Þjóðviljinn - 23.04.1967, Side 1
Sunimdagur 23. apríl 1967
32. árgangur — 91. tölublað.
Þióðviliinn er 34 síður í dog
□ Þjóðviljinn í dag er stórt blað, 34 síður af fjöl-
□ breyttu efni. — Aðalblaðinu, sem er 10 blaðsíður,
□ fylgir aukablað fyrir konuna og er það 24 síður, í
□ tvennu lagi.
Andreas Papandreu sagður líflótinn
Gríski herinn myndar stjórn
AÞENU 22/4 — Gríski
herinn staðfesti í gær-
kvöld valdarán sitt og
konungs með því að setja
til valda nýja stjórn und-
ir forsæti Konstantins
Kolias. Blað á Kýpur
segir að Andreas Papan-
dreu, sonur stjómar-
andstöðuleiðtogans Ge-
orgs Papandreu, hafi
verið tekinn af lífi.
Kolias er 66 ára gamall mál- !
Dagblað á Kýpur, sem styður
stjórnina þar, tilkynnti í dag,
að Andreas Papandreu, sonur
hins áhrifamikla leiðtoga Mið-
bandalagsins, Georgs Papandreu,
hafi verið tekinn af lífi eftir að
hann var handtekinn. Andreas
var sakaður um aðild að sam-
tökum vinstri marina í hernum
sem Konstantín konungur hefur
talið stefnt gegn sér. Blaðið
segir að einn af leiðtogum
vinstriflokksins EDA, Manolis
Glezos, ritstjóri blaðsins Aygi,
sé meðal þeirra handteknu.
Júgóslavneska fréttastofan Ta-
njug segist hafa hlerað leyni-
lega útvarpsstöð í Grikklandi
sem leggst gegn valdatöku hers-
Framhald á 10. síðu.
Frá heimssýning-
unni í Montreal
• Myndirnar hér að ofan eru
• fyrstu myndimar úr sýning-
• ardeild íslands á heimssýning-
9 unni í Montreal, sem blaða-
• fulltrúi utanríkisráðuneytisins
• á sýningunríi, Elín Pálmadótt-
• ir, hefur sent. Sendi utanrík-
• isráðuneytið ÞJÓÐVILJANUM
• myndirnar í gær og boðar að
• fleiri séu væntanlegar á næst-
• unni. Hefur íslenzka sýning-
• ardeildin vakið mikla athygli
• og þykir einkar smekkleg og
• vel upp sett.
Vélbátur strandaði
á Meíallandssandi
Rétt fyrir miðnætti í fyrra-
kvöld strandaði Vestmannaeyja-
báturinn Hávarður á Meðal-
landsfjöru. Sex manna áhöfn var
á bátnum og gekk greiðlega að
bjarga mönnunum.
Á tólfta tímanum í fyrrakvöld
barst Slysavarnafélaginu tilkynn-
ing um að bátur hefði strandað
nálægt Mýrnatanga vestan við
alagsins í Reykjavík
færslumaður, en allir aðrir ráð-
herrar eru herforingjar. í gær-
kvöld rauf útvarpsstöð hersins
útsendingar og flutti tilkynn-
ingu frá ríkisstjórninni þar sem
segir að markmið hennar sé að
koma á röð og reglu og fram-
kvæma nauðsynlegar breytingar
á öllum sviðum opinbers lífs.
Þar sagði og að valdataka hers-
ins hafi farið fram til að koma
í veg fyrir að ill öfl næðu völd-
um. Útvarpsstöð hersins segir,
að Konstantín konungur hafi
undirritað tilskipun sem ruddi
valdatökunni braut og að hann
hefði verið viðstaddur er hin
nýja ríkisstjórn sór trúnaðar- ;
eið.
Kúðafljót. Kafaldsbylur var á
þar eystra er strandið varð og
móttökuskilyrði erfið, svo að
þrjár björgunarsveitir voru kall-
aðar á vettvang til öryggis þar
sem hætta var á að staðarákvörð-
un væri 'ekki rétt, að þvi er
Henry Hálfdánarson sagði Þjóð-
viljanum í gærmorgun.
Enda kom í ljós, er björgun-
arsveitin í Álftamýri var að
leggja af stað, að strandið hafði
orðið austan Kúðafljóts, og var
björgunarsveitin á Meðallandi bá
til taks. Fann hún bátinn fljót-
lega þar sem hann hafði strand-
að rétt vestan við Eldvatnsós.
Björgunarstarfið , gekk mjög
greiðlega og hafði öllum mönn-
um verið bjargað í land um kl.
3.30. Veður var gott á þessum
slóðum, en kafald, svo að sá
ekki út úr augum.
