Þjóðviljinn - 06.04.1967, Qupperneq 1
Dagblað alþýðunnar segir
Líu Sjaó-sí forsetí
réðst gegn Maó '62
Fimmtudagur 6. apríl 1967 — 32. árgangur — 77. tölublað.
j PEKING 5/4 — Enn heldur hat-
itramrl herferð álram gegn Líu
Aðalfundi Alþýðubandalagsins í
Reykjavík frestað til mánudags
■ Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík sem verða átti í kvöld, fimmtudag, er
frestað til mánudagsins 10. apríl en þá verð-
ur auk aðalfundarstarfa tekið fyrir framboð
Alþýðubandalagsins í Reykjavík við alþing-
iskosningamar í vor. Fundurinn verður í
Tónabíó og hefst kl. 20,30.
■ Alþýðubandalagsmenn í Reykjavík eru
minntir á að greiða félagsgjöldin í skrifstof-
una í Lindarbæ. — Stjómin.
BorggrsJúkrahúsjB til umrœðu / borgarsfjórn / dag:
Hvenær hefjast bygginga-
framkvæmdirnar að nýju?
■ Fraankvæmdir við byggingu Borgarsjúkrahúss-
ins í Fossvogi hafa nú legið niðri mánuðum sam-
an. Á fundi borgarstjómar í dag munu fulltrúar
Alþýðubandalagsins vekja umraeður um spítala-
bygginguna.
Alþýöubandalagsmenn flytja
6Vofellda fyrirspurn: — Hvenær
má vænta þess, að fullur gangur
hefjist að nýju við byggingu
Borgarsjúkrahússins í Fossvogi,
og hvað líður skilum og upp-
gjöri á ógreiddum framlögum
ríkissjóðs til sjúkrahússbygging-
arinnar?
Þá flytja borgarfuílltrúar Al-
þýðubandalagsins tillögu um
skipulag sj úkrahússlóöarinnar,
svohljóðandi: „Borgarstjórnin fel-
ur skipulagsdeild og skipulags-
nefnd borgarinnar að ganga hið
allra fyrsta frá skipulagi á lóð
Borgarsjúkrahússins í Fossvogi
og hafa um það samráð við
sjúkrahúsnefnd og húsameist-
ara“.
Af öðrum málum, sem eru á
dagskrá borgarstjórnarfundarins í
dag, má nefna svohljóðandi til-
Iögu Aiþýðubandalagsmanna:
Fjórir tundur-
spillar heim-
sækja Reykjavík
Hinn 26. þ.m. munu fjórir tund-
urspillar koma í heimsókn til R-
víkur. Skip þessi taka nú þátt
í hinum árlegu flotaaefingum At-
lanzhafsbandalagsins og er eitt
þeirra hollenzkt, eitt brezkt ©g
tvö bandarfsk. Þau sigla út aftur
29. þ.m.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Geðrannsókn
í gær hafði Þjóðviljinn sam-
band við Sverri Einarsson, rann-
óknarlögreglufulltrúa og spurðifit
fyrir um hvað liði geðrannsókn
Þorvaldar Ara Arasonar. Sagði
Sverrir að rannsókninni lyki
sennilega fyrir miðjan mánuðinn
en þó væri það ekki alveg ör-
uggt, allavega lýkur henni í
þessum mánuði.
„Borgarstjórnin ályktar að
fela borgarráði að skipa nefnd
3ja manna, sérmenntaðra í upp-
eldisfræði, sálarfræði og geð-
lækningum, til að rannsaka fyr-
irkomulag og uppeldisskilyrði i
vöggustofu Thorvaldscnsfélags-
ins að Hlíðarenda. Skal ncfnd-
in skila skýrslu um niðurstöð-
ur sínar til borgarráðs og borg-
arstjórnar, ásamt tillögum um
framtíðarrekstur vöggustofunnar.
