Þjóðviljinn - 28.06.1967, Page 10

Þjóðviljinn - 28.06.1967, Page 10
1 10 SlÐA — ÞJÓÐViLJINN — Miðvitodagur 28. júrá 19SJ. P.N. HUBBARD y BROTHÆTT GLER 30 hvers virði diskurinn er mér í peningum. En hann er allavega aðeins hluti af eigum Elísabetar fraenku. Frá peningalegu sjón- armiði er dauði hennar mér verðmeiri en sem nemur verð- gildi disksins. Og svo kemur fleira til en peningar. En ég get ekki gert neitt fyrr en hún er dáin. Við héldum áfram að horfa hvort á annað. SvO sagðd ég: — Ég leyfi þér svo sannarlega að orða þetta þannig. Það vseri ekki hasgt að orða það betur- En leyfðu mér fyrir mitt leyti að íhuga þessar aðstæður sem þú lýsir svo greinilega og at- huga hvort eitthvað er hægt að gera. Svo er eitt enn. Er nokkur hér sem veit eða hefði getað komizt að nógu miklu um disk- inn þinn til að setja hann í sam- band við grei.n Levinsons ef við- komandi hefur lesið hana? Þú segir að diskurinn hafi ekki vakið neina sérstaka athygli á liðnum árum. Og ég geri ekki ráð fyrir að hann hafi alltaf verið hafður undir lás og slá. Ef til vill vita einhverjir um til- veru hans og uppruna. Veiztu hvort svo er? Hún hristi höfuðið. — Aðeins Seaton. — Það er lögfræðingurinn- Þú hefur minnzt á hann áður. Þú m fEFNI SMAVÖRUR TÍZKUHNAPPAR Hárgreiðslan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav. 18. III. haeð (lyfta) Sími 24-6-16. PERMA Hárgreiðslu- og 6nyrtistofa Garðsenda 21 SÍMI 33-968 sagðir að hann væri ágætur. — Það er hann líka. Hann veit að gripurinn er til og ég taldi skynsamlegt að segja hon- um frá heimsókn Levinsons og skrifum hans. En hann segir engum neitt. Ég er 'búin að tryggja það. Ég hugsaði aftur sem svo, að mér hefði þótt gaman að sjá þennan Seaton. Claudia virtist hafa algert taumhald á honum. Ég vplti fyrir mér hvort það teldist til misferlis í starfi, þegar lögfræðingur lét skjólstæðing tæla sig. Ef til vill átti það að- eins við um lækna. Kannski var þetta líka misskilningur minn. Ef til vill var. Seaton vammlaus afamanngerð. En .samt — ég neyddi sjálfan mig til að hætta að hugsa um hinn óþekkta Sea- ton og sagði: — Enginn annar? — Alls enginn. Hvers vegna? Er enn verið að elta þig? — Ég er búinn að segja þér það. Eins og Elísabet frænka finnst mér fólk vera á sveimi. — Og það líkar mér ekki? Hún brosti til mín. Brosið var dá- lítið móðurlegt og fullt af um- burðarlyndi, sem var reyndar fráleitt hjá Claudíu, en þó svo aðlaðandi að ég bráðnaði allur meðan ég horfði á það- Hún sagði: — Allt í lagi, Johnnie. Ég lít eftir hlutunum. Ætlarðu aft- ur til London? Mig langaði til að neita þvi, en þó lá svt> beint við að ég færi þangað að ekki tók því að tala um það. Ég kinkaði aðeins kolli. Claudía sagði: — Ég mun sakna þín eins og þú veizt. Og ég vissi það reyndar. Þrátt fyrir allt sem ég vissi, þá vissi ég að í rauninni myndi Claudía sakna mín. Og hvað sjálfan mig snerti, þá vissi ég hvað mín beið. Ég þokaði mér nær henni en klaufjárnið í buxnaskálminni hefti för mína. Hún sat í sófa- horninu og horfði á mig og hall- aði dálítið undir • flatt. Þrisvar áður hafði ég séð hána þannig, en nú var þessi mynd grópuð í huga mér. Ég stóð upp og í ann- að skipti þetta kvöld fór ég að draga vamig jámvörusalans upp um buxnastrenginn- Jafnvel Claudía sýndist dálít- ið hvumsa. Hún sagði: — Hvað er þetta Johnnie? Eitthvað nýtt? Ég held ekki —• Ég sagði: — Hafðu engtar á- hyggjur. Legðu