Þjóðviljinn - 18.02.1968, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.02.1968, Blaðsíða 7
w f Eftir Jóhann Pól Árnason Þvert á móti hafa þeir reynt að svara með endurnýjun sósi- alismans í róttækari mynd, með því að fullkomna hugmyndij; sósíalismans þannig að þær samsvari þeim möguleikum, sem þjóðfélags- og tækniþróun- in hefur opnað, og gera þær um leið að virkari þætti í pólitískri baráttu sinni en áð- ur hefur tíðkazt hjá verkalýðs- flokkum. Þeir gera sér að visu ljóst, að arftekinn baráttu- grundvöllur verkalýðshreyfing- arinnar er að mörgu leyti úr- eltur og ófullkominn, en þeir hafa ekki svarað með þvi að draga saman seglin, heldur reynt að renna undir hann traustari stoðum. Hér hafa runnið saman í eitt endurskoð- un og endurvakning: hafnað hefur verið ýmsum þeim hug- myndum, sem undanfama ára- tugi voru taldar óvefengjanleg sannindi, en jafnframt hefur verið sýnt fram á, að rétttrún- aðarmarxismi stalínstímabils- ins þýddi í raun og veru veru- lega skerðingu og afbökun, þegar hann er borinn saman við klassískan marxisma. Ýmsar þær hliðar marxismans, róttækari arms verkalýðshreyf- ingarinnar gegn þeim. Það er óvefengj anleg stað- reynd, að í Vestur-Evrópu er um þessar mundir ekki bylting- arástand; verkalýðshreyfingin. getur ekki i náinni framtíð gert sér vonir um annan ár- angur en umbætur innan vé- banda hins kapítalíska skipu- lags. Það skiptir því höfuð- máli, hver skilningur er lagð- ur í þetta verkefni: Róttækir sósíalistar hljóta að líta á um- bæturnar fyrst og fremst sem áfanga á leiðinni að víðtækara markmiðl, sem hreyfingin hef- ur stöðugt í huga og reynir að gefa sem nákvæmast innihald, jafnframt því að hún beitir því sem mælikvarða á daglega pólitíska baráttu. Aðrir hafa sætt sig án frek- ari umhugsunar eða gagnrýni við þá staðreynd, að hreyfing- in verði að vinna að umbótum, miðað allt starf hennar við þetta og gert ráð fyrir, að sósí- alisminn muni verða til í fyll- ingu tímans sem niðurstaðan • af einfaldri samlagningu um- bótanna, án 'þess að í dag þurfi að reyna að beina hverrj ein- i Sunnudagur 1S. febrúar 1968 — ÞJÓÐVTLJINN — SlÐA ískum úrræðum, á því, að þau geti í nokkrum höfuðatriðum orðið önnur en hin borgara- legu. Að svo miklu leyti sem deil- urnar innan Alþýðubandalags- ins hafa snúizt um málefni, hefur það verið nokkuð tilvilj- unarkennt, hvað hæst bar í hvert skipti. Síðustu mánuðina hefur það þó verið vandamál, sem er vissulega íhugunar vert og snertir náið öll þau atriði, sem rsett var um hér að fram- an, en það er afstaða sósialísks flokks til hinnar faglegu verka- lýðshreyfingar. Allt frá upphafi kapítalism- ans hefur verkalýðsstéttin bar- izt fyrir beinum hagsmunamál- um sinum á þeim vettvangi, sem þjóðfélagið markar henni, án þess að það nauðsynlega hefði £ för með sér afneitun þessa þjóðfélags sem slíks eða ákveðnar hugmyndir um, hvað koma ætti í staðinn. Hinn vís- indalegi sósialismi er ekki sjálf- krafa afleiðing þessarar bar- áttu. en hann er heldur ekki ekki talið sér nein þjóðfélags- mál óviðkomandi og hlýtur því einnig að marka sér ókveðna stefnu í kjaramálum verkalýðs- stéttarinnar. Allt tal um, að þetta þýði ,,stjórn“ flokksins á verkalýðssamtökunum, er út í hött. Þvi hefur aldrei verið haldið fram af vinstra armi Alþýðubandalagsins, að verka- lýðssamtökin sem slík ættu að vera undirgefin flokksstofnun- um, en þeir meðlimir flokksins, sem í verkalýðssamtökunum starfa, hljóta fyrst og fremst að koma þar fram