Þjóðviljinn - 28.11.1967, Blaðsíða 12
Átok á vinnumarkaðinum
og truflanir í framleiðslu
verða afleiðingar
ráðstafana ríkis-
stjórnarinnar
□ Frnmvarp ríkisstjórnai-
innar um nokkux fram-
kvæmdaatriði gengisfell-
ingarinnar var afgreitt við
allar þrjár umræður á
laugardag í efri deild Al-
þingis og gert að lögum.
Greiddu allir stjómar-
flokkaþingmenn í efri deild
atkvæði með því, en allir
þingmenn stjómarandstöð-
unnar í efri deild vom á
móti.
□ Við 1. umr. frumvarpsins
flutti Karl Guðjónsson ýt-
arlega ræðu og deildi fast á
ríkisstjómina fyrir kjara-
skerðingaráform hennar.
Ræðu ^sinni lauk Karl á þessa
leið:_
Það er auðvitað alveg rétt, að
framtíðin sker úr því, hvemig
tekst að láta þá aðila borga,
sem ríkisstjórnin greinilega hugs-
ar sem klyfjahesta sína undir
þær byrðar, sem hún nú er að
binda, þ.e.a.s launaanenn í land-
inu, hinn almenna borgara í
landinu, daglaunamenn, fast-
launamenn og sjórúenn, því í
þeim yfirlýsingum, sem fram
hafa komið, er kannski ekkert
augsýnilegra en það, að ríkis-
stjórnin hugsar sér að skerða
hlut sjómanna, sem við fiskveið-
ar fást.
Þeir fá kaup sitt greitt í afla-
hlut, og því er slegið föstu, af
hálfu talsmanna þessarar geng-
isfellingar, að við þá verði að
minnka hlut. Það verði að stofna
sérstakan sjóð til að jafna á miili
hinna einstöku aðila, sem að út-
vegi eða útflutningsframleiðslu
sjávarútvggsins vinna, og hvað
hver á að fá og af hverjum á
að draga liggur ekki fyrir, en
það liggur þó eitt fyrir, að af
sjómönnum á að draga.
Hvernig þeir koma til með að
una því, þegar þar að kemur,
vitum við heldur ekki, en það
mundi margur mæla, að ómak-
legri aðili til refsingar í þjóðfé-
lagipu væri vart finnanlegur
heldur en einmitt sá, sem dreg-
ið hefur að landi þau verðmæti,
sem þjóðin hefur lifað á og lif-
að sitt blómaskeið á nú á und-
anförnum árum.
En stjómarvöld landsins geta
hugsað sér ýmislegt og, talið
nauðsyn. Við höfum ekki fengið
að sjá það, hvað hér stendur til
i raun og veru. Stjórnin tilkynn-
ir það, að allt hafi borið áð með
svo bráðum hætti, að hún hafi
ekki haft tfma til að útfæra það
nánar, en orðið er.
Ég fyrir mitt leyti tel nú, að
þetta sé ekki eins nýtt mál fyrir
ríkisstjórnina eins og hún vill
vera láta. Ég tel það a.m.k. víta-
vert gáleysi af henni, ef hún hef-
ur ekki hugsað málið út frá
þeirri hlið fyrr heldur en á
iaugardaginn var, að hér gæti
þurft að fara fram gengisfelling.
Það er kannski eðlilegt, að ég
sé dálítið tortryggnari áþaðheld-
ur en menn almennt, þegar stjóm-
arvöld segja, að hlutina beri að
með bráðum hætti, geti það ver-
ið tilbúmngur viðkomandi stjóm-
ar sjálfrar. Ég rpinnist þess t.d.,
að þegar ég var formaður fjár-
veiti nganefndar, sem einn fyrsti
reikningurinn, sem rekinn var
frarnan í mjg sem slíkan, frá
vegagerð ríkisins, sem hún hafði
eytt umfrarn fjárlög efti'r ráð-
herraheimild, og rökstuðningur-
inn fyrir því, að þessi .reikning-
ur væri til orðinn, var á þálund,
að 900 ára afmæli Skálholtsdóms
hefði borið að með bráðum
hætti, svo veginn þangað heim
hefði þurft að leggja í nætur-
vinnu.
Þetta rifjast nú upp fyrir mér.
