Þjóðviljinn - 12.03.1967, Blaðsíða 4
4 SlÐA — £>JÖBV iijJINN — Síwwrndagur 12. marz 1967.
Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýdij — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurdur Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson-
Auglýsingástj.:Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólaivörðust- 19.
Sími 17500 (5 linur) — Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
Svefnrofakippir
Oíkisstjórnin er að reyna að vakna en lætur illa
í svefnrofunum, — eitthvað á þessa leið voru
ummæli Alfreðs Gíslasonar á Alþingi á dögunum
þegar hann flutti gagnrýni læknastéttarinnar á
aðstæðum 'í heilbrigðismálum. Af fleiri viðbrögð-
um ríkisstjórnar íhaldsins og Alþýðuflokksins má
ráða að henni sé ekki rótt við tilhugsun um enda-
lok valdaferils síns. Stjórnarflokkarnir núverandi
hafa haft hvorki meira né minna en átta ár til að
sýna vilja sinn og getu í stjórnarstarfi. Og mestan
hluta þess starfstíma stjórnarinnar hefur verið
mesta góðæri sem íslendingar hafa nokkurn tíma
notið vegna óhemju afla og stórhækkaðs verðlags
á útflutningsafurðum íslendinga. En að loknum
átta ára valdatíma blasa við staðrejmdirnar um
hrun íslenzka togaraflotans, lömun útgerðar mik-
ils hluta bátaflotans og vandræði fiskiðnaðarins
vegna vöntunar á hráefni.
Tlíkisstjórn íhaldsins og Alþýðuflokksins hefur
óslitið ráðið stjóm landsins í átta ár. Nú get-
ur váldatíma ríkisstjórnarinnar lokið eftir nokkra
mánuði. Skyldi ekki vera orðið fullseint fyrir í-
haldið og Alþýðuflokkinn að vakna úr valdavímu
sinni og taka að bæta ráð sitt? Nú loks, fáum vikum
fyrir alþingiskosningar, hrópar sjávarútvegsmála-
ráðherrann á Alþingi að ríkisstjómin hafi „nú til
athugunar með hverjum hætti bezt verði greitt
fyrir kaupum á þremur til fjórum skuttogurum"
að því er Morgunblaðið skýrir frá. Á átta ára
valdatíma hefur íhaldið og Alþýðuflokkurinn
hindrað framgang allra tillagna Alþýðubandalags-
ins urn ráðstfanir til endurnýjunar togaraflotan-
um íslenzka, ríkisstjómin hefur horft á togarana
grotna niður og leyft að selja þá úr landi á brota-
jámsverði. Það er yfirlýst hugsjónamál Sjálfstæð-
isflokksins að selja sem fyrst úr landi togarann
Maí, sem sennilega á heimsmet í afla af skipi
sinnar tegundar og í sölu aflans, og mun nú ný-
kominn í höfn með 300 tonna veiði eftir 10 daga
veiðiferð.
¥ öll þessi ár, öll stjórnarár íhaldsins og Alþýðu-
flokksins, hafa þingmenn Alþýðubandalagsins
reynt að gera ríkisstjóminni og flokkum hennar
skiljanlegt, að á íslandi yrði ríkisvaldið að hafa
forgöngu og frumkvæði um endurnýjun togara-
flotans. Sósíalistaflokknum tókst að koma nokkr-
um hluta af Sjálfstæðisflokknum í skilning um þá
staðreynd íslenzkra efnahagsmála 1944. Nú ráða
hins vegar Sjálfstæðisflokknum litlir karlar sem
trúa í efnahagsmálum á bandarískt þjálfaða sjón-
hverfingamenn, og sælir í þeirri trú hafa þeir
stjórnað íslandi samkvæmt happa- og glappastefnu
í átta ár, með þeim árangri að þjóðin er við lok
valdaferils þeirra stödd í miklum vanda. Hvað
stoðar þó þessir happa- og glapparáðherrar fari að
athuga og athuga og athuga um skuttogara síð-
ustu vikurnar af valdatíma sínum? Þeir hafa
stjómað óslitið í átta ár, og skyldi ekki flestum
finnast það orðinn fulllangur tími, miðað við ár-
angurinn? — s.