niður vopnin, Eros. Dagverkinu er lokið. Ég dró skrúfjámtð ttpp 6r hinni buxnaskálminni og lagði það við hliðina á klauf járninu á sætið á armstól frá Viktoríutímanum. Ég hlýt að hafa skilið við þau tæpt, þvi að tim leið og ég sneri mér aftur að Claudíu, ultu verkfærin niður í gólfið með skeKilegu glamri. Ég lét þau liggja. Claudía fór aftur að hlæja og nú tók ég undir. Við hlógum svo ókaflega að ég ætlaði aldrei að geta hætt. Hún hallaði höfðinu afturábak Dg sagði: — Hann var ekki í skápnum, Johnnie. Hann var alls ekki í skápnum. Og þú með öll þessi verkfæri — Hún benti dösuð á verkfærin á gólf- inu og fór aftur að hristast af hlátri. Ég tók um axlimar á henni og hún hörfaði eins og hún hafði gert á stígnum, en nú hélt ég henni fastri og hristi beinlín- is úr henni hláturinn. Ég gekk gegnum Dunstreet undir morgun hlýtur að vera. Ég hafði misst allt tímaskyn og nennti ekki einu sinni að líta á úrið mitt. Þetta virtist allt á enda, en samt var ekkert á hreinu. Það virtist jafnómögu- legt að yfirgefa Claudíu og að vera hjá henni. Ég gat ekki hætt að hugsa um tözzuna, en gat þó ekki einbeitt huganum að þeirri einu skynsamlegu leið sem myndi leiða mig til hennar. Hvað sem öðru leið, varð ég að komast til London. Það var dá- lítið sem mig langaði til að •'la og það var ekki víst að ég kæmist að því þar, en ég kæm- ist að minnsta kosti hvergi að því annars staðar. Ljósin loguðu alla nóttina á torginu í Dun- street en hliðargötumar voru dimmar. Ég gekk aleinn um í röku, mjúku loftinu Dg mundi varla hvernig skellibirtan og innilokað loftið var í London. Það var næstum eins og ég hefði alltaf verið þama. Undir morgun kom hreyfing á loftið og dálítil gola barst utanaf sjónum og bærði dauð laufin sem lágu hér og þar á gangstétt- unum og í göturæsunum. Ég var dauðþreyttur og hélt nú í áttina að Fleur-de-Lys. Þegar ég kom þangað mundi ég allt f einu nafnið sem ég hefði verið að reyna að rifja upp. Joachim. Það var rétt, ungfrú Joachim. Ef til vill hafði Levinson gamli verið gyðingur eftir allt saman. Ég velti fyrir mér hvar ég gæti náð f ungfrú .Toachim. En það gæti beðið til morguns. Ég stakk klaufjáminu og skrúf- jámifiu innundir jakkann minn. Claudía hafði ekki viljað þiggja þau í minjasafnið sitt og kærði sig ekki um að hafa þau liggj- andi á gólfteppinu hjá sér. Nú fyrst datt mér í hug, að lög- regluþjónninn í Dunstreet kynni að hafa orðið tortrygginn ef hann hefði mætt mér f morguns- árið á randi um götumar með þessi verkfæri standandi uppúr vösunum- En maðurinn sem hleypti mér inn var of syfjaður til að taka eftir neinu, og ég kom gripunum upp á loft óséð- um. SEXTANDI kapli. Húsið f St. John's Wood var ennþá tómt. Uti var spjald sem á var letrað Til söha. Þetta var stórkostlega eftirsóknarverð fast- eign og fyrst hún var enn á laus- um ki!li hlaut Levinson fjölskyld- an að hafa verðlagt hana geysi- hátt og hafði efni á að sitja og bíða eftir kaupanda. Carmichaels höfðu söluna með höndum og þeir létu sér ekki lynda nein smánarboð. Þetta gæti tekið tírnann sinn. Carmicháelsfyrirtækið var svo agndofa yfir því að nokkur skyldi koma þangað í öðrum tilgangi en að kaupa hús, að það tók sinn tíma að ákveða viðeigandi við- brögð. Á meðan hafði ég staðið í ströngu. Ég útskýri erindi mitt í þriðja sinn. — Mér þykir leitt að þurfa að ónáða ykkur, sagði ég, — og auðvitað veit ég að þetta er ekki í ykkar