Þjóðviljinn - 07.03.1967, Qupperneq 6
g SÍDA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagux 7. man 1967.
Yfírlfsing vegna stöðvunar
þáttarins ,Þjóðiíf' 2. man
Valsstúlkurnar töpuðu stigi
Þann 2. marz s.l. samþykkti
meiri hluti útvarpsráðs á fundi
sínum að fresta umræðum okk-
ar undirritaðra um lækna
og heilbrigðismál í þættinum
„Þjóðlíf" í umsjá Ölafs Ragnars
Grímssonar hagfræðings. Fyr-
irhugað hafði verið, að þætti
þessum yrði útvarpað þá um
kvöldið í dagskrá Ríkisútvarps-
ins.
Sú skýring var gefin á þess-
ari ákvörðun meiri hluta út-
varpsráðs, að þátturinn væri ó-
hæfur til flutnings í útvarp,
þar eð í honum væri harkaleg
gagnrýni á yfirvöld heilbrigðis-
mála, sjúkrasamlög, héraðs-
læknakerfið, stjórnmálaflokka
o.fl. án þess, að nokkur þessara
aðila hefði aðstöðu til að bera
hönd fyrir höfuð sér.
Við viljum af þessu tilefni
koma á framfæri nokkrum at-
hugasemdum:
1) Jóni Thors, deildarstjóra í
heilbrigðismálaráðuneytinu var
af stjómanda þáttarins boðiðað
taka þátt í honum til þess aö
kynna sjónarmið heilbrigðisyfir-
valdanna og verja þau, ef þyrfti.
Hann þekktist ekki boðið.
2) f þættinum kemur fram
dr. juris Gunnlaugur Þórðarson,
sem gagnrýnir lækna harðlega
m.a. fyrir afskipti eða afskipta-
leysi þeirra sjálfra af heiibrigð-
ismálum.
3) 1 þættinum lýstum við á
hlutlausan hátt þvi ástandi,
sem núrikir í heilbrigðismálum
þjóðarinnar, hvaða hættum það
býður heim, hversu áríðandi er,
að úr verði bætt tafarlaust og
með hverjum hætti það skuli
gert. Við teljum okkur hafa
nokkra raunsanna þekkingu á
þessum málum og ef staðreynd-
ir þessara mála eru árásir á bá
aðila, sem áður eru upp taldir,
eru heilbrigðismál þjóðarinnar
greinilega, og því miður, í enn
alvarlegra ástandi en við hefð-
um þó haldið.
4) Við Iýstum viðhorfum
ungra lækna. Okkur er legið á
hálsi fyrir vanrækslu og van-
þakklæti gagnvart eigin þjóð.
Við lýstum á faglegan hátt og
með áróðurslausum rökum
þeim raunverulegu ástæðum, er
til þess liggja, að ungir læknar
fást ekki heim, vilja ekki fara
Athugasemd
1 gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi athugasemd:
,,Hr. ritstjóri. Forsíðufregn í
blaði yðar í gær skýrir frá því,
að útvarpsráð hafi hafnað boði
um flutning f dagskrá á „Ljóða-
stund með tónlistarívafi", eftir
tónskáldin Atla Heimi Sveinsson
og Leif Þórarinsson. Ekki er
þetta nú rétt. Á fundi hljóð-
varpsnefndar Ríkisútvarpsins sl.
þnðjudag var afgreiðslu frestað
og boðinu vísað til fundar í futl-
skipuðu útvarpsráði, en þaðkem-
ur saman á morgun, þriðjudag-
inn, 7. marz. Hvorki fylgdihand-
rit né greinargerð tilboði þeirra
tónskáldanna, en þess var óskað
áður en fréttin birtist í blaði yð-
ar, og er engin nýlunda að út-
varpsráð vilji hafa emhverja
vitneskju umfram óljóst hugboð
um framboðið dagskrárefni, sem
það á að taka afstöðu til. Líka
má á það minna, að ýmsar á-
stæður geta valdið því að dag-
skrárefni er hafnað, svo sem
tímalengd þess, kostnaður við
flutning, og margt fleira, auk
þess sem hin ágætustu verk —
hvort heldur eru bókmenntir eða
tónsmíðar — þurfa ekki endilega
að vera ákjósanlegt útvarpsefni.
