Þjóðviljinn - 19.11.1967, Page 4

Þjóðviljinn - 19.11.1967, Page 4
4 SflðA — X»JOÐVILJlNN — Sunnudagur 19.. nóvember 1963. Otgefandl: Sameiningarílofckur aiþýðu — Sósialistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. Framkvstj.: Eiður Bergmann. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðustíg 19. Sími 17500 (5 línur) — Askriftarverð kr- 105.00 á mánuði. — Lausasöluverð krónur 7.00. Að kjósa sér hlat JJíkisstjómin hefur verið vöruð við. Alþingis- menn stjórnarflokkanna vita hvað þeir eru.að gera ef þeíf samþykkja kjaraskerðingarfrumvarp stjómarinnar. Með því samþykkja þeir ekki ein- ungis hinar ósvífnu kjaraskerðingarráðstafanir sem ríkisstjóm íhaldsins og Alþýðuflokksins er þegar búin að framkvæma og fyrirhugar með misbeitingu á valdi Alþingis í því skyni. Þeir samþykkja jáfnframt stórfelld og víðtæk verk- föll launþegasamtakanna frá næstu mánaðamót- um. Þetta liggur ljóst fyrir eftir ályktun ráðs'tefnu Alþýðusambands íslands, sem samþykkt var ein- róma. Fullyrðing Morgunblaðsins, að verkalýðsfé- lög muni hafa tilmælin um verkfall og vamarbar- áttu alþýðu gegn kjaraskerðingunni að engu, hef- ur ekki við neitt að styðjast, engin yfirlýsing um slíkt hefur komið frá neinu verkalýðsfélagi; í sam- bandi við undirbúning verkalýðshreyfingarinnar að vamarbaráttu gegn kjaraskerðingu ríkisstjóm- arinnar hefur hvergi bólað á að ráðherrarnir eigi „fimimtu herdeild“ í verkalýðshreyfingunni, sem reiðubúin sé að svíkjast undan merkjum vegna fyrirskipana Bjarna Benediktssonar eða Gylfa Þ. Gíslasonar. Harðorð mótmæli gegn kjaraskerðing- aráformum ríkisstjórnarinnár hafa" borizt jafnt frá þeim verkalýðsfélögum sem eingöngu er stjórn- að af mönnum sem fylgt hafa stjórnarflokkunum. Og þau félög sem nú þegar heyja verkfallsbaráttu og núverandi forystumenn þeirra hafa ekki feng- ið orð á sig íyrir róttækni. Einnig það gæti verið ráðherrunum nokkur bending, þeir virðast ekki hafa jarðsamband lengur við fólkið, ekki einu sinni það fólk sem fylg.t hefur og jafnvel fylgir enn stjórnarflokkunum að málum almennt. jyjenn sjá nú sauðargærulausan Sjálfstæðisflokk- inn, sem segist vera flokkur allra stétta.við hátíðleg tækifæri, en kemur fram sem valdatæki auðmanna og braskara, íslenzks auðvalds og er- lends, hvenær sem til átaka dregur í hagsmuna- baráttu alþýðufólks. Kjaraskerðingarfrumvarpið er afkvæmi íhaldsstefnu. Hitt virðist mörgum ó- skiljanlegt að Alþýðuflokkurinn, flokkur vaxinn upp úr verkalýðshreyfingunni, skuli lána ráðherra og hvern einasta þingmann sinn til þess verks að misnota vald Alþingis og ríkisstjómar gegn ein- róma afstöðu allrar verkalýðshreyfingarinnar. Var það „ábyrgð“ gagnvart íhaldi og auðvaldi, var það „árangur“ í kjaraskerðingarherferð íhaldsins gegn alþýðuheimilunum sem átt var við með þeim kjör- orðum í kosningunum í sumar? Ætla ráðherrar og þingmenn Alþýðuflokksins að fylgja íhaldinu að lögfestingu kjaraskerðingarfrumvarpsins gegn sameinaðri verkalýðshreyfingu landsins? Illa væri þar launaður trúnaður alþýðufólksins sem lyfti þessum mönnum á þing. Alþýðuflokkurinn hefur dregið ráðherra úr ráðherrastóli vegna þess að verkalýðshreyfingunni var misboðið af samstarfs- flokki. Kjósa Eggert, Gylfi og Emil sér þann hlut að fara í stríð við verkalýðshreyfinguna, sem skjaldsveinar íhalds og auðvalds? TJr því fæst skor- ið næstu daga. — s. Scholl’s fótaaðgerðarstofa opnuð / Rvík á föstudag • Ný fótaaðgerðarstofa var opnuð á Klappatstíg 25-27 á föstudaginn og er eigandi hennar Viktoría B. Viktors- Viktoría stundaði nám i Fod- plejeskolen í Kaupmannahöfn um tveggja ára skeið og hefur unnið við fótaaðgerðir hjá fyr- irtækinu Dr. Scholl's í Höfn. Hefur Viktoria eingöngu vörur frá þessu fyrirtæki á stofu sinni, bæði fótsnyrtivörur og hjúkrunarvörur. Stafnandi fyr- irtækisins, Dr. Scholl, er aust- urriskur en Scholl's fótaaðgerð- arstofur eru nú starfræktar viða um lönd- Á fótaaðgerðarstofunni á Hlé efftir harða bardaga á Kýpur NIKOSÍU 16/11 — Harðir bar- dagar urðu í gær á Kýpur þeg- ar hermenn Kýpurstjórnar réð- ust á tvö þorp Tyrkja, að sögn vegna þess að Tyrkir höfðu hafið skothríð á sveit lögreglu- manna stjómarinnar. Um 20 manns munu hafa legið í valn- um, segir í einni frétt, en í ann- arri að enginn muni hafa