FRÁ ÞVÍ VAR sagt ekki alls fyrir
löngu að einn af okkar ágætu kór-
um hefði hætt við að flytja í vor
Missa solemnis eftir Beethoven, og
skortur á karlaröddum tilgreind á-
stæðan. Ekki dettur mér í hug að
efast um að hér í borginni sé yfrið
nóg af bössum og tenórum sem
bæði hefðu getu og löngun til að
syngja messuna, en vísast að ekki
hafi þeir allir tíma aflögu fyrir
æfingar, — svona verk er ekki hrist
út úr erminni á nokkrum kvöld-
stundum. Ég hafði sjálfur gaman
af að krunka í kór einu sinni, en
það var áður en eftirvinnu-öldin
góða rann upp, og nú orðið má ég
aldrei vera að neinu, — þarf alltaf
að vera að vinna mér inn peninga
til að ballanséra á verðbólgunni, en
í kórum á íslandi syngja menn frítt.
og þá sjaldan ég rek upp roku núna
er ég venjulega sprunginn áður en
lagið er hálfnað, enda orðið langt
síðan nokkur hefur mælzt til að ég
reyndi aftur. En þrátt fyrir allt
puðið eru menn og konur um allt
land einlægt að æfa saman lögin
sín, og haldandi hljómleika sér og
öðrum til skemmtunar, þótt ekki
séu allir æðr^ unnendur tónlistar
of hrifnir af þeirri músíkk. Heíms-
frægir höfundar láta stundum frá
sér fara hin háðulegustu orð um
karlakórsöng norrænna, þennan
leiðinlega þrýsting í brjóstholinu,
og æðri unnendur tónlistar fá klígju
við tilhugsunina um næsta sam-
söng en þeir sem eru harðari af sér
glotta íbyggnir. En ætli risið á tón-
list okkar væri ekki heldur lægra
í dag, ef ekki hefðu ótaldar þús-
undir landsmanna dundað við kór-
æfingar á undanförnum áratugum?
Þar voru auðvitað margir kallaðir
en fáir útvaldir, og nákvæmar rann-
sóknir mundu ugglaust leiða í ljós
að beztu einsöngvarar okkar, og
þeir sem lengst hafa náð í list-
inni, hlutu sína skím í einhver'jum
kómum, sem ekki söng kannski
alltaf alveg hreint eftir kröfum
vandfýsnustu gagnrýnenda, en var
þrátt fyrir það sá reitur sem dugði
til að hlúa að fegurri gróðri. Og
vísast er nú þessa dagana einhver-
staðar á landinu ungur bassi, ten-
ór eða sópran í ófrægum kór og
allt að því hlægilegum að læra sitt
fyrsta lag, og þar með lagður af
stað til að sigra allt landið með
söng sínum á komandi árum, — eða
kannski allan heiminn.
NÆST ÞEGAR VIÐ hlustum á
Sinfóníuhljómsveitina okkar spila
Beethoven og Brahms væri ekki úr
vegi að hugleiða hvaðan blásaram-
ir eru komnir, — sennilega flestir
uppaldir, ef ekki fæddir í lúðra-
sveitum, sem eru jafnvel ennþá
hlægilegri á sína vísu en karlakór-
arnir. Og þrátt fyrir allt puðið eru
samt nokkur hundruð fslendinga
með þeim ósköpum fæddir að þeir
verða að blása í einhverskonar
horn, þótt enginn borgi þeim n,eitt
fyrir það, og einfaldara hefði ver-
ið að næla sér í nokkrar krónur í
eftirvinnu en burðast við að ná Öx-
ar við ána fvrir vorið, með daglegri
þjálfun í heimahúsum og vinslit-
um við fjölskyldu og nágranna, —
og þar að auki samæfingum nokk-
ur kvöld í viku, og allt frítt. Og
þegar lúðrasveitir landsins héldu
mótið sitt á Selfossi í fyrrasumar
voru hljómlistarmennirnir eflaust í
hreinum meirihluta á konsertunum.
