Þjóðviljinn - 18.02.1968, Side 4

Þjóðviljinn - 18.02.1968, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVIUINN — Sunnudagur 18. febrúar 1068. Crtgefandi: Sameinmgarflokkui alþýðu - Sósiaiistaflokkurinn. Ritstjórar: tvar H. Jónsson. (áb.). Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingaslj.: Sigurður T. Sigurðsson Framkvstj.: Eiður Bergmann Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 120.00 á mánuði. — Lausasöluverð krónur 7,00. í-------------------------------------------------------------------- Einhuga verkalýðshreyfíng J£rafa allrar verkalýðshreyfingarinnar á íslandi, óslitin verðtrygging kaupsins, er nú komin á samningsstigið. Fjölmenn nefnd Alþýðusambands- ins, skipuð trúnaðarmönnum verkalýðsfélaganna, mönnum úr öllum stjórnmálaflokkum, hóf á föstu- dag samningafundi við nefnd frá atvinnurekend- urn, og er sérstaklega tekið fram í fréttatilkynn- ingu Alþýðusambandsins að krafa samtakanna um óslitna verðtryggingu kaups hafi verið þar kynnt. Sjálfsagt hefur það ekki farið framhjá neinum hve rr 'kla áherzlu alþýðusamtökin leggja nú á þessa kröfu. Fulltrúar verkalýðsfélaganna af öllu landinu samþykktu einróma á Alþýðusambands- þingi ályktunina um kjaramálin, en þar segir m.a.: „Löggjöfin um vísitölubætur fyrir verðhækkanir hefur verið grundvöllur allra kjarasamninga á undanförnum árum, í senn félagslegt réttlætismál og mikilvægt öryggi fyrir allt launafólk. Alþýðu- saontökin munu ekki una því að sá árangur verði tekinn af verkafólki með einhliða aðgerðum stjórn- arvalda. Því ítrekar þingið og leggur megináherzlu á þá stefnu samtakanna að verðtrygging launa verði að haldast óslitin. Þingið skorar á öll verka- lýðsfélög að búa sig undir það að tryggja fullar vísitölubætur á kaup 1. marz n.k. Því slíkar vísi- tölubætur voru forsenda þeirra samninga sem sein- ast voru gerðir við atvinnurekendur., Þingið sam- þykkir því að fela miðstjórn það verkefni að tryggja sem bezt samstöðu verkalýðsfélaganna í þeirri baráttu og skipuleggja sameiginlegar að- gerðir þeirra, ef þessi réttlætiskrafa nær ekki fram að ganga átakalaust". Nokkrum dögum síðar sam- þykkti þing Verkamannasambands íslands ein- róma ályktun unn kjargmál og segir þar m.a.: „Þingið telur að næsta skrefið í hinni beinu kjara- baráttu sé að tryggja samningsbundinn eða lögfest- an rétt verkafólks til fullra verðlagsbóta á laun og heitir á öll sambandsfélög sín að veTa reiðubúin ásamt öðrum' verkalýðsfélögum til að framfylgja kröfum heildarsamtakanna í þeim efnum 1. marz n.k. með allsherjarverkfalli verði ekki orðið við kröfu samtakanna í þessum efnum“. gtjómir samtakanna og einstök verkalýðsfélög hafa unnið að undirbúningi samningagerðar samkvæmt þessum samþykktum og hefur hinni fjölmennu nefnd Alþýðusambandsins verið falið að fara með samningana. Mörg verkalýðsfélög ha'fa þegar samþykkt verkfallslreimild 1. marz, ef ekki tekst að fá fram sanngimiskröfu allrar verka- lýðshreyfingarinnar um óslitna verðtryggingu kaups fyrir þann tíma, og sajmningsbundnar vísi- tölubætur á kaupið 1. marz n.k. Gegn einhliða á- kvörðun ríkisstjórnarinnar að fella niður verð- trygginguna stendur einhuga verkalýðshreyfing alls landsins, ráðin í að sækja sér þennan rétt. — s. Undanrásum aðljúka á Skákþingi Reykjavíkur Hvítt: Júlíus Friftjónsson. Svart: Björn Þonsteinsson. SIKILEVJARVÖRN. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 Verður komið upp eldflaugastoð að Leirum í Mosfellssveit? | Við skulum nú lítsi á skák úr B-riðli meistaraflokks. Þar eig- ast við Júlíus Friðjónsson, einn yngsti og efnilegasti meistara- flokksmaðurinn okkar og Björn Þorsteinsson, skákmeistari ís- lands 1967. Júlíusi hefur geng- ið frekar illa f mótinu, oft fengið góðar stöður, en skort hörku og öryggi til að vinna úr þeim. Hann át' i vinnings- stöður gegn Frank, Leifi og Jóni, en fékk aðeins % vinn- ing út úr þessum skákum. Með meiri reyns/lu verður Júlfus hættulegur andstaeðingur fyrir okkar sterkustu meistara. Skák Júlíusar og Björns var tefld f 9. umferð, en þá var Björn þegar orðinn öruggur um sæti í úrslitakeppninni. 6. Bg5 7. f4 Þegar þetta er ritað, er ólok- ið einni umferð í undanrásum meistaraflokks á Skákþingi Reykjavíkur 1968. 1 A-riðli er staðan þessi: 1. Guðmundur Sigurjónsson 8rh v. 2. Gunnar Gunnarsson 7V2 v. 3. Björgvin Víglundsson 6 v. 4. Benóný Benediktsson 5 v. 5. Jón Páls- son 4% v. 6. Andrés Fjeldsted 4 v. 7. Jón Þorvaldsson 3V2 v. og biðskák. 8.—9. Stígur Her- lufsen og Sigurður Herlufsen 3% v. 10. Bragi Halldórsson IV2 og biðskák (af 10). 11. Hermann Ragnarsson IV2 vinning. Guð- mundur, Gunnar og Björgvin hafa tryggt sér sæti í úrslita- keppninni, en keppnin um 4. sætið stendur milli Benónýs og Jóns Pálssonar. Jón Þorvalds- son hefur einnig möguleika, tf hann vinnur biðskákina við Braga Halldórsson, og vinnur svo Guðmund Sigurjónsson í síðustu umferð. 1 B-riðli er staðan þessi: 1. Bjöm Þorsteins- son 7 v. 2. Bragi Kristjánsson 7 v. (af 10). 3. Jón Kristinsson 6V2. 4. Leifur Jósteinsson 5% v. 5. Bjarni Magnússon 4% v. og biðskák. 6. Gylfi Magnússon 4V2 v. 7. Jóhann Þ. Jónsson 3% og biðskák. 8. Júlíus Friðjóns- son 3V2. 9. Frank Herlufsen 2V2 og biðskák. 10. Sigurður Kristjánsson Vh v. Haukur Kristjánsson 0 v. og 3 biðskákir. Bjöm og Bragi hafa tryggt sér úrslitasæti, en Jón, Leifur og Bjarni berjast um 3. og 4. sæt- ið. Keppni er lokið í I. flokki, og sigraði Stefán Guðmundsson og hlaut hann 8 vinninga í 9 skákum. Annar varð Svavar Svavarsson 7% vinning. Þessir tveir flytjast upp f meistara- flokk. í þriðja sæti kom Barði, Þorkelsson með 6 vinninga. 1 II. flokki, A-riðli er stað- an þessi eftir 10 umferðir af 13: 1. Ragnar Þ. Ragnarsson 8 vinninga og biðskák. 2. Hilm- ar Birgis. 6’A v. og biðskák. 3. Magnús Gylfason 6 v. (af 9). 1 B-riðli II. flokks erkeppni lokið. Orslit urðu: 1. Auðunn Snæbjörnsson 9V? v. af 11 mögulegum. 2.—3. Ingi Ingi- mundarson og Kristinn Helga- son 8V2 v. Þessir þrír flytjast upp f I. flokk. í unglingaflokki sigraði Magnús Guðmundsson með 61/? v. i 9 skákum. f 2. — 4. sæti^ komu Sigurður Sverrisson, Torfi Stefánsson og Þórður Jónsson 6 v. Þessir fjórir flytj- ast upp f II. flokk. Bjöm beitti þessu tvíeggjaða afbrigði með góðum árangri gegn Gylfa Magnússyni fyrr í móti-nu. 8. e5 9. fxe5 10. De2 dxe5 Dc7 Sovézki stórmeistarinn Sima- gin kom fyrstur fram með þennan leik, en aðrir leikireru ekki taldir gefa hvítum mikl- ar vonir um frumkvæði í byrj- un. 10. Rfd7 11. 0-0-0 Bc5 Byrjanabækur mæU með 11. —, Bb7 12. Rf3, Rc6 13. Bf4 með tvísýnni stöðu. Svartur má auðvitað ekki drepa á e5, t.d. 11. —, Rxe5 12. Rdxb5, axb5 13. Hd8t og vinnur, eða 11. —, Dxe5 12. Dxe5, Rxe5 13. ’ Rdxb5 með hótununum 14. Rc7t og 14. Hd8 mát. 12. Re4 Til greina kemur 12. Rf3 á- samt 13. Re4. Gylfi lék' 12. Rf5 i skák sinni við Björn i sama móti. Framhaldið varð 12. —, exf5 13. e6, O-O, 14. exd7, Rxd7 15. Rd5 með tví- sýnni stöðu. 