Þjóðviljinn - 13.07.1967, Side 10
örœfaferð á 5 bílum
Ekíð í fyrsta skipti yfir Skeiðarár
sand í skemmtiferð að sumariagi
Nú í byrjun júlímánaðar
fór 50 manna hópur akandi
á bílum austur yfir Skeið-
arársand og austur í Öræfa-
sveit. Mun þetta vera í
fyrsta sinn að skemmti-
ferðafólk fer þessa leið i
bílum að sumarlagi.
Skeiðarársandur er sem kunn-
ugt er versti farartálminn á leið-
inni til Austurlands og sá eini
eftir að lokið hefur verið við að
brúa Jökrulsá á Breiðamerkur-
sandi nú í haust. Þessi leið hefur
oft verið farin að vetrarlagi og
er tiltölulega auðvelt að komast
yfir sandana áður en hlýna tek-
ur í veðri á sumrin og lítið er í
ánum yfir sandinn.
Ég vil taka það skýrt
fram, sagði Pétur Kristjánsson
fararstjóri í umræddri ferð í við-
tali við Þjóðviljann. að bað er
alls ekki einhlítt að fara bessa
leið að sumarlagi og vaeri óðs
manns- aeði að fara einbíla, og.
jeppar komast bama alls ekki.
Það sem hjálpaði okkur var hvað
kalt hefur verið í veðri að und-
anförnu og bess vegna lítið í
vötnunum. Ég tel bað megi fara
betta í bílum í júlímánuði beg-
ar tíðarfar er eins og verið hef-
ur að undanförnu, kuldar langt
fram á vor.
Við vorum 50 manns í ferðinni,
og er þetta hópur sem haldið
hefur saman á ferðalögum nú I
þrjú ár, flestir eru úr Kópavogi.
Við fórum á tveim stórum bilum
af gerðihni Studerbaker-Reo og
eru þeir með drifi á öllum hjól-
um- Norðurleið á annan bílinn
og ók ég honum en Gísli Eiríks-
son á hinn og ók honum sjálfur.
Auk þess voru með í ferðinni
tveir Dodge-Weaponbílar og
einnig slógust með í förina menn
frá sjónvárpinu á Ford Bronco,
þeir Magnús Bjamfreðsson frétta-
maður og tveir upptökumenn-
Við lögðum af stað úr Kópa-
vogi kl. 9 um morguninn hinn 1.
júlí og vorum komin austur að
Núpsstað í Fljótshverfi kl. 9-10
um kvöldið og ókum strax út á
Skeiðarársand. Frá Núpstað og
að Skaftafelli í öræfasveit munu
vera um 35 km og vorum við
um 5 klst. að aka þessa leið yfir
sandinn. Versti farartálminn á
sandinum er Gígjukvísl, því að
þar er eiginlega um aðeins eitt
vað að ræða til að fara yfir.
Skeiðará, sem er um 15 km aust-
ar er hins vegar rhiklu breyti-
legri og fyrir kunnuga má því
alltaf finna þar hentugan stað
til að fara yfir.
Menn frá Svínafelli komu til
móts við okkur vestur yfir Skeið-
ará og voru þeir á vatnabílnum
Dreka, var þetta gert til örygg-
is en einnig Hjálpaði hann jepp-
anum yfir. Vatnabíllinn Dreki er í
eigu vegagerðarinnar og nota
þeir öræfingar hann til 'að flytja
dráttarvélar niður á sandana
bæði við selveiðar og til að safna
saman rekavið.
Dreki var keyptur hingað til
lands fyrir um þrem árum og
kannast ég vel við gripinn, því
að ég vann einmitt við að setja
hann saman og var mikið með
hann þar austur á söndunum
fyrsta árið- Þetta er eins konar
sambland af skriðdreka og inn-
rásarpramma og hefur Dreki
komið í góðar þarfir austur é
Skeiðarársandi.
Við dvöldumst svo fjóra daga
í Öræfasveit bg skoðuðum okkur
þar um og héldum sömu leið tii
baka vestur yfir sanda- Urr
þetta ferðalag okkar er annars
lítið að segja, því að ekkert sét-
stakt kom fyrir og allt gekk
okkur mjög að óskum, en því er
ekki að neita að margir töldu
þetta. óráð og hið mesta flan í
okkur að fara með svo stóran
hóp yfir Skeiðarársand þegar
komið er fram á sumar.
