Þjóðviljinn - 02.11.1967, Síða 10
10 Sft»A — I^JÖÖVICJiNN — FimmtMdagw-r % nóviemiber 1961.
WINSTON
GRAHAM:
MARNIE
40
skiptumst á orð'um hvað eftir
annað þetta kvöld, en hann virt-
ist ekki minnstu vitund forvitinn
um mína hagi- Hann var boðinn
í góðan mat, það var allt pg
sumt, og hann gerði matnum svo
sannarlega góð skil-
Ósjálfrátt geðjaðist mér vel að
frú Rutland, þótt það væri ljóð-
ur á ráði hennar í mínum augum
að hún var móðir Marks. Hún
hafði lag á að hjálpa mér með
eitt og annað án þess að vottaði
fyrir yfirlæti, og þótt hún væri
ótvíræð heldri kona, þá var hún
ekki eins og hún hefði gleypt
hrífuskaft og hræðileg á að líta
eins og svo margar rosknar kon-
ur í hennar stétt. Þær eru í
rauninni skelfilegar margar þeirra
— á hæð við flaggstengur, með
geysilega barma og spóalappir’og
þær hitta aldrei annað fólk en
af sama tagi og þær sjálfar og
þær tala mikið um innkaup sín
hjá Fortnum og hjá Harrod, og
TRÉSMIÐJA
Þ. SK0LASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
vogíie
EFNI
>/ SMÁVÖRUR i
TI'ZKUHNAPPAR
Hárgreiðslan
Hárgreiöslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Liaugav. 18. III. hæð (lýfta)
Sími 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Ðarðsenda 21. SÍMl 33-968
þær eru alltaf hræðilega fátæk-
ar, sem táknar það, að þær hafa
því miður ekki efni á að kaupa
kavíar, og raddir þeirra eru há-
ar óg skerandi og skafa innan á
manni hlustimar. Gamla frú
Newton-Smit.h var dálítið í þá
áttina, og það var átak fyrir
mig, þegar ég þurfti að vísa
konunum tveimur upp á loftið
og hjálpa þeim að púðra á sér
nefið. Hamingjan sanna hvað ég
var fegin því að hafa farið í þessa
taltíma og geta ^prt mig til á
borð við þær.
Þegar við komum aftur niður,
gekk þetta allt auðveldlega og
sársaukalaust því að Mark fór að
segja þeim frá hestinum mínum
og það kom á daginn að Rex
Newton-Smith var óður í hesta,
og hann vildi fá að Vita allt um
Forio. Það leit ákaflega vel út að
ég skyldi hafa keypt hann á upp-
boði og hafa hann á fóðrum í
Gloucestershire; það var eins og
ég kæmist í raðir eignastéttarinn-
ar við það. Rex sagðist oft skipu-
leggja veiðar, og þar sem hann
byggi ékki nema þrjátíu kíló-
metra leið frá Little Gaddesden,
þá værum við Mark kannski fá-
anleg ttl að koma á veiðar hjá
honum einhvem daginn? Ég ját-
aði af kurteisi f von um að ég
gæti smeygt mér undan því
seiijna meir, þvf að ég hafði
aldrei á ævinni farið á veiðar
t>g mér leizt ekki á þá ttlhugs-
un.
Þegar allt var um garð gengið
og síðasti gesturinn farinn, sagði
Mark; — Þetta tókst vel hjá þér,
Márnie-
— Finnst þér það?
— Já, þ«tta gekk stórvel fyrir
sig allt saman. Fannstu það ekki?
— Ég skalf af hræðslu allt
kvöldið.
— Það hefði enginn getað séð
á þér.
— Við verðum að láta hreinsa
þennan skorstein, sagði ég og rót-
aði í aringlæðunum.
— Matarveizlur voru eitt af
því sem Estelle réð alls ekki við.
Ég er feginn að þú skulir geta
það.
Ég reis upp og sem snöggvast
fékk ég grun um að hann ætlaði
að snerta mig. Þess vegna færði
ég mig frá honum í skyndi áður
ei ég spurði: — Sagði dr. Rom-
an nokkuð?
Eins og vanalega var hann of
fljótur að átta sig til þess að við-
brögð mín færu framhjá honum
ög brosið hvarf af vörum hans.
