Þjóðviljinn - 23.04.1967, Page 10
!
\
Símstöðin i Grenivík brann
til kaidra kola í fyrrinótt
AKUREYRI 22/4 — Símstöðin í. Grenivík brann til
kaldra kola í nótt. Húsið var forskalað timburhús,
ein hæð með kjallara og risi og brann allt timburverk-
ið, hluti af búslóð stöðvarstjórans. tæknibúnaður stöðv-
arinnar, bókhald og eitthvað af peningum. — Stöðin
er annars flokks stöð. Stöðvarstjórinn heitir Magnús
Jónsson.
Þjóðviljinn haíði í gær
samband við Svein Tómasson,
slökkviliðsstjóra á Akureyri.
og gaf hann þessar upplýsing-
ar.
Eldurinn virðist hafa komið
upp í húsinu um kl. 3 í nótt
við símstöðvarherbergin og
varð eldurinn svo æstur. að
stöðvarstjórinn treysti sér
ekki til þess að hringja út á
slökkvilið
Urðu menn að brjótast um
-25 kílómetra vegalengd út að
Yztu-Vík til þess að komast
í samband við slökkviliðið á
Akureyrí og vissi það fyrst af
brunanum kl. 5 í gærmorgun.
Slökkviliðið á Akureyri brá
þegar við og ók það til
Grenivíkur, — 50 kílómetra
leið, — var vegurinn holóttur
og slæmur yfirferðar og komu
þeir á brunastað um kl. 6
um morguninn.
Heldur voru ógreinilegar
fréttir fyrst um morguninn
og héyrðist illa til slökkvi-
liðsmanna í talstöðinni.
Á tólfta tímanum náði
slökkviliðsstjóri sambandi við
menn sína og tjáðu þeir hon-
um þá eftirfarandi upplýs-
ingar. Allt timburverk brann
til kaldra kola í húsinu, —
einnig hluti af búslóð stöðv-
arstjórans, pappírar og skjöl
símstöðvarinnar og eitthvað
af peningum. Aðeins var um
skylduvátryggingu að ræða
á símstöðinni og var hún lág.
Barkdrengekoret kemur til
íslands í söngför í sumar
•v
I
\
t
I
i
'A
■ Drengjakór KFUM í Kaupmannahöfn, Parkdrenge-
koret, kemur í þriðju söngför sína hingað til íslands 4.
júlí n.k. og mun dveljast hér í hálfan mánuð og halda
söngskemmtanir bæði hér í Reykjavík og úti á landi. Verð-
ur söngskráin fjölbreytt og m.a. söngleikir á dagskránni.
Kórinn kom fyrst hingað sum-
arið 1954 og síðan aftur sumar-
iS 1956 og fékk í bæði skiptin
mjög góðar móttökur og ávann
sér miklar vinsældir fyrir fág-
aðan, léttan og skemmtilegan
söng — og leik, en auk fjöl-
breytt söngs, þá flutti kórinn
þá einnig söngleikinn „Eldfær-
in“ eftir ævintýri H. C. Ander-
sen og „Sunnudagur á Amager“
eftir J. L. Heiberg.
í fyrri heimsóknum söng kór-
inn margsinnis hér í Reykjavík
fyrir troðfullu húsi áheyrenda
og auk þess söng kórinn á
mörgum stöðum úti á landi: Ak-
ureyri, Sauðárkróki, Bifröst í
Borgarfirði, Akranesi, Hafnar-
firði og á Selfossi. Vestmanna-
eyjar voru einnig á ferðaskrá
kórsins, en veður hamlaði þá
flugferð kórsins þangað.
P A R K-drengjakórinn var
stofnaður haustið 1943 af núver-
andi stjórnanda, Jörgen Brem-
holm. Kórinn er deild í aðalfé-
lagi KFUM í Kaupmannahöfn,
— KFUM’s Centralforening —
og hefur bækistöð sína í íþrótta-
svæði félagsins í Emdrup —
KFUM’s Idrætspark — og dreg-
ur nafn sitt þar af: PARK-
DRE-N GEKORET.
í söngkórnum (konsert-kórn-
um) eru 26 drengir á aldrinum
9—14 ára, en auk aðalkórsins
starfar æfingakór til endurnýj-
unar söngkórnum eftir þörfum,
— þ.e. þegar eldri drengirnir
fara í mútur.
Kórinn hefur haldið meira en
þúsund stærri og minni söng-
skemmtanir í Danmörku, Sví-
í þjóð, Noregi, Finnlantfi, íslandi,
! Englandi, Þýzkalandi og í
j Tékkóslóvakíu. Á 25. afmælis-
árinu, 1968, er í ráði að kórinn
I fari i söngför til Bandaríkjtanna.
Þjálfarínn og bikarínn
Grikkland...
Framhald af 1. síðu.
ins. Stöðin segir í dag, að hún
muni berjast fyrir endurreisn
lýðræðis í Grikklandi, stöðin sé
eina rödd lýðræðissinna, rödd
sem beinist gegn konunghollum
fasisma og einræði. Stöðin hvatti
alla hlustendur til að segja vin-
um sínum og grönnum frá út-
sendingum hennar, sem verða
sex sinnum á dag.
Fólk sem kom í dag fljúgandi
til Vín frá Aþenu sagði að í
morgun hefði heyrzt skothríð í
námunda við flugvöllinn. Far-
þegamir komu frá Nairobi og
var þeim ekki leyft að fara út
af flugvallarsvæðinu.
