Þjóðviljinn - 13.07.1967, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 13. júli 1967 — 'ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 3
Melina Mercouri.
Melina Mercouri
svip! þegnréiti
AÞBNU 12/7 — Gríska herfor-
mgjaklíkan hefur svipt hina
heimskunnu grísku leikkonu,
Melinu Mercouri, grískum þegn-
rétti ásamt sjö ödrum Grikkj-
um sem dveljast erlendis. Þau
eru sökuð um ..andgríska starf-
semi“.
Melina Mercouri sem hlaut
heimsfrægð fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Aldrei á sunnu-
dögum“ dvelst nú í New York.
Einn hinna sjö er Nicholas Nic-
olaides, sem er framkvæmda-
stjóri æskulýðssamtaka Mið-
bandalagsins. Hann dvelst nú í
Kaupmannahöfn og sagði þar í
dag að hann myndi sækja um
danskt ríkisfang.
Nýir árekstrar ísraelsmanna
og Egypta vii Súeiskurðinn
Unnið af kappi að því að senda eftirlitsmenn SÞ
þangað til að fylgjast með að vopnahlé sé haldið
KAÍRÓ og TELAVIV 12/7 — Samtímis því sem .unnið
mr af kappi að því í aöalstöðvum Sameinuðu þjóðanna i
dag að senda eftirlitstmenn til þess að fylgjast með því
að vopnaihlé ísraels og araba sé haldið, urðu nýir á-
rekstrar milli fsraelsmanna og Egypta við Súezskurð.
Kairóútvarpið sagði að tveir
ísraelskir sikriðdrekar hefðu vev-
ið eyðiOagðir í viðureign sem átti
sér stað fyrir sunnan bæinn Ism-
ailia, sem stendur við skurðinn,
um 80 km fyrir sunnan Port Sa-
id. Talsmaður ísraelsku stjórnar-
innar sagði í Telaviv að Egypt-
ar hefðu rofið vopnahléið í ná-
grenni Ismailia. Þeir hefðu haf-
ið þar skothríð á tvo ísraelska
jeppa. Einn israeilskur hermað-
ur hefði særzt, sagði talsmaður-
inn, sem minntist ekkert á að
skriðdrekar hefðu komið við
sögu. Egyptar halda þvi fram að
ísraeflsmenn hafi nú sem fyrr
orðið fyrri til að rjúfa vopnaihlé-
ið.
Þá er sagt í Telaviv að tveim
egypzkum tundurskeytabátum
hefði verið sökkt í gærkvöld í
viðureign við ísraelska flotadeild
undan strönd Sinaiskaga. Gefið
var í skyn í ísraelskum blöðum
HörS ádeila á skríf ítalsks
kommáaista / sovézku blaði
MOSKVU 12/7 — Fréttaritari
NTB í Moskvu segir það hafa
vakið athygli þar að í bók-
menntablaðinu „Literatúrnaja
Gaseta“ hefur verið birt grein
þar sem farið er hörðum orðum
um skrif ítalsks kdmmúnista,
bókmenntafræðingsins Vittorio
Strada, um sovézkt menningarlíf,
“ en hann hefur haft sitthvað að
því að finna.
■ Greinin í „Literatúrnaja Gas-
við Krnstjof
NEW YORK 12/7 — Bandaríska
sjónvarpsfélagið NBC sendi í
gærkvöld út dagskráratriði sem
beðið hafði verið með eftirvænt-
ingu. Það var viðtal við Nikita
Krústjof, fyrrv. forsætisráðherra,
tekið nýlega í Moskvu. Einkum
þykja í frásö'gur færandi dómar
hans um bandaríska stjórnmáln-
menn. Hann kallaði Nixon ó- .
nytjung og rótlausan galgopa.
Þeir sem þekktu Eisenhower. |
sagði Krústjof, bæru litla virð- I
ingu fyrir honum bæði sem her-
stjóra og Æorseta. Öðru máli I
gegndi um Kennedy. — Hann
var sannkallaður stjórnmálaskör- j
ungur. Ég held að við hefðum nú
ágæta sambúð við Bandaríkin ef
Kennedy hefði lifað, því að hann
hefði aldrei látið land sitt flækj-
ast í það óþverrastríð sem nú er
háð í Vietnam, sagði Krústjof.
eta“ fyllir heila síðu og er birt
undir fyrirsögninni „Nauðsynleg-
ar mótbárur“. Þar er svarað
greinaflokki eftir Strada þar
sem hann hafði gagnrýnt stefriu
Sovétríkjanna í menningarmálum
og kallað hana íhaldssama. Nið-
urstöðum hans er vísað á bug
og sagt að þær beri keim af
„borgaralegum áhrifum“. Þá seg-
ir að það sé ekki til þess fallið
að auka skilning á sovézkri list,
að þeir sem um menningarmál
fjalla í Sovétríkjunum ræði ekki
fyrir opnum tjöldum og af fullri
einurð við.þá menn erlendis sem
séu á öndverðum meið, enda þótt
þeir séu annars hliðhollir sov-
ézku þjóðfélagi-
Þau ummæli eru talin boða
að fleiri slíkar greinar séu vænt-
anlegar, en ýms atriði sovézks
menningarlífs hafa að undan-
förnu sætt vaxandi gagnrýni
meðal kommúnista í Vestur-Evr-
og þá ekki hvað sízt á ítal-
opu,
að tundurskeytalbátarnir hefðu
átt að setja strandhöggsmenn á
land. Sagt er að átta ísraelskir
sjóliðar hafi særzt, en ekki er
getið um manntjón Egypta.