I tiilefni umræðna sem urðu í
borgarstjórninni 2. marz sl. um
vöggustofuna að Hlíðarenda ber
Sigríður Thorlacius (F) fram
fyrirspurn á borgarstjómarfund-
inum í dag. Sami Framsóknar-
fulltrúi ber fram tillögu um að
það verði borið undir atkvæði R-
víkinga við alþingiskosningarn-
ar í sumar, „hvort þeir séu sam-
Þessi útlitsteikning af borgarsjúkrahúsinu í Fossvogi birtist hér
í blaðinu um það leyti sem framkvæmdir við smíði hússins voru
að hefjast. Okkur þykir rétt að birta hana nú aftur — hálfum
öðrum áratug síðar.
þykkir eða andvígir því, aðfyr-^ ________________
irhugað ráðihús borgarinnar verði
byggt í norðurenda Tjamarinn-
ar, eins og fyrrverandi borgar-
stjórn ákvað“.
Ýmis fleiri mál em á dag-
skrá borgarstjómarfundarins,
sem hefst kl. 5 sd. í Skúlatúni
2.
Sjaósí, forseta Kína, og telja
margir að honum verði bráðlega
vikið frá.
Aðalmálgagn kommúnista-
flokksins, Dagblað alþýðunnar,
skrifar, að árið 1962 hafi kom-
ið til ágreinings í forustu flokks-
ins og hafi Líu Sjaosí þá róðizt
heiftarlega gegn Maó Tse-tung.
Kína hafi þá átt í erfiðleikum
bæði að því eð varðar innanríkis-
is- og utanríkismál, og hafi for-
setinn þá mælt með gagngerðri
endurskoðun á stefnu flokksins.
í NTB-frétt er sagt að klofn-
ingurinn í flokksforystunni hafi
orðið í sambandi við versnandi
sambúð við Sovétríkin og Ind-
land og slæma uppskeru.
Þetta er í fyrsta sinn að á-
sakanir gegn Líú eru bornar
fram með þessum hætti í aðal-
málgagni flokksins.
farnar miklar mótmælagöngur
Með þessu atviki hafa atburðir
í Kína tekið á sig nýjan svip þar
eð það hefur verið stefna komm-
únistaflokks landsins að taka
ekki opinberlega afstöðu gegn
þeim forystumönnum sem hafa
orðið fyrir árásum rauðra varð-
liða. Það er og til þess tekið að
enginn hefur orðið til þess að
taka málstað Líú forseta.
Fimmta daginn í röð voru
gegn forsetanum — gengu varð-
liðar og skólabörn um miðborg-
ina. og hrópuðu að þau væru á
leið til útfarar Líú Sjaósí. Þá
segja veggblöð að ummæli um
forsetann verðj felld niður úr
Maókverinu rauða.
Alþýðubanda-
lagsmenn í
Kópavogi
Næstkomandi laugardags-
kvöld kl. 20,30 heldur Alþýðu-
bandalagið í Kópavogi kynn-
ingar- og skemmtikvöld.
Skemmtiatriði og dans til
kl. 1 e.m.
Fjölmennið og takið með
ykkur gesti.
— Skemmtinefndin.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■BBBBuaa
Kosningaskrif-
stofa í Reykja-
neskjördæmi
Alþýðubandalagið í Reyikja-
neskjördæmi hefur opnað
kosningaskrifstafu í Þinghól
í Kópavogi.
Opið alla virka daga kl. 5
til 7. Sími 41746.
Forseti fslands
var skorinn upp
í gærmorgun
I gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
skrifstofu forseta Islands:
Forseti Islands, herra Ásgeir
Ásgeirsson var skorinn upp í
morgun á Bispebjerg sjúkrahúsi
l Kaupmannahöfn, vegna blöðru-
hálskirtils.
Uppskurðurinn, sem var fnam-
kvæmdur af prófessor dr. med.
Christoffersen tókst vel og er
h'ðan forseta eftir atvikum góð.
Aukin samvinna Norðurlanda
á sviði rannsókna athuguð
Rannsóknaráð Norðurlanda,
eða „Samstarfsstofnun Norður-
landanna um hagnýtar rannsókn-
ir“, sem hefur það verkefni að
stuðla að samvinnu Norður-
landanna á sviði vísinda, athug-
ar nú á hvem hátt unnt er að
auka þetta samstarf Norðurlanda-
þjóðanna. Forstjóri rannsóknar-
stofnananna í Þrándheimi, Kai'l
Stenstadvold, hefur verið feng-
inn til þess að afla upplýsinga
um rannsóknarstarfsemi á Norð-
urlöndum og gera tillögur um
nánara samstarf.