Virðingarfyllzt,
Guðmundur Jónsson.
Þið þessa athugasemd hefur
Þjóðviljinn því einu að bæta að
hann hafði efni fréttarinnar eft-
ir öðru tónskáldinu, er hér á hlut
aö mál, Atla Heimi Svemssyni,
en blaðið néði ekki tfl hans í
gærkvöld til þess að bera undir
hann efni þessarar leiðréttmgar.
út í héruð o.s.frv.
Hér er ekki um óleysanlegt
vandamál að ræða, og við
bentum á lausn þess, sem bygg-
ist á aðstöðu lækna til þess að
nýta þekkingu sína og fylgjast
með hinum öru framförum á
sviði læknisfræðinnar. Þetta
varðar alla þjóðina og erhvorki
harkaleg gagnrýni né árásir.
Andsvör yrðu væntanlega fá af
hálfu leikmanna, enda óþörf og
yrðu af vanþekkingu einni
fram sett.
5) Við fórum auðvitað ekki
dult með það, að einhver hlyti
að vera ábyrgur fyrir bví vand-
ræðaástandi, sem skapazt hefur.
Við viljum ekki líta svo á, að
þjóðinni sé svo vanstjórnað,
að enginn sé ábyrgur. Við vilj-
um vekja athygli á því, að all-
ir þeir aðalir, sem við erum
taldir gagnrýna svo harkalega,
hafa haft aðstöðu til þess -að,
koma sjónarmiðum sínum í
þessum málum á framfæri á
opinberum vettvangi og hafa
gert það og hreint ekki hirt
um, þó enginn væri til and-
svara af hálfu lækna. Læknar
hafa svo sannarlega mátt þoi a
óvægilegar yfirlýsingar og túlk-
anir af hálfu þessara aðila og
nægir þar að benda á síðustu
fjárlagaræðu hæstv. fjármála-
ráðherra. Fullyrðingar mis-
stórra spámanna um heilbrigð-
ismál á opinberum vettvangi
eru orðnar æði margar og sum-
ar hæpnar. Það er vanrækslu-
synd læknanna að hafa ekki
sjálfir fyrir löngu tekið af skar-
ið og sagt frá hlutunum eins og
þeir eru, en þegar það gerðist,
er skrúfað fyrir þá.
Nú hefur mikið vatn runnið
til sjávar frá því er meirihluti
útvarpsráðs samþykkti að
„fresta" þættinum. í öllu þvi
flóði dagblaðaskrifa, sem orðið
hefur, má greina hinar raun-
verulegu ástæður fyrir frestun
þáttarins. Við viljum í því sam-
bandi vekja athvgli á eftirfar-
andi:
í Mbl. 4. marz s.l. er viðtal
við Jóhann Hafstein, heilbrigð-
ismálaráðherra um afskipti hans
af útvarpsþættinum, sem hann
viðurkennir og segir m.a.: „Ég
var strax þeirrar skoðunar, að
kjaramál lækna væruviðkvæm-
ari en svo, að þau ættu að
ræðast í slíkum útvarpsþáttum
... og síðar . . . þessa skoðun
mína lét ég í ljós við útvarps-
ráð án þess ég vissi nokkuð um
hvað í þessum fyrirhugaða
þætti yrði sagt“. Það kemur
glögglega fram í viðtalinu við
ráðherrann, að með orðinu
kjaramál á hann við launamól
sérstaklega. Rétt er að benda
ráöherranum á, að launamál
lækna voru ekki rædd í þættin-
um a.ö.l. en því, að formaður
Læknafélags Reykjavíkur sagði,
að hann teldi laun lækna nægj-
anleg eins og á stæði. Vartætti
það að vera ríkisstjórninni ó-
hagstætt. Eftir viðtalinu við
ráðherrann að dæma, var því<j>
ekki ástæða til að fresta þætt-
inum og vonandi, að ekki hafi
átt sér stað neinn misskilning-
ur milli hans og manna hans í
útvarpsráöi. Hins vegar er
greinilegt, að ráöherrann þekk-
rr sitt húsbóndavald og ann-
marka þess lýði’æðis, er mest
er hampað á tyllidögum.
