Þjóðviljinn - 23.04.1967, Side 6
|í SfÐA — I>JÓÐVILJINN —» Sunnudagur 23. aprfl. 1967.
POLARPANE
q falt UílQrgier
. s°ensk .
•Lfalt ÖOödc/Vö/Q
4
EiNKAUMBOD
IVIARS TRADING OO
LAUGAVEG 103 SIMI 17373
HELDUR
HEITU
OG
KÖLDU
ÚTI
OG
INNI
■
FLOGIÐ STRAX
FARGJALD
rMKWMLU
GREITT SÍÐARVg
IDAHMÖRK 0S
fA-ÞÝZKALAND"/:,
Eystrasaltsvikan
5.-26. júli. 1967. VerS kr. 13.500.00.
Fararstjóri: Magnús Magnússon, kennari.
Ferðaáætlun: 5. júli. Flogið til Kaupmannahafnar
og dvalið þar til 8. júlí, Farið með lest til Warne-
munde og dvalið á Eystrasaltsviku til 17. júli.
Lagt af stað í 9 daga ferð til Berlínar, Magdeburg,
Erfurt, Leipzig. Dresden og Wittenberg og farið 25.
júlí með næturlest til Kaupmannahafnar og flogið
26. júlí til Reykjavíkur.
Innifalið fullt fæði nema morgunmatur i Kaup-
mannahöfn, flugfar, járnbrautir og langferðabílar.
leiðsögumaður, hótel, aðgangur að söfnum, dans-
leikjum o.fl. Baðströnd á Eystrasaltsvikunni. Ein
ódýrasta ferð sumarsins. Þátttaka takmörkuð og
þegar búið að panta í ferðina. Hafið samband við
skrifstofuna sero fyrst
LANDSy N 1-
FERÐASKRIFSTOFA
Laugavegi 54.
SÍMI22890 BOX 465 REYKJAVÍK C*
fr/////////////////^
Til félagsmálaráðherra
Í byrjun marz sl. lagði ég
fram á Alþingi nokkrar fyr-
irspurnir til félagsmálaráð-
herra um lánveitingar til hús-
næðismála á þessu ári. Sam-
kvæmt þingsköpum ber að
svara fyrirspurnum eigi
síðar en viku eftir að þeim
hefur verið útbýtt. — Samt
fór svo að fyrirspurnum þess-
um var ekki svarað áður en
þingi lauk, og þar ekki við
ráðherra að sakast, cn mér er
kunnugt um að hann hafði
aflað sér gagna til að svara
þeim.
Vegna þess að fjöldi manna,
sem þcssi mál varðar miklu,
hefur áhuga á að fá svör við
fyrirspurnum mínum, fer ég
þess á leit við hæstvirtan fé-
lagsmálaráðherra, að hann
birti í dagblöðum svör sín við
þeim fyrirspurnum, sem ég
lagði fram í sameinuðu þingi,
en ekki reyndist unnt að
svara fyrir þinglok.
GEIR GUNNARSSON.
Fyrirspurnir þær sem um
ræðir voru svohljóðandi:
1. Hvert er áætlað ráðstöfun-
arfé húsnæðismálastjórnar
á þessu ári?
2. Hve miklu af því fé hefur
þegar verið ráðstafað með
lánum eða lánsloforðum?
3. Hver er áætluð íjárþörí til
eftirfarandi lánveitinga,
sem ekki hefur enn verið
fullnægt:
a) — Viðbótarlána vegna
byrjunarlánveitinga í des.
—jan. sl.?
b) — Viðbótarlána vegna
loforða um byrjunarlán,
sem gefin hafa verið út,
miðað við greiðslu eftir
15. apríl n.k.?
c) — Lána vegna annarra
gildra umsókna tim s.l. ára-
mót, þ.e. vegna íbúða, sem
ekki voru orðnar fokheld-
ar um sl. áramót, en gera
má ráð fyrir að sjá þurfi
fyrir lánsfé á þessu ári?
d) — Lána vegna þeirra
umsókna um lán út á nýj-
ar íbúðir, sem berast eiga
húsnæðismálastjóm fyrir
15. marz. n.k.?
e) — Hinna sérstöku við-
bótarlána til efnalítilla
meðlima verkalýðsfélaga?
f) — Lána til byggingar
leiguúbúða sveitarfélaga og
Öryrkjasambands fslands?
4. Hver er áætluð fjárþörf
framkvæmdanefndar bygg-
ingaáætlunar á þessu ári?