Karl Stenstadvold kom hing-
að til lands sl. mánudag og mun
dvelja hér þessa viku til við-
rasðna við forustumenn á svið-
um vísinda og atvinnuvega.
Rannsóknarráð ríkisins, sem er
meðlimur í rannsóknarráði Norð-
urlanda fyrir Islands hönd, skipu-
leggur heimsókn hans hér.
Fimmtudaginn 6. þm., kl. 5,15
e.h., mun Karl Stenstadvold
flytja erindi í 1. kennslustofu há-
skólans um norrænt samstarf á
sviðum vísinda og skipulag rann-
sóknarstarfseminnar í Þránd-
heimi. Öllum er heimill aðgang-
ur.
(Frá Rannsóknaráði ríkisins).
••■■■Mmn
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!
Arshátíð Sósíalista-
félags Reykjavíkur
Sósíalistafélag Reykjavíkur heidur árshá-
tíð í Tjarnarbúð laugard. 15. apríl. Hefst
hún með borðhaldi kl. 7.
DAGSKRÁ
1. Ávarp.
2. Einleikur á fiðlu: Jakob Hallgríms-
son. Undirleik annast Jónas Ingi-
mundarson.
3. Sverrir Kristjánsson les upp.
Skemmtinefndin.
Hvernig er markaðsverð íbúða í Rvík?
Sölutregða er nú á gömlu
og ófullnægjandi húsnæði
■ Mikil sölutregða hefur verið á gömlum íbúðum og kjall-
araíbúðum hér í borginni í vetur, — hafa flestir fasteigna-
salar tugi af slíkum íbúðum á söluskrá hjá sér og hreyf-
ast þær varla til solu.
■ Sérstaklega er hér átt við gamlar íibúðir, ófullnægj-
andi á ýmsan hátt, sem fjárvana fólk hefur keypt til þessa
að forða sér frá leiguokri.
Svona ástand hefur ekki 1-ngi
verið á íbúðamarkaðnum í
Reykjavík, — jafnvel um ára-
tugi, — hefur slíkt ófullnægj-
andi húsnæði ekki síður selzt en
annað á uppsprengdu verði og
hefur teningsmetrinn verið hvað
dýrastur í slíku húsnæði miðað
við gæði.
Hver er svo skýrmgin á þessu
ástandi?
Sérfróðir menn telja, að skort-
ur á yfirvinnu sé meðal annars
ástæðan samfara lánsfjárskorti
í bönkum og skapi það tregðu
hjá þessu fjárvana fólki að taka
á sig skuldbindingar er nema frá
200 þúsundum til 500 þúsunda í
slíkum ófullnægjandi íbúðum,
— auk skyndiláns í bönkum fyr-
ir fyrstu útborgun.
Þá binda menn einnig vonir
við íbúðaáætlunina á vegum rík-
is og bæjar, sem samþykkt var í
júnísamkomulagi verkalýðsfélag-
anna við ríkisstjórnina, — hrýs
þó mörgum hugur við vísitölu-
bindingu lána á þeim íbúðum.
Góðar kjallaraíbúðir hafa og
verið dræmar í sölu og kostar
til dæmis 85 til 90 fermetra
kjallaraíbúð kr. 750 til 850 þús-
und og greiðist kr. 400 til 500
þúsund út. Nýlegar og nýjar
íbúðir hafa verið viðstöðulaust
í sölu á markaðnum og hafa ver-
ið nokkuð misjafnar í verði
vegna lánsfjárskorts, — hafa eig-
endur verið misjafnlega að-
þrengdir við byggingu nýrra í-
búða.
Þannig kosta 2ja herbergja í-
búðir, — 60 til 70 fermetra, —
kr. 800 til 850 þúsund með kr.
500 tií 550 þúsund útborgun.
Þriggja herbergja íbúðir — 85
til 90 fermetra — kosta frá einni
miljón til 1,1 miljón og geta far-
ið á 1,2 miljón á góðum stöðum
í borginni.
Þar er útborgun frá kr. 650
til 750 þúsund.
Framhald á 9. síðu.