu illa sjö ára samstjóm Sjálfstæð-
isflokksins og Alþýðuflókksins hefði leikið sjávar-
útveg íslendinga, svo að veigamiklir þættir hans
virtust að þrotum komnir.
★ Gils hóf ræðu sína með
því að • lýsa efni frumvarpsins,
sem hefði að geyma ákvæði um
nokkuð yfir 300 miljónir króna
í uppbætur og styrki. Engu að
síður væri lýst yfir af forystu-
mönnum þeirra, sem njóta eiga,
að ráðstafanir þessar séu ekki
annað en kák.
★ Þannig er komið fyrir
þróttmesta atvinnuvegi íslend-
inga, þeim atvinnuvegi sem átt
hefur stærstan þátt í að byggja
upp íslenzkt efnaliagskerfi og
standa undir framförum og
bættum lífskjörum islendinga
undanfarna áratugi. Þannig er
komið fyrir þeim atvinnuvegi
sem mest hefur lagt í þjóðarbú-
ið og framlcitt 95—96% allra
útflutningsafurða landsmanna.
★ Ástæðan er vissulega ekki
sú að hér sé um einhvern vand-
ræðaatvinnuveg að ræða i sjálfu
sér. Þvert á móti. í honum er
skilað meiri afköstum en nokkr-
um öðrum, meiri afla á skip
en annars staðar, meiri meðal-
afla á mann en þekkist annars
staðar í veröldinni.
★ En ríkjandi stefna í at-
vinnu- og fjármálum hefur leitt
til þess að helzti útflutnings-
atvinnuvegur ofekar er að þrot-
um kominn eftir sjö ára við-
reisn. Þar stendur ekkert upp
úr nema síldveiðarnar, meðan
það varir
Tveir ráðherranna, Eggert G.
Þorsteinsson sjávarútvegsmála-
ráðherra og Magnús Jónsson
fjármálaráðherra . fluttu báðir
framsöguræður fyrir „bjargráð-
unurh“. Næst talaði Helgi Bergs
af hálfu Framsóknarflokksins, en
þá Gils Guðmundsson. Hafði
Gils einungis lokið fyrri hluta
ræðu sinnar er fundartima lguk
og var umræðunni frestað.
Yfirlýsing vegna stöðvunar
þáttarins ,Þjóðfif'2. marz
Á 6. síðu blaðsins í dag birtist yíirlýsing frá
þátttakendum í útvarpsþættinum „Þjóðlíf", sem
flytja átti 2. marz sl. en stöðvaður var af meirihluta
útvarpsráðs.
í þessum fyrri hluta ræðu
sinnar sagði Gils m.a.:
Það skorti svo sem ekki stór
orð og digurbarkaleg, þegar við-
reisnarfleytunni var ýtt úr vör.
Fyrirheitin ekki slorleg. Við-
reisnin átti, ef ég man rétt, að
tryggja atvinnuvegunum varan-
legan og traustan grundvöll!
Gamla bátagjaldeyriskerfið svo-
nefnda var fordæmt. Það voru
þær tilfærslur, sem á þeim tíma
tíðkuðust til að flytja yfir til
sjávarútvegsins hluta af þeim
verðmætum, sem þessi atvinnu-
vegur lagði í þjóðarbúið.
Að vísu mátti tala um tvöfalt
gengi í þessu sambandi, það skal
fúslega viðurkennt. En það tókst
þó á þeim tíma að halda útgerð-
inni gangandi og sjávarútvegi í
sókn við margfalt erfiðari þjóð-
félagsaðstæður(én verið hafa fyr-
ir hendi nokkuy síðustu árin. Þá
voru hin mikilvægu framleiðslu-
Framhald á 6. síðu.
in hefur verið á vegum samtak-
anna að undanförnu og lauk í
gærkvöld. Heimir Pálsson ræddi
um verkefni samtakanna næstu
mánuði, en síðan fluttu þeir
Björn Teitsson og Svavar Gests-
son framsögur um stefnumál
samtakanna. Síðan hófust al-
mennar umræður sem stóðu til
kl. 18,30 á laugardag og héldu
áfram síðdegis á sunnudag, en
landsnefndarfundinum lauk kl.
17 þann dag.