5. Hvaða ráðstafanir hefur
ríkisstjórnin gert eða á-
kveðið að gera til útvegun-
ar fjármagns til bygginga-
áætlunar, eða er það ef
til vill ætlunin, að þeirri
fjárþörf verði að mestu eða
öllu leyti fullnægt með fé
byggingasjóðs ríkisins, eins
og gert hefur verið hingað
til samkvæmt fyrirmælum
ríkisstjórnarinnar?
6. Hvaða ráðstafanir hefur
ríkisstjórnin gert eða
hyggst gera til þess að afla
byggingasjóði ríkisins fjár
til íbúðalána á þessu ári?
Sjónvarpið
Sjónvarpið
18.00 Helgistund. Prestur séra
Sigurður Haukur Guðjóns-
son, Langholtsprestakalli.
18.20 Stundin okkar. Þáttur
fyrir börn í umsjá Hinriks
Bjarnasonar. Meðal efnis:
Stúlknakór úr Garðahrepps-
skóla syngur undir stjórn
Guðmundar Norðdahls og
nemendur úr Hagaskóla
flytja leikþáttinn „Bíómynd-
in“.
19.05 íþróttir.
Hlé.
20.00 Fréttir — Erlend málefni.
20.35 Denni dæmalausi. Með
aðalhlutverkið fer Jay North.
fslenzkur texti: Dóra Haf-
steinsdóttir.
21.00 Fimmti farþeginn. Banda-
rísk kvikmynd. í aðalhlut-
verkum: Mel Ferrer, Dana
Wynter og Leo Genn. íslenzk-
ur texti: Ingibjörg Jónsdóttir.
21.50 Dagskrárlok.
Mánudagur 24. apríl 1967.
20.00 Fréttir.
20.30 Bragðarefir. Þessi þáttur
nefnist „Krókur á móti
bragði.“ Aðalhlutverkið leik-
ur Charles Boyer. í gesta-
hlutverki: Broderick Craw-
ford. íslenzkur texti: Dóra
Hafsteinsdóttir.
21.20 Jacquer Loussier leikur.
Franski píanóleikarinn Jac-
ques Loussier leikur tokkötu
og fúga í d-moll eftir Bach.
Auk hans leika Christian
Garros og Pierre Michelot.
21.35 Póstkort og flöskumiðar.
Sjónvarpið hefur heimsótt
tvo safnara á Siglufirði, Guð-
brand Magnússon, sem á
mikið safn íslenzkra póst-
korta, og Baldur Steingríms-
son, sem safnað hefur flösku-
miðum, innlendum og er-
lendum.
21.50 Öld konunganna. Leikrit
eftir William Shakespeare,
búin til flutnings fyrir sjón-
varp. XII. hluti — „Skák
drottningar". Ævar R. Kvar-
an flytur inngangsorð. Sögu-
þráður: Margrét drottning
safnar saman nýjum her og
sezt um kastala hertogans af
York og kemur hertoganum
og mönnum hans að óvörum.
Yngsti sonur hertogans er
myrtur í orustunni en sjálf-
ur er hertoginn tekinn hönd-
um og drepinn á grimmdar-
fullan hátt. Þrír eftirlifandi
synir hans eru staðráðnir í
að berjast til valda hvað sem
það kostar. Við Towtown
mætast her þeirra og drottn-
ingarherinn, og er skemmst
frá því að segja, að her
drottningar býður mikinn ó-
sigur. Játvarður af York
elzti sonur hins fallna her-
toga, er riú lýstur konungur
undir nafninu Játvarður IV.
en bræður hans eru gerðir
ag hertogum — George af
Clarence og Ríkharður af
Gloucester. Hinn hjálparvona
Hinrik VI. er tekinn hönd-
um á flótta frá Skotlandi, og
er hann leiddur fyrir hinn
nýja „konung“ og síðan
læstur inni í hinni sögu-
frægu kóngadýflissu — Tow-
erkastala. Játvarður IV
verður ástfanginn af ekkju
að nafni Lady Grey og
hyggst ganga að eiga hana
en ráðahagurinn er bróður
hans, kroppinbaknum og her-
toganum Ríkharði af Clouc-
ester ekki að skapi. Hann
stendur konungi næstur til
konungserfða og óttast að
konungur eignist syni, sem
muni þá erfa krúnuna.
