Þjóðviljinn - 06.04.1967, Qupperneq 10
10 SffikA — ÞJÓÐVXLJIiNN — Fiirankndagur 6. apcS ltS&L
SAFNARINN
29
Engiim myndi geta trúað
hvernig ailt er. Hann heldur
mér sem algerum fanga. En að
öllu öðrnx leyti drottna ég yfir
honum. Mér er ljóst að hann ýtir
undir það, það er bragð til að
koma í veg fyrir að ég sé eins
óánægð og ég ætti í rauninni að
vera.
Þannig var það einmitt þegar
ég annaðist um Donald í fyrra-
vor. Mér fór að finnast eins og
ég ætti hann, að ég vissi allt um
hann. Og mér varð meinilla við
að hann skyldi fara til Italíu á
þennan hátt, án þess að láta mig
vita. Ekki vegna þess að ég væri
í rauninni ástfangin af honum,
en vegna þess að hann var minn
á vissan hátt og hafði ékki feng-
ið leyfi hjá mér.
Þessi einangrun sem ég er £.
Engin dagblöð. Ekkert útvarp-
Ekkert sjónvarp. Ég sakna frétt-
anna skelfilega. Það gerði ég aldr-
ei áður. En nú finnst mér sem
heimurinn sé ekki lengur til.
Ég bið hann um blað á hverj-
um degi, en það er eitt af því
6em hann er ósveigjanlegur með.
Að ástæðulausu. Það er skrýtið,
ég veit að það er alveg tilgangs-
laust að biðja um það. Ég gæti
eins vel beðið hann að aka með
mig á næstu brautarstöð.
En ég held samt áfram að
biðja hann.
Hann sver og sárt við leggur
að hann hafi sent ávísunina til
andspymuhreyfingarinnar gegn
kjamorkuvopnum, en ég er ekki
viss um það. Ég aetla að biðja
hann um að sýna mér kvitbun-
ina.
Smáatvik. I dag um hádegið
langaði mig í Worcestersósu.
Það er ekki oft sem hann gleym-
ir einhverju, sem mig kynni að
langa í. En það var engin Wor-
cestersósa inni. Hann stendur
því upp, fer út, tekur af hengi-
lásinn sem heldur dyrunum opn-
um, læsir dyrunum, sækir sós-
una fram í fremri kjallara, opn-
ar dymar, setur hengilásinn á
aftur, kemur inn. Og svo verð-
ur hann undrandi á svipinn
þegar ég fer að hlæja.
Honum förlast aldrei í þessum
læsingum sínum. Endaþótt ég
kæmist í raun og vem fram í
fremri kjallarann óbundin, hvað
gæti ég svo sem gert? Ég
get ekki læst hann inni, ég get
ekki komizt út- Eina hugsanlega
fEFNI
SMÁVÖRUR
TÍZKUHNAPPAR
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18. III. hæð flyfta)
Sími 24-6-16
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33>-968.
tækifærið er þegar hann kemur
inn með bakkann. Og ef ég
kæmizt framhjá honum, þá gæti
ég læst hann inni. En hann fer
aldrei gegnum dyrnar nema ég sé
langt í burtu. Venjulega fer ég
og sæki bakkann.
Um daginn vildi ég það ekki.
Ég hallaði mér bara upp að
veggnum hjá dyrunum. Hann
sagði: gerið svo vel að færa yð-
ur. Ég starði bara á hann. Hann
rétti fram bakkann. Ég lét sem
ég sæi það ekki. Hann stóð
þama 1 öngum sínum. Svo beygði
hann sig varlega og gaf mér nán-
ar gætur á meðan og setti bakk-
ann niður fyrir innan dymar.
Svo fór hann aftur fram í ytri
kjallarann.
Ég var svöng. Hann sigraöi-
Þetta þýðir ekkert. Ég get ekki
sofið.
Þetta hefur verið skrýtinn
dagur, jafnvel hér.
Hann tók sæg af nýjum mynd-
um af mér í morgun. Hann nýt-
ur þess bókstaflega. Honum
þykir gaman þegar ég brosi til
myndavélarinnar, og tvisvar
geiflaði ég mig ferlega. Honum
fannst það ekkert fyndið. Svo
setti ég hárið upp með annarri
hendinni og lét sem ég væri fyr-
irsæta.
Þér ættuð að vera fyrirsæta,
sagði hann. Grafalvarlegur. Hann
skildi ekki, að ég va*r að gena
gys að öllu heila klabbinu.
Ég veit hvers vegna honum
þykir gaman að þessari mynda-
töku. Hann heldur að það geri
hann eins konar listamann í
mínum augum. Og auðvitað ber
hann ekki minnsta skynbragð á
ljósmyndun. Ég á við, hann fær
mig í fókus, það er allt og sumt.
