Þjóðviljinn - 26.04.1967, Síða 3
Miðvilcudagur 26. aprfl 1967 — ÞJÓÐVXLJINN — SÍÐA 3
Bandaríkjamenn herða enn stríðið í Vietnam
Loftárásir gerðar á
Hanoi og Haiphong
Loftárásir á flugvelli í Kína nú undirbúnar með því
að fullyrða að Norður-Vietnamar hafi þá til afnota
SAIGON 25/4 — Enn í dag hertu Bandaríkjamenn stríð
sitt í Vietnam þegar þeir gerðu miklar loftárásir á borg-
imar Hanoi og Haiphong í Norður-Vietnam, mun nær mið-
biki þeirra en nokkru sinni fyrr. í gær höfðu þeir í fyrsta
sinn ráðizt á flugvelli þar sem staðsettar eru orustuþotur
af sovézkri gerð og bandaríska herstjórnin í Vietnam er
þegar tekin að undirbúa að slíkar árásir verði gerðar á
kínverska flugvelli; skýrt var frá bví í dag að komið
hefði í ljós að norðurvietnamski flugherinn hefði afnot af
flugvelli í Kína.
I loftárásinni sem bandarískar
flugvélar gerðu í dag á Hanoi
var ráðizt á járnbrautarvcrkstæði
sem aðeins er rúma þrjá km frá
miðbiki borgarinnar, en í Haip-
hong var ráðizt á sementsverk-
smiðju sem er ekki nema hálfan
annan kilómetra frá miðbiki
þeirrar borgar.
1 fréttaskeyti Reuters segir að
loftánásir Bandaríkjamanna á
Norður-Vietnam í gær og í dag
marki greinilega stigmögnun
stríðsins. Samkvæmt frétt frá
Hanoi voru 15 bandarískar flug-
vélar skotnar niður í árásunum
£ dag, en níu í gær. Sjálfir við-
urkenna Bandaríkjamenn aðeins
að hafa misst þrjár flugvélar
béða dagana, en segja þóaðskot-
hríð úr loftvarnabyssum hafi
aldrei verið harðari síðan árás-
irnar á Norður-Vietnam hófust.
„Ófyrirsjáanlegar afleiðingar“
Árásdmar á flugvellina í Norð-
ur-Vietnam í gær voru þær
fyrstu sem á þá hafa verið gerð-
ar. Talsmenn bandaríska land-
vamaráðuneytisins hafa fram að
þessu haldið þvi fram að slíkar
árásir myndu hafa í för með sér
ástæðulausa hættu á útfærslu
stríðsins.
Mike Mansfield, leiðtogi Demó-
krata í öldungadeild Banda-
ríkjaþings, sagði að loftárásirnar
á flugvellina myndu aðeins tor-
velda friðarumleitanir í Vietnam.
Ef Norður-Vietnamar flyttu flug-
vélar sínar til kínverskra flug-
valla, myndi skapast erfitt og
hættulegt ástand og enginn gæti
þá sagt fyrir um afleiðingarnar.
Westmoreland, yfirhershöfðingi
Bandaríkjamanna í Vietnam,
lýsti í dag ánægju sinni yfir á-
rásunum á flugvellina. Hann
sagði að þær gætu leitt til þess
að Norður-Vietnamar flyttu flug-
vélar sínar til flugvalla í Kína
og myndi notagildi þeirra
minnka við það.
Talsmaður bandaríska land-
vamaráðuneytisins skýrði frá því
í gærkvöld, samkvæmt AFP-
frétt, að Norður-Vietnamar hefðu
nú þegar afnot af kínverskri
flugstöð í Meng-Tsu, en þaðan til
Hanoi er aðeins um stundar-
fjórðungs flug. Þar í flugstöðinni
væri gert við flugvélarnar. Þar
Vietnam-réttarhöidin byrja
í Stokkhóimi á iaugardag
STOKKHÓLMI 24/5 — Það er I ekki amast við því að dómstóll-
nú haft fyrir satt að dómstóll | inn hefði aðsetur f Svíþjóð, enda
sá sem kenndur er við Bertrand ! þótt hún hefði færzt undan því
Russell og fjalla á um stríðs- 1 við aðstandendur hans að réttar-
gJæpi Bandaríkjamanna í Viet- | höldin fæm fram þar. Sænska
nam muni hefja störf sín í Stokk- j stjómin myndi ekki reyna að
hólmi á laugardaginn. Muni ! koma í veg fyrir réttarhöldin svo
hann koma saman í Alþýðuhús- fremi sem aðstandendur þeirra
væm nú um 30 norðurvietnamsk-
ar omstuþotur af sovézkri gerð.
Skotar niður yfir Kína
Bandarískar flugvélar hafa á
undanförnum misserum hvað eft-
ir annað flogið inn í kínverska
lofthelgi. I dag var frá því skýrt
í Peking að tvær bandarískar
herflugvélar hefðu verið skotnar
niður yfir Kvangsi-fylki sem er
syðst í Kína. Þetta hefðu verið
þotur af gerðinni F4b-Phantom,
en það em einar fullkomnustu
herþotur sem Bandaríkjamenn
eiga.
