Þjóðviljinn - 06.04.1967, Blaðsíða 12
Metuppskera í
Sovétríkjunum
MOSKVU 5/4 —. — Hveitiupp-
skeran í Sovétríkjunum nam
meira en hundrað miljónum
lesta í fyrra og er það un 25%
meira en nokkru sinni fyrr að
því er opinberar skýrslur herma.
Erlendir •• sérfræðingar telja að
uppskeran geri sovétmönnum
kleift að safna miklum birgðum
og flytja allmikið út af hveiti.
Landhelgi Spánar
færð út
um miðjan mánuð
MADRID 5/4 — Spænska þingið
hefur samþykkt einróma ákvörð-
un stjórnarinnar um að færa
fiskveiðilandhelgina út — frá
sex upp í tólf mílur. Erlendir að-
ilar sem veitt hafa við Spán áð-
ur fá áffam að veiða innan nýju
markanna.
Shaw kom fyrir
réttinn í dag
NEW ORLEANS 5/4 — Clay
Sihaw, sem Garrison saksóknari
í New Orleans hefur látið hand-
taka, grunaðan um aðild að sam-
særi um að myrða Kennedy for-
seta, kom fyrir rétt í dag. Kvað
hann sig ekki sekan um slíkan
glæp, og var veittur frestur til
5 maí til að setja fram sína
málsvöm. Shaw verður látinn
iaus gegn tryggingu.
Brezkir vinstri-
þingmenn gegn
varaforseta
BONN 5/4 — Humphrey. vara-
forseti Bandarfkjanna, kom i
dag til Bonn á yfirreið sinni m
Evrópu.
Spurzt hefur, að þegar forset-
inn kom fram á lokuðum fundi
með brezkum þingmönnum, hafi
þingmenn úr vinstra armiVerka-
mannaflokksins gert harða hríð
að honum með óþægilégum
spumingum um Vietnamstefnu
Bandaríkjastjómar. íhaldsmenn
og hægrikratar reyndu að gera
gott úr öllu saman með þvi að
klappa ákaft fyrir Humphrey í
fundarlok.
Svíar þreifa fyrir
sér í EBE
HELSINKI 5/4 — Eriander, for-
sætisráðherra Svía, sagði i við-
tali við finnska blaðið Suomen
sosialdemokraatti, að sænska
stjómin muni ef til vill þegar í
nasstu viku fara að þreifa fyrir
sér um hugsanlega aðild að Efna-
hagsbandalaginu. Eriander sagði
að aðild að EBE væri mjög erf-
itt mál fyrir hlutlausu Norður-
löndin, Svíþjóð og Finnland og
yfirleitt hefðu forustumenn EBE
mjög lítinn skilning á þörfum
Norðurlanda.
Forseti Póllands
talar við páfa
ROM 5/4. — Ochab, forseti Pól-
lands er kominn í opinbera heim-
sókn til ítalíu og er búizt veið
að hann ræði a.m.k. við Pál páfa.
Standa vonir til þess að sá
fundur verði til að skapa heppi-
legt andrúmsloft til að setja
niður deilur þær milli ríkis og
kirkju sem nú hafa staðið í
tuttugu ár í Póllandi.
Minna hefur borið á þessari
deilu undanfarna mánuði en oft
áður og er talið að sendiför
snjallasta samningamanns páfa,
Agostino Casarolu, til Póllands
hafi haft jákvæð áhrif á þá þró-
un mála.
m&s,
’tmi*
I fyrradag hringdi maður úr
Arbæjarhverfinu nýja til Þjóð-
viljans og kvað nú svo komið
vegamálum þar að varla væri
lengur fært á milli Reykjavíkur
og Árbæjarhverfis sökum þess
hve götumar em slæmar. Sagði
hann að íbúarnir væm marg-
búnir að bera fram kvartanírvið
viðkomandi ráðamenn en án
nokkurs árangurs. 1 gær fór svo
Ijósmyndari Þjóðvíljans á vett-
vang og hér sjáum við tvær
myndir sem hann tók á veginum
inn í hverfið og sýna þær all-
vel hvernig ástandið þama er í
gatnamálunum.
Aðalfundur Iðnaðarbankans:
Innlánsaukningin hjá bank-
anum jókst um 30% sl. árí
Aðalfundur Iðnaðarbanka Is-
lands h.f. var haldinn I sam-
komuhúsinu Lídó sl. Iaugardag.
