Þjóðviljinn - 26.04.1967, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.04.1967, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 26. apríl 1967 — 32. árgangur — 93. tölublað. Skemmdir á salfsild: Kref jast Nor&ntenn skaða- bóta af Slldarútvegsnefnd? .<4>- □ Forráðamenn Síldarútvegsnefndar vörðust allra frétta er Þjóðviljinn leitaði umsagna þeirra í gser um síðustu fréttir frá Noregi af skemmdum á saltsíld frá íslandi. Ráðherrarnir sem fundinn sitja: Frá vinstri: John Lyng (Noregi), Hans Sölvliöj (Danmörku), Emil Jónsson, Torsten Nilsson (Sví- þjóð), og A. Karjalainen (Finnlandi). — Ljósm. Þjóðv. A.K. bera scrman bœkur sinar á tveggja daga fundi Utanríkisráðherrafundi Norð- urlanda lýkur á hádegi í dag Q Fundur utanríkisráðherra Norðurlanda hófst hér í Reykjavík í gær og var hann settur í Átthagasal Hótel Sögu kl. 10 árdegis, sitja hann utan- ríkisráðherrar allra Norðurlandanna nema Jens Otto Krag, forsætis- og ut- anríkisráðherra Danmerkur er ekki gat komið því við að mæta en í stað hans situr Hans Sölvhöj ráðherra fundinn af hálfu Dana. I upphafi utanrikisrádherrafundarins. — Ljósm. Þjóðv. A.K. Sólarhringsvinnustöftvunin fór fram árekstralaust Sólarhringsvinnustöðvun kom til framkvæmda í gaer á vegum Félags járniðnað- armanna, Félags bifvéla- virk'ja, Félags blikksmiða, Sveinafélags skipasmiða og Jámiðnaðarmannafé- lags Árnessýslu. Vinnustöðvunin gekk fram eðlilega og árekstralaust og var hvergi unnið á við- komandi vinnustöðvum, — féll niður meðal annars vinna við Búrfellsvirkjun. Bílaskoðun er nýlega haf- in og er mikið að gera á bifvélaverkstæðum um þessar mundir og sýndu bifvélavirkjar trausta sam- stöðu. Næsta fimmtudag fram- kvæma félagsmenn áður- greindra félaga aftur sól- arhrings vinnustöðvun og bætist þá í hópinn Sveina- félag járniðnaðarmanna á Akureyri til þess að knýja á um samninga og kaup- hækkun. Síðan verður hlé í eina viku og koma þá til fram- kvæmda enn á ný vinnu- stöðvanir dagana 9. og 11. maí. Sáttafundur í gærkvöld hófst sáttafundur í deilu lyfjafræðinga og apótek- ara. — Fundurinn stóð enn er blaðið fór í prcntun. Farið til Eyja Deginum í gaer var að mestu varið til fundarstarfa og verður þeim haldið áfram fram að há- degi í dag en þá á þeim að Ijú'ka. Er ætlunin að fara í flug- ferð til Surtseyjar og Vestmanna- eyja saðdegis í dag með gestina í Fokker Friendship flugvél frá Flugfélagi Islands, ef veður leyf- ir, en heimleiðis halda þeir í fyrramálið. Fulltrúarnir Eftirtaldir menn skipa sendi- nefndir einstakra landa á fund- inum: Danmörk: Hans Sölvhöj, ráðherra, Birger O. Kronmann, ambassador, Dr. scient. Gunnar Seidenfaden, am- bassador, deildarstjóri, Steffen Thorsen, skrifstofustjóri, H. J. Assing, fulltrúi, og Henrik Sten- bjerre, fulltrúi. Finnland: A'hti Karjalainen, utanrikisráð- herra, Pentti Suomela, ambassa- dor, Dr. Risto Hyvarinen, deild- arstjóri, Tankmar Hom, ráðu- nautur, Seppo Pietinen, skrif- stofustjóri og Klaus Törnudd, fulltrúi. fsland: Emil Jónsson, utanríkisráð- herra, Agnar Kl. Jónsson, ráðu- neytisstjóri, Niels P. Sigurðsson, deildarstjóri, Páll Ásg. Tryggva- son, deildarstjóri, Gunnar G. Sehram, ráðunautur og Ólafur Egilsson, fulltrúi. Noregur: John Lyng, utanríkisráðherra, Tor Myklebost, ambassador, Ein- ar Ansteensen, deildarstjóri, Gunnar Rogstad, deildarstjóri, Per Ravne, skrifstofustjóri, Ame Arnesen, fulltrúi, og Thorvald Stoltenberg, fulltrúi- Svfþjóð: Torsten Nilsson, utanríkisráð- herra, Gunnar K. L. Granberg, amtoassador, Leif Belfrage, ráðu- neytisstjóri, Marc Giron, deild- arstjóri, Love Kellberg, deildar- stjóri. Kaj Sundberg, skrifstofu- stjóri, Og Jan Mártenson, ftilltrúi. í NTB-frétt var sagt að