Þjóðviljinn - 10.10.1967, Side 9
y
Uriöjudagur 10. októíber 1807 — &JÓÐVTLJINN — SÍÐA 0
Að lenda í sjálfheldu
Framhald aí 6. síðu.
að lækka þennan kostnað stór-
lega. Til þess verks verði
fengnir algjörlega óháðir sér-
fræðingar.
3. Sett verði lög þar sem
ákveðið er í eitt skipti fyrir
öll, að sérhverri ríkisstjórn sé
óheimilt, að veita útlendingum
betri kjör heldur en lands-
mönnum sjálfum. Samningur-
inn um álbræðsluverið í
Straumsvík gerir slika laga-
setriingu aðkallandi.
4. Afnumtn verði útflutnings-
skattur á sjávarafurðum,
hverju nafni sem þær nefnast,
á meðan núverandi ástand rík-
ir. Fé sem aflað hefur verið
til stofnlánasjóðs með þessari
skattheimtu, verði útvegað á
annan hátt.
5. Vextir af stofnlánum og
rekstrarlánum til sjávarútvegs
og fiskiðnaðar verði lækkaðir
um ekki minna en 2—3 af
hundraði, en jafnframt verði
lánstími stofnlána lengdur.
6. Athugun fari fram á
tæknilegri og skipulagslegri
uppbyggingu fiskiðnaðarins
með þáð fyrir augum að lækka
vinnslukostnað, og samtímis
verði gerðar opinberar ráð-
stafanir til þess að þessum
iðnaði verði séð fyrir nægilegu
hráefni meginhluta ársins, til
ur hans.
7. Stórfellt opinbert átak
verði gert nú þegar til lækk-
unar á byggingarkostnaði al-
mennings, þannig að sá kostn-
aður geti lækkað um 30—40%.
Fjármagn verði útvegað til
þessa átaks og launþegasam-
tökunum falið að annast fram-
kvæmdirnar. — Þá fari jafn-
hliða fram athugun á þeim
lánum sem nú hvíla á íbúð-
um láglaunafólks og verði í
því sambandi ekki hikað við
að skera niður skuldir á íbúð-
unum til samræmis við lækk-
aðan byggingarkostnað og
■þannig náð samræmi.
Þaer tillögur sem ég' hef hér
sett fram til björgunar frá nú-
verandi ástandi efnahagsmál-
um, þær eru hér fluttar af
mér sem einstaklingi og ber
ég einn ábyrgð á framsetningu
þeirra, svo og alls annars sem
í þennan þátt er skrifað. Hins-
vegar get ég búizt við að fjöldi
manna geti veitt þessum til-
Iögum samþykki sitt, séu þeir
ekki áður blindaðir af flokks-
eða klíkusjónarmiðum. Hér er
ekki um neinar framtíðartil-
lögur að ræða heldur aðeins
bjargráð á líðandi stund frá
þeim voða sem blasir við.
Hver liður í þessum tillög-
um, hann skýrir sig sjálfur
út frá ríkjandi ástandi, svo
óþarft ætti að vera, að fara
nánar út í það. Þó get ég ekki
Stillt mig um að undirstrika
það alveg sérstaklega hver á-
hrif núverandi byggingarkostn-
aður hefur á allt þjóðlífiðé og
grefur undan getu íslenzkra
atvinnuvega.
Byggingarkostnaðinn er hægt
að lækka sé gengið að því sem
hverju öðru nauðsynjaverki
með festu og alvöru. Það eru
engin skynsamleg rök sem
,riiæla með því að íslenzkur
byggingarkostnaður þurfi að
vera í svo miklu ósamræmi
við byggingarkostnað annarra
landa, eins og raun ber vitni
um.
Hér fara saman hagsmun-
ir launþega og atvinnurekenda,
því að hinn allt of hái bygg-
ingarkostnaður íbúðarhúsa or
að sliga báða. Hér duga því
engin vettlingatök, þar sem
ríkjandi ástandi er klappað
mjúklega á vangann, heldur
róttæk viðbrögð, þar sem
byggingarkostnaður verður
lækkaður um 30—40»% og
skuldir jafnframt skornar nið-
ur sem hvíla á íbúðum lág-
launafólks sem því nemur.
