Þjóðviljinn - 28.11.1967, Side 2
2 SfÐA — I>JÓÐVILJINN — Þriðjudagur 28. nóvember 1967.
-------:-----f-----------------------------------------
Áthugasemd
Tryggvi Ófeigsson hefur beð-
ið Þjóðviljann að bixta eftir-
farandi athugasemdir frá h.f.
Júpíter við grein Georgs Við-
ars Björnssonar, sem birtist
hér í blaðinu sl. miðvikudag,
22 nóv.:
Enda þótt Georg Viðar
Björnsson sé sjálfur ekki svara
verður er rétt vegna þeirra,
sem kynnu að hafa lesið skrif
hans og þekkja ekki til, að
gera fáeinar athugasemdir:
Viðhald á skipum h.f. Júpí-
ters hefur alla tíð verið eftir
kröfum Skipaeftirlitsins og
Lloyd’s. enda eru skip stöðvuð,
ef ekki er farið eftir fyrir-
mælum þessara aðila. Sama er
að segja um eftirlit af hálfu
borgarlæknis. Kröfum hans
hefur veri/3 fullnægt og að
sjálfsögðu eru skip þessa fé-
lags undir heilbrigðiseftirlitið
sett, eins og önnur skip.
Tilhæfulaust er, að skip hafi
látið úr höfn með „aðeins eina
ljósavél nothæfa um borð“ —
eins og í greininni stendur.
Hitt er annað mál, að á meðan
Georg Viðar Björnsson var
skráður vélstjóri á b/v Neptun-
usi, má segja, að • vélstjórárnir
á því skipi hafi ekki verið
nothæfir — vegna drykkju-
skapar — fyrstu sólarhringana
eftir að lagt var úr höfn. Þess
voru jafnvel dæmi, að vélstjóri
á þessu skipi var fullur við
löndun í Þýzkalandi, fullur
alla uppsiglinguna til Reykja-
víkur, fullur allan tímann hér
í landi og fór fullur út í sjó
aftur. Félagi Georgs Viðars
Björnssonar.
„Báðar ljósavélar hálfónýt-
ar“, segir Georg Viðar. Það er
tilhæfulaust, að látið hafi ver-
ið úr höfn með vélarnar í
þessu ástandi, en staðreynd er
það, að fleira en Ijósavélarn-
ar voru ónýtar f Neptúnusi eft-
ir handtök og umhirðu Georgs
og þeirra félaga hans s.l. sum-
frá hf. Júpíter
aðrir vélamenn voru reknir í
land af Neptunusi í ágúst s.l.
og tildrögin voru-þessi:
B/v Neptunus lét úr höfn til
veiða ,7/8 1S>67. Rétt á eftir
brotnaði stykki í aðalVél, sem
engin dæmi eru til að hafi
brotnað fyrr í neinum togara
hér, hvort sem draga má álykt-
un af því eða ekki. Farið var
inn og gert við þetta og lagt
út aftur. 'Rétt fyrir utan Akur-
eý, kl. 3 um nóttina brann yfir
kyndiblásari aðalvélar. Þá var
I. vélstjóri og undirmenn hans
allir undir áfengisáhrifum (þar
á meðal Georg Viðar) og ákvað
skipstjóri að bíða til morguns,
en kl. 8 um morguninn var á-
stand á vélamönnum óbreytt,
en þá var lónað inn á ytri höfn-
ina og viðgerðarmenn fluttir
um borð. Var stanzað þar til að
reyna að koma í veg fyrir, að
meira brennivín yrði borið um
borð, enda var skipsmönnum
bönnuð landganga. Enn. var
lagt út sama dag kl. 17,00, en
kl. 21,00 -tilkynnti I. vélstjóri,
að mikill leki væri á gufukatli.
Var snúið við sem skjótast og
dróstvskipið inn til Reykjavík-
ur og fór ekki út aftur í bili.
Vútrygging skipsins óskaöi
eftir sjóprófi og var það haldið.
Ætlað var.að þjóða Georg Við-
ari Björnssyni að mæta, en
hann fannst ekki. Þau þrjú
heimilisföng, sem hann hafði
gefið útgerðinni upp, voru öll
röng, ög götulögreglan sagði
hann heimiilislausan, þegar til
hennar var leitað að hafá uppi
á honum. Ketilskemmdin í skip-
inu stafaði af mishitun á katl-
inum, sem enginn getur átt sök
á nema vélstjórarnir, þar með
talinn Georg Viðar.