sem fulltrú- ar ákveðinnar stefnu, og séu þeir kosnir þar til trúnaðar- staría, eru þeir því skuldbundn- ir bæði flokknum og kjósend- um sínum í verkalýðssamtök- unum til að framfylgja hénni. Sósialískur flokkur verður að sjálfsögðu að leyfa umræður um og gagnrýni á stefnu sína i verk alý ðs mál u m jafnt sem öðrum málum, en slíkar um- ræður koma þvi aðeins að nokkru gagni. að fyrir hendi sé einhver sameiginlegur grundvöllur sem flokkurinn byggir á, og sá grundvöllur hlýtur að móta starf verkalýðs- þjóðfélagsins. Stéttarsamtökin eru þannig neydd til að fást við mörg sömu vandamál og flokk- urinn. En eins og sýnt hefur verið fram hér að framan, er sjálfur tilyerugrundvöllur þeirra annar en flokksins, og af þvi leiðir, að sömu vanda- mál birtast þeim í öðru sam- hengi og í öðru ljósi: þau eru ekki frá upphafi þáttur i fyrir- ætlun um ákveðna heildar- breytingu þjóðfélagsins. En reynsla og viðhorf stéttarsam- takanna á hverjum tíma hljóta að verða flokknum rannsóknar- efni og eitt af þvi, sem hann tekur mest tillit til, þegar hann r^ótar stefnu sina, þótt hann á hinn bóginn láti sér ekki þessa reynslu nægja, eins og hún kemur fyrir, he|dur reyni að túlka hana fræðilega. Hvort tveggja er því jafnfjarlægthlut- verki sósíalísks flokks við nú- tíma aðstæður: skilgreining Ól- afs Hannibalssonar, sem telur að flokkurinn eigi að flyt.ja fagleg sjónarmið inn á Alþingi, og skilgreining Stalíns, sem taldi stéttarsamtökin verkfæri flokks- ins og ekkert armað (sjá „Vandamál Lenínismans“>. i K Þá sjaldan að fram koma fastmótaðar pólitískar hug- myndir hjá óskapnaði þeim, sem kalar sig „frjálslyndari arm Alþýðubandaiagsins“, eru þær allt annað en frumlegar. Þær sýna, að enda þótt fyrir- bæri þetta gé að nokkru mótað af íslenzkum aðstæðum, er það þegar öllu er á botninn hvolft aðeins fátæklegri útgáfa af stefnu þeirri, sem gert hefur undanfarinn áratug vart við sig í allri V-Evrópu, þótt í mis- munandi ríkum mæli sé eftir löndum, og miðar að því að leysa vanda róttækra sósial- iskra hreyfinga í þessum hluta heims með afturhvarfi til sósi- aldemókratískra hugmynda. Þar sem þessi stefna hefur orðið yfirsterkari, hefur hún leitt til þess að stjórnmálahreyfingar, sem'upprunalega settu sér það markmið að vinna að sósíal- ískri umsköpun þjóðfélagsins, hafa smátt og smátt sætt sig við að vinna eingöngu innan vébanda ríkjandi þjóðfélags og miðað starf sitt við árangur á þessum vettvangi, án þess að hugleiða nánar. hvort hann sé áfangi á leiðinni að hinu sósí- alíska takmarki, eða hvort hann þvert á móti styrki ríkjandi þjóðfélagskerfi óg festi það i sessi. Áþreifanleg- asta dæmið um þessa þróun er sem kunnugt er sósíalista- flokkurinn á Ítalíu, en sömu stefnu tók hinn hægrisinnaði meirihluti i SF-flokknum danska. og hún hefur einnig gert vart við sig innan komm- únistaflokkanna (og virðist oft vel geta samrýmzt yfirborðs- fastheldni á pólitískar kreddur. sem slitnar eru úr tengslum við pólitísk vandamál nútim- ans.) Síðustu 10—15 árin hefur rót- tækari armur verkalýðshreyf- ingarinnar í Vestur-Evrópu í vaxandi mæli orðið að viður- kenna. að þjóðfélagskerfi sósí- alisku landanna, eins og það er nú, getur ekki verið fyrir- mynd að sósíalisma í Vestur- Evrópu, og fyrri hugmyndir kommúnistaflokkanna um sósi- aliska byltingu fá heldur ekki staðizt við þær aðstæður, sem myndazt - hafa í háþróuðum kapítaliskum löndum. En rót- tækir sósíalistar hafa jafnframt neitað að viðurkenna, að þetta þýddi