Öllu alvarlegri er önnurfrá-
sögn Mbl. af írestun þáttarins,
sem birtist sama dag og við-
talið vfð ráðherrann. Þar segir:
Fyrirsögn: Launaður erindreki
Framsóknarflokksins reynir að
misnota Ríkisútvarpið og síðar
segir í greininni: „Á fundi út-
varpsráðs í fyrradag varsam-
þykkt að fresta þætti fyrr-
greinds erindreka Framsóknar-
flokksins, en í honum var rætt
um heilbrigðismál á mjög ein-
hlíða hátt og sérstaklega um
kjaramál lækna“ . . . og enn
segir: „... þvi auðvitað eiga
ðll sjónarmið rétt á að koma
fram í útvarpi, en ekki aðeins
þau sem erindreki Framsókn-
arflokksins telur sér henta".
Þessi skrif eru vægast sagt
óheiðarleg. Heilbrigðismál þjóð-
arinnar eru dregin niður i híð
pólitíska svað og hlutlaus lýs-
ing á ástandinu talin erind-
rekstur ákveðins stjórnmála-
flokks. Þetta er vítavert og á-
byrgðarlaust. Við hljótum einn-
ig að fordæma þær árásir, sem
stjórnandi þáttarins, Ölafur R.
Grímsson, hefur orðið fyrir.
Hann gerði enga tilraun til
þess að koma fram flokkssjón-
armiðum og gerði raunar allt tfl
þess, að gagnrýni sú, sem fram
kom, væri sem mildust. Við
teljum hann hafa unnið starf
sitt sem hlutlaus spyrjandi og
lítt getað ráðið við allt það,
sem fram hlaut að koma.
Sigurður Bjarnason, alþingis-
maður, er einn ritstjóri Mbl.
Hann á einnig sæti í útvarps-
ráði og gekkst fram í því að
þættinum yrði frestað. Hann
hlýtur sem ritstjóri að vera á-
byrgur fyrir skrifum blaðs síns.
Hann hefur enga tilraun gert
til þess að leiðrétta þau. Megi
af því dæma sanngimi hans og
víðsýni þykir okkur illa farið
Við viljum að lokum segja
þetta. Okkur þykir mjög miður
farið og óskiljanlegt, hverjaaf-
greiðslu þáttur okkar fékk hjá
meirihluta útvarpsráðs. Við
höfum okkar skoðun á því,
hvernig túlka beri þau vinnu
brögð, og að hverju er með
þeim vegið í lýðræðisþjóðfélag'.
Hitt er þó sorglegast og veitir
nokkra innsýn í póilitíska sið-
fræði, að efni þáttarins sku’.i
vera talinn pólitískur áróður.
Það er fulllahgt gengið, að lýs
ing lækna á heilbrigðismálum
ásamt tillögum þeirra til úr-
bóta skuli vera talin árás
einn flokk og erindrekstur fyr-
ir annan.
Við viljum trúa því, að heil
brigðismálaráðherra og aðrir
forustumenn heilbrigðismála
vilji koma þessum málum í gott
horf. Afskipti heilbrigðismála-
ráöherra af þættinum koma
okkur raunar á óvart, þar sem
hann hefur íremur fyrirrennur
um sínum leitast við að eiga
gott samstarf við læknasamtök-
in um heilbrigðismálin.
Við erum ekki þeirrar skoð-
unar, að alger þögn um heil-
brigðismálin, aðstöðu og við-
horf rnuni hjálpa ráöamönnum
bezt. Miklu fremur mætti ætla.
að umræður þeirra, er gerzt
þekkja af eigin raun, yrðu
þeim vopn í baráttunni.
Við teljum því, að frestun
þáttarins vegna þess, að eng
inn var til andsvara sé mis
skilinn greiði við þá, sem verja
átti og heilbrigðismálum þjóð-
arinnar sízt til gagns.
