Þjóðviljinn - 26.04.1967, Qupperneq 8
g STDA — ÞJÓÐVTLJITÍ3N — Miðviíteudagur 26. aprffl. T96’i,
JOHN FOWLES:
SAFNARINN
42
Ég er svo vel vaikandi, ég ætla
bö sfcrifa samtal.
M- Jæja?
e. Ég sé ekki hvað er merki-
legt við hana.
M. Er yður ekki ljóst, að þetta
er einhver snjallasta unglings-
lýsing sem nokkum tíma hefur
verið sfcrifuð?
e. 1 mánum augum er hann
efckert nema klúður.
M. Auðvitað er hann eintómt
klúður. En honum er það ljóst,
hann reynir að tjá tilfinningar
sínar, hann er mannleg vera
þnátt fyrir alla galla sína.
Voricennið þér honum ekki
einu sinni?
C. Ég kann ekki við hvemig
hann talar.
M. Ég kann ekki við hvemig
þér talið. En ég fer þó ekki með
yður eins og þér ættuð ekki
skilið minnstu samúð eða at-
hygli.
e. Þetta er sjálfsagt mjög
vel gert. Að skrifa svona og allt
það.
M. Ég lét yður fá bókina,
vegna þess að ég hélt að þér
mynduð þekkja sjálfan yður í
hermi. Þér eruð Holden Caul-
field. Hann fellur hvergi inn og
það gerið þér ekiki heldur.
e. Það kemur mér ekki á ó-
vaií eins bg hann lætur. Hann
gerir enga tilraun til að falla
neins staðar irm.
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistoía
Steinu og Dódó
Laugav. 18, ni. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968.
M. Hann reynir að byggja
upp eins konar veruleika í lífi
sínu, eins konar sæmd.
C. Þetta er ekki raunsaett.
Hann gengur í flottan skóla og
á rika foreldra. Hann myndi
aldrei haga sér svona. Ekki að
mínu viti.
M. Ég veit hver þér eruð. Þér
eruð gamli maðurinn úr sjónum.
C. Hver er það?
M. Hræðilegi gamli maðurinn
sem Sinbad varð að bera á bak-
inu. Það eru þér. Þér setjizt á
bakið á öllu sem er lifandi, öllu
sem reynir að vera frjálst og
heiðarlegt og þér sligið það nið-
ur.
Ég vil ekki halda áfram. Við
rökræddum — nei, við rökrædd-
um ekki, ég segi hitt og þetta
og hann reynir að smeygja sér
undan.
Það er eatt. Hann er gamli
maðurinn úr sjónum. Ég rís
ekki undir heimsku fólki eins
og Caliban með alla smámuna-
semina, hugmyndaskortinn og
ljóta þankaganginn. Og þeir
verða að bera betta allt saman
uppi: Læknamir og kennararn-
ir og listamennimir — ekki svo
að skilja að þeir eigi ekki líka
sína svikara, en þeir eru eána
vonin — við erum eina vonin.
Því að ég er í þeirra hópi.
Ég er það. Ég finn það og ég
hef reynt að sanna það. Ég fann
það síðasta árið í Ladymont. Þar
voru örfáar sem hugsuðu, þar
voru heimskar stúlfcur, snobbað-
ar, tilvonandi samkvæmisdrottn-
ingar og dekurböm pabba og
sumar með hrossadellu aðrar
kynóðar. Ég skal aldrei snúa
aftur til Ladymont. Þvi að ég
myndi ekki þbla þetta kæfandi
andrúmsloft þess er sem „við-
eigandi“ og að „kunna sig“ og
þekkja „rétt“ fólk. (Boudicca
sem skrifaði „þrátt fyrir undar-
legar stjómmálaskoðanir“ á
vitnisburðinn minn — að hún
skyldi leyfa sér!). Ég vil ekki
vera „gömul námsmey“ frá
slíkum stað.
Af hverju verðum við að um-
bera þessa þrúgandi Calib-
önsku? Af hverju þarf að gera
hverja einustu Iifandi og skap-
andi og góða manneskju að písl-
arvotti fyrir þessa grautarvellu
sem umlykur okbur?