Til Súez án tafar
Ú Þant framkvæmdastjóri skýrði
öryggisráði SÞ frá þvi í dag
að hann hefði gefið öllum þeim
eftirlitsmönnum samtakanna sem
tiltækir væru fyrirmæli um að
fara till Súezskurðar án tafar.
Hann kvaðst vera að ráða 25
liðsforingja handa vopnahlés-
nefnd SÞ í Palestínu til viðbót-
ar þeim sem hún hefur þegar í
þjónustu sinni. Formaður vopna-
hlésnefndarinnar er Norðmaður-
inn Odd Bull. Ekki er vitað hve
margir eftiríitsmennirnir verða
fyrst um sinn, en þeir verða á-
reiðanlega langtum fleiri en 25.
Bæði Israelsmenn og Egyptar
hafa nú fallizt á að leyfa eftir-
litsmönnunum að gegna störfum
sinum á þeim landsvæðum sem
þeir ráða.
Viðræður araba
Meðan þessu fer fram halda á-
fram stöðugar viðræður leiðtoga
arabarfkjanna um leiðir til að
vinna aftur af Israelsmönnum
bað land sem þeir lögðu undir
sig í stríðinu í síðasta mánuði.
Nasser ræddi aftur í dag í Kaíró
;ið Arif, forsetá Iraks og Boum-
■dienne forseti Alsírs, hélt i
Damasikus .áfrarn viðræðum sín-
um við el-Atassi, forseta Sýrían'ds.
Talið er liklegt að Boumedienne
muni koma' við í Kaíró á heim-
leiðinni.
Leiðtogar A-Evrópu á fundi
Flestir helztu ráðamenn ríkja
Austur-Evrópu hafa verið á
fundi í Búdapest. Hann hófst í
gær og honum var lokið í dag.
Meðal fuintrúa á fundinum voru
þeir Bresnéf flokksritari og Kosy-
gin forsætisráðherra Sovétríkj-
anna. Samþykkt var ályktun þar
sem Bandaríkin, Israel og önnur
heimsvaldasinnuð öfl í heimin-
um eru sökuð um að ögra fríð-
aröflum heimsins með yfirgangs-
stefnu sinni. Lýst var yfir full-
um stuðningi við araibarfkin í
réttlátri baráttu þeirra fyrir þvf
að vinna aftur það sem tapaðist.
f árásarstríði Israels gegn þeim.
Auk þeirra Bresnéfs og Kosy-
gins voru á fundinum þeir Sjiv-
kof frá Búlgaríu, Kadar frá Ung-
verjalandi, Ulbricht og Stoph frá
Austur-Þýzkalandi, Gomulka og
Cyrankiewicz frá Póllandi, Nov-
otny og Lenart frá Tékkósllóvak-
íu og Tító frá Júgóslavíu. Ekki
var getið neins fulltrúa frá Rúm-
eniu, en Rúmenar hafa í þessu
máli sem mörgum öðrum farið
sínar eigin götur.
Bora eftir olíu.
Það er til marks um það að
Israelsmenn hafi alls ekki í
hýggju að afsala sýr þeim land-
svæðum sem þeir hafa unnið 1
stríðinu að frá því var skýrt í
Telaviv í dag að hafnar væru
reynsluboranir eftir clíu á Sin-
aiskaga. Borað er eftir olíun-ni
við E1 Belayin, en olíulindirnar
þar eru sameigirilleg eign egypzka
ríkisins og olíufélagsins ENI. sem
ítalska ríkið á. Þetta munu vera
auðugustu olíulindirnar á Sinai-
skaga.
Talið er að framleiða mætti 4,5
miljónir lesta af olíu áríega á
suðvesturhorni Sinaiskaga, en
það er miklu meira magn en
Israelsmenn hafa sjélfir þörf fyr-
ir.
Bardagarnir harðna
víða í 5- Vietnam
Thieu hershöfðingi segir að þörf sé fyrir
verulega fjölgun í bandaríska herliðinu
SAIGON 12/7 — Fréttir beirast af harönandi bardögum
víða í Suður-Vietnam og virðist her Þjóðfrelsisfylking-
arinnar verða vel ágengt í því að „opna, nýjar vigstöðv-
ar“ til þess að neyða Bandaríkjamenn til að dreifia úr
liði sínu.