for- svarsmenn norskra niðursuðu- og niðurlagningaverksmiðja hug- leiddu nú hvort höfða skuli skaðabótamál á hendur Síldar- útvegsnefnd vegna stórfelldra skemmda á kryddsild sem keypt var héðan frá íslandi. Jafnframt var frá því skýrt í fréttinni að Norðmenn myndu neita að taka við allmiklu magni, sem enn væri ókomið frá íslandi. Miklar bótakröfur í frétt NTB segir ennfremur að Norðmennirnir hafi i hyggju að krefjast fullra bóta fyrir um það bil 1000 tunnur síldar, að verðmæti um 1.5 milj. ísl. kr. Einnig verði farið fram á bætur fyrir úrkast úr 1739 tunnum og kostnað við flokkun síldarinnar og flökun. Þá segir NTB að miklar skemmdir hafi komið í ljós í síldarsendingu, sem Finnar keyptu frá íslandi. Muni Finn- ar sennilega neita að taka við um 19 þús. tunnum sem jkki hafa verið afgreiddar héðan. Vörðust allra frétta Þjóðviljinn reyndi í gær að fá umsagnir forráðamanna Síld- arútvegsnefndar um þessar nýj- ustu síldarskemmda-fréttir NTB. Erlendur Þorsteinsson formað- ur nefndarinnar kvaðst ekki vera til viðtals um málið. Síldarút- vegsnefnd hefði gefið út grein- argerð um málið á dögunum og hún hefði verið birt í blöðum og útvarpi. Við hana væri engu að bæta nú. Gunnar Flóvenz framkvæmda- stjóri Síldarútvegsnefndar í Reykjavík er nú staddur í Kaup- mannahöfn og hafði Þjóðviljinn því samband við Jón Stefánsson framkvæmdastjóra nefndarinnar á Siglufirði. Neitaði Jón með öllu að láta hafa nokkuð eftir sér um málið. Loftárásir í gær á bæði Hanoi og Haiphong Síða 0 Bókaverðir taka undir áskorun Félats ísl. fræða Þjóðviljanum hefur bor- izt eftirfarandi fréttatil- kynning frá Bókavarðafé lagi Islands. Á fundi í Bókavarðafé- lagi Islands sumardagmn fyrsta 1967 var eftirfarandi tillaga samþykkt einróma: „Fundur í Bókavarðafé- lagi lslands, haldinn fimmtudaginn 20. apríl, tekur undir áskorun Félags íslenzkra fræða frá 7. april s.l. til ríkisstjórnar og al- þingis um, að hiö fyrsta verði hafizt handa um frambúðarlausn húsnæðis- mála Landsbókasafns, Há- skólabókasafns og Þjóð- skjalasafns. Eigi þessar stofnanir að geta gegnt mikilsverðu- hhitverki sínu, verða þær að hafa nauðsynleg og eðli- leg vaxtarskilyrði.“ Orðsending f rá Kvenféiagi sósíalista Eins og á undanfömum árum efnir Garolinusjóður Kvenfélags sósíalista til kaffisölu í Tjamargötu 2P hinn 1. maí. Sjóðsstjómin hvetur félagskonur og aðra velunnara til að gcfa kök- ur og minnir fólk jafnframt á að líta við í Tjamargöt- unni J. mai og drekka þar eftirmiðdagskaffið. — Við munum veita vel að vanda. Carolínusjóðs- stjóm. VöruskiptajöfnuBur 312.7 miij. kr. jakari en i fyrru ★ Þjóðviljanum hefur borizt bráðabirgðayfirlit Hagstofu íslands um vöruskiptajöfnuðinn í marz sl. svo og frá ársbyrjun til marzloka. ★ í marz var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 89,1 miljón króna en var I sama mánuði f fyrra hagstæður um 32,4 milj. kr. Inn voru fluttar vörur fyrir 448.8 mflj. kr. (500.3) en út fyrir 359.7 mflj. kr. (532.7). ★ Á fyrsta fjórðungi þessa árs, janúar til marz, var vöruskipta- jöfnuðurinn óhagstæður um 327.9 miljónir króna en á sama tímabili í fyrra var hann óhagstæður um 15.2 miljónir króna. Hefur vöruskiptajöfnuðurinn á þessu timabili í ár því verið 312.7 miljónum króna lakari heldur en í fyrra. Aðaifundur ÆFR á morgun ■ Aðalfundur Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík verður hald- inn annað kvöld, fimmtudag, og hefst harm kL 20.30 í Tjamar- götu 20. Á DAGSKRÁ FUNDARINS ERU: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál ■ Endurskoðaðir reikningar félagsins og uppástungur um næstu stjórn þess og fulltrúaráð liggja frammi í Tjarnargötu 20. Stjórnin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.