Þessi aðgerð, studd öðrum
þeim tillögum sem að fram-
an greinir og fleiri slikum,
mundi leysa stærsta vanda
sjávarútvegs og fiskiðnaðar á
fslandi eins og hann blasir við
frá mínum bæjardyrum í dag.
Þetta gæti síðan orðið fyrsta
skrefið í þá átt að stöðva verð-
bólguhjólið og hætta allri
sýndarmennsku á því sviði.
Mótmæli
Framhald af 1. síðu.
þama á Skólavörðuholtinu á
, ....... , sunnudag, stinningskaldi ogrign-
að tryggja fjarhagslegan rekst-,, ing Enda var fámennt at.
Efasemdir
Framhald af 3. síðu.
ið í Vietnam taki enda og
treysta ekki lengur stefnu stjóm-
ar Johnsons". 59 af hundraði
aðspurðra lýstu andstöðu sinni
við stefnu Bandaríkjamanna í
Vietnam og 58 af hverju hundr-
aði kröfðust þess að Bandarík-
in hæfu samningaviðræður án
nokkurra skilyrða.
Annað dæmi sem „Time“
nefnir um hina vaxandi and-
stöðu gegn stríðinu er að allt
að 16 af 36 þingmönnum Re-
públikana í öldungadeildinni geti
nú talizt í hópi „dúfnanna", þ.e.
andstæðinga stríðsins, en sumir
þessara sextán voru til skamms
tíma í hópi hinna herskáustu á
Bandaríkjaþingi.
Framhald af 5. síðu.
vallarins. Sigurbergur og
Hrannar áttu báðir góðan leik.
Ef það er satt að ,Valsmenn
kalli Hermann Gunnarsson
„Dýrlinginn", hvað mega þá
Framarar kalla Helga Núma-
son? En hann skoraði „þrennu“
í þessuxn leik, en eins og allir
vita er það óskadraumur flestra
framlínu-leikmanna. Annars
hefur Helgi verið potturinn og
pannan í framlínu Framliðsins
í sumar og er ekki minnavirði
sínu liði heldur en Hermann
Ijjá Val.
Dómari var Rafn Hjaltalínog
dæmdi hann sérstaklega vel,
enda leiktrrmn pröður og auð-
dæmdur.
Se«16».
höfnina og þessar mótmælaað-
gerðir ungra andstæðinga stríðs
Bandaríkjanna í Vietnam settu
mestan svip á samkomuna.
Dreifing bréfanna hófst um
leið og sendiherra Bandaríkjanna
hóf upp tölu sína, og í sama
mund kom hópurinn með kröfu-
spjöldin yfir holtið frá Iðnskóla-
húsinu. Unga fólkið stóð fyrir
neðan Leifsstyttu, meðan borg-
arstjóri flutti ávarp, en gekk síð-
an til Hallgrímskirkju, og stóð
við bifreið sendiherrans, þar til
hann ók burt.