fallið, en sjö Tyrkir særzt. í dag var komið á vopnahlé fyrir milli- göngu gæzluliðs SÞ. Kosnir aftur? Framhald af 1. síðu. kosningtmum, þegar fullyrt var að Alþýðuflokkurinn „nasði ár- angri“. Hvert hefði orðið kjós- endafylgi Alþýðuflokksins í kosn- ingunum í sumar ef hann hefði gengið til þeirra kosninga með yfirlýsingu um kjaraskerðin|ar- áform ríkisstjórnarinnar, ef hún héldi völdum? □ Allir þingmenn Alþýðuflokks- ins í neðri deild Alþingis hafa nú greitt atkvæði með kjara- skerðingarfrumvarpinu, þeir hafa greitt atkvæði með því allir sem einn að vísitölugreiðslur á kaup verði skertar. Þeir hafa allir sem einn lagt samþykki sitt við því að þyngstu byrðamar verði lagðar á bök hinna fátækustu í landinu. □ Vom þeir kosnir á þing til þess? Og verða þeir kosnir aft- ur? Klapparstíg verður hægt að fá fótsnyrtingu og eins fram- kvæmir Viktoría minni háttar aðgerðir. Þá em þar seldar ýmsar vömr eins Dg fyrr seg- ir, og má þar nefna innlegg. Sagði Viktoría við blaðamenn að mikið væri um að fólk fengi innlegg og síðan væri ekkert eftirlit haft með því, en líta þyrfti eftir innleggi á sex mánaðá fresti. Fyrst um sinn vinnur Viktor- ía ein á stofu sinni en á næst- unni bætist dönsk stúlka við. Borgarstjórn Framhald af 1. síðu. marks félagslegri aðstöðu og þjónustu í nýjum borganhverf- um, svo ekki sé minnzt á verk- legar framkvæmdir. I þessu sambandi minnti Jón Snorri á á- standið í skólamálum borgarinn- ar, sem margsinnis hefur verið rætt í borgarstjóminni að und- anförnu, gat um aðstöðu bama og unglinga til leikja, tómstunda- og félagsstarfa í hinum ýmsu borgarhverfum o.s.frv. Tillaga Alþýðubandalagsins væri fflutt til þess að leggja áherzlu á nauð- syn breyttrar stefnu og breyttra vinnubragða í sambandi við vandamál nýrra borgarhverfa og raunar annarra úthverfa borgar- innar einnig. Sem fyrr var sagt var sam- þykkt með 10 atkvæðum gegn 4 að vísa tillögu borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins til borgar- ráðs. Með þeirri málsmeðferð greiddu atkvæði 8 fulltrúar I- haldsins og báðir kratarnir í borgarstjóm, en 3 fulltrúar AI- þýðubandalagsins og annar Framsóknarmaðurinn (Sigríður Thorlacius) vora á móti. Hinn Framsóknarfulltrúinn, Kristján Benediktsson, greiddi ekki at- kvæði um málið! SKIPAlUGeRÐ RIKISINS M/S BALDUR fer til Snæfellsnes- og Breiða- fjarðarhafna á miðvikudag. — Vörumóttaka á mánudag og þriðjudag. Plaslmo ÞAKRENNUR 0G NIÐURFALLSPÍPUR RYDGAR IKKI Þ0LIR SELTU OC SÓT, ÞARF ALDREI AÐ MÁLA MarsTrading Company hf IAUGAVEG 103 — SlMI 17373 Stýrimannafélag Íslands Framhaldsaðalfundur félagsins verður hald- inn mánudaginn 20. nóv. að Bárugötu 11 og hefst kl. 20.30. — Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN. ! ■ • - ■ • ■ .................................................................................. • ’ l / ‘ i * KOMMÓÐUR — teak og eik Húsgagnaverzlun Axels Eyjólíssonar Skipholti 7 — Sími 10117. Prestskosning í Hallgrímsprestakalli í Reykjavík ' Prestskosning fer fram í Hallgrímsprestakalli í Reýk j avíkurpróf astsdæmi SUNNUDAGINN 26. nóvember næstkomandi. Kosið verður í Hallgríms- kirkju, SAPNAÐARHEIMILINU, Skólavörðuhæð og hefst kosningin kl. 10 árdegis og lýkur kl. 10 síðdegis. Takmörk prestakallsins eru greind í auglýsingu safnaðamefndarinnar f diagbl. VÍSIR 16. októ- ber síðastliðinn. Mælzt er til þess að sóknarfólk taki almennt þátt í kosningu þessari og greiði atkvæði snemma dags, til þess að koma í veg fyrir óþægindi við fram- fevæmd kosningarinniar. Reykjavík, 17. nóvember 1967. Safnaðamefnd Hallgrimsprestakalls í Reykjavíkurprófastsdæmi. Tilboð óskast í nokkrar fólksbifreiðar. Skúffubifreið með fram- drifi og Intemational jeppabifreið, er verða sýndar að Grensásvegi 9, miðvikudaginn 22. nóvember kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5. Sölunefnd vamarliðseigna. KRISTNIBOÐSSTARF MEÐAL STRÍÐANDI BLÖKKUMANNA JÓHANN ÞORVALDSSON flytur er- indi um þetta efni í AÐVENTKIRKJ- UNNI í dag, sunnudaginn 19. nóvemb- er klukkan 5 síðdegis. Kórsöngur. ALLIR VELKOMNIR. I FÍFA auglýsir Þar sem verzlunin hættir verða allar vör- ur seldar með 10% — 50% afslætti. Verzlunin FÍFA Laugavegi 99. (inngangur frá Snorrabraut). I I I I I I I I 1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.