Arni B.jörnsson,
Frosti Sigurjónsson,
Gunniaugrur Þórðarson
Helgi Þ. Valdimarsson
Snorri P. Snorrason
í handknattleikskeppni I
meistaraflokki kvenna í Laugar-
dalshöllinni á sunnudag gerðust
þau tíðindi að Valur tapaði stigi
fyrsta sinn í tvö ár, gerði jafn-
tefli við Fram 7:7.
Alls fóru fram þrír leikir í
meistaraflokki kvenna, allir
hörkuspennandi, og nokkrir leik-
ir í 2. flokki karla.
Fram-stúlkurnar komu mjög á
óvart i leifc sínum gegn Val og
munu fáir hafa búizt við að þær
næðu jafntefli viö IsJandsmeist-
arana. Fram tók forustuna í upp-
hafi 3—0, og hafði í Hálfíleik eitt
mark yfir, 4—3.
Leikur KR og Ármanns var
nokkuð jafn, en ' lauk með sigri
Ármanns, 7:6 og er KR nú í
mikilli fallhættu. Milli FH og
Víkings fóru leikar svo aðjafn-
tefli var, 4:4, eftir góðan leik.
I 2. fl. karla vann IR FH, KR
vann IA og Þróttur vann Vík-
ing. — már.
Sjúvarútvegurinn
Framhald af 1. síðu.
tæki sjávarútvegs nokkurn veg-
in fullnýtt, útvegurinn starfaði
að heita mátti með hámarksaf-
köstum.
Síðan hafa orðið stórfelldar
verðhækkanir'sjávarafurða á er-
lendum mörkuðum. Þær áttu
sinn mikla þátt í að íleyta út-
veginum án mikilla skakkafalla
yfir erfiðleika og forða honum
frá skakkaföllum, sem stöfuðu af
óhagstæðri verðlagsþróun innan-
lands. En jafnskjótt og verðlag
sjávarafurða á erlendum mörkuð-
um hættir að hækka, og lækkar
jafnvel nokkuð frá hæsta topp-
verði — þá er allt komið í
strand. Og þá er til þess grip-
ið að bæta einni uppbótinni á
aðra ofan og hrekkur þó hvergi
nærri til.
Það er vissulega ömurlegt tím-
anna tákn og þungur áfellis-
dómur yfir ríkjandi stjórnar-
stefnu, hvernig komið er í dag
fyrir mikilvægum þáttum sjáv-
arútvegs. þeim þáttum hans
flestum, sem báru uppi ís-
lenzkt atvinnu- og efnahags-
kerfi fyrir nokkrum árum, með-
an síldveiðarnar voru í lágmarki.
íslenzk togaraútgerð má heita
í kaldakoli. 1 stað 40 til 50 tog-
ara, sem héðan voru gerðir út
fyrir viðreisn, er verið að basla
við að gera út 14 til 15 skip —
öll rekin með bullandi tapi. í
stað þess að -fyrir viðreisn lögðu
togararnir tugi þúsunda lesta til
vinnslu í hraðfrystihús, telst það
nú til algerra undantekninga, ef
uggi af togarafiski keraur hér
á land. Þau fáu skip, sem enn
eru gerð út — leifarnar af þess-
um áður svo glæsilega flota —
sigla með aflann beint á er-
lendan markað, og er vissulega
vorkunnarmál, slíkur sem verð-
munurinn er, um 4 kr. kg. hér
heima, en 12 til 14 kr. á ensk-
um og þýzkum markaði. Enginn
nýr togari hefur bætzt í íslenzka
togaraflotann síðastliðin 8 ár, og
flestir eru togarar okkar 18 til
20 ára gamlir. Á sama tíma hef-
ur orðið gjörbylting í togara-
smíð og togaraútgerð hjá flest-
um öðrum fiskveiðiþjóðum. Því
er haldið fram af sumum, að
hrun togaraflotans stafi að veru-
legu leyti af því, að þeir geti
ekki hagnýtt fiskimið, sem þeir
áður höfðu innan núverandi
fiskveiðilandhelgi. Þetta hefur
sjálfsagt haft einhver áhrif, en
engan veginn ráðið neinum úr-
slitum. Og þó að segja megi með
fullum rétti, að togarar okkar,
þeir fáu sem eftir eru, séu orðn-
ir úreltir, þá er staðreyndin
samt sú, að yngstu, stærstu og
Sverrir Bergman. I beztu skipin eru einhver feng-
sælustu aflaskip, sem enn þekkj-
ast. En ekkert sannar líklega
betur, hvemig aðstaða til út-
gerðar á íslandi er i dag, eftir
alla viðreisnina en að uppgripa-
afli og sala þess afla, þótt heims-
met sé. virðist ekki lengur
hrökkva til. Það er tap á út-
gerðinni samt, segja reiknings-
meistarar, og þeir sem eiga met-
aflaskipið eru i óðaönn að reyna
að selja það fyrir svipað verð
og einn síldarbátur kostar í dag.