Athöfninni á Skólavörðuholti
var greinilega flýtt sökum veð-
urfarsins, en það mun vera ætl-
un ísl.-ameríska félagsins að
efná árlega til slíkra útihátíða-
halda við Leifsstyttu. Ekki er á-
stæða til að ætla annað en að ís-
lenzkir andstæðingar striðsins í
Vietnam muni nota daginn áfram
til að koma skoðunum sínum á
framfæri, á meðan Bandarikin
halda áfram að magna hernað
sinn í Vietnam. 1 bréfi Æsku-
lýðsfylkingarinnar er skýrt tek-
ið fram, að þessar aðgerðir bein-
ist ekki gegn starfsemi íslenzk-
ameríská félagsins, sem sé allra
góðra gjalda verð. í lok bréfsins
segir:
„Almenningsálitið kann ekki
alltaf að skilja á milii ríkis-
stjórna og þjóða. Sú andúð
og fyrirlitning, sem ríkisstjóm
Bandaríkjanna sætir í vaxandi
mæli, beinist einnig gegn
hinum almenna Bandarfkja-
þegni. Það væri verðugt verk-
efni Íslenzk-ameríska félagsins
að sýna vinarhug sinn til
bandarfsku ÞJÓÐARINNAR í
vorki með því að reyna að
rjúfa þá einangrun, sem stefna
stjómarinnar er að leiða þjóð-
ina í; með því að skora á rik-
isstjóm Bandaríkjanna að láta
af yfirgangi sínum og mann-
fyrirlitningu, áður en inni-
byrgð sektarkennd stríðs-
glæpaþjóðar verðuir hlutskipti
Bandaríkjamanna- Bandarikin
eru komin í sjálfheldu, sem
þau geta ekki losnað úr án
hjálpar.“
Dreifibréfið er birt í heild á
12. síðu.
Brotizt inn
í Radíóbúðina
Aðfaranótt sunnudagsins var
brotizt inn í Radióbúðina á
Klapparstíg 26 með þeim hætti
að brotin var rúða við hurð og
náð í smekklásinn gegnum
hana. Úr verzlurrinni var stolið
Wilson plötuspilara í brúnni
tosku og eru þeir sem kunna að
haía orðið varir við grunsam-
legar mannaferðir þarna á þess-
um tíma beðnir að hafa sam-
band við rawnsótenarlögreghma.
Gunnar Ben.
Framhald af 7. siðu.
— Og hvað gæti það verið?
— Þetta var leikrit sem Leik-
félag Reykjavíkur var búið að
taka til sýningar og byrjað að
æfa 1929. Ragnar Kvaran og
Soffía Guðlaugsdóttir stóðu
mest að því að það yrði tekið
— og Soffía vildi leika aðal-
hlutverkið. Upp frá þessu hef
ég alltaf haldið að ég gæti skrif-
að leikrit úr því ég gat búið
til persónu sem Soffía vildi
leika. Það var búið að velja í
hlutverk og byrjað að æfa' og
ég hafði farið suður vegna
æskilegra breytinga. En þáréð-
ust Rússaskrattamir á frænd-
ur okkar Finna, og þar með
var draumurinn búinn. Ég átti
þá mikla drauma um leikritun,
einkum vegna ummsella Soffiu
Guðlaugsdóttur, en það var
engin mærðargagnrýni. Ég var
byrjaður á öðru leikriti. „Þá
kemur drottinn sjálfur" en
gafst upp eftir þetta, mérþótti
þetta alveg lokuð leið.
— En hér sé ég fleiri leikrit
í ritskránni?
— Já, Jóra biskupsdóttir var
leikið í útvarp f fyrra, og í
vetur verður líklega tekiðann-
að útvarpsleikrit. Snæbjöm
galti, en það er í sjö þáttum.
Og þama síðast eru „Bændur
gegn konungsvaldi“ tíu þættir
fyrir útvarp um baráttu norskra
bænda gegn konungsvaidi fram
á daga Haralds harðráða — og
svo „Rýnt í fomar rústir“,
sagnfræðilegir þættir um frá-
sagnir í fomum ritum, svo að
ég er ekki dauður enn.
Kennsla og
ritstörf
—Þú hefur kennt lengi.
— Ég hef ailtaf kennt, allt-
af þegar mér var leyft það, og
ég hef verið fastur kennarihér
í Hveragerði síðan 1946. Og
eiginlega hafa ritstörf mín ver-
ið nátengd kpnnslu, það er
þetta, sjáðu til, að setja hlut-
ina fram með einföldum hætti.
