Þjóðviljinn - 28.11.1967, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVruriNN — Þriðjudagur 28. nóvember 1963.
WINSTON GRAHAM: -
MARNIE
60
— Jæja, en það þýðir víst ekki að vera að hamra á þessu. Allt verður að hafa sinn gang. Hve- nær kemur Mark heim? ósköp fyrirgenginn að sjá. Við töluðum saman eins og við höfðum gert undanfama daga, og ég átti dálítið bágt með að
— Á mánudaginn hugsa ég.
— Gsetuð þér húgsað yður að
fara út með mér á föstudaginn?
— Nei, Terry, það get ég ekki-
— Eruð þér ennþá eftir yður?
— Mér líður bölvanlega.
— 'Ætli þér þurfið bara ekki
að komast dálítið að heiman.
— Nei, þakk fyrir. Ég hef ekki
áhuga á þvi. — Á föstudag, —
þá yrði ég komin langt í burtu.
— Nú skal ég segia yður eitt,
sagði hann. Ég hringi aftur á
morgun þegar ég kem heim af
skrifstofunni. Þá sjáum við til
hvort þér hafið ekki séð yður um
hönd.
— Segjum það þá, Terry. Ann-
að kvöld yrði ég alls ekki hér.
— Prýðilegt.
Ég heimsótti Mark aftur á
fimmtudagsmorgun og nú sat
hann f stól, en hann var ennþá
trúa því að þetta væri í síðasta
skipti sem ég sæi han,n-
Ég sagði við hann, að mér
fyndist hann glaðlegur á svipinn
og hann sagði: — Ég hef hug-
boð um að þetta geti orðið ný
byrjun fyrir okkur bæði. Og
þegar ég leit upp, hélt hann á-
fram: — Ég hef ekki neina sér-
staka ástæðu til að halda það,
enga rökrétta ástæðu .... mér
fisnst ég bara vera að byrja
upp á nýtt á atvinnusviðinu, og
mér finnst allt í einu að ég
eygja möguleika á því að sam-
bandið milli þín og, mín — að
loknum vissum formsatriðum —
gæti ef til vill komizt í annað
bg betra horf.
— Þú ert þá enn reiðúbúinn
til að gera tilraunina?
— Já, ef þú ert það líka.
HARÐVIÐAR
OTIHURÐIR
TRÉSMIÐJA
Þ. SKÚLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav 18. III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SIMI 33-968
Mér líkaði betur við hann eins
og hann var í dag — eða kannski
var þetta af þessu vanalega; að
við manneskjumar sjáum alltaf
mest eftir því sem við erum að
missa. Að minnsta kosti fann ég
sem snöggvast til sársaukafullrar
þrár eftir því lífi, sem við hefð-
um getað átt saman. Það var
eins og ég sæi allt í einu inn
um opnar dyr. Það var eins og
að vera f framandi landi og
stara inn um opnar dyr á lífi
sem maður veit ekkert um og
hefur aldrei lifað. Maður iítur
sem snöggvast inn úm gættina,
andvarpar og gengur leiðar sinn-
ar. Éf til vill óskar maður þess
nokkur andartök að geta eignazt
hlutdeild í þeirri tilveru. En
þetta var ekki annað en tilfinn-
ingasemi, sem stóð ekki í neinu
samþandi við veruleikann, því að
það líf var ekki áskapað mér-
Þegar ég kom heim reyndi ég
að skrifa honum bréf, aðeins
nokkur prð til að kveðja hann.
En þótt ég byrjaði sex sinnum
á bréfinu því ama, þá varð ekk-
ert læsilegt úr því. svo að ég
brenndi allt saman.
Ég sagði frú Leonard að ég
ætlaði að búa hjá vinafólki í
nánd við spítalann og ég myndi
svo aka Mark á mánudag. Og
því gat ég grumsemdhlaust farið
út í bílinn með ferðatöskuna
mína, og hún fylgdi mér út þeg-
ar ég fór af stað-
Rétt áður en ég fór gekk ég
niðut- f hesthúsið og svipaðist um
í síðasta sinn. Lyktin af Forio
var þar enn.
Richards var ekki að vinna í
ganginum þennan dag, svo að ég
gat ekki spjallað við hann; en
þegar ég ók burt, fór ég fram-
hjá blindu mönnunum tveimur
sem voru úti að ganga. Ég
stanzaði oftast bílinn eða flautaði
að minnsta kosti Pg þá veifuðu
þeir mér, en f þetta sinn laum-
aðist ég framhjá þeim. Mér
fannst ég vera eins og þjófur.
Mér fannst ég vera þjófur — aft-
ur.
Það tæki mig klukkustund að
aka til Bamet, þar sem prent-
smiðjan var, hálftfma tæki það
mig að komast inn og opna pen-
ingaskápinn Pg komast aftur út,
og svo væri ég fjóra eða fimm
klukkutíma að aka til Torquay.
