Þjóðviljinn - 06.04.1967, Blaðsíða 2
2 SÍ»A----WÖÆWItaiNasr — Kmm&idagur C- apífl líffi3.
Séð yfir miðhluta Leipzig-borgar, gamlatr byggingar og nýjar. Tómasarkirkjan ©r fremst á myndinni, fyrir miðju.
Kór Témmarkirkjunnar í Leip-
zig flytur íslenik ténverk
Hinn 27. og 28. janúar s.l.
flutti hinn heimskunni kór
Tómasarkirkjunnar í Leipzig
undir stjórn Tómasarkantors,
prófessor Erhard Mauersberger,
á hinum vikulegu tónleikum
sínum í kirkjunni, mótettu fyr-
ir blandaðan kór eftir Hallgrím
Helgason, „Þitt hjartans barn“.
Ennfremur lék Tómasarorgan-
isti Siegfried Pritsche á orgel
„Ricercare" eftir Hallgrím.
Drengjakórinn í Leipzig, sem
kenndur er við St. Tómas-kirkj-
una, á sér langa og merka sögu.
Hann átti 750 ára afmæli 1962,
stofnaður árið 1212. En til sam-
anburðar má geta þess, að á
því stofnári var Snorri Sturlu-
son fulltíða maður, 34 ára að
aldri.
Drengirnir hafa alla tið hlot-
ið menntun sína í Tómasarskól-
anum, sem fyrst var rekinn af
Tómasar-klaustrinu en er nú
einn af menntaskólum borgar-
innar Leipzig. Drengirnir búa
jafnan í heimavist. Fyrir ó-
keypis vist og kennslu voru
þeir látnir sjá um kirkjusöng.
Tómasar-kórinn er tengdur
ýmsum merkum sögulegum at-
burðum. Þannig söng hann við
stofnun háskólans í Leipzig ár-
ið 1409 og á undan rökræðum
siðabótamannsins Marteins Lút-
hers og Jóhanns Eck 1519, en
þá stjórnaði honum tónskáldið
Georg Rhau.
í embætti Tómasar-kantors
hafa valizt margir öndvegis-
menn tónlistarsögunnar sem
söngstjórar og tónskáld. Hefur
það ekki sízt stuðlað að fágæt-
um frama kórsins.
Með tilkomu Johanns Sebast-
ians Bachs 1723 sem stjórnanda
kórsins hefst eitt mesta blóma-
skeið kórsins um 27 ára skeið.
Nær allar kórtónsmíðar Bachs
voru samdar fyrir Tómasar-
kirkjuna. Kantötur hans voru
skrifaðar fyrir guðsþjónustur og
fluttar af Tómasarkómum með
undirleik bæjarpípara, en svo
nefndust fastráðnir hljóðfæra-
leikarar borgarinnar. Með
dauða Bachs 1750 lauk glæsi-
legasta tímabili í sögu skólans
og kórsins. Eftirmenn hans, Har-
rer og Doles voru frekar at-
kvæðalitlir og jafnvel Hiller
sem stofnaði Gewandhaus-
hljómleikana, kom ekki auga á
listgildi verka Bachs. Glögg-
sýnni var kennari Schumanns
og Wagners, Weinlig, sem tók
til meðferðar mótettur Bachs,
en hann var kantor 1823—1842.
Uppteknum hætti hans héldu
Hauptmann, Richter og Rust.
Einn ágætasti kantor síðari
tíma var Karl Straube, kennari
Páls ísólfssonar. Hann hóf
starfið 1918 og markaði tima-
mót með því að uppgötva og
flytja kórverk 16. og 17. aldar,
en einnig nútímamúsík. Undir
hans stjórn hefst heimsfrægð
kórsins með fyrstu utanlands-
förinni 1920. Og hann vann eitt
hið mesta tónlistarafrek þess-
arar aldar með því að flytja i
útvarp allar 230 kantötur Bachs
með Tómasar-kórnum og Ge-
wandhaus-hljómsveitinni.
Árið 1940 tók Gúnther Ramin
við drengjakórnum og sungu þá
í honum 80 drengir. Hækkar
nú enn vegur kórsins, og á al-
þjóðlegu æskusöngmóti í Bern
í Sviss er hann 1948 kjörinn
beztur allra drengjakóra. 1955
fór kórinn undir stjórn Ramin
í lengstu hljómleikaför sína til
Suður-Ameríku.
Saga drengjakórsins í Leipzig
er óslitin hefð margra alda,
merkur þáttur í tónlistarþróun
Evrópu. Og hvergi eiga meist-
araverk Bachs jaín öruggt at-
hvarf og í túlkun þessa kórs.
Það mega því teljast gleðitíð-
indi að slíkur kór skuli flytja
íslenzkt kórverk, en á efnisskrá
með mótettu Hallgríms var 18.
kantata Bachs og tvö verk eft-
ir Reger.
Stjómandi kórsins próf. E.
Mauersberger, en hann tók við
honum 1961 lætur svo um-
mælt, að kórinn hafi haft
ánægju af að syngja verk Hall-
gríms og að því hafi verið
mjög vel tekið af stórum á-
heyrendahópi.
Félag veggfóðrara
Aðalfundur Félags veggfóðr-
arameistara var haldinn 5. marz
síðastliðinn. Stjórn félagsins var
öll endurkjörin, en hana skipa:
Form.: Stefán Jónsson; vara-
form.: Ólafur Ólafsson; ritari:
Þorsteinn Friðriksson; gjaldkeri:
Kristján S. Kristjánsson og að-
stoðargjaldkeri: Tómas Waage.