Mótorljósavél skipsins var,
þegar skipið kom inn, svo á
sig komin, að öll smurgöng í
henni voru stífluð af leðju úr
sóti, olíu og vatni aðallega. Var
vélin orðin ógangfær af þessum
sökum og . stórsk'emmd, en það,
Framihald á 9. síðu.
Georg Viðar Bjömsson og
Að
standast freistingar
Það hefur verið málsvörn
stjómarflokkanna að undan-
förnu að þeir hafi ekki kom-
izt hjá því að lækka gengi
krónunnar vegna frumkvæðis
Breta; þeir hafi verið stað-
ráðnir í því að halda genginu
óskertu þar til lækkun punds-
ins dundi yfir eins og reið-
arslag. En í fyrradag viður-
kennir Alþýðublaðið íforustu-
grein að þessi málflptningur
sé uppspuni frá rótum; blaðið
segir:
„Stjórnarandstaðan hefur í
umræðunum um gengisbreyt-
inguna notað eitt árásarefni á
ríkisstjómina sem ekki er
margtuggið áður. Það er sú
óneitanlega staðreynd, að ráð-
herrar hafa undanfama mán-
uði afneitað gengislækkun og
hvað eftir annað sagt opin-
berlega, að til hennar væri
ekki ætlunin að grípa. Áf
hverju gáfu Bjarni Benedikts-
son og Gylfi Þ. Gíslason slík-
ar yfirlýsingar, þótt þeir hafl
án efa skilið betur, en flestir
aðrir, að gengi krónunnar
kynni að falla innan fárra
mánaða? Svarið er augljóst.
Þeim bar sem ráðherrum
skylda til þess. Ráðherrar *
verða að halda uppi trausti
á gjaldmiðlinum, enda þótt
það kosti yfirlýsingar, sem
þeir vita sjálfir að kunna að
reynast rangar eftir skamma
stund. Hvað mundi gerast, éf
forsætisráðherra eða við-
skiptamálaráðherra væru f
ræðum sínum með vangavelt-
ur um .að gengi krónunnar
kunni að falla? Það mundi
þegar tekið sem yfirlýsing um
gengisfall, allt traust á gjald-
miðlinum mundi hverfa og
gjaldeyrisbra.sk hefjast í stór-
um stfl. Slíkt má ekki koma
fyrir. Þess vegna verða ráð-
herrar að andmæla gengis-
lækkun fram á síöustu stund.“
Hér er það sagt umbúða-
laust að Bjami Benediktsson
og Gylfi Þ. Gíslason hafi á-
stundað vísvitandi ósannindi
mánuðum saman. Þeim er
talið það til ágætis að þeir
séu einstakir snillingar f því
að fara með rangt mál, og
skal sú, niðurstaða ekki ve-
fengd. Á hitt er ástæða til að
benda að þeir Bjarni og Gylfi
halda enn fast við framburð
sinn, enda þótt gengislækkun-
in sé komin til framkvæmda:
þeir staðhæfa ennþá með ein-
lægnissvip á andlitinu að
Bretar hafi neytt þá til geng-
islækkunar, og sömu rök-
semdir er að finna í greinar-
gerð Seðlabankans. Þetta get-
ur samkvæmt skýringu Al-
þýðublaðsins naumast stafað
af öðru en því að ráðherrarn-
ir vilja halda sér í æfingu.
Það er alkunna að afreks-
menn í öllum greinum verða
að gæta þess að vera í sí-
felldri þjálfun; þeir mega
aldrei' slaka á. Ef ráðherrar
vilja ná þeirri fullkomnun í
ósannindum sem Alþýðublað-
iö ræðir um mega þeir aldrei
láta undan þeirri freistingu að
segja satt. — AustrL
MikiS flutt inn af
dönskum tóbaksv.
Einar Th- Mathiescn og Viggo Ligaard.
Hér á landi er staddur Viggo
Ligaard frá Scandinavian Tob-
acco Company í Rödovre í
Danmörku. Umboðsmaður fyr-
irtækisins hér á landi Einar
Th. Mathiesen kynnti Ligaard
fyrir blaðamönnum nú fyrir
skemmstu og var við það tæki-
færi sagt frá tóbaksiðnaði í
Danmörku og þá sérstaklega
frá starfsemi fyrrgreinds fyrir-
tækis.
Scandinavian Tobacco Comp-
any er eitt stærsta fyrirtæki í
dönskum tóbaksiðnaði. Það var
stofnsett með sameiningu
þriggja elztu tóbaksfyrirtækja
Danmerkur árið 1961: Chr.