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorrgeir Steingrímsson.
abcdet gh
00
c-
(O
in
eo
IM
abcdef gh
HVlTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
29. — De7
Ljósmyndari Þjóðviijans A. K. tók þessa skemmtilegu mynd sl.
föstudagskvöld meðan úrslitaieikur Fram og F H um Islandsmeist-
aratítilinn I handknattleik stóð yfir. Hér sjáum við hinn efir-
sóknarverða bikar sem nú er í höndum Fram og þjálfara hinna
nýbökuðu lslandsmeistara, Karl Benediktsson, þar sem hann fylg-
ist eftirvæntingarfullur með viðureigninni.
KjelR Bœkke-
lund heldur
Svetlana
Framhald af 1. síðu.
þjóðum ti-1 samvinnu og sam-
hjólpar manna — hvaða hu-g-
myndakerfi eða flokki, sem þeir
annars aðhyl-ltust. 1 mínum aug-
um eru menn ek:ki kommúnistar
eða kapitalistar, til eru góðir
men-n eð-a iiUir, heiðarlegir eð-a
óheiðarlegir. Fólki svipar saman
allsstaðar, og beztu vonir þeirra
og siðg-æðishugmyndir eru þær
sömu. Faðir minn var grúsíu-
maður, móðir mín af b-lönduðum
uppru-na, og þótt ég hafi búið í
Moskvu alla ævi held ég að mér
gæti fundizt ég vera heima hjá
mér hvar sem maðurinn er
frjáls.
Svetlana fór til Indlands í des-
ember með ös-ku manns síns,
þaðan fór hún tí;l Sviss og hefur
farið þ-ar huldu höfði í sex viík-
ur.
Lárus Pálsson heiðr-
aður á leikafmœlinu
Norski píanóleikarinn KJELL
BÆKKELUND heldur tónleika
fyrir styrktarfélaga Tónlistarfé-
lagsins n.k. þriðjudags- og mið-
vikudagskvöld kl. 7 í Austur-
bæjarbíói.
Á efnisskránni eru verk eftir
ýmsa nútímahöfunda. Kjell
Bækkelund er talinn einn allra
bezti píanóleikari á Norðurlönd-
um og hefur haldið fjölda tón-
leika víða um heim. Nú er hann
að leggja upp í tónleikaför til
Bandaríkjanna. Hann hefur
komið hér einu sinni áður og
lék þá með Sinfóníuhljómsveit-
inni og hlaut þá framúrskarandi
góða dóma.
Kjell Bækkelund
S.l. fimmtudag, 20. apríl, voru
liðin 17 ár frá því að Þjóðleik-
húsið tók til starfa. Þennan dag
frumsýndi Þjóðleikhúsið hið
gamalkunna leikrit „Jeppa á
Fjalli“. Lei-kstjóri er Gunnar
Eyjólfsson en Lárus Pálsson
leikur titilhlutverkið. Sýning-
unni var mjög vel tekið af leik-
húsgestum og var Lárus Pálsson
ákaft hylltur í lok sýningar.
Þjóðleikhússtjóri, Guðlaugur
Rósinkranz, kvaddi sér hljóðs
að lokinni sýnin-gu og sagði að
nú væru liðin 30 ár síðan Lárus
Pálsson lék sitt fyrsta hlutverk,
að loknu námi við Konunglega
leikskólann í Kaupmannahöfn.
Ennfremur afhenti þjóðleikhús-
stjóri Lárusi Pálssyni verðlaun
úr Menningarsjóði Þjóðleikhúss-
ins að upphæð kr. 30.000,00 en
það er venja að afhenda verð-
laun úr sjóðnum á afmælisdegi
PASADENA 22/4 — Tunglfar-
ið Surveyor 3. gróf í dag 2ja
sentímetra djúpa holu í yfirborð
tunglsins með skóflu á stærð
við mannshönd. Tilgangur þeirr-
ar tilraunar er að ganga úr
skugga um að tunglskorpan þoli
þunga mannaðs geimskips.
leikhússins. Átta leikarar ogeinn
leikmyndateiknari hafa á liðn-
um árum hlotið verðlaun úr
Menningarsjóði Þjóðleikhússins.
Sjóðurinn er stofnaður á vígslu-
degi Þjóðleikhússins 20. apríl ár-
ið 1950.
Þegar þjóðleikhússtjóri hafði
afhent Lárusi Pálssyni verðlaun-
in og þa-kkað honum fyrir heilla-
drjúg störf í þágu Þjóðleikhúss-
ins, bað hann leikhúsgesti að
rísa úr sætum og hylla Lárus
með ferföldu húrrahrópi.
Myndin er af Lárusi og Guð-
laugi Rósinkranz þjóðleikhús-
stjóra.
Kvikmyndasýning
ÆFR.
TÉKKNESKA
MEISTARAVERKIÐ
„NO RETURN
TICKEr'
verður sýnd á þriðju-
dagskvöld kl. 9 í Tjarnar-
götu 20.
Dauöadémur yf-
ir Beng Sjén?
TOKIO 22/4 — Japanskir frétta-
menn í Peking segja að Maó
Tse-tung hafi krafizt dauðadóms
yfir Peng Sjén. fyrrum borgar-
stjóra í Peking, • og þrem emb-
ættismönnum öðrum.
Sunnudiagiur 23. a-príl 1967 — 32. árgan-gur — 91. tölublað.
K VENSKÓR FRÁ
NÝ
SENDING
I
FYRRAMÁLIÐ Vor og sumartízkan '67
SKÓVAL. Ausfurstrœfi 18
(EYMUNDSSONARKJALLARA)