og sjálfsagt hefur margur marsinn
hlotið þar þá meðferð sem riðið
hefði fíngerðari tónverkum að fullu.
en ffeilnóturnar sem hljómuðu þar
enu nú flestar gleymdar, og sumir
þeirra sem fluttu þær af mestum
krafti famir að hitta beint á F-in
og C-in, og þar meðýagðir af stað
með básúnur sínar, klarinettur eða
trompeta til að blása allt landið
um koll á komandi árum, — eða
kannski allan heiminn uppúr skón-
um.
OG NU ÆTLAR Pólífónkórinn að
færa okkur Jóhannesarpassíuna í
vor, hún er nú ekki hrist út úr
erminni á einni eða tveimur kvöld-
stundum, en sem betur fer hefur
kórinn haft tíma til að æfa, þrátt
fyrir allt puðið. Þessu meistara-
verki Bachs kynntumst við fyrst
1943 þegar Tónlistarfélagskórinn
flutti það undir stjórn dr. Urban-
cic, auðvitað með hljómsveit líka.
organista og einsöngvurum. Svo
var sama afrek unnið, nokkrum
árum síðar, en þeir sWn fengu
tækifæri til að njóta verksins í
þessi skipti, flytjendum og áheyr-
endum, hefur löngum síðan ’fund-
izt að Jóhannesarpassían ætti að
verða hér fastur árlegur viðburð-
ur í menningunni. Og auðvitað
kemur að því, einkum og sér í lagi
ef okkur tækist að koma hér á sið-
uðu þjóðfélagi með eðlilegum
vinnutíma, því ekki nær passían
tilgangi sínum hjá útpíndum vinnu-
þrælum með fjárhagsáhyggjur, og
kannski samvizkubit af að hafa
skrópað í eftirvinnunni í þokkabót.
Og ekki Missa solemnis heldur,
bæði verkin krefjast athygli og
jafnvel áreynslu af hlustendum,
þvi þeir Bach og Beethoven voru
ekki bara að leika sér þegar þeir
bjuggu þau til. Og þegar að bví
kemur að ég sé mér fært að skrópa
í eftirvinnunni og fer á þessa til-
vonandi hl'jómleika, ætla ég að
muna að flytjendurnir, söngvar-
ar og hljóðfæraleikarar voru ekki
heldur bara að leika sér árum sam-
an til ,að ná þessu takmarki, — og
gömlu félagarnir í kórunum og
lúðrasveitunum, sem aldrei náðu
svona langt, ekki heldur
KRUMMl.
Spasský sigraði í Beverwijk
Hinn 29. janúar sl. lauk hinu
árlega nýársmóti í Beverwijk.
Mót þetta fór nú fram í 29.
skipti og er það enn í örum
vexti þótt það hafi fyrir löngu
vaxið Hastingsmótinu yfir höf-
uð. Mótið var að þessu sinni
mjög vel setið en af 16 þátt-
takendum voru 10 stórmeistar-
ar 3 alþjóðlegir en aðeins 3
titillausir, einn þeirra varð i
öðru sæti og annar í sjötta
Kannski er þetta táknrænt fyr-
ir það hve geisilegt ,,humbug‘'
titlakerfi F.I.D.E. er orðið.
Það kom engum á óvart að
Spassky skyldi sigra í móti
þessu’, enda stóðu veðmálin
mjög honum í hag. Það sem
meira kom á óvart var hin
glæsilega frammistaða landa
hans Anatolj Ivutikov, en það
var ekki fyrr en í síðustu um-
ferð að Spassky tókst að skríða
fram úr honum. Lutikov þessi,
sem mun vera Síberíumaður
að uppruna, hefur að undan-
förnu vakið á sér mikla at-
fyrir skömmu þar sem hann
sigraði m.a. Keres.