Fundarstjóri var kosinn Tómas
Vigfússon, húsasmíðameistari og
fundarri/ari Ástvaldur Magnús-
son. Á fundlnum mættu Jóhann
Hafstein, iðnaðarmálaráðherra og
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri.
Formaður bankaráðs Sveinn B.
Valfells flutti ítarlega skýrslu um
starfsemi bankans sl. ár og gat
þess m.a., að nýtt útibú hefði
tekið til starfa á því ári að Háa-
leitisbraut 60. Auk þess er Iðn-
aðarbankinn með útibú í Hafn-
arfirði og á Akureyri.
Bragi Hannesson, bankastjóri
las upp og skýrði reikninga
bankans. Kom þar fram að inn-
lánsaukning hefði verið 124,4
milj. kr. eða 30% og nemur nú
heildarinnstæðufé Iðnaðarbank-
ans 536 milj. kr. Bundið fé í
Seðlabankanum nam um ára-
mótin 96 milj. kr., og staða Iðn-
aðarbankans gagnvart Seðla-
bankanum var góð á árinu
Útlánaaukning Iðnaðarbankans
nam 86,7 milj. kr. eða 24,87%.
Keyptir víxlar voru 39.774 tals-
ins og f joldi nýrra reikninga
3062.
Innheimtudeild bankans óx
mjög á árinu, en samtals voru
innheimt fé 96,3 milj. kr.
Pétur Sæmundsen banka-
stjóri skýrði reikninga Iðnlóna-
sjóðs. Kom þar fram, að veitt
höfðu verið 202 lán úr Iðnlána-
sjóði á árinu að fjárhæð 65,3
milj. kr. Auk þess var gengið frá
breytingum á lausaskuldum 9
iðnfyrirtækja í föst lán að upp-
hæð 6,7 milj. kr. Byrjað var að
veita hagræðingarlán og nam
upphæð veittra hagræðingarlána
í árslok 5 millj. kr. Samtals námu
því útlán Iðnlánasjóðs á árinu
76 milj. kr., en heildarútlán
sjóðsins eru 194,4 milj. kr. Eig-
ið fé Iðnlánasjóðs óx á árinu um
30,6 milj. kr. og er þá eigið fé
sjóðsins 102,6 milj. kr.
í>á fór fram kosning bankaráðs
og var það endurkjörið en það
skipa eftirtaldir menn: Sveinn B.
Valfells, Sveinn Guðmundsson,
Vigfús Sigurðsson, Einar Gísla-
son og Guðm. R. Oddsson. End-
urskoðendur voru kosnir Þor-
varður Alfonsson og Otto
Schopka.
Á fundinum voru mættir 250
hluthafar og ríkti mikill einhug-
ur fundarmanna um starfsemi
og eflingu bankans.
Nafn féll niður
Þegar skýrt var frá því hér í
blaðinu að Útvegsbanki íslands
hefði tekið í notkun nýjan af-
greiðslusal þann 3. apríl síðast-
liðinn féll niður í frásögn að geta
eins manns, sem sízt skyldi,
Jónasar Sólmundssonar hús-
gagnasmíðam., en hann hafði með
höndum gerð harðviðarþilja og
afgreiðsluborða í hinum nýja sal.
Vann Jónas þau verk af alkunnri
smekkvísi og vandvirkni.
Handknattleikur:
Landsleikir vii Svía
sunnudag og mánud.
■ Á sunnudag og mánudag leika íslendingar lands-
leik í handknattleik gegn Svíum hér í Laugar-
dalshöllinni og er þetta í fyrsta sinn að sænska
landsliðið keppir hér á landi.
Islenzka landsliðið verður þann-
ig slcipað:
Auðunn Öskarsson FH, Geir
Hallsteinsson FH, Gunnlaugur
Hjálmarsson Fram, fyrirliði, Her-
mann Gunnarsson, Val, Jón H.
Magnússon, Víking, Logi Kristj-
énsson Haukum, Ragnar Jóns-
son FH, Sigurður Einarss. Fram,
Stefán Jónsson Haukum, Stefán
Sandholt Val, Þorsteinn Bjöms-
son, Fram, öm Hallsteinsson FH.
