Þjóðviljinn - 07.03.1967, Síða 10
I
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
íslenzkir dansar
og vikivakaleikir
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
heldur sýningu á íslenzkum döns-
um og Ieikjum í Þjóðleikhús-
inu í kvöld kl. 20 — verður sýn-
ing þessi endurtekin á laugar-
daginn kl. 15.
í fyrsta hluta dagskrárinnar
eru sýndir vikivakar og söng-
dansar, endurvaktir eftir skráð-
um heimildum og með hliðsjón
Siys og ryskingar
Laust eftir hádegi á laugardag
varð umferðarslys á Skólavörðu-
stíg við Kárastíg. Þar hafði
mannlaus bifreið runnið é.mann
og var talið að hann hefði fót-
brotnað. Maðurinn, Áki Péturs-
sbn, var fluttur á Landakots-
spítala.
Um kl. 14 á laugardaginn varð
það slys á Eskitorgi að Svavar
Magnússon, ungur piiltur datt af
vélhjóli, lenti á gangstéttarbrún
og fótbrotnaði.
Þá varð slys í gömlu verbúð-
unum síðdegis á laugardagirin.
Lögreglan fór á staðinn og kom
í ljós að þar hafði útlendingur,
Franco Giuseppi, legið í fleti
sínu og fengið rafstraum úr
leiðslu. Maðurinn fékk raflost en
ekki er vitað hve alvarlegt slys-
ið var.
Töluverð ölvun virðist hafa
verið í bænum aðfaranótt sunnu-
dagsins. Um kl. 3 urðu ryskingar
í samkomuhúsinu Sigtúni og var
finnskur maður fluttur þaðan á
Slysavarðstofuna eftir að hafa
verið sleginn í rot. Um svipað
Ieyti henti einhver gárungi vatns-
glasi í útstillingaglugga bóka-
búðár Snæbjamar í Hafnarstræíi
og yar hann kaerður fyrir rúðu-
brot.
Þessa sömu nótt varð Gísli Eyj-
ólfsson frá Ingjaldsstöðum í
Þingeyjarýslu, fyrir bifreið á
mótum Nóatúns og Brautarholts.
Hlaut hann áverka og varflutt-
ur á Slysavarðstofuna.
Tæplega 4ra ára drengur, Ág-
úst Guðmundsson, varð fyrir oil
á Njálsgötu um þrjúleytið i
fyrradag en ekki er kunnugtum
meiðsli hans.
Unglingar reyndu
að brjótast inn
Aðfaranótt þriðjudagsins kl.
2,20 var lögreglunni tilkynnt um
grunsamlegar mannaferðir við
Grensáskjör að Grensásvegi 44.
Þegar lögreglan kom á staðinn
voru þar tveijr drengir, 14 og 15
éra, höfðu þeir brotið rúður en
komust ekki inn vegna þess að
járnrimlar voru innan við rúð-
umar og stálu þeir engu. Þeir
vom fluttir heim til sín.
af þjóðdönsum frændþjóða. Þá
fer þáttur „gömlu dansanna“ —
eru þeir allir úr flokki gamalla
samkvæmisdansa, hringdansa, en
algengustu dönsunum er sleppt.
Dansana skráðu Sigríður Val-
geirsdóttir og Mínerva Jónsdóttir
eftir eldra fólki, sem dansaði og
lýsti dönsunum.
I þættf sem nefnist „Þjóðlög,
dansar og vikivakaleikir“ er
gerð tilraun til að tengja brot
danslýsinga og gæða Iífi Iög,
Ijóð og leiki horfinna kyjislóða.
Uppistaða tónlistarinnar eru ís-
lenzk þjóðlög, en Jón Ásgeirs-
son hefur samið í eyðurnar, út-
sett og tengt saman í eina heild.
Elsa Guðjónsson kynnir ís-
lenzka búninga.
Sigríður Valgeirsdóttir stjórnar
sýningunni og hefur samið ýmsa
dansana en Jón Ásgeirsson ann-
ast tónlist. Meðal einsöngvara
sem fram koma em þeir Guðm.