— Hann sagði að þú gætir komið
til hans á þriðjudaginn klukkan
tvö. ,
— Ekki annað?
— Lítið annað- Ætlarðu þá að
fara þangað?
— Ég veit það ekki enn-
— Hann stakk upp á því að
þú gengir til*hans í fimm til sex
vikur í eins konar upphafsrann-'
sókn. Að þeim tíma loknum veit
hann með vissu hvort hann get i
ur hjálpað þér eða ekki.
Ég hagræddi ljósmyndinni af
Estelle sem stóð á flyglinum. Ég
var reyndar ekki sérlega hrifin
af manninum hennar, en það var
nú samt notalegt að vita að hún
hafði ekki verið fullkomin að öllu
leyti.
— Og hvemig fór þetta með
hlutabréfin? spurði ég. — Gaztu
fengið Rex og móður hans til að
hætta við að selja?
— Ég taldi þau á að halda
bréfunum fyrst um sinn. Ef þau
ákveða einhvem tíma að selja,
þá neyðist ég sjálfur til að
kaupa þessi hiutabréf. En ég
verð að fá stærðar bankalán, ef
ég á að geta keypt þau á þessu
uppskrúfaða verði.
Þegar ég kom til Terrys á laug-
ardagskvöldið um níuleytið var
þar margt um manninn. Ég
þekkti ekkert af fólkinu nema
MacDonaldhjónin- Terry kynnti
mig fyrir öllum hinum, og það
var reyndar kynlegt samsafn.
Þarna var kvikmyndastjóri af
gyðingaættum með lífsþreytusvip
á andlitinu — eins og hann væri
búinn að reyna allt og langaði
ekki vitund til að reyna meira;
svo voru tvær býsna harðsoðnar
kvenpersónur á fimmtugsaldri
með mjó, svört strik í auga-
brúna stað, sem gerði þær
heimskulegar á svipinn og and-
litin á þeim vt>ru skelfing ellileg,
af því að þær gerðu þau lifandis
ósköp til að gera þau ungleg.
Auk þessara þriggja voru þrír
karlmenn- sem vissu varla aura
sinna tal. Það var auðséð á þeim
Strax og við byrjuðum að spila
og það gerðum við um tíuleytið,
varð mér ljóst, að þetta var allt
annars konar spilamennska en
síðast. Þá hafði það verið ósköp
venjulegt fólk sem sprlaði sér til
ánægju. En í þetta sinn var þetta
fúlasta alvara. Og þarna voru
engir hyrjendur. Ég var ein um
það. Ég hafði haft ipeð mér fimm
pund, en ég sá vel að þau myndu
duga skammt, ef ég færi að tapa
fyrír alvöru- Þess vegna byrjaði
ég variega og dró mig í hlé í
hvert sinn sem ég fékk ekki því
betri spil — og reyndi ekki að
blekkja- Og á meðan virti ég
spilafólkið fyrir mér og, reyndi
að læra af því lisfimar.
Þegar klukkan var orðin eitt
hafði ég nælt mér í tvö pund og.
klukkan þrjú voru þau orðin
níu. En svo var ég fjandalega ó-
heppin í tveim spilum; í öðru
var ég sannfærð um að kvik-
myndastjórinn væri að blöffa, en
það gerði hann ekki, svo að ég
tapaði ellefu pundum á einu
bretti. Upp frá því spilaði ég eins
varfæmislega Pg hugsazt gat, og
þegar við hættum klukkan fjög-
ur var tapið hjá mér ekki nema
þrjátíu shillingar. En mig verkj-
aði í magann af taugaóstyrk og
grernju og mér fannst þrjátíu
shillingar geysileg fjárhæð.
Ég hafði gleymt öllu öðm, bæði
tímanum og Mark, og þegar ég
leit á úrið mitt, spratt ég á fæt-
ur og sagðist verða að fara und-
ir eins.
Terry sendi mér eitt af þessum
illkvittnislegu augnaráðum. —
Hræddar við að eiginmaðurinn
fari að þenja sig, ha? En kvöld-
ið hefur vonandi verið þess virði.