Einn nýliði er í íslenzka lands-
liðinu, Logi Kristjánsson mark-
vörður í Haukum. Hugsanlegt er
að breytingar verði gerðar á
landsliðirru í síðari leiknum.
Sænska landsliðið sem hingað
kemur er skipað 15 leikmönnum
sem flestir hafa marga lands-
leiki að baki, en þó em í því
tveir nýliðar. Þekktasti leikmað-
urinn mun vera markvörðurinn
D. Lindblom, sem hefvn: leikið
92 landsleiki.
Liðið er þannig skipað:
Donald Lindblom IFK BORAS,
1. markmaður, 30 ára, 92
landsleikir.
Ulf Jonsson, Lugi Lund, 2. mark-
vörður. 25 ára. 17 landsleikir.
Björn Daniell, Sim & IK, Hellas,
Stokkhólmi. 25 ára, 36 lands-
leikir.
Tony Johansson, Vikingama,
Halsingborg. 23ja ára, 12 lands-
leikir.
Gunnar Kámpendahl, fyririiði,
IK, Wasaitema, Göteborg. 30
ára, 84 landsleikir.
Jan Hodin, Hellas, Stokkhólmi.
24ra ára, 16 landsleikir.
Bengt Baard, IFK, Kristianstad.
25 ára, 23 landsleikir.
Lennart Körström, Matteus-Pojk-
arna, Stokkhólmi, 32ja ára, 51
landsleikur.
Lennart Eiríksson, IFK, Nyköp-
ing, 23ja ára, 19 landsleikir.
Georg Funquist, IF Saab Linköp-
ing. 24ra ára, nýliði.
Bengt Johansson, Hellas, Stokk-
hólmi. 25 ára, 17 landsleikir.
Harts Eiriksson, GUIF, Eskilst-
una. 24ra ára, 15 landsleikir.
Benny Johansson, V. Frölunda
IF, Gautaborg. 20 ára, nýliði.
Með hópnum er 4ra manna
fararstjóm og þjálfari, og auk
þess Paul Högberg formaður
sænska handknattleikssambands-
ins og varaformaður Alþjóða
handknattleikssambandsins.
Dómari verður danskur, Bent
Westergárd, en hann hefur áð-
ur dæmt hér. Markdómarar
verða Magnús V. Pétursson og
Valur Benediktsson.
Leikirnir hefjast bæði kvöldin
kl. 8,15, en forsala aðgöngumiða
Nýr borgarfógeti
og borgardómari
20. marz sl. skipaði forseti Is-
lands Halldór S. Rafnar borgar-
fógeta við borgarfógetaembættið
í Reykjavík fró 1. marz 1967 að
telja. Sama dag skipaði forset-
inn einnig Magnús Thoroddsen
borgardómara við borgardómara-
embættið í Rvík.
Körfuknatlleikur
Keppni í 1. deild Körfu-
knattleiksmóts Islands verður
haldið áfram i Laugardalshöll-
inni f kvöld, fimmtudag. Þá
leika ÍR — KFR og Ármann —
KiR. Keppnin hefst kl. 20,15.
er í Bókaverzlun Lárusar Blön-
dals og leikdagana hefst miða-
sala í Laugardalshöllinni kl. 6.
Verð aðgöngumiðanna er 125 kr.
fyrir fullorðna og 50 kr fyrir
böm.
; Gunnar Friðriksson. ■
■ ■
j
! Opnar sýningu í
{Bogasalnum n.k.
laugardag
■
■
Laugardaginn 8. apríl
opnar Gunnar Friðriksson
; sýningu á vatnslitamynd-
; um í Bogasal Þjóðminja-
safnsins. Á sýningunni
verða um þrjátíu og fimm
; myndir.
Gunnar Friðriksson er
5 ættaður frá Sauðárkróki,
j sonur hjónanna Friðriks |
j Júlíussonar og Fjólu Jóns-
dóttur. Þetta er fyrsta sýn- j
ing Gunnars, en hann hefur i
; stundað nám í Myndlista- j
og handíðaskólanum og •
Myndlistaskólanum í Rvík. ■
Sýningin verður opin i
j næstu viku klukkan 2—10 !
eftir hádegi.
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón .ióhannsson
19. — b6.