þegar ríkisstjórn Islands segir,
að gengisbreytinguna hafi borið
að með svo bráðum hætti, að
hún hafi bara aldrei hugleitlþáð
fyrr en búið var að fella gengi
pundsins. Þá má hver lá mér
sem vill, að ég er dálítið van-
trúaður á, að þetta sé svona í
raun og veru. En eitt er víst, að
allar þessar aðfarir, sem. hér eru
hafðar í frammi, bjóða upp á
átök á vinnumarkaðinum. Þær
eiu líklegar til þess að valda
truflunum í framleiðslu þjóðar-
innar og ég er ekki enn sann-
færður um, að hinn vísi mað-
ur, sem 'ég hef áður vitnað til
og sagði fyrir ekki ýkja löngu,
að gengisfellingin mundi skapa
fleiri vandamál en hún leysti,
hafi haft rangt að mæla.
Frá doktorsvöminni. Doktorsefnið lengst til vinstri í ræðustól, þá annar andmælendanna,
Kristján Sveinsson dósent I ræðustól, síðan dr. Tómas Helgason forseti læknadcildar og loks
hinn andmælandinn, prófessor Júlíus Sigurjónsson. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.)
Margt manna var við doktorsvömina, er fór fram í hátíðasal háskólans, og bar þar að sjálf-
sögðu mest á mönnum úr læknastétt- — (Ljósm. Þjóðv. A.K.)
I Guðmundur Björnsson ver doktorsritgerð
i
Sl- laugardag kl. 2 síðdegis
fór fram doktorsvöm við
læknadeild Háskóla Islands.
Var það Guðmundur Bjöms-
son augnlæknir sem þar varði
doktorsrit sitt um gláku á Is-
landi (The primary Glaucoma
in Iceland). Andmælendur af
hálfu læknadeildarinnar voru
Kristján Sveinsson augnlækn-
ir, dósent, og prófessor Júlí-
us Sigurjónsson, en forseti
læknadeildarinnar, dr. Tómas
Helgason, stjómaði athöfninni.
Ritgerð sína byggir hinn
nýi doktor á visindalegum
rannsóknum sem hann hefur
gert á un^lanfömum árum á
gláku hér á landi, en sam-
kvæmt niðurstöðum þeirra
munu þrír af hverjum fjórum
blindum mönnum hér á landi,
sem komnir eru yfir sextugt,
hafa orðið blindir af völdum
gláku. Er tiltölulega auðvelt
að lækna sjúkdóminn, ef hann
finnst á byrjunarstigi, en
menn geta' gengið með hann
lengi án þess að vita af því-
Fjallar dr. Guðmundur m.a.
í ritgerð sinni um leiðir til
þess að finna sjúkdóminn áð-
ur en einkenni koma í ljós.
>
!
I
Almenn verðhækkun 8%
Stjórmn ætlar að skófla 1000 milj. kr. í ríkissjóð
Á fundi neðri deildar alþingis
í gærkvöld skýrði Lúðvfk Jós-
epsson frá upplýsingum er Jón-
as Hsralz hafði gefið fjárhags-
nefnd «m gengisfellingarmálið,
en ráðherramir hafa semkunn-
ugt er engum fyrirspumum
svarað.
□ Jónas haföi m.a. talið
líklegt að almenn verðlags-
hækkun af völdum gengis-
lækkunarinnar yrði a.m.k.
8 prósent.
□ Ráðgert væri að halda
ijllum tekjuöflunarráðstöf-
unum úr hinu fyrra efna-
hagsmálafrumvarpi ríkis-
stjómarinnar, nema far-
miðaskattinum.
□ Lúðvik sýndi fram á að
með þessu móti virtist rík-
isstjórnin ætla að skófla um
1000 miljónum króna í rík-
issjóð auk hagnaðar af
gengislækkuninni.
Víðtækar breytingartillögur við
frumvarpið um afnám verðtrygg-
ingar launa sameiginlega frá
Alþýðubandalaginu og Fram-
sóknarflokknum, m.a. um að
taka upp verðtryggingarákvæði
sömu og 196é felldi stjómarliðið
og samþykkti frumvarpið óbreytt
úr neðri deild.
Hitalaust í suðvesturbænum
Aðalæðin sprakk
í Skothúsveginum
I fyrrakvöld sprakk aðalæð
hitaveitunnar sem liggur um
Skothúsveg til Vesturbæjarins og
var allur Suðvesturbærinn hita-
laus af þessum sökum í gærdag.
Viðgerð stóð yfir í allan gærdag
og var henni ekki lokið um kl.
20.30 er Þjóðviljinn hafði sam-
band við hitaveituna en þá var
búizt við að henni lyki á hverri
stundu. Er þess því að vænta
að fólk í þessum bæjarhluta haii
fengið hitann að nýju seint í
gærkvöld. Var viða orðið mjög
kalt í húsum af þessum sökum,
enda hvassviðri og kuldi í gær.