Mér finnst að krakkamir
verði skemmtilegri með hverju
ári. Hvernig þá, spyrð þú. Sjálf-
stæðari, það er auðveldara að
gera þau að félögum og spjalla
við þau um hvað sem er. Nú
hef ég réttindi til að veragam-
almenni, ég tek því þakksam-
lega því sem gamalmenni hef
ég hærri laun en ég hef nokk-
urntíma áður haft. Hinsvegar
er ég ekki skyldugur til aðvera
gamalmenni. Og mér þykir á-
nægjullegt meðan þarf ákröft-
um mínum að halda til að
segja til unglingum. þótt ekld
sé nema nokkra tíma í viku.
Kannski getur maður ekki
greint þróun með betri hætti
en að vera ailtaf með krökkum
á sama aldri og finna hvern-
ig viðhorfin breytast.
— Segðu mér eitt' að lokum,
Gunnar. Hvaða persóna hefur
haft mest áhrif á , þig?
— Benjamín Frariklín. Ég
las hann hvað eftir annað þeg-
ar ég var unglingur og var al-
veg gagntekinn af honum, siða-
reglum hans. Þessum fornu
dyggðum — sem eru um leið
sammannlegar dyggðir ...
Arni Bergmann.
Markaðsmál
Framhald af 12. síðu.
Á fundinum var samkomulag
um, að tryggja skyldi sjálfstjóm-
arsvæðum-á Norðurlöndum full-
nægjándi aðild að Norðurlanda-
ráði. Einnig var samkomulag um,
að mikilvægt sé, að unnið sé að
framhaldi þessa atriðis ásamt
Norðurlandaráði. Var þvi ákveð-
ið, að unnið skuli að framhaldi
málsins um sjálfstjómarsvæðin
af nefnd, skipaðri basði ráðherr-
um og þingmönnum. 1 nefndinni
skulu vera fulltrúar fyrir ríkis-
stjómir hinna fimm landa úr
hópi ráðherra og einnig forsetar
ráðsins.
Tillaga dönsku ríkisstjórnar-
innar um aðiid Færeyja er hluti
af þvf efni, sem Oiggur til grund-
valiar starfi nefndarinnar. Nefnd-
in skal haga starfi sinu þannig,
að tillaga til jákvæðrar lausnar
málsins liggi fyrir, ef unnt er,
á næsta þingi í Osló 1968i
Sænska ríkisstjórnin hefur
kvatt til-fyrsta fundar f Stokk-
hólmi 6. nóvember 1967.
Með hliðsjón af því mikilvægi,
sem skoðanamyndun á Norður-
löndum hefur vhrðandi hin mik-
ilvægari mál Norðurlanda, ekki
sízt gagnvart því ástandi, sem
samningamir um markaðsmáiin
skapa, var forsetum Norður-
landaráðs látið eftir það verk-
efni að koma á óformlegum í-
hugunum á leiðum til að stuðla
sem bezt að slíkri skoðanamynd-
un.
Fundurinn lagði áherzlu á
frámhald samstarfs á sviði sjón-
varps og norrænt menningar-
samstarf, um að Norðurlönd
komi á sama tæknikerfi fyrir
litsjónvarp.
Forsætisráðherramir vom
sammála um að stuðla að því
að koma upp fastri norrænni
stofnun til rannsókna á heilbrigð-
ismálum á heimskautasvæðunum
í tengslum við háskóla Ule&borg-
ar.
Erlander forsætisráðhérra bauð
þeim mönnum, sem vinna á veg-
um rikisstjómanna að málum
Norðurlanda, til annars sam-
starfsmannanámskeiðs í Svíþjóð
sumarið 1968“.
Lofsaml. démar
Framhald af 6. síðu.
þýður og heilsteyptur karla-
kórssöngur, sem við fengum
að heyra. ..
Þetta var í heild ljóðrænt
músíkkvöld. Ég hreifst mest
af þjóðlagaútsetningum fyrsta
etjómanda kórsins, Áskels
Snorrasonar. (Kórinn var
stofnaður 1929). Þama voru
margvíslegir textar með stutt-
um, samanþjöppuðum setning-
um, eins konar kjarnyrði um
samband manna við náttúruna.
í einu verkinu var fögur bari-
tonsóló flutt skærri röddu af
Eiríki Stefánssyni. Það er
málmhljómur í íslenzku máli.