í 3ja sæti kemur svo júgó-
slavneski stórmeistarinn Cir-
ic og mun þetta vera bezti ár-
ángur hans nú um skeið.
í fjórða sæti varð Bent Lar-
sen og var honum hægur
vandinn að fá a.m.k. 3ja sæti
en ákafi hans varð honum að
falli. Úrslitin urðu annars sem
hér segir: 1. Spassky 11 v., 2.
Lútikov 10% v., 3. Ciric 9 v..
4. Larsen 8%, 5. Darga 8 v.
o.s.frv. í B-riðli sigraði Kara-
klaic frá Júgóslavíu.
Við sklum nú líta á eina
skák úr fyrstu umferð þessa
móts og eigast þar við títt-
nefndur Lútikov og B. Larsen.
Hvítt: A. Lútikov (Sovétr.)
Svart: B. Larsen (Danm.)
Sikileyjar-vörn
(Ónnur leið er hér c3).
5. — Rf6
(Mjög óvarlegt hefði verið að
tvískipta á c3 þar eð svarta
kóngsstaðan verður veik þeg-
ar biskupinn fer, auk þess að
hvítur hefur mun hraðari liðs-
skipan).
6. Rfd2! Dxc5
7. Rc4!
(Nú lendir svarta drottningin í
erfiðleikum).
7. — 0-0
8. e5 Rg4 Spassky
(Larsen gerir sér það full-
komlega ljóst að með rólegum (Svartur verður að koma
leikjum eins og t.d. Re8 yrði drottningu sinni í spilið, það
hann kafsigldur strax. Hann kostar hinsvegar allmörg
reynir þvi að flækja taflið). tempó).
9. Dxg4 d5 16. Dg3 a6
10. Be3 Db4 17. h4 Dc7
11. Dh4 dxc4 18. h5 b5
12. 0-0-0 Rc6 19. Be2 Bb7
(Auðvitað ekki Bxe5? vegna 20. h6 Bh8
13. a3 Da5; 14. Hd5 Dc7; 15. (Það er óvenjulegt að sjá Lar-
Rb5 og svartur getur gefizt
upp með góðri samvizku).
13 Hd5!
sen í slíkri stöðu. Hann getu
í raun og veru engu leikið i
meðan hvítur byggir í ró oi
hygli í Sovétríkjunum fyrir 1. e4 c5 (Hótar Hb5). næði upp stöðu sína).
glæsilega frammistöðu í hverju 2. Rf-3 g6 13. — e6 21. Bf3 Hfd8
mótinu á fætur öðru, má í því 3. d4 Bg7 14. Hc5! 22. Dh3 Dd7
sambandi nefna '3. sæti á al- 4. dxc5 (Mun sterkara en Hb5, svarta 23. Hdl De8
þjóðlegu móti í Kieslovodosk (í sömu umferð lék Kavalek drottningin er enn í sömu 24. g4 b4
nú í sumar, fyrir ofan ekki hér d5 gegn Szabo. Þar varð klemmunni). 25. Re2 Hxdlt
minni menn en Holmoff, Tal, áframhaldið 4. — b5; 5. c3 a6; 14. — f5 * 26 Kxdi Hd8t
Taimanov og Matulovic svo 6. a4 bxa4; 7. Da4, hvítur (Dræpi svarutr peðið á e5 þá 27. Kel b3
einhverjir séu nefndir, þó stóð vann). kæmi a3 og síðan Hxe5 og 28. axb3 cxbS
hann sig einnig mjög vel í 4. — Da5f vinnur mann). 29. gxf5 exf5
sveitakeppni Sovétríkjanna nú 5. Rc3 15. Í4 Db6 Framhald 1 00 co -cd