Samþykktar voru tvær álykt-
anir, önnur um verkefni samtak-
anna og hin um stefnumál. Fer
hér á eftir ályktunin um stefnu-
mál:
„Landsnefndarfundur hernáms-
andstæðinga haldinn í Reykjavík
4.—5. marz minnir á að brýn-
asta stefnumál samtakanna er
að bandaríski herinn hverfi úr
landinu, og jafnframt leggur
landsnefndin áherzlu á að mótuð
verði sjálfstæð ' utanríkisstefna.
Landsnefndarfundurinn hvetur
Framhald á 6. síðu.
MaBur fannst látinn
er kviknaði í hási
Um kl. 2,24 aðfaranótt sunnu-
dagsins var slökkviliðinu í R-
vík tilkynnt að kviknað hefði í
húsinu aff Efstasundi 31, sem er
ein hæð og hátt ris. Voru fjórir
slökkviliðsbílar þegar sendir á
staðinn. Litlu síðar var tilkynnt
að óttazt væri að maður væri
inni í húsinu og var þá sendur
þangað sjúkrabíll.
Þegar slökkviliðið kom að hús-
inu logaði út undan þakinu og
var húsið fullt af reyk. Strax
voru gerðar ráðstafanir til þess
að ná manninum út, jafnframt
því sem ''reynt var að slökkva
eldinn.
Maðurinn fannst í fremra her-
bergi í risinu, lá hann þar é
gólfinu og var ekkert lífsmark
með honum. Var hann fluttur a
Slysavarðstofuna en lífgunartil-
raunir voru árangurslausar. Mað-
urinn hét Jón Jóhannsson.
Enginn eldur var í herberginu
þar sem maðurinn lá en mikill
reykur. Hinsvegar var eldurinn í
innra herberginu í risinu og lá
þar rafmagnsofn með glóðarkefl-
um á grúfu og benda líkur tilað
þar sé að finna upptök eldsins.
Var gólfið undir ofninum brunn-
ið og talið að eldurinn hafi far-
ið upp í súðina milli þilja en
'þar var eldurinn mestur. Þurfti
að brjóta múrhúðun og rífa þak-
ið til að komast að eldinum. Var
þetta seinlegt verk, en búið var
að slökkva eldinn kl. 4,15.
Húsið skemmcBst mikið af eldi
og reyk og vatnsskemmdir urðu
á neðri hæðinni, en þar bjóeng-
inn.
Oflendingur í
Síðumúla fyrir
líkamsárás
Á laugardaginn var Mar-
okkóbúi sem býr á City-
hóteli, kærður fyrir að hafa
framið Iíkamsárás á konu.
Maðurinn var handtekinn á
hótelinu kl. 3,10. og viður-
kenndi aff hafa slegið kon-
una eítir að hún hefði sleg-
ið hann. Gerðist þetta á
heimili konunnar.
Maðurinn mun hafa flett
konuna klæðum, troðið
hana fótum og stegið hana
svo aff hún fór úr kjálka-
liðnum. Hann hefur veitt
henni áverka áður en hún
þorði ekki að kæra hann
vegna þess að hann hafði
hótað henni lífláti. f þetta
skipti lét konan þó tilskar-
ar skriða og kærði mann-
inn fyrir Iíkamsárás.
Maffur þessi er atvinnu-
Iaus og einnig vegabréfs-
Iaus og var hann fluttur á
Síðumála.
Þeir fórust með Freyju frá Súðavík
Birgir Benjamínsson
" Vélbáturinn Freyja frá
Súðavík er nú talinn af og er
leit að bátnum hætt. Með
bátnum fórust fjórir menn,
allir frá Súðavík, og faranöfn
þeirra hér á eftir.
Jón Lúðvík Guðmundssan
Birgir Benjamínsson skip-
stjóri, 38 ára, lætur eftir sig
konu, son, fósturbam og þrjú
stjúpböm. ■
Jón Lúðvík Guðmundsson,
Pált Halldórsson
háseti, 17 óra, lsstur efifcir sig
unnustu, Jóm var stjúpsonwr
Birgis skipstjóra.
PáH HaHdórsson, vélstjóri,
50 ára, ókvsentur og barnteus.
Jón Hafþór Þórðarson, há-
Jón Hafþór Þórðarson
seti, 21 árs, lætur eftír síg
un-nustu og tvö ung böm-
Mirmingarathöfn am þá-sem
fórwst mun haldin í Súðavik
síðar en en>n hefur ekki verið
áfcveðið hvenær hún verður.
Landsnefndarfundur Samfaka hernámsand-
sfœSinga ifrekar sfefnumál samfakanna