Bandaríkjastjórn hefur ekki
staðfest þessa frétt, en í Wash-
ington var sagt í dag að verið
væri að athuga málið. Tilkynn-
ing um það kynni að verða gef-
in út síðar.
Herdómstólar á stofn í öllum
helztu borgunum í Crikklandi
Enn reynt að láta líta svo út sem konungur hafi
verið andvígur valdaráni hersins í síðustu viku
AÞENU 25/4 — Herforingjarnir sem hrifsuðu völdin í sín- una °S ýms dönsk blöð, t.d.
ar hendur í Grikklandi fyrir helgina létu þau boð út ganga ”Information - haía krafizt þess
tíu
í dag að komið hefði verið á fót herdómstólum
stærstu borgum landsins og yrðu leiddir fyrir þá allir
þeir sem brotlegir gerðust við herlögin sem gilt hafa í
landinu frá valdaráninu.
Þessi boðskapur herforingj-
anna gefur til kynna að þeir
óttist andstöðu almennings, þótt
allir foringjar lýðræðisaflanna
og verklýðshreyfingarinnar sem
til hefur náðst hafi verið hand-
teknir og þeir fluttir í fanga-
búðir.
Enn er reynt að láta líta svo
út sem valdarán herforingjanna
hafi átt sér stað án vitundar
og vilja Konstantíns konungs,
enda þótt það sé í fullu sam-
ræmi við öll afskipti hans af
grískum stjórnmálum síðan
hann vék frá löglega skipaðri
ríkisstjórn landsins fyrir tæp-
um tveimur árum.
„New York Times“ skýrði frá
því í dag að konungur hefði i
Minningarathöfn um
Komarof í Moskvu
Þúsundir manna vottuðu minningu hins látna
geimfara virðingu sína. — Rannsókn ákveðin
MOSKVU 25/4 — Þjóðarsorg ríkti í dag í Sovétríkjunum ,
þegar kvaddur var Vladimir Komarof ofursti sem fórst í
gær þegar geimfar hans, „Sojús l.“, hrapaði til jarðar úr
7 kílómetra hæð.
viðtali við bandaríska sendiherr-
ann í Aþenu, Phillips Talbot,
látið í ljós óánægju með valda-
töku herforingjanna. Það var haft
eftir konungi sem sagður er
hafa rætt tvívegis við banda-
ríska sendiherrann síðan valda-
ránið var framið að hann hefði
beitt sér gegn hernaðareinræðinu
og hann reyndi enn að beita sér
fyrir því að við völdum taki
stjórn sem styðjist við ákvæði
stjómarskrárinnar.
Allt bendir þó til þess að
valdaránið hafj verið framið
með fullkomnu samþykki kon-
ungs. Bornar eru til baka fréttir
af því að hann sé fangi hersins
í sumarhöll sinni við Aþenu og
sagt er að hann sé alveg frjáls
ferða sinna.
Vaxandi mótmæli
Valdarán herforingjanna hef-
ur hvarvetna mælzt illa fyrir
pg víða 1 Evrópu komið fram
krödiur um að stjórn þeirra
verði neitað um viðurkenningu.
Stjóm danpkra sósíaldemókrata
hefur þannig fordæmt valdatök-
að danska konungsfjölskyldan
slíti sambandi sínu við Kon-
stantín konung, en drottning
hans er Anne-Marie, dóttir
Friðriks 9.
Alþjóðablaðastofnunin í Zúrich
(IPI) hefur mótmælt harðlega
afskiptum herforingjanna grísku
af blaðaútgáfu. Nú fá ekki að
koma út í Grikklandi önnur
blöð en málgögn hægrimanna og
jafnvei þau lúta strangri rit-
skoðun.
Rætt aftur um að
banna dreifingu
kjarnavopnanna
GENF 24/4 — Fulltrúar stjóma
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
hófu aftur í dag viðræður í
Genf um bann við frekari dreif-
ingu kjarnavopna. Þeir William
Foster og Alexei Rosjtsjín rædd-
ust við í tvær klukkustundir.
Sagt er að báðir hafi lýst þeirri
von sinni að samkomulag hafi
tekizt um alþjóðasáttmála um
slíkt bann fyrir 9. maí n. k.
þegar afvopnunarráðstefnan £
Genf hefst aftur eftir sex mán-
aða hlé.
inu þar.
Ætlunin hafði verið að réttar-
höldin færu fram í Frakklandi,
færu að sænskum lögum.
Einn af helztu frumkvöðlum
dómstólsins er þýzk-sænski rit-
Ótaldar þúsundir Moskvubúa
vottuðu minningu hans virðingu
sína í dag þegar krukku með
ösku hans var komið fyrir í húsi
sovézka hersins i Moskvu. Tug-
þúsundir manna biðu klukku-
stundum saman í röðum eftir
því að fá að ganga fram hjá
jarðneskum leifum hans og grétu
margir hástöfum. Ýmsir leið-
togar Sovétríkjanna, t.d. Kosy-
gin forsætisráðherra, stóðu heið-
ursvörð við krukkuna sem
geymdi ösku Komarofs.
