Þjóðviljinn - 12.03.1967, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 12.03.1967, Blaðsíða 12
Skákmenn ná merkum áfanga Skáksamhundii og TR kaupa húsnæ ði Þann 23. febrúar s.l. festi Xafl- félag Reykjavíkur kaup á 240 ferm. hæð að Grensásve.gi 26 hér I borg. Meðeigandi Taflfélagsins að húsnæðinu er Skáksamband íslands, sem á V3 hluta. • Ekki hefur endanlega verið gengið frá teikningum af innréttingu hæð- arinnar, en þar 'eru nú tvcir sal- ir, sem sameina má með lítilli fyrirhöfn þannig, að úr verði 140 fermetra salur mjög hentugur fyrir hvers konar skákkeppnir. rúmgóð herbergi, sem nota má til skrifstofuhalds og minni háttar skákæfinga. Áminnztur samkomusalur mun Ragnar Alþýðu- bandalagið í Kópavogi Félagsfundur verður í Fé- lagsheimlli Kópavogs n.k. þriðjudagskvöld og hefst kl. 9. DAGSKRA: 1. Skýrt frá framboði Al- þýðubandalagsins í Reykja- neskjördæmi. Gils Guð- mundsson, alþingismaður flytur ávarp. 2. Lýðræði í atvinnulífinu. Ragnar Arnalds alþingis- maður flýtur erindi. — STJÓRNIN. BlaSskák TR:TA SVART: TA: Jón Björgvinsson Þorgeir Steingrímsson. abcdet gh 4 9 4 •» $ . i abedefgh HVÍTT: TR: Arinbjörn Guðmundsson Guðjón Jóhannsson 13 Be:3 — rúma vel öll hin árlegu skák- mót Taflfélags Reykjavíkur, en þau eru ágústmót, haustmót, bik- arkeppni, skákþing Reykjavíkur, skákkeþpni skólanna á« vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur og T.R. og hraðskákkeppni. Einmg mun salurinn nægilega stór fyrir skákþing íslands, en á undan- förnum árum hefur fjöldi þátt- takenda í skákþingi Reykjavíkur og skákþingi íslands verið svip- aður. Húsnæðiskaup þessi bæta úr mjög brýnni þörf Taflfélags Reykjavíkur, sem hefur verið í hinu mesta húsnæðishraki allt frá byrjun síðustu heimsstyrj- aldar. Hinar nýju aðstæður gera félaginu kleift að endurskipu- Ieggja alla starfsemi sína og er það von félagsins,. að það geti í náinni framtíð séð fyrir hús- næðisþörfum hinna ýmsu hópa skákmanna, sem greinast bæði eftir aldurs- og skákstyrkleika- flokkum. Aðdragandi þessa átaks í skák- málum borgarinnar var sá, að á sl. sumri ákvað stjóm Taflfélags Reykjavíkur að vinna að fjár- öflun til kaupa á húsnæði fyr- ir starf.semi félagsins, en félag- ið hefur haft húsnæðiskaup á stefnuskrá sinni það sem af er þessari öld eða frá stofnun þess í október árið 1900. Fjáröflun féfagsins gekk það vel, að í des- embermánuði sl. sá stjóm T. R. fram á, að kleift yrði að festa kaup á hæð eða húsi fyrir fé- lagið Dg bauð þá Skáksambandi Islands að eiga hlut að húsnæð- iskaupunum. Skáksambandið hef- ur þörf fyrir um 30 ferm. hús- næði til starfsemi sinnar, sem í stómm dráttum er önnur en starfsemi T. R. og ekki bundin félagssvæði T. R. öðmm frem- ur- Má segja, að skáksambandið hafi þannig hlaupið undir bagga með Taflfélaginu um leið og það tryggði sér skrifstofúhúsnæði til frambúðar. Andri Heiðberg og Grétar Bergmann í þyrlunni. Ný varahlutaþjóii' usta í Kópavogi Þyrla notuð tit að koma varahlutum út í skip F5 og Loftleiðir opnuðu í gær: Sameiginiega wöruaf- gréiisiu, Flugfrakt í dag verður opnuð sameig-1 leyti lagt á það áherzlu að inleg vöruafgreiðsla Flugfé- greiðsla tolla gæti einnig verið Þessa dagana er að hefjast varahlutaþjónusta hjá Bílaprýði hf. að Kársnesbraut 1. Verða pöntuð tæki og varahlutir frá Hamos Co. í New York og má búast við að innflutningur vara- hlutanna taki skemmri tima en hingað til hefur verið hægt að bjóða upp á þegar þeir hafa verið keyptir frá umboðunum- Eigandi Bílaprý'ði er Grétar Bergmann og hefur hann fengið til samstarfs við sig Andra