Ný verðlagsnefnd
Lagt var fram á alþingi í gær-
kvöld stjórnarfrumvarp um
breytingu á lögum um verðlags-
mál og er það efni þess að til
ársloka 1968 fari 9 manna nefnd
— verðlagenefnd — með verð-
lagsákvarðanir- Fjórir nefndar-
manna skulu tilnefndir af Al-
þýðusambandi Islands, 2 af
Vinnuveitendasambandi tslands,
1 af Verzlunarráði Islands, 1 af
Sarrrbandi íslenzkra samvinnufé-
laga og oddamaður er ráðuneyt-
isstjórirm í viðsfciptamálaráðu-
neytinu og skal hann vera for-
maður. Meirihluti atkvasða ræð-
ur ákvörðun verðlagsnefndar,
verði atkvæði jöfn skal atkvæði
formanns ráða. Núverandi verð-
lagsnefnd skal lögð niður.
Frumvarpið var tekið til með-
ferðar á kvöldfundi í gær og
mun ætlunin hafa verið að af-
greiða það úr neðri deild i nótt.
Ölvun við akstur:
Aðfaranótt sunnudagsins varð
umferðarslys ‘á mótum Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar.
Bifreið úr Reykjavik var ekið
austur Miklubraut. 3 meiddúst í
þessum árekstri. ökumaður og
farþegi i bílnum sem ók suður
Kringlumýrarbraut slösuðust,
ökumaðurinn slasaðist á höfði og
— þrennt slasast
var fluttur á Slysavarðstofuna.
en talið var að hann væri olvað-
ur. Farþegi í þeim bil mun hafa
viðbeinsbrPtnað og farþegi í hin-
um bílnum meiddist á fótum.
Flytja varð báðar bifreiðamar
frá slysstaðnum með kranabíl
þar sem þær voru ekki ökufær-
ar vegna skemmda-
Bát rak upp á sker við Sjávarhóla
Fjórir ungir menn
lentu í hrakningum
1 fyrradag rak Svöluna RE-245,
sem er fimm tonna trilla, upp
að skerjum við Sjávarhóla á
l'jalaimesi. Fjórir ungir menn
voru um borð i trillunni: Alex-
andes Árnason, Harry Sigur-
jónsson, Hreinn Sigurjónsson, og
Sveinbjörn Bjömsson. Voru
mennimir hætt komnir, sérstak-
lcga einn þeinra sem fór fyrr
frá borði en hinir, en allir kom-
ust þeir þó lífs af úr háskanum.
Mennirnir lögðu af stað frá
Reykjavík rétt eftir hádegi í
fyrradag og var ætlun þeirra að
huga að íugli í Hvalfirði. Á móts
við Brautarholtsnes á Kjalar-
nesi bilaði vélin í bátnum. Komu
þeir vélinni ekki I gang aft-ur og
tóku þann kostinn að vinda upp
segl og gátu þannig varizt
strandi í alllangan tíma.
Það fór þó svo að lokum að
báturinn lenti á skerjum á móts
við bæinn Sjávarhóla. Þrír
mannanna voru í bátnum þar
sem hann velktist í brimgarðin-
um en einn þeirra reyndi að
koma sér á þurrt. Lenti sá f
miklum hrakningum og er talið
að hann hafi brákazt eitthvað.
Þar kom að hinir þrír urðu áð
yfirgefa Svöluna líka og um
fimmleytið komu þeir allir fjórir
að bænum Sjávarhólum. Þeir
voru síðan fluttir á Slysavarð-
stofuna í Reykjavík.
Ekki mun vera unnt að ná
Svölunni út enda hefur hún orð-
ið fyrir töluverðum skemmdum.
Munu mennirnir hafa ætlað að
flytja hana á bil til Reykjavík-
ur. Tveir þeirra sem lentu í
hrakningúnum í fyrradag voru
eigendur bátsins.
Nýja gengis-
skráningin
í gær birti Seðlabankinn
hina nýju skráningu er-
lendrar myntar eins og hún
er eftir gengisfall íslenzku
krónunnar í sl. viku:
1 Bandar. dollar 57,07
1 Sterlingspund 138,09
1 Kanadádollar 52,91
100 Danskar krónur 763,72
100 Norskar krónur 798,88
100 Sænskar krónur 1.102,85
100 Finnsk mörk 1.366,12
100 Franskir frankar 1.164,65
100 Belgiskir frank. 115.00
100 Sviissn. frankar. 1322.51
100 Gyllini 1.587.48
100 Tékkn. krónur 792,64
100 V-þýzk mörk 1.434,80
100 Lírur 9,17
100 Auskirr. sch. 220,77
100 Pesetar 81,53
100 Reikningskrónur
Vöruskiptalönd 100,14
1 Reikningspund-
Vöruskiptalönd 136,97