Skipbrotsmennirnir eru enn í
Meðallandi og er helzt hugur í
þeim að reyna að bjarga bátnum,
en aðstæður virðast góðar til
björgunar. Vélbáturinn Hávarð-
ur er um 70 lestir, gerður út
frá Vestmannaeyjum. en skráð-
ur ÍS 160.
60 manns férust
CHICAGO 22/3 — Hvirfilbyljir
herjuðu miðvesturríki Bandaríkj-
anna í gær og er talið að 60
manns hafi misst lífið en 1000
særzt. Illinois og Michigan urðu
verst úti.
Iferkfall málmiBnað-
armarna áþriðjudag
■ Á þriðjudaginn kemur fyrst til framkvæmda boðuð vinnu-
stöðvun sex sambandsfélaga í Málm- og skipasmiðasambandi fs-
lands í Reykjavik, í Árnessýslu og á Akureyri.
■ Félögin hafa boðað vinnustöðvanir dagana 2S. og 27. april
og 9. og 11. maí til að knýja á um samningsgerð við atvinnurek-
endur en samningaviðræður hófust í september sl. en hafa eng-
an árangur borið.
Meinlegt fyrirsagnabrengl leiðrétt
★ Þau mistök urðu við umbrot Þjóðviljans í gær, að skökk
fyrirsögn var með áskorun Geirs Gunnarssonar alþm. til félags-
málaráðherra um að hann svari í dagblöðum fyrirspurnum, sem
hann lét ósvarað á þingi um framlag til húsnæðismála á þessu ári.
★ Þjóðviljinn biðst afsökunar á þessum mistökum og birtir
aftur áskorun Geirs og fyrirspurnir hans á 6. síðu blaðsins í dag.
★ Frásögnin um fyrirhugaðan borgarafund í Hafnarfirði um
íþróttahúsið, sem fyrirsögnin í gær átti við, er birt á 2. síðu í dag.
MYNDIN VAR tekin sl. mið-
vikudagskvöld, er nýkjörin
stjórn Alþýðubandalagsins í
Reykjavík kom saman til
fyrsta fundar. Stjórnarmenn
eru frá vinstri: Björn Ólafs-
son verkfræðingur, Adda
Bára Sigfúsdóttir veðurfræð-
ingur, Ida Ingólfsdóttir fóstra,
Sigurdór Sigurdórsson prent-
ari, Guðmundur Ásgeirsson
verkamaður, Guðmundur Ág-
ústsson hagfræðingur, Harald-
ur Steinþórsson kennari, Sig-
urjón Þorbergsson framkvstj.
og Böðvar Pétursson verzlun-
armaður.
FORMAÐUR Alþýðubandalagsins
í Reykjavík er sem kunnugt
er Guðmundur Ágústsson,
varaformaður er Adda Bára
Sigfúsdóttir og ritari Sigur-
jón Þorbergsson. — (Ljósm.
Þjóðv. A.K.).
V c ð r i 5
☆ Spáð er minnkandi frosti
☆ í Reykjavík og nágrenni
☆ um helgina — og austan
☆ stinningskalda.
Svetlana Stalín á blaðamannafundi
Fyrír sakir nafns míns var
litið á mig sem ríkiseign
NEW YORK 22/4 — Svetlana Stalín sagði í New York í
gær að hún hefði flúið Sovétríkin af því að yfirvöld þar
hefðu ekki viljað viðurkenna h'jónaband hennar, litið hefði
verið á sig sem nokkurskonar ríkiseign og einnig hefði
hún ekki getað lifað lengur „án guðs í hjarta“. — Hún hef-
ur skrifað bók sem kemur út í haust.
Á þessum fyrsta fundi sínum
með blaðamönnum las dóttir
Stalíns upp yfirlýsingu. Þar seg-
ir hún aö hún hafi eftir því setm
árin liðu byrjað að hugsa öðru-
vísi en uppeldi hennar ga£ til-
efni til og hafi hún fundið að
fíkiki væri hægt að vera til án
guðs. Þá hefðu sovézk yfirvöld
neitað að viðuríkenna hjónaiband
hennar og Indverja, hún hafi
verið meðhöndluð sem. notktkutrs-
konar ríkiseágn fyrir sakir nafns
síns, og stjórnin hetfði ekki vilj-
að leyfa henni að fara til Ind-
lands með manni sínurn, þótt
hann hefði verið veikur um langt
skeið.
Um 50 lögreglumenn héidu
mönnum í hæfilegri fjaríægð frá
Svetlönu er hún kom til New
York. Hún hefur fengið dvalar-
leytfi til sex mánaða í Banda-
ríkjunum, en yfirvöld segja að
það megi framiengja etftir vild.
Hún hetfur sfcrifað 80 þús. orða
bók sem kemur út 16. okt. n.k.
hjá Harper og Row, sem gáfu út
bók Manchester, Dauði forseta.
Svetlana kvaðst trúa á fram-
lag menntaðra manna af ölHum
Framhald- A 10. síðu..