Eitthvað svipað hljómaði hún
hér í eina tíð, okkar gamla
norska. Skemmtilegt að hugsa
um það, hvað sterkar sér-
hljóðaáherzlur eru í þessu máli,
sem svo vel hentar fyrir Ijóð-
rænán söng ...
Söngstjórinn, Guðmundur Jó-
hannsson, á heiður skilinn fyr-
ir kórinn sinn. Það var söng-
gleði og djúp tilfinning í flutn-
ingi hans. Meðan ég sat og
hlustaði hafði ég á tilfinning-
unni, að þeir væru innblásnir
af því að, koma til Noregs og
syngja. Þeir enduðu líka með
„Norge, mitt Norge“ eftir Al-
fred Paulsen. Þessir geðfelldu,
íslenzku söngvarar voru verð-
ugir fulltrúar fyrir íslenzkan
karlakórssöng. Það skorti ekki
hlýhuga hrifningu í salnum.“
(Birt í Verkamanninum,
22. september sl.).
HjólreiSaslys
Á sunnudagskvöld, kl. rúm-
lega 8, var 7 ára drengur að
æfa sig á reiðhjóli á Kapla-
skjólsvegi og lenti þá á grind
sem lokar veginum og féll illa
í götuna. Hann meiddist nokk-
uð á höfði.
Rýmingarsala
Rykfrakkar á kr. 1000.
Rykfrakkar, vattfóðraðir. Kr. 1500.
Leðuriíkisjakkar unglínga. Kr. 450.
Heoralrúfur. Kr. 100.
Belti. Kr. 50.
Herrasofckar. Kr. 25.
Unglrngasokkar. Kr. 25.
Skyrtur, AnglL Kr. 400.
Skyrtur á kr. 100 til kr. 300.
Herrabuxur, terylene. Kr. 595.
Drengjafouxur, terylene. Kr. 440—kr. 570.
Skyrtufonappar. Kr. 50 til kr. 100.
Herrabindi, terylene. Kr. 100.
Komið og gerið KOSTAKAUP.
KOSTAKAUP
Háteigsvegi 52, (bejnt á mótl Stýrhnanna-
skólanum).
BLflÐ-
DREIFING
Blaðburðarfólk
vantar í eftirtalin
hverfi:
Hjarðarhaga
Seltjamames ytra
Reykjavíkurveg
Drápuhlíð
Hringbraut
Tjamargötu
Skipholt
Hvassaleiti
ÞJÓÐVIUJINN.
Síimi 17 500.
Allt til
RAFLAGNA
■ Rafmagnsvörm.
■ Heimilistæki.
■ Útvarps- og sjón-
varpstækl
Rafmagnsvöm-
búðin s.í.
Suðnrlandsbraut 12.
Sim) 81670.
NÆG BtLASTÆÐl.
HÖGNI JÓNSSON
Lögfræði- og fasteignastofa
Bergstaðastrætl 4.
Sím) 13036.
Heima 17739.
SIGURÐUR
BALDURSSON
hæstaréttarlögmaður
LAUGAVEGI 18. 3. hæð.
Símar 21520 og 21620.
Smurt brauð
Snittur
brauð bœr
við Oðinstorg —
Siml 20-4-90.
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannargaeðin.
>
BiRIDGESTONE
veitir aukíð
öryggi í akstri.
BRI DGESTONE
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Sími 17-9-84
ðKNIIMST fllLA
HJÖLBARÐflÞJÓNUSTU,
FLJDTT DG VEL,
MED NÝTfZKH TJEKJDM
FT NÆG
BÍLASTÆDI
OPIÐ ALLA
DAGA FRÁ
kl. 7.30-24.00
HJOLBflRÐAVIÐGERÐ KOPflVDGS
Kársnesbraut i - Sínti 40093
úr og skartgripir
#I%K0RNELIUS SERVÍETTU-
HP JONSSON PRENTUN
Skólavördustig 8 SÍMI 32-101.
4