Með öðrum orðum gæti ég kom-
izt til mömmu fyrir klukkan
tólf. Þær fóru alltaf beint að
sofa Pg seint á fætur, og ef ég
væri heppin, gæti ég komizt
þangað áður en þær lokuðu og
læstu undir nóttina. Ég ætlaði
að gista hiá mömmu og Lucy og
segja svo mömmu allt saman.
strax um morguninn- Guð náði
mig. Um hádegið næsta dag, eða
ef til vill fyrr, legði ég svo af
stað. Ég ætlaði að reyna að kom-
ast burt frá flugvellinum í Ex-
eter.
Ég ók í áttina tH Barnet.
En því lengur sem ég ók því
undarlegar leið mér. Það var
ekki líkamlega, nei, það voru
tilfinningar mfnar sem voru svo
furðulegar. Það var eins Dg allt
þetta með Forio, að hánn skyldi
deyja og hvemig og að það var
mér að kenna — helltist yfir mig
á ný. Tvisvar eða þrisvar á leið-
inni varð ég að þurrka mér um
augun með hönzkunum og einu
sinni var ég næstum búin að
aka á hjólreiðamann. Ég óskaði
þess næstum að ég hefði glugga-
þurrkur fyrir augunum.
Það var dimmt og hráslaga-
legt og þokuloft í hvert skipti
sem maður kom á opið svasði,
þótt ekki nema væri á engja-
spildu. Ég villtist einu sinní og
ég var meira en klukkutíma á
leiðinni til Bamet.
Ég lagði ekki bílnum hjá
prentsmiðjunni, en bakvið smá-
vöruverzlun var mjótt sund og
þar skildi ég bílinn eftir.
Nú gerði þbkan mér auðveld-
ara fyrir og nú óskaði ég þess
aðeins að hún hefði verið þétt-
ari. Erfiðast var að komast inn
í bygginguna óséð, og ég vissi
ekki hver af lyklunum þremur
gekk að útidyrunum. Ef maður
stendur og rjálar við lykla hjá
útidyrum, þá er ekkert líklegra
en lögregluþjónn eigi einmitt leið
hjá, en það var ekki um annað
að gera en taka áhættuna.
Aðalinngangurinn í x prent-
smiðjuna var á götuhomi og
götuljós beint á móti. Það var
erfitt að komast hjá því að
hugsanlegir vegfarandur sæju
þann sem gengi um þær dyr.
Ég stikaði beint að dyrunum
og gekk upp þrepin tvö án þess
að líta til hægri né vinstri. Og
þegar allt kom til alls, þá var ég
eiginkona forstjórans. Fyrsti lyk-
illinn sem ég reyndi, rann inn í
skráargatið, en snerist ekki, og
svo var hann fastur Dg ég gat
ekki losað hann. Ég togaði og
hristi hann og á meðan óku tveir
bflar framhjá. Loks tókst mér að
ná lyklinum út og ég reyndi
hinn n'æsta. Hann gekk a§ ég
ég opnaði,
Inni var niðamyrkur nema
hvað dálítil skíma barst inn um
hringgluggann yfir dyrunum.
Eftir tvö skref kom önnur hurð,
og þegar ég var búin að opna,
skildi ég hana eftir í hálfa gátt
til aö ég gæti notfært mér ljós-
glætuna að utan. Það 'var kol-
dimmt í ganginum fyrir. innan,
en ég nauðþekkti hann eins Pg
hanzkann minn. Eftir nokkur
skref beypði maður til hægri og
þá kom stiginn.
Neðan við stigann voru dyr
sem lágu inn í' prentsmiðjuna.
Þær voru venjulega lokaðar á
næturnar, en í kvöld í stóðu þær
opnar. Ég stóð í gættinni og
horfði inn í salinn.
Ljósrákir féllu inn um glugg-
ana hér og þar, þær féllu á
stóru vélarnar og pappírshlað-
ana, en það var þögnin sem
hafði mest áhrif á mig. Ég hafði
aldrei fyrr komið í prentsmiðj-
una utan vinnutíma, og kyrrðin
varð enn magnaðri af því að
maður bjóst við að heyra hinn
gamalkunna gný.
Og í þessari dauðakyrrð, heyrði
ég svp allt í einu skrjáf. Það
kom frá þeim stað sem pappír-
inm stóð. Ég uppgötvaði að ég
kreisti lyklana svo fast að mig
kenndi til. Ég slakaði á. Og svo
gekk ég upp stigann.
.Ég hafði haft með mér vasa-
ljós, en ég notaði það ekki enn;
ég þreifaði mig in-n gangin.n. Ég
rakst á fötu, sem einhver ræst-
ingakonan hafði gleyrnt að fjar-
lægja.
