Þjóðviljinn - 18.02.1968, Side 1
*
Þurfa að umréikna tollreikn-
ingana vegna nýju laganna
Talsvert annríki er hjá toll-
afgreiðslunum þessa dagana
vegna tollaellækkananna og þarf
að umreikna þó nokkuð af toll-
reikningum ádur en vörurnar
verða ' afgreiddar samkvæmt
nýju lögunum.
F/rir lá í gær bæði á skrif-
stofu tollstjóra og á Tollpóst-
stofunni þó nokkurt magn fylgi-
bréfa með vörum sem nú lækkar
tollur á, og sem búið var að
reikna út eftir eldri reglunum,
Framh. á 12. síðu.
%
Barnaskemmtun í Austurbæjarbíói i dag
KI. hálftvö í dag verður haldin barnaskemmtun í Austurbæjarbíói, þar sem kemur fram fjöldi
skemmtikrafta, m.a. Kátir krakkar, sem sjást hér á myndinni, en þetta eru frændsystkini sem æfðu
saman söng og leiki í sumardvöl í Steinamóðabæ, Eyjafjöllum, undir stjórn Sigríðar Sigurðardótt-
ur. SI. sumar ferðuðust Kátir krakkar um landið og skemmtu víða við góðar undirtektir.
uni sagt upp
Átta mönnum á skrifstofu
Eimskipafélags íslands hefur
verið sagt upp störfum hjá fyr-
irtækinu, en þessir starfsmenn
hafa þriggja mánaða uppsagn-
arfrest. Þá hefur verið skýrt frá
því hér í blaðinu, að 42 fastráðn-
um verkamönnum hefur enn-
fremur verið sagt upp störfum.
Þannig hefur Eimskip sagt upp
50 mönnum á öllum starfsaldri
hjá fyrirtækinu.
tölublaö.
41.
Sunnudagur 18. febrúar 1968 — 33. árgangur
Bandarískir vélfræðingar rannsaka slysið
á Reykjavíkurflugvelli í síðastliðinni viku
Þrír bandarískir sérfræðingar
komu hingað í fyrramorgun til
að ranusaka flugslysið sem varð
í Nauthólsvik $1. þriðjudags-
kvöld, er Skymastervél banda-
rísku flugmálastjórnarinnar rann
út af brautinni við lendingu.
Sérfræðingarnir eru sendir
hingað á vegum bandarísku flug-
málastjórnarinnar (Federal Avi-
ation Agency) og eiga að rann-
saka slysið, afla allra upplýs-
inga í sambandi við það og á-
kveða síðan hvað gert verður
við flugvélina. í gær ræddu þeir
við Sigurð Jónsson yfirmann
Loftferðaeftirlitsins og fleiri.
Eins og áður hefur komið fram
í fréttum er vélin talin gjörsam-
lega ónýt, en dýrmætum tækjum
tókst að bjarga úr henni.
Hafa aukasýningu á Myndum
Vegna mikillar aðsóknar og mjög góðra undirtekta hefur verið
ákveðið að hafa aukasýningu á „Myndum“, sem Litla leikfélagið
frumsýndi fyrir skömmu, en fyrirhugað var að hafa aðeins þrjár
sýningar. — Sýningin er í tveimur þáttum, „Gömul mynd á kirkju-
vegg“, eftir Ingmar Bergman og „Nýjar myndir“ eftir kunna
höfunda og ókunna, en sá hluti sýningarinnar hefur að mestu
orðið til á sviðinu. Samanstendur hann af söngvum, látbragðsleik,
fréttatilkynningum o. fl., en leikstjóri á báðum þáttunum er Sveinn
Einarsson. Leikendur hafa sjálfir séð um ljós, tónlist, búninga o.fl.
Aukasýningin verður n.k. þriðjudagskvöld kl. 8,30 í Tjarnarbæ.
Á myndinni hér að ofan sjást Edda Þórarinsdóttir og Sigmundur
Örn Arngrímsson í þættinum „Gömul mynd á kirkjuvegg“.
Báru sigur úr být-
um með verkfalli
□ í fyrradag lauk starfs-
mannaverkfalli hjá Stálvík
h.f. í Arnamesi og fékk
starfsfólkið nú loks greitt
tæpa miljón króna í kaup-
greiðslur á föstudaginn og
lauik þessu verkfalli þannig
með fullum sigri starfsfólks-
ins.
□ Starfsmannaverkfalliö haföi
staðið yfir hátt á aðra viku og
fékk Stállvík loks lán í atvinnu-
leysistryggingarsjóði til þess að
greiða vinnulaunaskuldir til
starfsfólksins. Nam það tæplega
miljón króna og höfðu þessar
vinnulaunaskuldir safnazt fyrir
í S'öttum síðan um miðjan des-
ember.
