Þjóðviljinn - 18.02.1968, Qupperneq 10
10 SIÐA'-ÞJÓÐVmrmiJ---Sunrw&agur 58. fiéteöaaj X96S.
SAKAMÁLASAGA
Eftir
J. B. PRIESTLEY
13
mér til að yfirgefa Birkden, var
sá sami og sagði eitthvað við
hana. Ég veit ekki hvemig þetta
gengur fyrir sig í eðlisfræðinni,
Culworth, en í læknisfræðinni
væru svona tilviljanir grunsam-
lega margar. Að lokum skal ég
segja yður hvað ég held, þótt
ég hafi engar sannanir fyrir því.
Þótt mér detti ekki í hug, að
neitt alvarlegt hafi hent föður
ykkar, þá er ég næstum viss
um að Noreen Wilks er dáin.
Alan lyfti hægri augnabrún og
tók út úr sér pípuna til að virða
hana fyrir sér — kennaralát-
bragð. — Er það nú ekki full-
langt gengið?
— Það má vera. Það et hugs-
anlegt, að hún hafi farið til
læknis, sem hatfi látið hjá líða
að setja sig í samband við mig.
Það er líka hugsanlegt að sjúk-
dómur hennar hafi ekki verið
eins alvarlegur og ég hélt.
Kannski eru Noreen og faðir
ykkar einhvern staðar saman að
skellihlæja að öllu saman —
— Það kemur áreiðanlega ekki
til greina, sagði Alan hvössum
rómi.
— Þér haldið ekki? Það geri
ég ekki heldur. Og ég held að
Noreen Wilks sé dáin. Nú ætla
ég að spyrja nokkurra spurninga
í Verksmiðjuklúbbnum. Ykkur er
velkomið að koma með mér.
Þið takið ef til vill eftir ein-
hverju sem mér sést yfir.
— Það er bezt við gerum það.
Alan, sagði Maggie. — Ég er
Smurt brauð
Snittur
VTO ÓÐINSTORG
Sími 20-4-90.
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav 18, III. hæð (lyfta) Sími 24-6-16.
PERMA Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 33-968.
viss um að pabbi kom hingað
til að spyrjast fyrir um Noreen
Wilks. Og það er einmitt það
sem Salt læknir er að gera.
Og hvað getum við gert annað?
— Ég veit það ekki. Alan var
vansæll á svipinn. — En við
höfum ekkert með þennan Verk-
srmðjuklúbb að gera. Gerumvið
okkur ekki að fíflum —
Salt læknir þaut upp úr stóln-
um. — Við skulum þá gera okk-
ur að fíflum. Mér1 hefur staðið
á sama um slíkt í mörg ár. Ætlið
þið að koma eða ekki?
— Ég kem, sagði Maggie.
— Ég er með bílinn minn.
Ég skal elta ykkur. Alan var
ekki beinlínis ólundarlegur, en
hann var bersýnilega vantrúað-
ur enn. — Vitið þér hvar hann
er? ,
— Ég hef aldrei komið þang-
að, en ég veit nokkum vegmn
hvar hann er, sagði Salt lækn-
ir- — Og ég skal aka hægt.
Þegar þau voru setzt upp í
bilinn og voru að aka af stað,
sagði Maggie við hann: — Ég
veit að þér er lítið um að tala
þegar þú situr við stýrið, en
þér er kannski sama þótt þú
hlustir. Mig langar til að út-
skýra þeetta með Alan. Hann er
í rauninni ekki andsnúinn þér.
Sannleikurinn er sá, að hann er
nýkominn heim úr háskólanum,
úr fyrirlestrasalnum og rann-
sóknastofunni og svo detturhann
allt í einu ofaní aillt þetta —
og hann er í rauninni ekki bú-
inn að átta sig enn. Hann er
enn í þessum sérstaka heimi sín-
um, "þar sem ekki er gert ráð
fyrir því að neitt annarlegt komi
fyrir.
— Nema vetnissprengjan, taut-
aði Salt læknir.
— Ég veit. Ég hef stundum
stælt um það við Alan og vini
hans. Þeir eru svp undarlega
saklausir að sumu leyti. Éf til
vill vegna þess að þeir hafa
alltaf verið í skólunum, aldrei
innanum fólk sem hugsar ekki
um annað en peninga. Mérfinnst
ég oft verai mörgum árum eldri
en hann.
áalt læknir umlaði eitthvað.
Hann virtist ekki hafa mikinn
áhuga á ‘aldri Culworthsystkin-
anna.
— En Alan er fjórum árum
eldri.
Nú umlaði hann ekki einu
sinni. Hafði engan áhuga.
— Og ég get svo sem ekki
láð honum það, hélt hún áfram,
staðráðin í að’ fá hann til að
sýna einhvem áhuga.. — Sjáðu
til, Salt læknir, þú gerir hlutina
dálítfð dramatíska. I hvert skipti
sem þú segir Noreen Wilks, þá
lætur það í eyrum eins og þú
haldir að hún hafi verið myrt.