12. — Dxe5 13. Rf3 Dc7 14. Rxc5 Dxc5 15. De4 Dc6 Ekki 15. —, Rc6 16. Be3 og vinnur. Ekki dugar 20. • —, h6 21. Bxh6, gxh6 22. Hhglt, Kf7 (22. —, Kh8 23. Dxh6 mát). 23. Bg6t, Kg7 24.. Be4t og vinnur. 21. Bcl De2 22. Bxa8 Rb6 23. Hhel Dc4 24. Dxc4 bxc4 25. Bg2 e5 Svartur er þegar kominn f allmikið tímahrak, því hann kom tæpri klukkustund ofseint á skákstað. Síðasti er hrein örvænting. leikur hans 26. Hxe5 Bg4 27. Hd8 Hxd8 28. Bxd8 R8d7 29. Ha5 c3 30. b3 Be2 31. Bb7 Kf7 32. Bxa6 Bf3 33. Bxb6 Rxb6 34. Hc5 Kf6 Guðmundur Sigurjónsson 35. Hxc3 Be4 36. Hh3 — og svartur fór yfir tímamörkin, en staða hans er auðvitað gjörtöpuð. í síðasta þætti var misliermt, að Taflfélag Reykjavíkur og Skáksamband Islands stæðu fyrir alþjóðlega skákmó-tinu, sem haldið verður hér í vor. Taflfélag Reykjavikur munsjá um mót þetta, • en Skáksam- band íslands sá um Reykjavík- urmótið 1966. Iiit Fréttir 16. Df4 17. Bd3 18. g4 0-0 f5 Hvítur leggur óhikað tiil at- lögu. 18. fxg4? Svartur uggir ekki að sér. Betra var 18. —, Bb7, en eftir 19. Hhfl á svartur í erfiðleik- um með að staðsetja menn sina á góðum reitum. Eftir 18. —, Bb7 19. Hhfl má svartur heldur ekki taka manninn: 19. —, fxg4 20. Dxg4, Hxf3 31. Hxf3. Dxf3 22. Dxe6t Df7 (22. — Kf8 23. Be7t, Ke8 24. Bd6t, Kd8 25. De7, Kc8 26. De8 mát, eða 22. —, Kh8 23. Hfl og vinnur) 23. Bxh7t, Kxh7 (23. —, Kf8 24. Dd6t, Ke8 25. Bg6 og vinnur) 24. Dxf7 og vinnur. 19. Dxg4 20. Dh4 Dxf3 g6 Björgvín Víglundsson tefldi fjöltefli við 35 unglinga í Skák- heimili T.R. laugardaginn 10. febrúar. Hann vann 34, en tap- aði fyrir Sigurði Sigurjónssyni. Fjöltefli þetta var eitt af mörg- um, sem Æskulýðsráð Reykja- víkur og Taflfélag Reykjavíkur gangast fyrir í vetur. Fara f jölteflin fram annan hvem laugardag, en hina laugardag- ana eru æfingar. Meðall þeirra sem teflt hafa fjöltefli viðung- lingana, eru Friðrik Ólafsson, stórmeistari, Guðmundur Sigur- jónsson, skákmeistari T.R., Bjöm Þorsteinsson, skákmeist- ari Islands 1967 og Gunnar Gunnarsson skákmeistari 'ís- lands 1966. □ Taflfélag Reykjavíkur - hefur boðið ungum færeyskum skék- meistara, Rubek Rubeksen, til Reykjavíkur. Verður efnt til skákmóts með þátttöku hans. Verður mótið kallað Boðsmót T.r!. og tefldar 7 umferðir eft- ir Monradkerfi. Er öllum meist- araflokksmönnum heimil þátt- taka, og hefst mótið þriðjudag- inn 20. febrúar. Innritun. er { Skákheimili T.R. að Grensás- vegi 46, en sími þar er 83540. □ 35. Skákþing Sovétríkjanna var haldið í Krakov í lok síð- asta árs. Tefldu 126 þátttakend- ur 13 umferðir eftir Monrads- UllKIlitCI XiU kerfi. Sigurvegarar urðu Talog Polugajevsky, hlutu 10 vinn- inga. Þar sem ekkd var hægt að korna við einvígi, munu þeir skipta titlinum á millisin. 3.—5. Platonov, Taimanov og Vasjukov 9V2 v. 6.—7. Antosch- in og Sacharov 9 v. 8.—17. Bagirov, Gholmov, Furman, Iswostsohikov, Osnos, A. Saiz- ev, Schuravlev, Schelj andinov, Steinberg og Tukmakov 8%. Eins og sjá má á þessuni lista, hafa margir óþekktir meistar- ar gripið tækifærið, sem hið nýja fyrirkomulag veitti. □ Stjóm Skáksambands Islands hefur valið 12 skákmeistara til Framhald á 8. síðu. A.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.