ö. Heiðberg, vélsmíðameistara, kaf- Sýning á Marat/Sade fyrir verklýðsfélög Næstkomandi ' miðvikudags- kvöld verður haldin sýning í Þjóðleikhúsinu á Marat/Sade fyrir félaga innan vébanda verk- lýðsfélaganna í Reykjavík. — Nánar auglýst í blaðinú eftir helgina. Almennur umræðufundúr SHÍ um fjármuluspillingu Annað kvöld. mánudag, verð- ur haldinn almennur umræðu- Flytur erindi um íslenzka kven- búninga N.k. þriðjudagskvöld flytur frú Elsa E. Guðjónsson magist- er síðara erindi sitt á vegum Stúdentafélags Háskólans, og fjallar það um íslenzka kven- búninga. í fyrra erindi sínu, sem var mjög fjölsótt, talaði frú Elsa um fornan vefnað og útsaum. — Erindið verður flutt í 1. kennslustofu Háskólans og hefst kl. 20.30. — Öllum er heimill aðgangur. Merkjasala barna- heimilissjóðs Hafnarfjarðar í dag, 12.- marz, er fjáröflun- ardagur barnaheimilissjóðs Hafn- arfjarðar. Á vegum sjóðsins er rekið sumardvalarheimili fyrir hafnfirzk börn sem er Glaum- bær í landi Óttarsstaða. Þar hafa dvalizt á hverju sumri milli 50—70 börn á aldrinum 6 til 8 ára. Að barnaheimilis- sjóði standa Barnavinafél. Hafn- arfjarðar, Hafnarfjarðardeild RKÍ, Kvenfélagið Hringurinn í Hafnarfirði og BarnaVerndar- nefnd Hafnarfjarðar. f dag verða seld mejki til ágóða fyrir sjóð- inn og era Hafnfirðingar beðn- ir að bregðast vel við og karrpa merki. fundui á vegum Stúdentafélags Háskóía íslands á Hótel Borg og hefst fundurinn kl. 20.30. Fundarefni: Fjármálaspilling, félagsleg upplausn og réttVísin á íslandi. • ■Frummælendur á fundinum verða: Einar Ágústsson, banka- stjóri, Sigurjón Björnsson, sáb fræðingur og Haraldur Henrýs- son, dómarafulltrúi. Að loknum framsöguræðum verða almennar umræður. Öll- um er heimill aðgangur. Góukaffi SVFÍ á Hótel Sögu 1 dag sunnudag 12. þ.m. verð- ur hið árlega og velkynnta Góu- kaffi Kvennadeildar Slysavama- félags Islands í Reykjavík i Súlnasal Hótel Sögu og hefst klukkan hálf þrjú s.d. Hlaöþorð með kræsingum miklum, kökym og smurðu brauði verður á boðstólum, að venju. Nú verður sú nýbreytni tekin upp að ýmsir skemmti- kraftar koma fram meðan setið er undir borðum. Tvöfaldur kvartett syngur, Karl Einarsson skemmtir með gamanþætti dfe þrír ungir piltar úr Kópavogi syngja og leika á hljóðfæri. Allur ágóði af kaffisölunni renpur nú sem fyrr til hinnar margháttuðu starfsemi Slysa- varnafélgs Islands og treysta konurnar nú sem endranær á góðar undirtektir borgarbúa um leið og þær þakka þeirra ágæba stuðning á liðnum árum. ara og flugmann með meiru, sem mun fara á þyrlu, sem hann keypti í haust, til skipa á hafi úti og jafnvel aðstoða við ísetn- ingu varahluta ef þess er óskað. Þeir félagár kölluðu blaða- menn á sinn fund nýlega og sögðu frá fyrirhuguðu samstarfi sínu. Til að byrja með verður annaðhv. hringt út til Hamos Co. eða sent skeyti þegar panta þarf varahluti í bíla, skip o.fl. en þeir hyggjast fá lánaðan telex hjá Loftleiðum þár til Landsíminn kemur með telex sem verður á næstunni. Telex er mikið notað ur af fyrirtækjum erlendis og er hér um síma að ræða en ekki er talað í hann heldur vélritað. Hamos Co. í N. Y. afgreiðir varahlutina á 24-48 klukku- stundum frá því að skeyti eða símahringing kemur til þeirra. Má gera ráð fyrir að útvegs- menn taki þessari þjónustu feg- ins hendi því að oft. kemur það fyrir að bátar þurfa að liggja bundnir í lengri eða skemmri tíma vegna þess að varahluti vantar. Umræðufundur um heilbrigðismál Stúdentafélag Háskólans og Stúdentafélag Reykjavíkur efna til almenns umræðufundar n.k. fimmtudag kl. 20,15 í Sigtúni. Umræðuefnið verður heilbrigðis