1 dag bárust að vísu ekki
fréttir a'f sérstökum viðureign-
um í hæðardrögunum rétt fyrir
sunnan 17- breiddarbaug þar sem
einhverjar hörðustu og mann-
skæðustu orustur Vietnamstríðs-
ins hafa verið háðar undanfarn-
ar vikur. Þeirra vegna hafa
Bandaríkjamenn orðið að flytja
mikið lið þangað norður úr öðr-
um hlutum landsins, svo að þeir
hafa aftur misst»vald yfir héruð-
um sem þeir töldu sig hafa hrak-
ið þjóðfrelsisherinn úr fyrir fullt
og allt.
Bandarískar hersveitir misstu
35 fallna og 26 særða i sex tíma
bardaga sem háður var í þétt-
um frumskógi skammt frá landa-
mærum Kambodja. Þetta var á
miðhálendinu, aðeins fimm km
frá mörkum Pleikufylkis, en það
var einmitt frá miðhálendinu
sem Bandaríkjamenn höfðu flutt
mest sitt lið til norðurhéraðanna
við 17. breiddarbaug,
Einnig á óshólmum Mekong-
fljóts fyrir sunnan Saigon er
sagt að bardagar hafi farið
harðnandi síðustu daga. Herferð
Bandarikjamanna gegn þjóðfrels-
ishemum þar, sem hófst í vor,
fór alveg út um þúfur, enda er
þetta það hérað landsins þar sem
Þjóðfrelsisfylkingin hefur búið
einna bezt um sig.
Heimta meiTi tíer
Thieu hershöfðingi, sem titl-
aður er „forseti" Saigonstjórn-
arinnar, sagði i dag að „land
hans“ þyrfti verulegan banda-
rískan liðsauka til þess að geta
fært sér í nyt það sem unnizt
hefði á í stríðinu að undanfömu,
eins og hann komst að orði.
Hann sagði þetta við blaðamenn
um borð í bandaríska flugvéla-
skipinu „Constellation" á Ton-
kinflóa.
Hann ræddi einnig um fyrir-
hugaðar „forisetakosningar“ þar
sem þeir Ky hershöfðingi eru
saman í framboði og sagði að
meðan kosningabaráttan stæði
myndi sett á ritskoðun sem ann-
ars er bönnuð í „stjómarskrá“
landsins. Hann sagði að ritskoð-
uninni myndi þó aflétt að kosn-
ingum lo^num.
NJÓIIÐ UBSINS,
þið eruð á Pepsi aldrinum.
jStern" ræddi
við Tshombe 1
HAMBORG 12/7 — Vesturþýzlca
vikublaðið „Der Stem“ skýrði
frá því í dag að einn af blaða-
mönnum þess hefði fengið að
ræða við og Ijósmynda Moise
Tshombe í herskála í Boufarik,
um 40 km frá Aigeinsborg. Við-
talið verður birt í næsta hefti
Waðsins, en Tshombe sagði m a.
áð hann hefði haft góðan að-
’-'únað og gerði ekki ráð fyrir að
hinn yrði framseldur Kóngó-
-.jórn.
Bléðugar óciröir
ennþá í Hongkong
tJtgöngubannið sem nýlendustjórnin hafði
sett var virt að vettugi af borgarbúum
HONGKONG 12/7 — Enn voru tveir mepn vegnir í
Hong’kong í dag, en þar hafa veriö látlausar óeirðir síð-
an fyrir helgina. Ljóst er að íbúar nýlendunnar hafa að
engu boð þau og bönn sem brezka nýlendustjórnin gef-
ur út.
Þrítugur maður var skotinn
til bana og af líki annars manns
mátti ráða að hann hefði verið
stunginn til bana-
Mikill mannfjöldi fór um göt-
ur hverfisins Kowloon í Hong-
kong og lét illum látum, enda
þótt nýlendustjórnin hefði hótað
öllu illu ef banni hennar við
mannsöfnuði á götum úti yrði
ekki sinnt.
Lögreglan beitti táragasi gegn
mannfjöldanum og skaut úr byss-
um sínum, en hann lét það ekki
á sig fá heldur hélt ferðinni á-
fram, velti bílum, kveikti í stræt-
isvögnum og hóf grjótkast-
Kastað var grjóti og flöskum i
lögreglumennina af efri hæðum
háhýsa og enginn virti útgöngu-
bann það sem sett var þegar ó-
eirðirnar breiddust út frá Hong-
kong-eyju til þess hluta nýlend-
unnar sem er á meginlandinu.
Margir menn eru sagðir hafa
særzt í þessum átökum.
ískalt Fepsi-Cola hefiir hið lífgandi bragð
★ Pepsi, Pepsi-Cola og Mirinda eru sikrásett
vörumerki, eign PEPSICO TNC. N.Y,