Á ekki til hugmyndaflug.
Það er óhugnanlegt. Stórfurðu-
legt. En milli okkar er einhvers
konar samband. Ég geri gys að
honum, ég geri stöðugar árásir
á hann, en hann hefur alltaf
hugboð um, þegar ég er „veik
fyrir“. Þegar hann getur verið
hvassyrtur á móti án þess að ég
reiðist- Við getum ástundað eins
konar stríðni, sem jaðrar við aö
vera vinsamleg. Það er bæði
vegna þess hvað ég er einmana
og einnig er það með vilja gert
(ég er að reynai að fá hann til að
slaka á, bæði sjálfs hans vegna
til þess að hann gleymi sér ef
til vill einhvem daginn), og auk
þess er það veiklyndi og kænska
og sumpart meðaumkun. En svo
er ein ástæða enn sem ég get
ekki skilgreint. Það getur ekki
verið vinátta, því að ég hef and-
styggð á honum.
Kannski er það aðeins það, að
ég veit. Aðeins það að ég veit
margt um hann. Og ef maður
veit eitthvað um einhvem, þá
stendur maður einhvem veginn
nær honum. Þótt maður óski
þess að hann væri á annarri
stjömu.
Fyrstu dagamir. Ég gat ekki
gert neitt ef hann var í sama
herbergi. Ég lét sem ég væri
að lesa, en ég gat ekki beint
huganum að neinu. En nú
gleymi ég því stundum að hann
er héma- Hann situr við dymar
og ég sit í stólnum mínum og
les og við erum eins og tvær
manneskjur sem hafa verið gift-
ar árum saman.
Það er ekki þannig, að ég sé
búin að gleyma því hvemig amn-
að fólk er. En það er eins og
annað fólk sé ekki raunveru-
legt lentgur. Eina mannveran
sem er raunveruleg í heimi mín-
nm er Calihan.
Þaö er ekki hægt aö
Þannig er það bara.
20. oktöber.
Klukkan er ellefu aö morgni.
Ég var rétt í þessu að reyna
að flýja.
Það sem ég gerði var aö bíða
þar til hann hefði ýtt slánni frá
hurðinni sem opnast út. Þá hratt
ég henni til baka eine fast og
ég gat. Það er bara málmplata
á henni héma megin, hún er
úr tré, en hún er mjög þung.
Mér datt í hug að ég gæti hitt
hann með henni og rotað hann,
ef ég hitti á réttu andartaki.
Um leið og hún fór að hreyf-
ast ýtti ég sem sé á hana eins
harkalega og ég gat. Hamn kast-
aðist afturábak og ég þaut út,
en auðvitað var allt undir því
komið hvort hann hefði fengið
alvarlegt högg. En svo var ekki.
Hann hlýtur að hafa fengið
hurðina í öxlina.
Allavega náði haran taki á
peysunni minni. Andartak varð
ég vör við hina hliðina á hon-
um, ofbeldishneigðina, hatrið,
ég skyldi ekki sleppa. Þess vegnai
sagði ég: allt í lagi, losaði mig
af honum og fór aftur inn.
Hann sagði: Þér hefðuð getaö
neitt mig, hurðin er mjög þung.
Ég sagði: Þér særið mig hvert
andartak sem þér h&ldið mér
hér.
Ég hélt að friðarsinnar vildu
ekki særa aðra, sagði hann.
Ég yppti aöeins öxlum og
kveikti í sígarettu. Ég titraði.
Hann vann morgunverkin
þegjandi. Einu sinni neri hann
öxlina með áberandi tdburðum.
Og þarmig lauk því.
Nú hef ég hugsað mér að
leita vel að lausum steinum. Með
jarðgöng í huga. Auðvitað er ég
búin að svipast um, en ekki
reglulega vel, hef ekki athugað
hvem einasta stein, ofan og
neðan frá á hverjum einasta
vegg.
Það er kvöld. Hann er nýfa>r-
inn. Hann kom með matinn
minn. En hann var mjög þegj-
andalegur. Með vanþóknunarsvip.
Ég hló hátt þegar hann fór aft-
ur með matarbakkann. Hann
hagar sér alveg eins og það
væri ég sem ætti að skammast
mín.
Það er tilgangslaust að reyna
þetta aftur með hurðina. Og hér
eru engir lausir steinar. Þeir
eru allir kyrfilega múraðir nið-
ur. Ég geri ráð fyrir að hann
hafi hugsað fyrir þvi eins og
öðru.
Ég hef setið og hugsað megn-
ið af deginum. Um sjálfai mig.
Hvað á að verða um mig? Ég
hef aldrei huQsað nm leyndar-
dóma framtíðarinnair á sama
hátt og hér. Hvað bíður mínT
Hvaö geiist?