verkahring. En mér flaug í hug að þið kynn- uð að geta hjálpað mér. Ég var vinur Levinsons sáluga. Satt að segja" var það ég sem kom að honum látnum svo óskemmtilegt sem það nú var. En ég er alveg ókunnugur fjölskyldu hans og ég geri ráð fyrir að þeir séu selj- endumir. Ég þyrfti að komast i samband við manneskju úr þjónustuliði hans- És er viss um að lögfræðingar herra Levinson gætu gefið mér upplýsingar um dvalarstað viðkomandi persónu — en ég veit ekki hverjir þeir eru, lögfræðingamir á ég við. Ef þér gætuð gefið mér upplýsingar um það — F'ulltrúinn bakvið borðið virt- ist allt í einu eygja Ijósglætu. Andlit hans varð fagnandi. — Þér viljið fá að vita hver hefur lögfræðilega umsjón með búi herra Levinsons? 'sagði hann. — Ég Tjýst við því, já. — Þér álítið að þeir gætu gefið yður nauðsynlegar uppiýs- ingar? Ég sagði: — Ég þarf að kom- ast í samband við fyrrverandi ráðskonu herra Levinsons heit- ins, ungfrú Joachim er nafn hennar. Ég veit ekki hvar hún er stödd, en ég tel vfst að lög- fræðingar herra Levinsons hafi heimilisfang hennar. Ef þér gæt- uð sagt mér hverjir þeir eru, þá gæti ég ef til vill spurt þá. — Ég reyndi að gena tilmælm sem meinleysislegust. Maðurinn ljómaði af ánægju. Hann sagði: — Það var og, það var og, bg andaði gegnum nefið með nokkrum gný og hélt áfram að ljóma. Síðan sagði hann: — Jæja, herra Slade, ég sé enga ástæðu til að neita yður um að- stoð okkar f þessu máli. Ég bendi yður á að leita til fyrir- tækis að nafni Russ & Jerrold í Lincoln Inn Fields. Það kæmi mér ekki á óvart þótt þér fengj- uð þar þær upplýsingar sem yður vanhagar um. — Það gleður mig, sagði ég. Það mun ég gera. Ég þakkaði honum fyrir og hélt til dyra. Áður en ég vár kominn þangað var hann kominn f sím- ann. Ég átti von á því að fyrir- spurn mín hjá Russ & Jerrold kæmi ekki á óvart, enda reynd- ist svo. Hvort sem nokkrir Russar eða Jerroldar voru á tak- teinum, þá hét sá Moss sem ég talaði við. Hann var dökkhærður, þar sem hann var ekki sköll- óttur og mjðg ungur og vin- þórður sfóari 4936 Wallace reynir enn. „Auðvitað tilheyra peningamir okkur ekki. En ef við segjum frá þessum fundi fáum vrð yör okkur iögregluna og önnur yfirvöld, tryggingafélögin og guð má vita hvað fleira . . . Og þá fara líka aðrir á kreik til að ná í fjár- sjóðina sem liggja þama á hafsibotni Nú er Furet sjáKum nóg boðið. „Það kemur ekki málinu við“, segir hann, „ekkjan á írlandi . . . “ „Ef hún er þá enn á lífi,“ grípur hinn kuldalega fram L „Hvort sem er,“ segir Þórður ákveðinn, „við höfum engan eignarrétt á því sem er í skipinu, hvað sem það nú erl“ Amerikaninn þegir. Nú er um að gera að úera slunginn, hugsar harm með sér. Þvoið hárið úr LOXENE-Shampoo — og flasan fer SKOTTA — Dónni, vertu nú hjálplegur og berðu einn af bökkunum fyrir hana. ATHUGIÐ! Breytið verðlítilli krónu í vandaða vöru Húsgagnaverzlun Þorsteins SigurðssoBar, Grettisgötu 13 (stofnuð 191«) sími 14099, leysir vardann. Terylene buxur og gallabuxur í öllrtm stærðum. — Póstsendum. Athugið okkar lága verð. O.L. Traðarkotssundi 3 (móti ÞjóðleikhúsinuJ, — Sími 23169. RADlffNETrE tækin eru byggð fyrir hin erfiðustu skilyrði ÁRS ÁBYRGÐ Radionette-verziunin Aðaistræti18 sími 16995 Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. hf. Vesturgötu 2. Bátabylgjur Klapparstíg 26 Sími 19800 VBÚÖIN Condor

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.