Eftir ftð brúin yfir Jökulsá á
Framhald á 7. sfðu.
Fimmtudagur 13. júlí 1967 — 32. árgangur — 153. tölublað.
(
Hótel Askja, nýtt
hótel á Eskifirði
Þeir Svínafellsmcnn Jón Pálsson og Magnús Lárusson, sem stýrðu Dreka yfir Skeiðará. (Ljósm. K.H.)
Dreki með Dodgebílana í eftirdragi yfir Skeiðará.
.r^v'.'sýb V- -v
Sl. mánudag, 10. júlí, var nýtt
gistihús opnað á Eskifirði, Hótel
Askja.
Hótelið er til húsa í læknis-
bústaðnum gamla, miðsvæðis í
kauptúninu; hafa gagngerðar
endurbætur farið fram á húsa-
kynnum öllum og eru þau nú
mjög vistleg.
Á efri hæð^hússins eru gisti-
herbergi fyrir 13 manns, sex
tveggja manna_ herbergi og eitt
eins manns. Á neðri hæð er
setustofa og borðsalur og geta
20 gestir setið við borð sam-
tímis.
Hótel Askja verður opið all-
an ársins hring. Eigendur eru
feðgarnir Viggó Loftsson og Sig-
valdi Viggósson, sem jafnframt
er hótelstjóri.
Ferðamannastraumur til
byggðanna á Austurlandi er
mjög mikill og fer vaxandi með
ári hverju, ekki hvað sízt um
sumartímann. Til þessa hafa
ferðamenn sneitt nokkuð hjá
Eskifirði þegar þeir hafa farið
um Austfirði, vegna þess að þar
hefur ekki verið unnt að bjóða
upp á fullkomna þjónustu við
ferðafólk. Með tilkomu hins
nýja gistihúss, Hótel Öskju,
vænta Eskfirðingar þess að fleiri
leggi nú en áður leið sína til
heimabyggðar þeirrar.
Forsetinn á heimssýningunni
Forseti Islands, herra Ásgeir®"
Ásgeirsson, mun skoða heimssýn-
inguna i Montreai í dag, en dag-
urinn er helgaður Islandi á sýn-
ingunní. Forsetinn kom til Kan-
ada í fyrradag og ræddi í gær
við kanadíska ráðherra.
Foifíetinn kom til Montreal
með flugvél Loftleiða í fyrra-
morgun og hélt þaðan til Ottawa
þar sem opinber móttökúathöfn
fór fram við þinghúsið. Land-
stjóri Kanada, Roland Michener
og forsætisráðherrann Lester B.
Pearson fluttu ávörp og minnt-
ust Islands og Vestur-lslendinga
mjög vinsamlega og létu jafn-
framt í ljós ánægju sina með
heimsókn forseta til Kanada f
tilefni af 100 ára afmæli sam-
bandsrikisins. Forseti flutti heilla-
óskir fslenzku þjóðarinnar í til-
efni afmælisinsy
1 fyrrakvöld hélt landsstjórinn
kvöldverðarboð til heiðurs for-
seta í landstjórabústaðnum og í
gærmorgun ræddu / forseti og
Framhald á 7 síðu.
Helgarferð ÆFR
um uppsveitir
Borgarfjarðar
Nassta helgarferð ÆFR
verður farin helgina 15.—
16. júlí. Lagt af stað kfl. 2
síðdegis á laugardag frá
Tjarnargötu 20. Ekið verð-
ur um ÞingveUi og Kalda-
dal og tjaldað við Húsafell.
Skoðað verður Halimund-
arhraun, Víðgelmir, Skóg-
arhraun, Kalfnanstunga,
Húsafell, Húsafellsskógur,
Geitland og Barnafossar.
Fargjald er kr. 415,00.
ÆFR leggur til tjöld, heit-
ar súpur og kakó.
öllum heimil þátttaka.
Ungt Alþýðubandalagsfólk
sérstaklega boðið velkomið.
Skráning í ferðalagið fer
fram í skrifstofu ÆFR í
Tjamargötu 20, sími 17513.