Það er ekki aöeéns í samsbandí
við þetta ástand hér. Þegar ég
slepp héðan? Hvað á ég að gera?
Mig langar til að giftai mig, mig
langar til að eignast böm, mig
langar til að sanna fyrir sjálfri
mér að öll hjónabönd þurfi ekki
aö verða eins og hjá P. og M.
Ég veit nákvæmlega hvers kon-
ar manni mig langar til að gift-
ast, manni sem hugsar á sama
hátt og G. P., aðeins nær mér
að aldri og með útlit sem mér
féllur í geð- Og án eina veikleik-
ans. En mig langar líka til að
virkja tilfinningar mínar til
lífsins- Mig langar ekki til að
nota hæfileika mína aÆ hégóma-
skap, vegna þeirra sjálfra. En
mig langar til að skapa fegurð.
Og einmi.tt þess vegna er ég dá-
lítið hrædd við tilhugsunina um
hjónaband og móðurhlutverk. Að
sökkva niður í heimilishald og
húsverk og barnatilveru og
eldamennskutilveru og innkaupa-
tilveru. Ég hef hugboð um að
letinginn í mér myndi bjóða það
velkomið, gleyma því sem mig
langaði eitt sinn til að gera og
ég yrði ekki annað en stór, kven-
legur kálhaus. Eða þá að ég
neyddist til að taka að mér leið-
indaverk, svo sem myndskreyt-
ingar eða jafnvel auglýsinga-
störf til að lappa upp á fjárhag-
inn. Eða þá ég yrði vesæl, drykk-
felld tæfa eins og M. (Nei, ég
gæti aldrei orðið eins og hún).
Eða það sem verst væri af öllu:
eins og Carólína, á eilífum þön-
um eftir nú*'na list og nútíma
hugmyndum og botna aldrei neitt
í neinu af því að í hjarta sínu
er hún allt annars konar mann-
eskja en getur aldrei gert sér
þaö ljóst.
Ég hugsa hér baki brotnu. Ég
skil ýmislegt sem ég hef aklrei
brotið heilann um fyrr.
Tvennt. M. Ég hef í rauninni
aldrei hugsað hlutlægt um M.
áður, eins og aðra mannveru.
Hún hefur alltaf verið móðir
mín, sem ég hef hatað eða
skammazt mín fyrir. En af öllu
því misheppnaða fólki sem ég
hef hitt eða heyrt um, er hún
misheppnuðust all a. Ég hef
aldrei haft samúð með henni-
Allt þetta síðasta ár (síðan ég
flutti að heiman) hef ég ekki
sýnt henni brot af þeirri sam-
úð og tillitsemi sem ég hef sýnt
þessari mannskepnu sem hefur
búið hér fyrir ofan mig þessa
síðustu viku. Nú finnst mér sem
ég gæti ausið yfir hana ást og
kærleika. Vegna þess aö ég hef
ekki vorkennt henni svona mik-
ið árum saman. Ég hef alltaf
reynt að afsaka sjálfa mig — ég
hef sagt: ég er góð og umburð-
(gitíineníal
SNJOHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
&
sem settir eru í, með okkar full-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó og
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
Toyota Landcruiser
Traustur og kraftmikill.
Trygrgíð yður Toyota.
Japanska bifreiðasalan hf.
Ármúla 7 — sími 34470.
Bifreiðaeigendur
Þvoið, bónið og sprautið bílana ykkar síjálíir. ‘V’rð
sköpum aðstöðuna. Þvoum og bóuum ef óskasð er.
Meðalbraut 18, Kópavogi.
Sími 4-19-24.
f......
FLOGIÐ STRAX yí
FARGJALD %
GREITT
ÉDANMÖKK OG
fA-ÞÝlKALANDVi
5.—26. júM. 1-967. Verð kr. 13.500,00.
Fararstjóri: Magnús Magnússon, kenn-ari.
Ferðaáætlun: 5. júlí. Flogið til Kaupmannahafnar
og dvalið þar til 8. júlí. Farið með lest til Wame-
munde og dvaMð á Eystrasaltsviku tll 17. júlí.
Lagt af stað í 9 daga ferð til Berh'nar, Magdeburg,
Erfurt, Leipzig. Dresden og Wittenberg og farið 25.
júlí með næturlest til Kaupmannahafnar og flogið
26. júlí til Reykjavíkur.
Innifalið fullt fæði nema morgunmatur í Kaup-
mannahöfn, flugfar, járnbrautir og langferðabílar,
leiðsögumaður, hótel, aðgangur að söfnum, dans-
leikjum o.fl. Baðströnd á Eystrasaltsvikunni. Ein
ódýrasta ferð sumarsins. Þátttaka takmörkuð og
þegar búið að panta í ferðina. Hafið samband við
skrifstofuna sem fyrst.
LA N DSy N ^
I