Endurskoðendur: Þorbergur Guð-
laugsson og Valur Einarsson.
ararnir
Kosningar nálgast og gam-
alreyndar aðferðir eru tekn-
ar út úr áróðurshirzlunum og
dustað af þeim rykið. Tíminn
heldur því fram með næsta
reglulegu millibili að eftir
kosningar ætli Sjálfstæðis-
flokkurinn að taka upp stjórn-
arsamvinnu við Alþýðubanda-
lagið, enda hafi Bjarni Bene-
diktsson æft sig á því heilt
kjörtímabil á þingi að kjósa
kommúnista í nefndir. Morg-
unblaðið svarar með því að
halda þvi fram að Framsókn-
arflokkurinn sé raunar upp-
tendraður af hliðstæðum hug-
renningum og skuli enginn
taka mark á staðhæfingum
hans um hið gagnstæða; menn
hafi ekki gleymt því hvernig
Tíminn hafi svarið á kjördag
1956 að mynda aldrei stjórn
með Alþýðubandalaginu en
engu að síður hafi Framsókn-
arflokkurinn verið kominn í
vinstristjómina mánuði síð-
ar.
Þótt áróðursskrif af þessu
tagi séu gamalreynd, geta þau
naumast haft áhrif á nokkurn
mann lengur. Sú staðreynd
hefur blasað við í heilan ald-
arfjórðung að allir stjórn-
málaflokkar á íslandi geta
unnið saman og hafa unnið
saman. Ríkisstjórnir hafa ver-
ið myndaðar með flestum
hugsanlegum samsteypum
flokka; flokkarnir hafa unnið
saman á margvíslegasta hátt
í bæjarstjórnum, verklýðsfé-
lögum og hverskyns öðrum
stofnunum; þeir hafa bundizt
samtökum á víxl um fram-
gang einstakra mála. Allt tal
um bannhelgi í því sambandi
eru órar sem skortir rót í
veruleikanum.
Hin gagnkvæmu fordóma-
skrif Morgunblaðsins og Tím-
ans eru vafalaust þægileg úr-
ræði fyrir hugmyndalausa
leiðarahöfunda, en þau segja
ekkert um það hvað gerast
muni eftir kosningar. Það sem
þá tekur við er gersamlega í
höndum kjósenda. Fái Alþýðu-
bandalagið þá fylgisaukningu
sem það verðskuldar munu ;
Bjarni Benediktsson og Ey- ;
steinn Jónsson keppast um ]
það hvor fyrri verði að bregða j
sér í biðilsbuxurnar og berja ;
upp á hjá Alþýðubandalag- i
inu. Hins vegar verða það ]
málefni sem skera úr um það ]
hvorum eljaranna kann að ;
vegna betur.
Trú- |
lega ekki i
í hinu áhrifamikla leikriti ]
Marat/Sade eru rifjaðar upp ]
hryllingsfrásagnir úr borgara- i
byltingunni frönsku. Meðal j
annars er frá því greint að ]
um þær mundir sem fallöxin ;
var hvað mikilvirkust hafi ;
komið fram í París nýtt leik-
fang, barnafallöxi með brúðu,
og var hægt að skilja höfuðið
frá bolnum á fjalhögginu með
viðeigandi blóðrennsli, svo að
yngsta kynslóðin færi ekki
varhluta af gleði dagsins.
Bjarni Benediktsson forsætis-
ráðherra taldi þessa lýsingu
og aðrar hliðstæðar martröð,
sem þjóðleikhús mætti ekki
sýna, í Reykjavíkurbréfi sínu
á sunnudaginn var. Hann er
þá trúlega ekki einn af við-
skiptavinum leikfangaverzlun-
arinnar á Laugavegi 11, þeirr-
ar sem hefur á boðstólum
eftirlíkingar á bandarískum
atvinnumanndrápurum, með
liðamótum, og auglýsir þær i
málgagni forsætisráðherrans.
— Austri.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
NEMENDASÝNINGAR
laugardaginn 8. april - sunnudaginn 9. april
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000
FLOGIÐ STRAX
FARGJALD
GREITT SÍÐAR
I.T.-
ferðir
[-
Ferðaskrifstofa okkar hefur nýiega gefið út bækling
um IT-ferðir til Oslo, Kaupmannahafnar, Helsinki,
Amsterdam, Glasgow, London og Luxemborgar á
tímabilinu frá 1. apríl til 31. október. í ferðum þess-
um gefst ferðamanninum tækifæri til þess að fá ódýr-
ar ferðir til þessara ianda þar sem innifalið er í verði
gisting, morgunmatur og ferðir innan þessara landa
eftir eigin vali. Takið ekki ákvörðun um ferðalagið
án þess að kynna ykkur þessi kjör. Sendum bækling-
inn til þeirra er óska. Lítið inn í skrifstofu okkar og
látið okkur skipuleggja ferðalagið. — Auk þess selj-
um við farmiða með öllum flugfélögum innanlands og
utan, farmiða með skipum, járnbrautum. — Hringið
og við sendum yður miðana heim ef óskað er.
LANDS9N ^
FERÐASKRIFSTOFA
/). UUGAVEG 54 - SÍMAR 22890 & 22875 -BOX 465
BLAÐADRCIFINC
Blaðburðarfólk óskast í eftirtalin hverfi:
Vesturgötu — Kvisthaga — Höfðahverfi