ógildingu sósíalismans. að sósíalísk bylting væri úr sögunni sem pólitískt markmið. sem þannig höfðu um langt skeið horfið í skuggann, reyn- ast í dag enn timabærri en þegar þær fyrst voru settar fram; það þýðir auðvitað ekki, að hægt sé að sækja til höf- unda marxismans íullmótað kenningakerfi, heldur eru það fyrst og fremst nokkrar grund- vallarhugmyndir, sem þarfn- ast nánari skýrgreiningar í ljósi siðari þróunar, en eru um leið bezti lykillinn að þessari þróun. Þessi stefna hefur ekki ver- ið bundin við ákveðna flokka, frekar en andstæða hennar, sem áður var lýst, en auðveld- ast hefur hún átt uppdráttar innan vinstri- sósialistaflokk- anna, og mundi líklega ekki fjarri sanni, að hún hafi einn- ig komið skýrast fram á ítaliu, í röðum hins svokallaða „Sósí- alíska einingarflokks öreig- anna“ (P.S.I.U.P.) Það liggur í augum uppi, að þessi lausn á vandamálunum er allt annað en auðveld: hún getur ekki lofað verulegum pólitískum sigrum í náinni framtíð, og á þessu stigi máls- ins kemur hún frekar fram í almennum grundvallaratriðum en stefnuskrá mótaðri í smá- atriðum, sem krefst langvinns undirbúningsstarfs, eigi hún að hafa varanlegt gildi. Þetta hef- ur. að sjálfsögðu stórum auð- veldað leikinn hinni stefnunni, sem þannig hefur getað náð eyrum ýmsra. er óskað hafa fyrst og fremst eftir einfaldri. fljótvirkri og pólitískt ábata- vænlegri lausn, en gefið minni gaum að því, hvort hún stæð- ist sósialískt mat. Tvö önnur atriði hafa hér einnig haft sín áhrif: Annars vegar hafa sjálf- ir sósíaldemókrataflokkarrrir í Vestur-Evrópu tekið ákveðnum breytingum, þeir hafa bæði i orði og á borði samlagazt æ meir hinu borgaralega þjóðfé- lagi, og það hefur orðið til þess, að margir sem andvíg- ir hafa verið þessari þróun, án þess að gera sér grein íyrir rótum hennar og hugmynda- legum forsendum, hafa litið svo á gð leiðin til úrbóta væri sú að endurreisa fyrri hug- myndir þeirra. Á hinn bóginn hefur gagnrýni kommúnista á sósialdemókrötum um langan aldur verið um of á þann veg, að saka þá um málefnalega gagnrýni á skoðunum þeirra. Þetta hefur veikt mótstöðu hins stakri umbótaráðstöfun í sósí- alíska átt. Það sem íylgismonn- um þessarar leiðar sést yfir, er að kapítalisminn er í þróaðri hluta heii.isins kominn á það stig, að hann bæði leyfir og þarfnast stöðugra umtoóta í þágu sjnna eigin markmiða, umbóta, sem stefna að því að fullkomna vald hinna kapítal- isku lögmála, sem fullkomna kerfið í smáatriðum, án þess að hróflað sé við heildarsam- henginu. Ef sósíalískur flokkur gerir ekki skýran greinarmun á þessum umbótum og öðrum, sem ætlað er fyrst og fremst að breyta valdahlutföllunurrj í þjóðfélagmu og mynda áfanga á leið sósialismans, og lærir ekki að tefla hinum siðar- nefndu gegn hinum fyrrnefndu, verður allt tal hans um sósíal- isma markleysa; hann er hvorki undir hann búinn sjálfur, né heldur getur hann unnið sósí- alískum úrræðum fjöldafylgi í þjóðfélaginu — frumskilyrðið til þess er, að sýnt sé fram á, i hverju þau greinast frá hin- um borgaralegu. Þeirri hugmyndalegu for- sendu sósíaldemókratiskrar stefnu, sem hér var lýst, .sam- svarar ákveðin pólitísk niður- staða, sem ljós hefur orðið bæði á ítaliu og í Danmörku: sósíalískur flokkur hefur byrjað samstarf við borgaraleg öfl á grundvelli stefnuskrár, sem fól i sér róttækar umbætur; smátt og smátt hefur komið í ljós, að hinn borgaralegi samstarfs- aðili var ekk; reiðubúinn að standa við orð sin, en þá hafa sósialísku