— Það er nú líkast til. Ég hef
skemmt mér alveg konunglega-
Góða nótt, Terry — og beztu
þakkir-
— Þér megið til með að koma
aftur seinna. Ég fæ alltaf gesti
í hverri viku.
Á leiðinni heim í bíl Estelle
reyndi ég að sannfæra sjálfa mig
um, að ég hefði ekkert á móti
því að taþa.
11.
— Viljið þér ekki fá yður sæti,
frú Rutland, sagði dr. Roman. — |
Það er bezt þér setjizt hér. Á ég
ekki að taka kápuna yðar? Þetta
er betra. Það er heljdur óskemmti-
legt veður í dag, Komuð þér
akandi hingað í bflnum yðar?
Hann átti heima í einu af þess-
um háu, mjóu' húsum beint á
móti Regents Park- Allir eru uppi
í skýjunum, þegar þeir tala um
þessi hús, en satt að segja skil
ég ekki hvers vegna.
' — Mig langar til að þér lítið
á samtal okkar í dag sem við-
ræður milli vina, en ekki eigin-
’lega læknisvitjun. Og reyndar
yerða samtöl okkar framvegis
heldur óformleg, en það vitið þér
sjálfsagt.
Rpman var allt öðru vísi þama
á heimavígstöðvunum. Ég býst
við að hann hafi haft „fas“ sem
hann tók af snaga og setti upp
áður en sjúklingamir komu. Ef
dæma mátti af skiltum utaná
húsinu, var annar læknir með
honum um húsið. Þjónn hafði
vísað mér inn og ég velti fyrir
mér, hversu mikið þetta • myndi
kosta Mark.
— Hvað hefur maðurinn minn
sagt yður?
— Mjög lítið, frú Rutland.
Eiginlega ekki annað en það, að
þið hjónin hefðuð orðið sammála
um, að þér leituðuð til mín.
— Ég kem hingað aðeins -vegna
þess að hann vill það-
— Já — jú, mér skildist líka
á honum, að hann hefði átt hug-
myndina- En ég býst við að þér
hafið ekkert á móti því að koma
hingað.
Við höfðum sótt Forio á sunnu-
daginn. — Ne-nei.......
— Það er nefnilega eitt sem
þér verðið að gera yður ljóst frá
byrjun og það er að ég get varia
hjálpað yður, án þess að yðar
eigin aðstoð kofni til.
Ég tróð blússunni minni niður
undir pilsstrenginn.
— Ég sezt héma fyrir aftan
yður, sagði hann. — En ég skrifa
ekkert niður, svo að það verður
hvergi skráð sem þér segið mér.
Það sem ég ætla að biðja yður
um í dag, er að gefa mér fáein-
ar einfaldar upplýsingar um yður
FÍFA auglýsir
Stórkostleg verðlækkun á peysum og úlpum fyrir
böm og fullorðna.
Verzlið yður í hag — Verzlið í Fífu.
Verzlunin FlFA
Laugavegi 99 (inng. frá Snorrabraut).
A*
i
HARPIC er efni sem hreirisar
salernisskálina og drepur sýkla
SKOTTA
— Hvað ætlarðu að gera, pabbi? — Ég ætla að lemja flautuna á
þessum bíl í klessu!
Einangrunargler
Húseigenduz — Byggingameistarar.
Útvegum. tvöfalt einangrunargler með mjög stutt-
um fyrirvara.
Sjáum um ísetningu og allskonar breytingar 6
jluggum. Útvegum tvöfalt gler í lausafös os sjá-
um um máltöka
Gerum við sprungur l steyptum veggjum með
baulreyndu gúmmíefni
Gerið svo vel og leitið tilboða.
SÍMI 51139.
NÝKOMID
Peysur, úlpur og terylenebuxur.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.
BÍLLINN
ykkor sjálf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BÍLAÞJÖNOSTAN
Auðbrekku 53, Kópavogi. — Sími 40145.
Látið stilla bflinn
Önnumst hjóla-, ljósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti, platínur, ljósasamlokur
— Örugg þjónusta
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32, sími 13100 .
Hemlaviðgerðír
• Rennun: bremsuskálar.
• Slípúm bremsudælur.
• Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 - Sími 30135.