Og hvernig hafa þessi við-
reisnarár leikið bátaflota lands-
manna, þann mikilvæga hluta
flotans, sem ekki hentar til að
stunda síldveiðar á djúpmiðum?
Þetta er sá hluti flotans, sem
staðið hefur að verulegu leyti
undir hraðfrystiiðnaði, saltfisk-
og skreiðarverkun í landinu
þetta eru skipin, sem sjávar
þorp og kaupstaðir víðs vegar
um land hafa byggt afkomu sína
á. í aðalmálgagni viðreisnarinn-
ar, Morgunblaðinu, var á þetta
drepið í forustugrein í gær.
Tæplega vænir neinn Morgun-
blaðið um að bera viðreisninni
lakar söguna en efni standa til
Ég ætla því að leiða það sem
vitni. Morgunblaðið segir:
„Hitt er alvarlegra, hversu sá
floti, sem bolíiskveiðar stundar,
hefur dregizt saman. Á árunurh
1!)63—1966 hafa 87 bátar, sam-
tals 4713 rumlestir, verið strik-
aðir út af skipaskrá. Á sama
árabili hafa verið skráð 37 ný
fiskiskip undir 12b rúmlestum,
Þar af voru á síðastliðnu ári
aðeins tvö skip, samtals 109
rúmlestir. Ljóst er að hér er
um alvarlega þróun að ræða,
þar sem þessi skipafloti ásamt
togurunum hefur aflað þess hrá-
efnis, sem rekstur frystihúsanna
byggist á og þar með atvinna
fjölmennum byggðarlögum um
land allt“.
Á/yktun iundsfundur
Framhald af 1. síðu.
hernámsandstæðinga til að hvika
ekki írá þeim steínumiðum, sem
samþykkt voru á Þingvallafundi
um að Samtök hernámsandstæð-
inga skyldu „berjast íyrir af-
námi herstöðva á íslenzkri grund
og hlutleysi fslands í hernaðar-
átökum“. Fundurinn fagnar öll-
um stuðningi sem fram hefur
komið við stefnumál samtakanna
og leggur áherzlu á eftirfarandi
atriði:
IStöðvaðar verði hernaðar-
• framkvæmdir í Hvalfirði og
öll hernaðarmannvirki í landinu
afnumin.
2.
ísland hafi nána samvinnu
sviði utanríkismála. Æskilegt er,
að Norðurlandaþjóðimar lýsi yf-
ir því, að lönd þeirra verði
ævinlega kjarnorkuvopnalaust
svæði, og þessar þjóðir móti
sameiginlega hlutleysisstefnu
gagnvart hernaðarátökum stór-
veldanna, þegar NATO-samning-
urinn verður uppsegjanlegur ár-
ið 1969.
3Þjóðinni verði gefið tækifæri
• til að ráða hernámsmálunum
til lykta í þjóðaratkvseðagreiðslu.
4 Lalndsnefndarfundurinn itrek-
ar þá kröfu að bandaríska
sjónvarpinu á Keflavíkurflug-
velli verði lokað nú þegar og
hvetur til víðtækrar samvinnu
allra þeirra fjölmörgu aðila, sem
efla vilja varðstöðu um íslenzkt
þjóðerni og menningu".