flokkarnir eigi að siður haldið dauðahaldi í sam- starfið og talið, að það eitt skipti nægilega miklu máli til þess, að í þágu þess mætti fórna um lengri eða skemmri tima hinni upprunalegu stefnu- skrá; það væri að minnsta kosti trygging gegn öðru verra. Þeir hafa forðazt að skoða mál- ið í víðara sögulegu samhengi og hugsa út í það, hver áhrif samstarf án nokkurs sósíalísks innihalds hefur annars vegar á flokkinn sjálfan, hins vegar á þær stéttir þjóðfclagsins, sem sósíalisminn verður að leita til um fjöldafylgi: ef hið dag- lega pólitiska starf flokksins er slitið úr öllum tengslum við sósíalisma, hlýtur hann smátt og smátt að samlagast um-. hverfi sínu og út á við skapar fordæmi hans vantrú á sósíal- fluttur inn í verkalýðshreyfing- una utan frá, eins er stundum lýst: hann er árangur þess, að stéttabaráttan í hinu kapital- íska þjóðfélagi er skoðuð í víðara sögulegu og hugmynda- legu samhengi og komizt er að þeirri niðurstöðu, að verka- lýðsstéttin nái því aðeins full- komnum árangri í hagsmuna- baráttu sinni, að hún færi hana yfir á hið pólitíska svið og beini hennj gegn kapítalisman- um sem slíkum, þar eð sjálf bygging hans feli í sér misrétti og stéttakúgun. Hin sósíalíska fræðikenning verður þannig til- verugrundvöllur þeirra fjölda- samtaka, sem mynduð eru til að heyja hagsmunabaráttuna innan ramma ríkjandi þjóðfé- lags; þau eru ekki sem slík sósíalisk, heldur eru þau vett- vangur, þar sem hæ^t er og nauðsynlegt að berjast fyrir sósíalískum sjónarmiðum: þar eð sósíalískur flokkur telur, að stéttarhagsmunir i verkalýðsins krefjist afnáms hins kapítalíska skipulags, hlýtur hann að reyna að vinna þessari stefnu fylgi innan fjöldasamtaka hans; en þjóðfélagsleg aðstaða og dagleg barátta verkalýðsstéttarinnar leiðir ekki sjálfkrafa til þess, að hún aðhyllist sem heild sósí- , alíska stefnu. Það er því fjarstæða að tala um sósíalískan flokk sem stjómmálalega hliðstæðu verka- lýðshreyfingarinnar, eins og gert er í grein Ólafs Hannibals- sonar í Verkamanninum 26. janúar s.l. („Grundvallarágrein- ingur um stefnu og starfshætti verkalýðshreyfingarinnar og uppbyggingu og gerð verkalýðs- flokks"), og áréttað er enn frekar með sigildri sósíaldemó- knatískri kenningu, þar sem tail- að er um þær ,jtugmyndir Hannibals", að flokkurinn eigi að „flytja hin faglegu sjónarmið inn á Alþingi“. — Sósíalískur stjórnmálaflokkur annars veg- ar og fagleg verkalýðshreyfing hins vegar byggjast á ólíkum tilverugrundvelli: hinn fyrr- néfndi miðar alla starfsemi sína við það markmið að breyta þjóðfélaginu í heild í ákveðna átt, hin síðarnefnda er ekki sem slík mótuð af þessu markmiði. þótt hún sé vettvangur, þar sem nauðsynlegt er að berjast fyrir þvi. Sósíalískur stjóm- málaflokkur getur ekki ein- skorðað starfsemi sina við eitt- hvert sérstakt svið, hann getur leiðtoga flokksins engu síður en annarra. Til frekari stuðnings máli sinu reynir Ólafur Hannibals- son í nefndri grein að sýna fram á, að aðeins sé um tvennt að velja: annað hvort þá stefnu, sem hann sjálfur fylg- ir, eða þá, sem opinberlega hef- ur verið og er haldið fram í Sovétríkjunum. Sú stefna er byggð á alhæfingu þess, sem Lenín skrifaði í upphafi aldar- innar um sarpband flokks og stéttarfélaga. Nú er það reynd- ar harla ótrúlegt, að Lenín hafi sjálfur litið á það sem algild og ótimabundin sannindi. Afstaða hans var mjög mótuð af þeim sérstöku skilyrðum, sem þá voru fyrir hendi í Rúss- landi: annars vegar var hin faglega