Guðjónsson og Hjálmar Kjart-
ansson. Sextán manna hljóm-
sveit leikur og kór Kennaraskóla
íslands aðstoðar.
Þriðjudagur 7. marz 1967 —32. árgangur — 55. tölublað.
Eitt dansparið á Iokaæfingu — (Ljósm Þjóðv. A.K.)
íslenzk yfirvöld þögul sem gröfin um „mublu"-málið:
Fréttir um íslenzka aði'd
birtast í dönskum blöium
■ íslenzkt vitni er nú talið valda erfiðleikum hjá dönsk-
um ákæruvöldum með því að neita að fara utan og vitna
í máli Elmo Nielsen, — er þetta Páll Jónasson, heildsali á
Lambastöðum á Seltjarnarnesi, en hann hefur rekið um-
fangsmikinn innflutning og heildverzlun síðari ár.
■ Þá neitar einnig Erik Nordquist, forstjóri í Toronto, að
bera vitni í málinu og fara til Hafnar vegna þess að gjald-
þrotskrafa er yfirvofandi yfir fyrirtæki hans og danski
ríkissaksóknarinn vill ekki heita honum griðum.
mönnum og eru danskir lög-
reglumenn sagðir í stöðugu sam-
bandi við þá út af þessu máli
— en þeir þegja sem fastast og.
neita íslenzkum blöðum um all-
ar upplýsingar. Þeir viðurkenna
aðeins að bókhaldsgögn frá ís-
lenzkum aðilum séu í endur-
skoðun vegna þessa máls en
neita að gefa upp nöfn einstak-
linga eða fyrirtækja er við það
séu riðin.
Upplýsingum rignir nú yfir ís-
lendinga, — aðallega teknar úr
dönskum blöðum — um aðild ís-
lenzkra stórkaupmanha að svika-
máli kenndu við Elmo Nielsen
á sama tíma og íslenzk saka-
málayfirvöld þegja sem fastast
um þetta mál.
Haft er eftir Berlingi, að grun-
ur leiki á, að hér á landi hafi
verið framið tollsvindl, sem nemi
miljónum danskra króna, og hafi
Elmo Nielsen gefið út falskar
faktúrur í þágu íslenzkra stór-
kaupmanna í þessu skyni.
Þá er haft eftir Berlingi, að
Páll Jónasson, stórkaupmaður frá
Lambastöðum á Seltjarnarnesi,
hafi verið aðalviðskiptavinur
Elmo Nielsen á fslandi.
Hafi Páll keypt mikið af vör-
um í gegnum Nielsen, sem ekki
eru í neinu sambandi við hús-
gagnaverksmiðju Nielsens, — svo
Frumvarp um félagsmál
og hagsmunamál bænda
í neðri deild Alþíngis kom í gær til 1. umræðu frum-
varp sem Hannibal Valdimarsson flytur „um Stéttarsam-
band bænda, samningsrétt þess og aðild að verðákvörðun
á landbúnaðarvörum, Kjararannsóknarstofnun bænda,
Rannsóknari og eftirlitsnefnd með vörudreifingu á Iand-
búnaðarvörum, framleiðsluáætlanir, Útflutningsráð Ignd-
búnaðarins o.fl.“
Þetta er mikill lagabálkur í 21 grein og flutti Hanníbal
þetta sama frumvarp í þinglok i fyrra; en þá flaustruðu
stjórnarflokkarnir og Framsókn af hinum meingötluðu
framleiðsluráðslögum.
Við umræðuna i gær flutti flutningsmaður ýtarlega frani
söguræðu um málið og auk hans ræddi Gils Guðmundsson
það í alllöngu máli. Verður siðar skýrt frá aðalefni fram
söguræðunnar.
sem stórar vörusendingar af næl-
onsokkum, plastvörur og efni-
við til verktakastarfsemi.