Þegar komið var austur yfir Skeiðarársand var fararstjórinn, Pét-
nr Kristjánsson, sem sést hér á myndinni Iengst til vinstri, sæmd-
ur verðlaunum fyrir happasæia fararstjóm. Ingibergur Sæmunds-
son lögregluvarðstjóri í Kópavogi sést hér afhenda verðlaunín.
Milli þeirra stendur Sigurður fsólfssoni
Málarameistarafél. Rvíkur
/
tapaði ,Keldnaholts-málinu'
□ 1 gær var kveðinn upp í bæjarþingi Reykja-
víkur dómur í svonefndu Keldnaholtsmáli. * Þau
urðu úrslit málsins, að Kristinn Guðmundsson mál-
arameistari var sýknaður af kröfum Málarameist-
arafélags Reykjavíkur og lögbannið, sem sett var
á vinnu Kristins og starfsmanna hans í Keldna-
holti fellt úr gildi. Var meistarafélagið dæmt til
að greiða málskostnað.
Mál þetta var höfðað fyrir bæj-
aiiþmgimi til staðfestingar á fóg-
etagerð, lögbanni sem Málara-
meistárafélag Reykjavíkur fókk
sett í síðasta mánuði á vinnu
Kristins Guðmundssonar málara-
meisitara í Keflavik við bygg-
ingu rannsöknarstofnunar land-
búnaðarins í Keldnaholti. Hafði
málaravinna við fyrmefnda bygg-
ingu verið boðin út af hálfu
Ir.nkaupastofnunar ríkisins og
samið við lasgstbjóðanda, sem
var Kfistinn, en nokkrir mál-
arameistarar úr Reykjavík höfðu
sent tiliboð í verkið samhljóða
upp á eyri. Taldi stjóm meist-
arafélagsins umsamið tilfooð taxta-
brot og af beim sökum hófst
rriálareksturinn.
Dómsorð hljóðaði svo í mál-
inu:
„Framangreind lögbainiisgerð
er felld úr gildi. Aðalstefndu
Krjstinn Guðmundsson & Go hf.
og Kristinn Guðmundsson per-
sónulega eiga að vera sýknir af
þeirri kröfu aðalstefnenda Mél-
arameistarafélags Reykjavfkur og
Steinþórs M. Gunnarssonar að
aðalstefndu verði Skyldaðir til
að ráða eða láta skrá Steinþór M.
Gunnarsson sem máflarameistara
á byggingu rannsóknarstofnunar
lnndbúnaðarins í Keldnaholti hér
í borg.
Aðalstefnendur greiði in soflid-
um aðalstefndu og meðalgöngu-
stefnanda Innkaupastofnun rik-
isins vegna Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins kr. 15 þúsund í
málskosfnað til hvers innan 15
daga frá lögbirtingu dóms þessa
að viðlagðri aðför að lögum“.
Bjarni K. Bjarnason borgar-
dómari kvað upp dóminn í gær
að viðstöddum verjendum ‘'ólafi
Þorgrímssyni, lögfræðimgi fyrír
Innkaupastofnun ríkisims og Ingv;
Ingimundarsyni, lögfræðingi fyr-
ir Málarameistarafélag Reykja
vikur og Steinþóri Guðmundssyn
ásamt pressu og tveim beibídoll
um sem sknifurum.
14 skip með sam-
tals 2490 lestir
Sæmilegt veður var á síldar-
miðunum austur af Jan Mayen
fyrra sólarhring. Vitað var um
a-fla 14 skipa, samtals 2.490 lestir.
Raufarhöfn: Sóley 242 lestir,
Dagfari ÞH 220, Gísli Ami GK
300, Guðrún Jónsd. IS 130, Faxi
GK 90, Víkingur III IS 80, Snæ-
féll EA 170. Dalatangi: Hafrún
15 200, Jón Finnsson GK 160,
Sólrún IS 200, Asgeir RE 210,
Skarðsvík SH 158, Imgvar Guð-
jónsson SK 130, Sléttanes IS 200.
FLOKKURINN
VEGNA SUMARLEYFA mun
skrifstofa félagsins verða op-
in frá kl. 6 til 7 síðdegis virka
daga og lokuð á iaugardögum,
þar til annað verður ákveðið og
tilkynnt í blaðinu
<
:n