verkalýðshreyfing á byrjunarstigi og átti mjög erf- itt uppdráttar, hins vegar var hinn marxíski stjómmálaflokk- ur fyrst og fremst stofnaður á grundvelli hugmynda, sem ' rússneskir byltingarmenn höfðu sótt til Vestur-Evrópu. Samband flokksins við stéttar- hreyfinguna hlaut því að verða mjög einhliða, hann hlaut að reyna að vinna hana til fylgis við stefnu sína, en gat að sínu leyti lítið sótt til hennar. Len- ín segir sem kunnugt er, að verkalýðástéttin sé fyrir eigin tilvegknað aðeins fær um að þróa með sér stéttafélagsleg viðhorf (trade — union cons- ciousness). Þessari skilgrein- ingu er ábótavant að tvennu leyti; annars vegar gleymist það, að ranghverfa hinna „stéttafélagslegu viðhorfa" eru frá upphafl vanþroskuð bylt- ingarviðhorí (anarkismi, synd- ikalismi, o.s.frv-.)“ sem undir vissum kringumstæðum geta öðlazt fjöldagrundvöll í verka- lýðshreyfingunni (og þótt hreinræktuðustu myndir þeirra séru úreltar, er ekki þar með sagt, að þau séu með öllu úr sögunni). og hins vegar eru sjálf.hin „stéttafélagslegu við- horf“ ekki neitt óbreytilegt fyrirbæri, heldur þróast þau og breytast í samræmi við breytt þjóðfélagsástand. sem þau spegla fljótar og næmar en flestir hlutir aðrir, og á hinu nýkapitalíska skeiði, sem ein- kennist ekki hvað sízt af sam- runa efnahagslegs og pólitísks valds. hljóta þau í vaxandi mæli að snerta pólitísk vanda- mál og valdahlutföllin innan Mörgum kann að virðast það vafasamt að setja íslenzk stjórnmál í jafnnáið sam- band við Vestur-Evrópu sem heild og gert er í þessari greiru Það er auðvitað augljósara en svo, að fjölyrða þurfi um það, hvilíka sérstöðu íslenzki kapí- talisminn hefur og hve séiv stök vandamál verkalýðshreyf- ingin verður að glima við hér á landi. Tvennt virðist mér þó óvefengjanlegt: 1) að þegar Ht- ið er á siðasta aldarfjórðung- inn sem heild, hefur átt sér stað hliðstæð þróun sem oft er lýst með orðinu nýkapítalismé samruni stórauðmagns og rdk- isvalds, og þar af leiðandi meira skipulag á hinni kapital- ísku framleiðslu (þótt það sé skipulag í þjónustu heildar- óstjórnar, sem reyndar hefur hvergi tekið á sig jafnvitflrr- ingslega mynd og hér á landi, sökum þess hve áhrif verzlun- arauðvaldsins eru mikil), sam- fara stóraukinni neyzlu almennt- ings, sem ásamt mörgum öðr- um hlutum hefur verkað í þá átt að innlima í ríkjandi kerfi marga þá þjóðfélagshópa, er áður stóðu meira eða minna utangarðs við það (og það tek- ur ekki aðeins til verkalýðs- stéttarinnar): 2) að í náinni framtíð munu tengsl fslands við Vestur-Evrópu fara vax- andi, þótt ekki sé útséð um, í hvaða mynd það verður, og það mun leiða til vaxandi samlög- unar pólitískra vandamála: ekki verður aðeins um hlið- stæðu, heldur bein áhrif að ræða. Fyrra' atriðið þarfnast nokk- urra athugasemda: samihengið í þróun siðasta aldarfjórðungs hverfur oft í skuggann fyrir þáttaskilum ársins 1959, þegar viðreisnin tók við. Sambærileg þáttaskil fyrirfinnast ekki í neinu öðru Vestur-Evrópulandi eftir stríð. Forsenda þeirra er sú, að árin 1944 — 1958 hafði verkalýðshreyfingin tekið hér virkari þátt í mótun efnahags- kerfisins en annars staðar; þar sem hún í öðrum löndum knúði fram ákveðin viðbrögð af hálfu borgarastéttarinnar, tók hún hér verulegan þátt í mótun hliðstæðra ráðstafana. 'Það þýddi að sjálfsögðu, að erfiðara var fyrir kapítalismann að samlaga þær lögmálum sínum. Þegar verkalýðshreyfingunni Framhald á 9. síðu. k

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.