Þjóðviljinn - 18.02.1968, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 18.02.1968, Blaðsíða 2
2 H. ftfcefier W68. ^ 1 13. sýning á Billy lygara Gott líkamlegt ástand öku- manna, ásamt hugarjafnvægi þeirra, minnkar því við- Blautt malbik lengir mjög hemlunarvegalengd. Þessi mynd er af einum árekstri, sem ; átt hefur sér stað undir þeim kringumstæðum. Góður ökumaður sýnir sérstaka aðgæzlu þegar malbik er blautt eftir rigningu. Stöðvunarvegalengdir UAAFERÐARNEFND REYKJAViKUR LDGREGLAN f REYKiAViK Vegalengd sú, sem bifreið fer frá þvi að ökumaður skynjar skyndilega þörf á hemlun og þar til hún hefur numið stað- ar, er kölluð stöðvunarvega- lengd. Stöðvunarvegalengd bifreiðar er misjafnlega löng eftir að- m LJÓSMYNDA SAMKEPPNI Umferðarnefnd Reykjavíkur og Iögregian í R^ykjavík hafa ákveðið að efna til Ijósmynda- samkeppni um „beztu svipmyndina úr um- ferðinni“ í samráði og samvinnu við Félag áhugaljósmyndara. Þáttta.ka f samkeppninni er öllum áhugaljósmyndurum frjáls, og skal skila myndum í síðasta lagi hinn 15. apríl n.k. til Fræðslu- og upplýsingaskrifstofu Umferð- arnefndar Reykjavíkur, Tþróttamiðstöðinni, Laugardal, Reykjavík. Einungis koma til greina svart/hvítar myndir. Minnsta stærð skal vera 18x24 cm, en mesta stærð 30x40 cnn. Veitt yerða tvenn yerðlaun: T. verðlaun, úttekt á Ijósmyndavörum eftlr eígin vali, kr. 15.000.00. 2. verðlaun, úttekt á Ijósmyndayörum eftir eigin vali, kr. 5.000.00. Að auki fá 4 myndir viðurkenningu. Umferðarnefnd áskilur sér rétt til sýningar á verðlaunamyndum í væntanlegri upplýsing- armiðstöð Umferðarnefndar, sem verður í Góðtemplarahúsinu í maí n.k., svo og til birtingar. FRÆÐSLU-OG UPPLÝSINGASKRIFSTOFA UMFERÐARNEFNDÁR REYKJAViKUR stæðum. Auðvelt er að gera sér grein fyrir því, að stöðvunar- vegalengdin eykst við aukinn hraða bifreiðarinnar, en minnk- ar við minni hraða bifreiðar. Sem dæmi má t.d. nefna, að stöðvunarvegalengd bifreiðar sem ekið er með 70 km hraða á klst. éftir þurrum malarvegi er G6j4 m. en sé hraði bifreiðar- innar aftur á móti helmingi minni, eða 35 km á klst., er stöðvunarvegalengdin „aðeins“ 21 m. Stöðvunarvegalengd = við- bragðsvegalengd + hemlun- arvegalengd. Stöðvunarvegalengdinni er venjulega skipt í tvo hluta, þ.e. viðbragðsvegalengd og hemlun- arvegalengd. Viðbragðsvega. lengdin og raiunverulega mæli- kvarði á viðbragðsflýti eða snarræði ökumanns. Allir öku- menn vita aftur á móti, að það eru margvísleg og margskonar atriði, sem hafa áhrif á snarræði þeirra. Þreyta, áfengisnautn o. fl. sljógvar öll skilningarvit og dregur úr athyglinni, sem aftur dregur stórlega úr snarræði ökumanns. Þekking þeirra á umferðarreglum og gott Ííkam- legt ástand þeirra, eykur snar- ræði þeirra og athyglisgáfu og minnkar þar með viðbragðs- vegalengdina. Athuganir eftirá- rekstra hafa leitt í ljós, að allt að 9 sek. geta liðið frá því að ökumaður skynjar hættu og þar til hann stígur á fóthemil. bragðsvegalengdiná. Hemlunarvegalengdin er aft- ur á móti mælikvarði á hæfni og útbúnað bifreiðarinnar og á- stand vegarins. Ýmis augljós at- riði hafa áhrif á hemlunarvega. lengdina og má þar m.a. nefna hraða ökutækisins, er hemlun hefst, halla vegarins, gerð hemlabúnaðar, tala þeirra hjóla sem hemlað er, gerg hjólbarða o. s. frv. Nú á þessum tíma árs- ins eru það einkum þrjú atriði, sem ökumenn ættu að athuga gaumgæfilega varðandi hemlun og hemlunarvegalengdir. Eitt þessara atriða á reyndar bæði