1 þessum kringumstæðum er
ég einkennandi.
Píslarvottur. Fangi, get ekki
vaxið. Ofurseld þessari beiskju,
þessari óbærilegu myllusteinsöf-
und hjá Calibönunum í heirrn
okkar. Vegna þess að þeir hata
oktour, þeir bata ofckur af því
að við erum öðruvísi, af þvi af við
erum ekki eins og þeir, af þvi
að þeir eru ekki eins og við.
Þeir hundelta okkur, þeir troða
á okkur, þeir senda okkur til
Coventry, þeir hæðast að okkur,
þeir geispa yfir okkur, þeir
binda fyrir augun og troða í
eyrun. Þeir gera hvað sem vera
skal til að komast hjá þvi að
taka eftir okkur og bera virð-
ingu fyrir okkur. Þeir skríða
fyrir mikilmennunum meðal
okkar eftir lát þeirra. Þeir börga
þúsundir á þúsundir ofan fyrir
Van Gogh og Modiglianimál-
verkin sem þeir hræktu á þegar
þau voru máluð. Haeddust að.
Hlógu að.
Ég hata þá.
Ég hata alla óupplýsta og fá-
fróða. Ég hata þá yfirlætisfullu
og fölsku. Ég hata þá öfund-
sjúku og bitru. Ég hata þá geð-
vondu og ómerkilegu og smá-
munasömu. Ég hata öll þessi
hversdagelegu, leiðinlegu smá-
menni sem skammast sín ekki
fyrir að vera hversdagsleg og
lítilsigld. Ég hata það sem G.P.
kallar Nýja fólkið, fólkið í nýju
stéttinni með bílana sina og pen-
ingana sína og sjónvörp sín og
bjánalega skriðdýrslega eftiröpun
á þvi sem það heldur að sé fint-
Ég elska hreinskilni og frelsi
og gjafmildi. Ég elska sköpun,
mér finnst unaðslegt að fást við
eitthvað, dásamlegt að vera
barmafull af einhverju, ég elska
allt sem er ekki að sitja og góna
og sproksetja og stæla og vera
með dautt hjarta.
G.P. hló að mér fyrir að
styðja Verkamannaflokkinn einn
daginn (einu sinni x byrjuninni).
Ég man að hann sagði: Þú styður
flokkinn sem skapaði Nýja
fólkið — er þér það ljóst?
Ég sagði (ég var agndofa, því
að eftir þvi að dæma hvemig
hann talaði um hitt og þetta
hélt ég að hann hlyti að styðja
Verkamannaflökkinn, ég vissi að
hann hafði einhvem tíma verið
kommúnisti):, Ég yil heldur
Nýja fólkið en fátækt fólk.
Hann sagði: Nýja fólkið er
ennþá fátaakt. Þetta er aðeins
annað form á fátækt. Hitt fólkið
hafði ekki peninga og þetta fólk
hefur ekki sál.
Allt i einu sagði hann: Hef-
urðu lesið Barböru mjór?
Hvemig hún sýndi að fyrst
þurfti að bjarga fólkinu fjár-
hagslega áður en hægt var að
bjarga sál þess.
Eitt gleymdist, sagði hann. Þeir
komu með Velferðarríkið inn á
sviðið en þeir gleymdu Barbönx
sjátfri. Velferð, velferð og engin
sál svo langt sem augað eygir.
Ég veit að honum skjátlast
einhvers staðar (hann ýkti).
Maður verður að vera róttækur.
Allt gott fólk sem ég hef nofck-
um tíma kynnzt hefur verið á
móti fhaldi. En ég skil hvernig
honum líður, ég á við að ég
er fiarin að finna það betur og
betur sjálf: Þennan lamandi
þunga af feitu litlu Nýju fólki
sem hvílir á þllu- Sem eyði-
leggur allt. Gerir allt gróft og
ómerkilegt. Nauðgar lands-
byggðinni eins og P. segir þegar
hann er í borgaralega hamnum.