Ég kom að skrifstofunni þar
sem símaborðið stóð og þreifaði
mig gegnum hann. í þetta sinn
rakst ég á stól; en dálítill há-
vaði kom ekki að sök, því að
enginn gat heyrt hann; aðeins
Ijós gæti komið upp um mig,
þvi að það gat sézt utanaf göt-
unni.
Dyrnar að gömlu skrifstofunni
minni, gjaldkeraskrifstofunni,
voru læstar, en ég fann lyki.linn
og fór inn. Nú var það ungfrú
Pritchett sem hafði starf mitt
með höndum. Mark hafði sagt
mér að> hún væri fimmtug og
fær í starfi, en heldur sein. Ég
velti fyrir mér hve mörgum
launaumslögum hún og Susan
Clahon hefðu gengið frá.
Hér voru tveir gluggar og eng-
in rennitjöld fyrir, svo að ég
varð að bjarga mér í myrkrinu
fyrst um sinn.
Ég gekk að peningaskápnum
og stekk lyklinum f lásinn. Hann
rann inn og snérist jafnmjúk-
lega og auðveldlega* og í vase-
línskrukku. Ég opnaði og kveikti
á vasaljósinu mínu.
Allt virtist gánga eftip sörnu
snúru á skrífstPfunni og áður.
Launaumslögin lágu í snyrtilegri
röð á bakkanum og afgangurinn
af peningunum lá í skúffunni
fyrir neðan. Ég dró skúffu fram
og tæmdi hana i töskuna mína
— það er að segja: ég tók auð-
vitáð seðlana og silfurpeningana,
en skildi koparinn eftir. Svo tók
ég bakkann fram og fór að safna
úmslögunum.
Ég hugsaði með mér: þetta
er alveg eins og það hefði verið
fyrir sex mánuðum. Ég tek sömu
peningana úr sama peninga-
skápnum. Afskipti Marks hafa
bara seinkað þessu um missiri.
En afskipti Marks hafa því mið-
ur líka orðið þess valdandi, að
é| , er. þekkt undir mínu rétta
nafni og verð að flýja úr landi
ef ég á að bjarga mér. Og af-
skipti Marks höfðu líka orðið
til þess. að nú var ég gift og
ckki frjáls, að Forio var dáinn,
að Mark lá sjálfur á sjúkrahúsi
og hann myndi næsta dag eða
þar næsta dag fá nýtt áfall,
þegar hann kæmist að raun um
að ég var horfin.
Ég tróð hlaða af umslögum
niður í töskuna mína, en svo
hætti ég. Því að á sömu stund
þyrmdi allt í einu yfir mig aft-
ur af sorg minní yfir Forio, og
ég fór að skjálfa frá hvirfli til
ilja. Hamingjan má vita, af
hverju ég fór allt í einu að titra
svona; en þannig gekk þetta nú
til. Ég var fokreið út í sjálfa
mig fyrir ræfildóminn. En mér
fannst ég .allt í einu svo veik-
burða að ég gæti með engu
móti gengið út úr þessu húsi
með þessa peninga og ekið til
Torquay. En veikleikinn lá
ekki aðeins f vöðvum mínum;
harm var miklu fremur í vilja
mímim — Pg það var það sem
gerði mig svo reiða.
Ég horfði á peningana, og ég
horfði niður í töskuna mína og
ég lagði hvort tveggja frá mér
á gólfið, og svo settist ég niður
hjá bakkanum og töskunni og
reyndi að stappa stálinu í sjálfa
mig. Það er hræðilegt þegar
FÍFA auglýsir
Þar sem verzlunin hættir verða allar vör-
ur seldar n^eð 10% — 50% afslætti.
Verzlunin FÍFA
Laugavegi 99.
(inngangur frá Snorrabraut),
KARPEX hreinsar gólfteppin á angabragði
SKOTTA
— Víst er ég að læra- Ég nota bana bíxnann vel og dansa um leið.
Einangranarg/er
Húseigendur — Byggingameistarar.
Útvegum tvöfalt einangrunargler með mjög stutt-
um fyrirvara.
Sjáum um ísetningu og allskonai breytingar é
fluggum Útvegum tvöfalt gler f lausafög os sjá-
um um máltöku.
Gerum við sprungur 1 steyptum veggjiun með
baulreyndu gúmmíefni
Gerið svo vel og leitið tilboða.
SÍMI 5 11 39.
NÝKOMIÐ
Peysur, úlpur og terylenebuxur.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.
BÍLLINN
Gerið við bíla ykkar sjólf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BÍLAÞJÖNUSTAN
Auðbrekku 53. Kópavogi — Símj 40145
Lótið stilla bílinn
Önnums't hjóla-, ijósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti, platínur. ljósasamlokur
— Örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32/sími 13100
Hemlaviðgerðir
• Rennun: bremsuskálar.
• Slípum bremsudælur.
• Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 - Sími 30135