Tilkynnt var í Moskvu að
skipuð hefði verið nefnd til að
rannsaka öll atvik slyssins.
Skýrt var frá því í gær að geim-
farið hefði hrapað til jarðar
vegna þess að fallhlífar þær
sem draga áttu úr fallhraða þess
gegnum gufuhvolfið flæktust
saman, en grunur leikur á að
ákveðið hafi verið að láta geim-
farið lenda fyrr en til hafði
staðið vegna þess að einhver
bilun hafi orðið.
Aska Komarofs verður jarð-
sett á morgun eftir hátiðlega
athöfn á Rauða torginu. Krukk-
an með öskunni verður látin í
Kremlmúrinn, en þar eru geymd-
ar jarðneskar leifar margra
manna sem getið hafa sér mik-
inn orðstír síðan byltingin var
gerð fyrir hálfri öld.
Ákvörðun um næstu helgi um
umsókn Breta um EBE-aðiid?
LONDON 25/4 — Tvö brezk ild að EBE er talið víst að drátt-
blöð, Financial Times“ bg „Daily ! ur muni verða á þvi að samn-
Mail“ ^kýrðu frá þvi í dag að ! ingaviðræður geti hafizt og auk
brezka stjórnin myndi um næstu þess víst að þær viðræður geta
helgi taka endanlega ákvörðun dregizt mjög á langinn.
um það hvort hún eigi að sækja------------------------
um aðild að Efnahagsbandalagi _ _ ■ ok> ■
Johnson bauo de
Stjormn muni verða kvödd
saman á aukafund á sunnudag- O1 |||S41 |!| IICA
inn á sveitasetri Wilsons forsæt- %8ÍðUEtU III llwM
isráðherra til að fjalla um þetta
mál sem síðan muni verða lagt j BONN 24/5 — Johnson Banda-
fyrir þingið áður en hlé verður ríkjaforseti bauð de Gaulle, for-
gert á þingstörfum um miðjan seta Frakklands að koma til
næsta mánuð vegna hvítasunn- , Washington i sumar þegar þeir
ræddust við sem snöggvast við
Enda þótt ákvörðun verði tek-
in á næstunni um hvort Bretar
eigi að sækja formlega um að-
útför Konrads Adenauers i dag.
De Gaulle mun hvorki hafa þeg-
ið boðið né afþakkað það.
en í gær var frá því skýrt að ; höfundurinn Peter . Weiss. _ Hann
de Gaulle forseti hefði lagt bann
við þvf.
Sænska fréttastofan TT hafði
eftir Erlander forsætisráðherra í
dag að sænska stjórnin myndi
Innlent lán
Framhald af 10. síðu.
skírteinin eru einnig seld í af-
greiðslu Seðlabankans, Ingólfs-
hvoli, Hafnarstræti 14. Hefst
salan eins og áður segir föstu-
daginn 28. þ.m.
Beggja vilji
•••
Framhald af 10. siðu.
að auka samskipti vísinda-
manna, efla samvinnu á sviði
vísindarannsókna og auka skipti
á vísindalegum og tæknilegum
upplýsingum um fiskveiðar og
fiskiðnað.
Ákveðið var að athuga mögu-
leika á, að viðeigandi samning-
ur verði gerður milli landanna,
þar sem kveðið yrði á um viss
atriði varðandi veiðar á fiski-
miðum, þar sem fiskimenn
beggja landanna stunda veiðar".
sagði í dag að ekki væri ástæða
til að ætla að neitt það gerðist
sem hindraði störf dómstólsins.
Búizt er við að kostnaður við
réttarhöldin pg þær rannsóknir
sem á undan þeim hafa gengið
muni verða rúmlega 10 miljónir
ísl. kr. Mikill hluti þess fjár
kemur úr sjóði „Friðarstofnunar-
innar“ sem ber nafn Russells
en fé hefur einnig verið safnað
með samskotum víða um heim,
einnig í Bandaríkjunum. Um
hundrað sænskir rithöfundar,
listmálarar, tónskáld og leikarar
hafa lagt fram um 200.000 ísl- kr.
Útför Adenauers
var gerð í gær
BONN 25/4 — Útför Konrads
Adenauers, fyrrverandi kanzlara,
var gerð í dag og var hann
jarðsettur í Rhöndorf við Rín
eftir að kveðjuathöfn hafði far-
ið fram í dómkirkjunni í Köln,
en þar voru viðstaddir stjóm-
málaforingjar og þjóðarleiðtog-
ar frá mörgum löndum. Fyrr um
daginn hafði Adenauers verið
minnzt á sérstökum hátíðarfundi
vesturþýzka þingsins í Bonn.