við vetrarakstur og sumarakst- ur, en það er hraði ökutækisins. Með auknum hraða ökutækis- ins eykst hemlunarvegalengd, en hún minnkar, sé hraði öku- tækisins minnkaður. Sem dæmi má nefna, að sé bifreið ekið með hraðanum 70 km á klst. er hemlunarvegalengd hennar undir ákveðnum kringumstæð- um 49 m, en sé hraðinn minnk- aður um helming, niður í 35 km á klst., en aðrar aðstæður hald- ast óbreyttar, minnkar hemlun. arvegalengdin í 12,25 m. Samband hraða bifreiðarinn- ar og hemlunarvegalengdar hennar ættu ökumenn því ávallt að hafa í huga. Ástand vegarins hefur mjög mikil áhrif á hemlunarvega- lengdir bifreiðar, sem eftir hon- um. Auðvelt er að gera sér í hugarlund, að bifreið stöðvast á skemmri vegalengd á þurru malbiki en t.d. á ísuðum vegi. Staðreyndin er, að ísing á vegi, hvort sem hann er malbikaður eða malborinn, eykur heml- unarvegalengdina stórlega og sú staðreynd er mjög mikilvæg fyrir ökumenn að hafa í huga nú þessa dagana, þegar íslag myndast á vegi og götur á mjög skömmum tíma. Gerð hjólbarða hefur mjög mikil áhrif á hemlunarvega. lengd. Notkun vetrarhjólbarða, negldra eða ónegldra, minnkar hem\unarvegalengdina borið saman við notkun sumarhjól- barða við sömu aðstæður. Sér- staklega ættu ökumenn að hafa í huga þýðingu negldra vetrar- hjólbarða á ísilögðum vegum eða götum. Þessi atriði sem hér hafa laus. lega verið rædd, eru mjög mik- ilvæg hverjum ökumanni. Þekking hans á þeim og sam- bandi þeirra við stöðvunar- vegalengdina getur hæglega forðað honum frá slysi. Fjölsvinnsgleii, íþróttahátið kennaraskólanema á morgun Annað kvöld, mánudag, efna kennaraskólanemar í fyrsta s ipti til íþróttahátíðar og nefna hana „Fjölsvinnsgleði“ sem til foma þýddl fþróttakeppni eða leikir. Fjölsvinnsgleði verður haldin f gamla fþróttahúsinu að Há- logalandi og hefst kl. 8.15. Þar verður sitthvað til skemmkmar. Karlaflokkar úr Menntaskólan- um á Laugarvatni og Kennara- skóla íslands keppa f körfu- knattleik og stúlkur úr Mennta- skólanum f Reykjavík og Kenn- araskólanum keppa f hahdknatt- lei'k, einnig piltar úr Verzlunar- skólanum og K. f. Geta allir þessir leikir orðið jafnir og tví- sýnir. Þá sýna stúlkur fimleika, þjóðdansar verða sýndir undir stjóm Þóru Ólafsdóttur, anti- sportlstar svonefndir, piltar og stúlkur, leika fótbolta og loks fer fram keppni í blaki milll kennara og stjómar Skólafélags Körfuknattleikur í kvöld fara fram tveir leiklr í Islandsmótinu f körfuknattleik, 1. deild: KR — KFR, ÍR — ÁR-' MANN. Leikimir verða í Laue- ardalshöllinni og hefst keppnin kl. 20.00. Kennaraskóla íslands- Það er í- þróttanefnd Skólafélagsins sem stendur fyrir Fjölsvinnsgleðinni, en hana skipa Margrét Jónsdótt- ir og Sigvaldi Ingimundarson. f dag kl 3 síðdegis verður Billy lygari sýndur í 13. sinn í Lindar- bæ. Fer sýningum á leikritinu nú að fækka úr þessu en aðsókn hefur verið góð. SÝNISH0RN AF VERÐUM Á ÚTSÖLUNNI Barna-ullarúlpur Barnagallar . . . Drengjajakkar . . Gallabuxur . . . . Kvensíðbuxur . . Drengjaföt . . '. . kr. 350 kr. 350 kr. 150 kr. 95 kr. 495 kr. 95 Notið tækifærið og sparið peningana. Laugavegi 31 ÚTSALA - ÚTSALA i Útsölunni er að Ijúka — ótrúlega góð kaup Viljum sérstaklega benða á: Kvenkuldaskó — Drengjakuldaskó — Karlmannaskó í mjög góðu úrvali og góðu verði. Kvenskó og kveninniskó á afar góðu verði. SKÖVERZLVN Vetms /Zndn&ssoncui Langavegl 17 Framnesvegi 2 Laugavegi 96

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.