22.55 Dagskrárlok.
8.30 Létt morgunlög.
9.00 Morguntónleikar. a) Píanó-
konsert (K503) eftir Mozart.
b) Oktett op. 20 eftir Mend-
elssohn. c) Vorblót eftir
Stravinsky.
1100 Messa í Kópavogskirkju.
Séra Gunnar Árnason.
13.15 Or sögu 19. aldar. Dr.
Jakob Benediktsson flytur
erinai um orðabækur.
14.00 Miðdegistónleikar. Sin-
fóníusveit Islands leíkur bg
Karlakórinn Fóstbræður
syngur. Stjórnandi Ragnar
Björnsson. b) Hljómsveit
Covent Garden leikur Stunda-
dansinn eftir Ponchielli og
þætti úr Hnotubrjótnum, eft-
ir Tjaikovsky.
15.30 Endurtekið efni. a) Guð-
rún Gísladóttir tannlæknir
taíar um sjúkdóma í um-
hverfi tanna. b) Fílharmoníu-
sveitin í Stokkhólmi leikur
Forma Ferritonas eftir Karl-
Birger Blomdahl. c) Séna Jón
Tíhorarensen segir frá sjósókn
í gamla daga.
16-35 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
leikur. Hans P. Franzson stj.
17.00 Bamatími.
18.00 Stundarkorn með Glinka.
Suisse Romande hljómsveitin
leikur.
19.30 Gunnar Stefánsson stud.
mag. velur kvæði og les.
19.40 Gerpla. Halldór Laxness
les tvo kafla úr þessari
sögu sinni.
20.20 Sellókonsert eftir Bocc-
herini.
20-35 Vilhjálmur Þ. Gíslason
talar um Passíusólma Hall-
gríms Péturssonar og sungin
verða og leikin nokkur
sálmalög.
21.30 Söngur og sunnudagsgrín.
Magnús Ingimarsson stjómar
þættinum.
22.35 Danslög.
Útvarpið á morgun:
13.15 Gísli Kristjánsson ritstj.
flytur búnaðarþátt.
13.30 Við vinnuna.
14.40 Valgerður Dan les Syst-
urnar í Grænadal. (5).
15.00 Miðdegisútvarp.
16.30 Síðdegisútvarp. Wilhelm
Kempff leikur Píanósónötu
nr. 17 eftir Beethoven. Leon-
id Kogan og Andreij Mitnik
leika Konsert í g-moll eftir
Vivaldi.
17.45 Lög úr kvikmyndum.
19.30 Um daginn og veginn.
Ragnar Jóhannesson cand.
mag. talar.
19.50 Gömlu lögin sungin og
leikin.
20.15 Tómas Karlsson blaða-
maður tekur til umræðu
hægri og vinstri akstur.
Fundarmenn: Valgarð Briem
og Adolf Petersen.
21.30 íslenzkt mál. Dr. Jakbb
Benediktsson flytur þáttinn.
21.45 Sónata fyrir tvö píanó
eftir G. Miithel.
22.10 Kvöldsagan: Landið
týnda, Sverrir Kristjánsson,
þýðir og les (6).
22.35 Hljómplötusafnið í umsjá
Gunnars Guðmundssonar.
23.30 Fréttir í stuttu máli. Dag-
skrárlok.
Lifshættulega
slasaður
í fyrrakvöld hljóp sex ára
drengur fyrir fólksbifreið á Soga-
vegi rétt sunnan við Grensás-
veg og hlaut hann mikil höfuð-
meiðsli.
Drengurinn var fyrst fluttur
á Slysavarðstofuna og síðan á
Landakot og kom þá meðal ann-
ars í ljós slæmt höfuðkúpu-
brot. Drengurinn var talinn í
lífshættu síðast er fréttist.
Albanía — Island
Stofnfundur menningartengsla Albaníu og
íslands verður haldinn í dag, sunnudaginn
23. apríl kl. 14.30 í félagsheimili Æskulýðs-
fylkingarinnar að Tjamargötu 20.
Dagskrá: 1. Samþykkt lög og kosin stjóm.
2. Erindi: Skúli Þórðarson,
magister.
3. Upplestur: Þorsteinn frá Hamri.
Kaffiveitingar.
Undirbúningsnefndin.
BLAÐDREIHNG
Unglingar óskast til blaðburðar um
Hringbraut — Kaplaskjólsveg — Tjarnargötu — Höfða-
hverfl — Voga.
■L. » B Jtp
P|oovilgiiin