— Er það satt? Það þykir
mér leitt.
— Ó, — ég veit að það er
ekki viljandi gert. Af hverju
ætti einhver — ?
— Ég er að aka, sagði hann
hranalega.
Hún var fokreið út í hann og
henni fannst hún verða að gera
eitthvað, svo að hún leit við
til að aðgæta, hvort Alan kæmi
á eftir þeim. Það gerði hann.
Sfðan starðl bán fram fyu.lr stg
á götumar í Biricden sem voru
að byrja að myrkvaist, og það
var eins og hún ætlaðist til að
þær litu allt öðru vísi út. En
það var ekki minnsti óhugnaðar-
eða leyndardómssvipur á þeim.
Birkden leit út eins og fyrir
nokkrum klukkutimum, þegar
hún hafði komið þangað með
strætisvagninum — það voru
ekki nema nokkrar stundir síð-
an, þótt henni fyndist nú ein9
og hún hefði dvalizt dögum sam-
an með Salt lækni.
2
Þau óku nú framhjá stórum sam-
býlishúsum og stórum bygging-
um á eigin lóðum, millistigið
milli borgar og sveitar. Innan
skamms óku þau meðfram risai-
vaxinni verksmi’ðjubyggingu
Sameinuðu verksmiðjanna —það
rif jaðist upp fyrir henni að fyrir-
tækið hafði fært sig út úr borg-
inni fyrir nokkrum árum, og
við mikilúðlegan innganginn.
stöðvaði Salt læknír bílinn og
snurði varðmainninn um leiðina
að klúbbnum. Samkvæmt vis-
bendingu hans óku þau eftir
vegi, sem hefði getað verið
sveitarstígur, síðan beygðu þau
inn á hliðarstíg og lögðu bílun-
um á Ppnu svæði, þar sem, fá-
einir bílar stóðu fyrir, skammt
frá uoplýstum inngangi.
— Hvað nú? sagði Alan önug-
lega, hesfir hann kom til þeirra.
— Við förum inn, saRði Salt
læknir- — Ég get haft orð fyrir
okkur.
— Hér virðist heldur fámennt,
sagði Maggie.
— Það er ekki orðið svo álið-
ið, sagði Salt læknir. — Og svo
getur þetta verið eitt af rólegu
kvöldunum. Og það er bara betra.
Hann gekk á undan beim inn.
Það var enginn dyravörður inn-
an við innganginn — Maggie
hafði átt von á því, vegna þess
að hún hafði komið í margs
konar klúbba með Hugh — en
þama var staður fyrir vörð, svo
að hann vair ef til vill ekki
kominn á vakt. Salt læknir hik-
aði ekki vitund, heldur hélt
áfram og opnaði dyr sem vissu
að daufum ljósum og mildri tón-
list. Það var vínbar, skemmti-
lega upplýstur og skreyttur á
nútímalegan hátt og húsgögnin
með skandinaivísku sniði. Þaðvar
nóg rými fyrir framan boga-
myndað barborðið, þar sem hvít-
klæddur barþjónninn og flösk-
urnar hans voru í skærri birtu,
en meðfram veggjunum voru
lág borð og lágir stólar og sófar
með einhverju fyrirmyndar á-
klæði úr Sameinuðu verksmiðj-
unum. Engir sátu við borðin,
en þrennt stóð við barinn, tveir
uppdubbaðir ungir menn ogjafn-
vel enn uppdubbaðri stúlka. Tón-
listin, mildar klarinettur og
fiðlur, sem hafði verið tekin upp
einhvers staðar í New York eða
Los Angeles, hélt áfram án af-
láts og gaf til kynna að lífið
og - ástin væru ósköp indæl, en
reyndar væri ekkert sem skipti
miklu máli. Maggie heyrði ekki
betur en Salt læknir væri eitt-
hvað að þusa um þetta.
Nú gátu þau heyrt samtalið
við barinn. Annar ungu mann-
anna var að segja að einhver
sýndi ranga mynd-
— Þú og þessar myndir þínair,
sagði stúlkan þreytulega. — Ger-
ir það nokkuð til?
— Vertu ekki að þesisu, ljúf-
an. Rétt eins og þú vitir ekki
hvað á spýtunni hangir!
— Veit ég það? Síðan hvenær?
— Síðan þú varst svo sem
fimmtán, myndi ég segja.
— Qg þér myndí skjáflast,
Alec. Þetta var hlnn maðurinn.
— En hvar í fjandanum er
Kata?
— Ég var búin að vara þig
við, sagði stúlkan. — I hvert
skipti sem hún fer að dedúa við
andlitið á sér, þá fer hún að
hugsa um eitthvað annað.
— Vitum við hvað það er?