14.40 Við, sem heima sitjum.
Halldóra B. Bjömsson
skáldkona les kafla úr bréf-
um. að vestan.
15 00 Miðdegisútvarp. Fræðski-
þáttur Tannlæknafélags Isl.
Kristján H- Ingólfsson tanja-
læknir talar um krónur á
framtennur. Létt lög. Raga-
ar Bjarnason og Anna Maria
Jóhannsdóttir syngja, Herb
Alpert og hljómsveit hans,
Stive Wonder, The
Suprenaes, E. Johnson og
hljómsveit hans, Ellý Vfl-
hjálms og S- Black og
hljömsveit hans leika Og
syngja.
16.00 Síðdegisútvarp. Kariafeór-
inn Fósfcbræður og Srnfónía-
hljómsveit Islands flytja
fimm lög eftir Áma Thoar-
steinsson. Stjórnandi: Jón
Þórarinsson. Mozart-Mjóm-
sveitin í Vinarborg leikur
Sex þýzka dansa (K600) eft-
ir Mozart; Boskovski stjóra-
ar. Philharmonia í Ltmdún-
um leikur Sinfóníu nr- 7 op,
92 eftir Beethoven; Otto
Klemperer stjómar.
17.05 Framfourðarkennsla
í dönsku r>g ensku.
17-20 Þingfréttir.
17.40 tJtvarpssaga baraanna:
Mannsefnin. (7).
19.30 Stækkun sveitafélaganna.
Hjálmar Vilhjálmsson ráðu-
neytisstjóri flytur þriðja er-
indi sitt og hið síðasta.
19.50 Lög wnga fólbsins. Her-
mann Gunnarsson kynnir-
20-30 Útvarpssagan: Trúðamir
eftir Graham Greene. Magn-
út Kjartansson les eigin
þýðingu (25).
21.30 Lestur Passiusálma (27).
21.40 Víðsjá.
21.50 íþróttir. Sigurður Sig-
urðsson segir frá.
22.00 Drottningin segir frá. As-
mundur Eiriksson flytur er-
indí, þýtt og endursagt
22-20 Duke Ellington skemmtir
í hálftíma sem höfundur
laga og hljómsveitarstjóri.
22.55 Á hljóðbergi. William
J. Fulbright öldungadeildar-
maður frá Bandaríkjunum
flytur ræðu í Háskóla ísl.
(hljóðriten frá 22. f.m.).
Ykkur öUum, fjcer og nœr, sem minntuzt
mín 10/2 síðastliðinn, fœri ég mínar beztu
þakkir. Sérstakar þakkir fœri ég Verka-
kvennaféloginu Öldunni á Sauðárkroki fyrir
hlýjar kveðjur og fögur blóm.
ÁSTRÍÐUR STEFÁNSDÓTTm.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík o.fl,, fer fram
nauðungaruppboð að Síðumúla 20, hér í borg,
föstudaginn 17. marz 1967, kl. 1.30 síðdegis.
Seldar’ verða eftirtaldar bifreiðir o.fl.:
R-890 R-3141 R-4162 R-4280 R-4919 R-5495
R-6015 R-7049 R-9123 R-9519 R-10521 R-10782
R-11118 R-11208 R-11557 R-13726 R-13745 R-13987-
R-14348 R-15053 R-15339 R-15736 R-16801 R17167
R-17178 R-17342 R-17759 R-17965 R-18573 R19451
R-19896 og S-558.
Þá verður einnig selt fyrir aðflutningsgjaidi m.m.
fólksbifreið innflutt af Viggo Jensen með Gull-
fossi 16/11 ’64, diesel sendiferðabifreið með glugg-
um og 14 lausum sætum, Mercedes Benz 1956, inn-
flutt af Hilmari Th. Björnssyni með Fjallfoss 9/8
’65 og 17 manna farþegabifreið Opel 1957, innflutt
af sama með Fjallfossi 9/8 ’65.
Greiðsla farj fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembætti<ð í Reykjavík.