□ Þar var um að ræða 30 til
40 manns og 'fengu allir greitt
hjá fyrirtækinu: skrifstofufólk,
starfsfólk í mötuneyti og svo
starfsmenn í smiðjunum.
□ Þá mun Stálvík h. f. hafa
fengið loforð um fyrirgreiðslu á
verkefnum.
Pagsbrún heldur félagsfund í dqg
TUGIR FÉLAGA HAFA SAM-
ÞYKKT VERKFALLSHEIMILD
■ í dag heldur Verkamannafélagið Dagsbrún al-
mennan félagsfund 1 Tjarnarbæ og hefst fundur-
inn kl. 2. Fundarefni er kjara- og atvinnumál.
■ Trésmiðafélag Reykjavíkur heldur almenn-
an félagsfund í Tjarnarbúð og hefst fundurinn kl.
2. Fundarefnið er ályktanir framhaldsþings -A.S.Í.
og verkfallsheimild.
ranahrepps, Drangsnesi, Verka-
lýðs- og sjómannafélagið Bjarma
á Stokkseyri, Félag byggingar-
iðnaðarmanna, Selfossi, Járniðn-
aðarmannafélag Ámessýslu, Sel-
fossi, Verkamannafélagið Fram,
Sauðárkróki, Verkalýðsfélagið í
Hveragerði, Verkalýðsfélag Aust-
ur-Húnvetninga, Blönduósi, og
þannig mætti telja.
Dr* Oddur afhendir skilríkin
Núna um helgina er jafnframt
vitað um íundi í trúnaðarmanna-
ráði margra verkalýðsfélaga hér
í borginni og úti á landi, þar
sem gengið er frá umboðum til
handa átján manna nefnd A.S.Í.
í samningagerð við atvinnurek-
endur um verðtryggingu kaups-
ins eftir 1. marz.
Þar má nefna Félag járniðn-
aðarmanna, Verkakvennafélagið
Framsókn og fleiri félög. Þá eru
þessi félög líka að ganga frá
Rithöfundafélag
íslands mótmælir
dómum í Sovét
Á fundi í Rithöfundafélagi ís-
lands 28. janúar var samþykkt
eftirfarandi ályktun:
„Fundur i Ritliöfundafélagi ís-
lands 28. janúar 1968 fordæmir
skerðingu ritfrelsis og málfrels-
is í Sovétríkjunum, sem nýlegir
dómar yfir ungum rithöfundum
þar vitna um, og vonar að stjórn-
arvöld Sovétríkjanna endurskoði
afstöðu sína“.
verkfallsheimildum til þess að
tygja átján manna nefndina hinu
.eina raunhæfa vopni alþýðunn-
ar hér á landi — allsherj arverk-
fall til þess að knýja hina sjálf-
sögðu kröfu um verðtryggt kaup
fram.
Tíminn er líka orðinn naumur
til stefnu, þar sem tilkynna þarf
með viku fresti verkfall 1. marz.
Reynir nú á samstöðu verkalýðs-
félaganna.
, Síðustu daga hefur skeytum
rignt yfir skrifstofu A.S.Í., þar
sem verkalýðsfélög úti á landi
veita átján manna nefndinni um-
boð og jafnframt verkfallsiheim-
ild og má þar nefna félög eins og
Verkalýðsfélagið Þór á Selfossi,
Verkalýðsfélagið Einingu á Ak-
ureyri, Verkamannafélagið Bár-
una á Eyrarbakka, Bílstjórafélag
Akureyrar, Verkalýðsfélag Kald-
Dr. Oddur Guðjónsson hefur nýlega afhent skilríki sín sem
ambassador íslands í Sovétríkjunum og er myndin tekin af hon-
um (til hægri) og formanni Æðsta ráðs Sovétríkjanna T. Kulatov,
við það tækifæri. (Ljósm. Tass).
Þorskur og ýsa hækka 20%
□ Enn ein verð'hækkunin I kvæmda í gær, en þá hækk-
á brýnustu lífsnauðsynjavör- aði verðið á nýjum fiski um
um almennings kom til fram-120%. Aðeins tvær fisktegund-
ir eru háðar verðlagsákvæð-
um, þorskur og ýsa, en að
sjálfsögðu hækka aðrar teg-
undir einnig til jafnaðar.
□ Hækkanirngr eru sem
hér segir:
□ Nýr þorskur með haus
hækkar úr 10 í 12 krónur
kílóið, hausaður þorskur úr
12,50 í 15 krónur kílóið og
kílóið af þorskflökum úr 24
krónum í kr. 28,50.
□ Ný ýsa með haus kostar
nú kr. 14,40 kílóið, var áður
á kr. 12, hausuð ýsá hækkar
úr 15 krónum í 18 pr. kg. og
ýusflök hækka um 5,50 kíló-
ið, úr kr. 28 í kr. 33,50.
Skrifstofumönn-
<