— Nei, reyndar ekki, sagði
stúlkan. — Vegna þess að ég
veit það ekki heldur.
— Jæja, við skulum þá kbma
inn, sagði Alec. — George, ef
ungfrú Tiller spyr eftir mér, þá
segðu henni að við séum farin
inn. Ég er búinn að skrífai hana
ir.n. Þau þokuðu sér í áttina að
dyrunum til vinstri við barinn-
— Þeir eru afskaplega strangir
i sambandi við það héma.
— Og ekki að ástæðulausu,
ssigði hinn ungi maðurinn. —
Guð má vita hvaða dót færi
að streyma híngað.
Maggie vissi vel, að þessu var
ekki beint að henni og félögum
hennar tveimur. Ungi maðurinn
hafði alls ekk' tekið eftir þeim.
En bessi athugasemd hafði ekki
notaleg áhrif á hsma. f þessu
umhverfi, klædd vinnufötunum
og eftir að hafa horft á ungu
stúlkuna, fannst henni hún vera
litilmótsleg, kauðaleg, rytjuleg.
Og begar Salt læknir gekk með
hægð að barborðinu, settist hún
á næsta stól og benti Alan að
setjast líka. En hsmn vildi endi-
leRa balla sér unn að vegRnum
rétt fvrir innan dvrnar og horfa
á ekki neitt og hún vissi að
honum fannst hann eins og al-
ger auli. Það var einfaldlega
veena bess að hann vissi að hann
hafðí enmn rétt til að vera
bama og það var hægt að reka
hann út á hverri st.undu. En
hann hafði enga tilfinningu fyrir
því á bessum puntulega stað
að andlit;ð á sér væri óvið-
eigandi og hárið, fötin hans og
skórnir ómöffuleg. að hann vær?
kauðalegur ómerkilegur; þetta
hafði umhverfið sagt henni án
afláts frá því að hún kom inn.
Nú horfði hún á Salt lækni,
sem hallað; sér upp að bar-
borð’nu og hafði veriðað kveikja
í pípu sinni- Það gat verið —
já, hsmn var reyndar furðulegur
maður, en hann hafði einn kost
— honum virtist standa alveg
á sama.
— Ég heiti Salt, sagði hann
við barþjóninn. — Salt læknir.
— Jahá- Barþjónninri var frem-
ur ungur og með burstaklippt
hár; sindlitið á honum sýndist
breiðara um kjálkana en yfir
enjiið. Maggie hafði feng'ð and-
úð á honum við fyrstu sýn.
— Eruð þér Tony? spurði Salt
læknir.
— Nei. Tony vinnur hér ekki
lengur.
— Æ — hvaða vandræði.
— Það eru ékki allir sam-
mála þvf. Ég kom f staðinn.
— Ég skil. Salt læknir sýndist
viðutam og hálf aulalegur. —
Annars þekki ég Tony ekki neitt,
Kunningi minn minntist á hann
við mig.
— Jæja? En þér eruð víst
ekki meðlimur, eða hvað?
— Ha, — nei, engan veginn.
Salt rak upp smáhlátur sem
Maggie hafði aldrei heyrt fyrr
og lagði ekki mikinn trúnað á.
— Annars veit ég ekki af hverju
ég segi engan veginn, þvf að
annað hvort er maður líklega
meðlimur eða maður er það ekki
— það er yíst ekki hægt að
vera sumpart meðlimur. Nei, ég
er það ekki.
— Ég skildi yður í fyrstu at-
rennu. Jæja, en ég get ekki
Umboðssala
Tökum í umboðssölu notaðan kven- og
herrafatnað.
Verzlun GUÐNÝJAR, Gréttisgötu 45.
ROBINSOIV'S ORAXGE SQlanda 7 siimuiii með vatni
má bUASH
SKOTTA
Nei, hvernig geturðu látið þér detta í hug að ég sé tilbúin?
Þú kemur tveimur mínútum of fljótt!
LTSALA - ÚTSALA
Stórfelld verðlækkun á öllum vörum verzlunar-
innar. — Notið þetta einstaka tækifæri og gerið
góð kaup.
ALLT Á AÐ SELJAST!
VERZLUN GUÐNYJAR
Grettisgötu 45.
Otsala — Kjarakaup
Úlpur ■— Kuldajákkar — Peysur — Buxur
Hvítar fermingarskyrtur — Skyrtupeysur
og margt fleira.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20171.
Gerið við bíla ykkar sjáK
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BÍLAÞJÓNUSTAN
Auðbrekku 53, Kópavogi — Sími 40145.
Látið stilla bílinn
Önnumst hjóla- ljósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti, platínur, ljósasamlokur.
— Örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32, simi 13100.
Hemlaviðqerðir
• Rennum bremsuskálar.
• Slípum bremsudælur.
• Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 — Sími 30135.
%
I
1