AUt vélvætt og fjöldaframleitt.
Fjölda-heild.
Ég veit að til þess er ætlazt
af okkur að við stöndum af
okkur storminn rísum undir
flóðbylgjunni — það er erns
og i kúrekamynd. Vinnum fyrir
það og umberum það. Ég skal
aldrei loka mig inni í fílabeins-
turni, það er fyrirlitlegast af
öllu, að yfirgefa lífið vegna þess
að allt er ekki eftir manns
höfði. En stundum er skelfilegt
að hugsa til þess hvað lífið er
hræðileg barátta, ef það er tekið
alvarlega.
Þetta er allt eintómt blaður í
mér. Sennilega á ég eftir að
hitta mann og verða ástfangin
af honum og giftast honum, allt
breytist fyrir mér og ég hætti
að velta vöngum yfir öllu þessu.
Ég verð Lítil kona. Geng í lið
með óvinunum.
En þetta finnst mér núna. Að
ég tilheyri eins konar smáhópi
sem verði að berjast gegn öll-
um öðrum. Ég veit ekki hverjir
þeir eru — frægir menn lífs
og liðnir, sem hafa barizt fyrir
því sem rétt var og skapað og
málað á réttan hátt og óþekkt
fólk sem ég þekki sem lýgur
ekki, sem leggur sig fram, sem
reynir að vera mannlegt og
skilningsríkt. Já, fólk eins og
G-P. með öllum hans löstum.
Lesti hans.
Það þarf ekki einu sirmi að
vera gott fólk. Það hefur sín
veiku augnablik. Kyn-augnablik
Og drykkjuaugnablik. Rag-
mennsku og ágimdaraugnablik.
Það leitar skjóls í filabeinstum-
inum. En hluti af því er alltaf
með hópnum.
Hinir fáu.
9. nóvember.
Þetta er stónnennska. Ég er
ekki ein þeima. Ég vil gjarnan
vera það, og það er ekki það
sama.
Auðvitað er Caliban ekki ein-
kennandi fyrir Nýja fólkið.
Hann er geysilega gamaldags
Kuldajakkur; úlpar
og terylene buxur í úrvali.
Ó. L. Traðarkotssundi 3
(móti bjóðleikhúsinn)
^Þegar við lögðum af stað var gott veður, en það breyttist
flóUega og brátt lentum við i erfiðleikum. Skipið var gamall
dallisr, gefck fyrir kolum, og þegar það lenti í roki var alltaf
hætta á að ekki væri hægt að halda stefnunni. Þetta leit illa
út hjá okfcur og við nálguðumst óðum skerin sxiður af Que-
stant- — Þú manst áreiðanlega eftir þessu, Dafood. Ég vildi
snúa við, en Lascar neitaði því undir alls konar yfirskini. Hin
raunverulega ástæða var að hann tapaði miklum peningum ef
skxpinu seinkaði. Ég var óður af bræði.“
Þvoið hárið úr l.OXKMi Shampoo — og flasaii fer
SKOTTA
— Já, hun Iítur sæmilega út núna, en þú ættir að sjá hana á
morgnana þegar hún er nývöknuð.
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
PADIONI
henta þar sem erfið skilyrði
eru. — Byggð fyrir fjalllendi
Noregs.
Sérhæfðir menn frá verk-
smiðjunum í Noregi annast
þjónustuna af þekkingu.
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18 sími 16995
ATHUGIÐ
Getum bætt við okkur klæðningum og við-
gerðum á bólstruðum húsgögnum. — Góðir
og vanir fagmenn.
Húsgagnav. Þorsteins Sigurðss.
Grettisgötu 13. — Sími 14-0-99.
VERÐLÆKKUN
hjólb. slöngur
EINKAUMB
500x16 kr. 625,— kr. 115,—
650x20 kr. 1.900,— kr. 241,—
670x15 kr. 1.070,— kr. 148,—
750x20 kr. 3.047,— kr. 266,—
820x15 kr. 1.500,— kr. 150,—
TRADIIMG
SIMI 17373