Raunar er það á margra vit-
orði hér á landi, hvaða háttur
var hafður á innflutningi nælon-
sokkanna. Voru faktúruskjöl
skráð á efni til húsgagnabólstr-
unar og sá influtningur afgreidd-
ur í miklu lægri tollflokki. en
nælonsokkar, þó að upp úr köss-
unum hafi komið nælonsokkar.
Þá er ekki ótítt bragð hjá ís-
lenzkum stórkaupmönnum að
skipta vörusendingum niður á
tvær faktúrur og framvísa að-
eins annarri faktúrunni hjá toll-
inum.
Með þessa tollafgreiddu fakt-
úru upp á vasann tekst innflytj-
endum furðu oft að ná út allri
vörunni og borga þó aðeins toll
af hluta vörusendingar.
En stundum kveikja íslenzkir
tollgæzlumenn á perunni og
sakna hinnar faktúrunnar. Þá er
gripið til höfuðsins og kvartað
yfir hraða nútímans og að margt
viljj gleymast í önn dagsins. Og
svo er skotizt aftur til baka
eftir hinni faktúrunni, — er ligg-
ur á skrifborðinu.
Yfirsakadómari er ennþá
staddur í Kaupmannahöfn til
þess að fylgjast með málinu, en
fulltrúar embættisins hér heima
neita að gefa upp nokkrar upp-
lýsingar. Þá stoppar ekki síminn
hjá ísl. rannsóknarlögreglu-
Kvenféla?
sésíallsta
Kvenfélag sósíalista í Reykja-
vík heldur aðalfund í kvöld kl.
8.30 í Tjarnargötu 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Margrét Ottósdóttir segir frá
nýafstaðinni Þýzkálandsför,
Kaffi.
Bjarmi II. strand-
aði við Stokkseyri
Óvíst hvort tekst að bjarga skipinu
■ Aflaskipið Bjarmi II. frá Dalvík strandaði í fyrrinótt á
miðnætti við Baugstaðaós, skammt fyrir austan Stokkseyri
og hafði ekki ennþá tekizt að ná bátnum út í gærkvöld.
■ Tólf manna áhöfn var bjargað í land um nóttina á gúm-
björgunarbátum, sem dregnir voru milli báts og lands og
tókst það í þrem ferðum gegnum brimskaflinn án þess að
skipver'jar blotnuðu.
■ Voru þarna að verki björgunarsveitir frá Stokkseyri og
Eyrarbakka. en þær voru komnar á strandstað um kl. tvö
um nóttina.
Samkv. upplýsingum er Þjóð-
viljinn aflaði sér í gærkv. voru
taldar litlar líkur til þess að
bjarga bátnum. Fulltrúi frá vá-
tryggingarfélagi var þó væntan-
legur á vettvang í dag og verða
þá kannaðir til hlítar möguleik-
ar á björgun bátsins.
Bjarmi II. var að koma frá
Hafnarfirði. Hafði landað þar
loðnufarmi og var á leið aust-
ur með ströndinni. Mikið brim
var á strandstað, en veður gott.
Björgunarsveitir komu á vett-
vang laust fyrir klukkan tvö og
var tekið til þess hvað þær voru
fljótar á vettvang, en þær voru
kallaðar út kl. hálf eitt.
Eftir að sjór varf kominn í
aðra lestina^var hafizt handa um
að bjarga skipverjum og tókst
að ná línu frá bátnum í öðru
skoti frá bátshlið og var línan
fest í gúmbat og skipverjar
dregnir í land á gúmbátnum í
þrem ferðum.
Tókst þetta svo giftusamlega
að skipverjar vöknuðu ekki einu
sinni, — var þó í gegnum brim-
skafl að fara í öll skiptin.
Voru allir skipverjar, tólf að
tölu, komnir í land um kl. sex
í gærmorgun.
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
abcdef gh
a b c d e f g h
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
10. Dxe2 Rb—d7
Ódýrir kvenskór frá Aníta, Hollandi
Mjög fjölbreytt og fallecpt úrval,
tekið upp í dag.
Verð kr. 495.— kr. 570.—
kr. 587,— kr. 597,—
SKQVAL
AustuTstææii 18.
(Eymundssonarkjallara).