Augustinus, sem stofnsett var
1750, C. W. Obeh stofnsett 1787
og R. Færch, stofnsett 1869.
Fyrirtækið rekur nú sex aðal-
Ólafur Helgason
útibússtjóri
Ölafur Ilelgason
Á fundi bankaráðs Otvegs-
banka íslands sl. föstudag, 24.
þ.m. var Ölafur Helgason,
bankafulltrúi, ráðinn útibús-
stjóri Otvegsbanka Islands í
Vestmannaeyjum.
Ólafur Helgason lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík 1944, stundaði hag-
fræðinám við Hafnarháskóla
og í Prag 1946 til 1952. Hann
hefur starfað í endurskoðunar-
og ábyrgðardeild Otvegsbani<a
Islands síðan 10. okt 1952.
verksmiðjur sem útbúnar eru
fullkomnum sjálfvirkum véla-
kosti. Starfsfólk verksmiðjanna
er 3600 karlar og konur.
Viggo Ligaard sagði að þrárt
fyrir að veðurfar í Danmörku
gerði það ómögulegt að rækta
tóbaksplöntuna í landinu hefði
þróazt mikill tóbaksiðnaður í
Danmörku og væru ■ danskar
tóbaksvörur nú þekktar og við-
urkenndar um allan heim.
Otflutningur danskra vindla
er mikill og' innflutningur
danskra vindla er mikill til Is-
lands. En auk vindla framleið-
ir Scandinavian Tobacco Comp-
any sígarettur, píputóbak,
munntóbák og neftóbak. Fyrir-
tækið flytur út tóbaksvörur til
25 landa, mest til Ástralíu.
Einar Th. Mathiesen hefur
verið umboðsmaður fyrirtækis-
ins á Islandi í u.þ.b. ár og
nefndi hann nokkrar vindla-
tegundir frá Scandinavian Tob-
acco Company, sem hér eru á
boðstóilum: smávindlana Dan-
ish Golf og Danish Apollo, Ad-
vokant Cerut, Cæsar Cigar og
Diplomat, sem er algjör nýj-
ung hjá fyrirtækinu þ.e. pakki
með einum vindli.
Viggo Ligaard gat þess að
lokum að neyzla á tóbaksvör-
um hefði vaxið geysilega 1
Danmörku undanfarin ár þrátt
fyrir herferðir krabbameinsfé-
laga. T.d. reyktu Danir eldri en
18 ára meira en 300 vindla á
ári, hver einstekur — og.væri
það heimsmet. 1 þessu sam-
bandi yrði að hafa í huga að
14% danskra kvenna reyktu
vindla af ýmsum stærðummest
þó af Monacco smávindlum.
VAUXHALL
BEDFORD
UMBOÐIÐ
ÁRMÚLA3 SÍMI 38900
ÓDYRT — GOÍT
TILKYNNING
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á benzíni og gasolíu.
BENZÍN:
1. Verð frá dælu pr. liter Kr. 8,20
2. Verð á tunnum pr. líter — 8,23
s GASOLÍA: '
1. Verð frá leiðslu pr. líter Kr. 2,18
2. Heimkeyrt pr. liter — 2,23
3. Á tunnum í porti pr. líter — 2,23
4. Á tunnum heimkeyrt pr. líter — 2,28
5. Á bifreiðar frá dælu pr,- líter — 2,64
■ Ofangreint hámarksverð gildir frá og með
27. nóv. 1967. — Söluskattur er innifalinn
- verðinu.
Reykjavík, 26. nóv. 1967
VERÐLAGSSTJÓRINN. -
TMYNN/NG
Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því
að næstu daga verða gefin út ný verðlagsákvæði
sem gilda skulu um þær vörur er greiddar verða
samkvæmt hinu nýja gengi.
Einnig skal athygli vakin á því að tilkynning
nr. 12 frá 30. október 1967 um bann við hækkun
verðs og álagningar gildir um þessar vörur þar
til hin nýju ákvæði taka gildi, sem og allar þær
vörur er greiddar hafa verið samkvæmt eldra
gengi. • 1
Ennfremur er óheimilt að hækka verð á innlend-
um iðnaðarvörur og þjónustu nema samþykki
verðlagsnefndar komi til.
| Reykjavík, 25. nóv. 1967.
VERÐL AGS ST J ÓRINN.
.... -i i
I Isabella-Stereo