mál — stjórnsýsla, framkvæmd- ir og þróun Framsögumenn verða Árni Björnsson, læknir, Ásmundur Brekkan, læknir og Jóhann Hafstein. heilbrigðis- málaráðherra. Að framsöguræðum loknum verð^ almennar umræður og er öllum heimill aðgangur að fund- inum. Sunnudagur 12. marz 1967 — 32. árgangur —' 60. tölublað. lags íslands og Loftleiða, a vörum sem flugvélar . félag- anna flytja til landsins og nefnist hún Flugfrakt. Verð- ur afgreiðslan í húsinu á horni Sölvhólsgötu og Ingólfs- strætis, þar sem Grænmetis- verzlun ríkisins var áður. Með tilkomu nýju vöruaf- greiðslunnar stórbatnar að- staða viðskiptamanna félag- anna og um leið kemur til framkvæmda auglýst lækkun flutningsgjalds í tollverði vöru sem flutt er með flug- vélum og nemur lækkunin 50% frá raunverulegu flutn- ingsgjaldi Aðdragandi þessara fram- kvæmda er sá að í fyrra kom tollgæzlustjóri. Ólafur Jónsson f.h. tollstjóra, að máli við bæði flugfélögin vegna þess að hann taldi að tollgæzlan hefði ekki lengur aðstöðu til að afgreiða erlenda flugfrakt og kæmi þar hvort tveggja til, húsnæðipskort- ur og mannfæð. að ógleymdu því að magn þessara flutninga væri nú sívaxandi. í þessum viðræðum kom í ljós að tollgæzlan hafði ráð á húsnæði sem henta þótti fyrir eina sameiginlega afgreiðslu fé- laganna og varð það úr að bæði flugfélögin tóku það á leigu. Hafa Einar Helgason af hálfu FÍ og Ólafur P. Erlendsson af hálfu Loftleiða undirbúið málið og var samið um að félögin hefðu sérstakt húsnæði fyrir eigið skrifstofufólk, en að vöru- afgreiðslumenn yrðu ráðnir sam- eiginlega, Húsnæði þetta er á tveimur hæðum. Er það mjög rúmgott og hentugt í alla staði. Á fyrstu hæð verða skrifstofur starfs- manna félaganna, skrifstofa snyrtiherb. og rúmgóð geymsla fyrir. minni vörusendingar. Þar verður einnig veitt móttaka öll- um þeim vörum, er koma er- lendis frá með flugvélum. Á jarðhæð eru um 440 fermetra vörugeymslur. — Á húsnæðinu hafa undanfarið verið gerðar gagngerar breytingar sem skipu- Iagðar voru af Skúla Norðdahl arkitekt. Flugfélögin s hafa fyrir sitt innt af hendi í húsnæði þessu og er það nú til athugunar hjá tollayfirvöldunum. Undanfarin ár hafa flugfélög- in óskað þess að heimild sú sem er i tollskrárlögum um lækk- un flutningsgjalds með flugvél- um í tollverði vöru yrði not- uð og hefur fjármálaráðuneytið nú ákveðið að nota þessa heim- ild og var af þess hálfu birt um það auglýsing hinn 27. febr. síðastliðinn. i Svetlana 5 Sfalín er í Sviss i i GENF 11/3. Dóttir Jósefs | Stalíns, Svetlana, kom í i morgun til Genf með einka- j flugvél frá Rómaborg. Er j það haft eftir heimildum ■ sem taldar eru áreiðanleg- i ar að hún muni fá hæli ! sem pólitískur flóttamaður j í Sviss. Svo rnikið er vitaö, að ■ dómsmálaráðuneytið í Sviss : hefur staðfest, að Svetlana j Stalín hafi fengið dvalar- j leyfi í Iandinu „til bráða- ■ birgða.“ Talið er að Bandaríkja- : menn, sem komu Svetlönu j frá Indlandi eru taldir hafa j beitt sér fyrir því að hún j settist að í Sviss þar eð i þeir óttast að það kunni að i spilla sambúð Sovétrikj- j anna og Bandaríkjanna ef ■ hún færi vestur um haf, ■ eins og fyrst var ætlað. Skákþing Kópavogs Taflfél. Kópavogs var stofnað á sl. hausti og hafa farið fram reglulegar æfingar á mánudags- kvöldum í vetur. Nú er ætlunin að-efna til Skákþings Kópavogs á sunnudaginn í Gagnfræðaskól- anum og hefst skákin kl. tvöum daginn. Tefldar verða tvær um- ferðir. UTSALA O karlmannaskóm Geysifjölbreytt úrval Verð frá kr. 398 SKÓBÚf) AUSTURBÆJAR Laugavegi 100. >

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.