Þjóðviljinn - 01.06.1968, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.06.1968, Blaðsíða 2
2 SlÐA — ÞJÓÐViaLJTNTí — Laugardagur 1. júní 1968. UMFE ROARNEFND REYKiAVIKUR LDGREGLAN I REYKJAViK \/ Vinstri beygjurnar Eins og við hafði verið bú- izt, hefur komið í ljós, að vinstri beygjur hafa valdið öku- mönmum nokkrum ©rfiðleikum á fyrstu dögum hægri umferð- ar. Ökumenn virðast ekki gæta þess sem skyldi, að vinstri beygjur skulu teknar víðar, en hægri beygjur aftur á móti krappar, þvert ofam í það sem var í vinstri umferð. Hér á eftir verður vikið nokkuð að vinstri og hæ-gri beygjum, svo og, akstri á akreinum. Hægri og vinstri beygjur Við beygju til hægri ber að gæta þess, að fylgja gangstétt- arbrún þeirrar götu sem beygt er úr. Beygjan skal vera kröpp og ekið eins nálægt brún ak- braiutar og hægt er, eims og fyrr segir. Við beygju til vinstri skal aftur á móti gæta þess að beygjian skal verá víð, þannig að ökutækið sé á hægri hluta þeirrar akbrautar sem ekið er inn á. Þetta gildir þó ekki um akstur irun á einstefnuakbraut. Við beygju til vinstri gildir að sjálfsögðu varúðarreglan til hægri, þannig að ekki má beygja til vinstri, fynr en ná- læg ökutæki sem á móti koma hafa farið framhjá. Áður en beygt er til vinstri skal öku- tækið hafa verið flutt nærri miðlínu akbrautar, og sé ak- brautinni skipt í akreimar, skal ökutækið hafa verið flutt á vinstri akreinina áður en beygt er. Akstur á ak- reinum Þegar beýgt er inn á götu, sem skipt er í tvær akreinar, og báðar akreinar etru fyrir umferð í sömu átt, má aka inn á hvora akreinina sem er, en þó ber að. hafa fyrirhugaða akstursstefmu í huga þegar ak- rein er valin. Allnokkuð hefur borið á til- hneigingu hjá ökumönnum til að aka á vinstri akrein á göt- um, sem skipt er í akreinar og tvær akreimar eða fleiri gera ráð fyrir umiferð í sömu stefnu. Má sem dæmi nefna Mikiljuibraut, Snorrabraut, Skúla götu, Hringbraut og fleiri göt- ur. Meginreglan um akstur á akreinum er sú, að vinstri ak- reinin er einkum^ætluð fyrir framúrakstur, en að jafnaði skal ekið á hægri akrein. í dag sér maður ökumenn of oft aka . á vinstri akrein á Hringbraut alla leið vestur að Melatorgi, svo eitthvert dæmi sé nefrnt. Þegar komið 'er að gatmamót- um, þar sem ökumaður ætlar að skipta 'ura akstursstefnu, og sé akbrautimni skipt í akrein- ar, ber honum að velja sér þá akrein á akbrautinni sem heppilegust er. miðað við í hvora áttina á að beygja. Ætli ökumaðurinn að beygja'- til vinstri, velur hann vinstri ak- rein, en ætli hann aftur á móti að beygja til hægri, velur bann hægri akrein. Ekki má skipta um akrein nema umferðin leyfi það, og þá eftir að stefmumerki hefur verið gefið. Eftir að stefnu- merki hefur verið gefið verða ökumenn að gæta vel að um- ferðinei á akbra/utinmi og skipta því aðeins um akrein, að 'umferðin leyfi. Þá ber öku- mönnum og að hafa ríkt í huga, að gefa stefnumerki í tæka tíð áður en skipt er um aikreim eða beygt. Tvö rússnesk leikrif í haust • Það kom fram á blaða- rmannafundi hjá Þjóöleiklhús- stjóra í fyrradag að Þjóðleik- húsið er nú með tvö verfc í undirbúnimgi fyrir næsta haiust, hvort tveggja rússnesk leik- rit. Annað er Loforðið eftir Alexed Alexof, sem Eyvindur Erlendsson setur á svið, hitt I djúpinu eftir Maxim Gorki, sem sýnt verður í ttilefni 100 ára afmælis skáldsins og mun Benedikt Ámason stjóma bví. Meira en fjórði hyer miði' yinnurí DREGIÐ 5. JÚNÍ Endurnýjun lýkur á hádegi dráttardags. Umboðsmenn geyma ekki miða viðskiptavina fram yfir dráttardag. Vöruhappdrætti SIBS EYSTRASALTSVIKAN Z7n Líll 8.-24. júlí. Kaupmannahöfn — Ro- stockhérað — Berlín — Magde- burg — Erfurt — Leipzig — Dresd- en — Wittenberg. Verð kr. 15000 — Flugferðir, gisting, fæði, ferðir. leiðsögn innifalið. F ERÐ ASKRIFSTOFAN LANOSYNt LAUGAVEG 54 SiMAR 22890 & 13648 STUÐNINGSMENN GUNNARS TH0R0DDSENS efna til almenns fundar í Samkomuhúsinu I VESTMANNAEYJUM fimmtudaginn 6. júní kl. 21.00. Gunnar Thoroddsen og kona hans koma á fundinn. Minning Jón Einarsson forstjóri Jón Einarsson, framkvæmda- stjóri Vogue h/f., varð bráð- kvaddur 26. maí s.l. Hann fæddist í Vesturhúsum, Vest- mannaeyjum, 27. júlí 1912. Foreldrar hans voru hjónin Mqgnúsína Eyjólfsdqttir og Ein- ar M. Einarsson, skipherra; þau slitu samvistum og ólst Jón upp hjá föðurömmu sinni Guðrúnu Lýðsdóttur í Mjó- stræti, Reykjavík, frá sjö ára aldri. Fjórtán ára gamall fór Jón til sjós sem messadrenigur, var síðan kyndari - á togurum og háseti á varðskipunum; jafn- framt sjómennskunni stundaði hann nám í Samvinnuskólan- um og lauk prófi þaðan vorið 1932. Jón tók snemma þátt í hin- um róttækari armi verkalýðs- hreyfingarinnar og var einn þeirra unigu manna serú sá að mauðsynlegt var að verkalýðs- hreyfingin væri sterkur aðili í verzlun bæjarbúa; þeir geng- ust því fyrir stofnun Pöntun- arfélags verkamanna og síðar Kaupfélags Reykjayíkur og ná- grennis, sem varð eitt stærsta verzlunarfyrirtæki bæjarins, u tók upp ýmsar nýjungar í verzlunarháttum og fylgdist vel með pllu sem til bóta var á því sviði. Árið 1945 gerðist Jón fram- kvæmdastjóri fyrir Orku h/f. og var það í 5 ár. Hann var einn af stofnendum Trygging- ar h/f og framkvæmdastjóri þesg um skeið. Hann stofnaði árið 1952 á- samt eftirlifandi eiginkonu sinni Hólmfríði Eyjólf^dóttur, Verzlunina Vogue h.f. Það fyr- irtæki hafa þau rekið ■ . með nfiklum myndarskap og verið emstaklegia samhent um. rékst- ur. þeiss. ■. Jón giftist Hólmfríði .Eyjólfs- dóttur árið 1936. Böm þeirra eru Eyjólfur línulagningarmað- ur f. 1940, Björg f. 1942, gift Guðm. Guðmundssyni, tækni- fræðing, búsett á Húsavík, Magnús f. 1948 vinnur við fyr- irtæki foreldra sinna og Eiiy- ar f. 1950 við nám. Þeir sem þekktu Jón og unnú með honum munu ætíð minn- ast hans sem mikils drengskap-. armianns og góðs húsbónda. G.E. ■_ tvrfT*vrr l .. Tilkynning Stuðningsmenn Kristjáns Eldjáms við for- setakosningarnar hinn 30. júní n.k. hafa opnað skrifstofu að Borgarholtsbraut 43 í Kópavogi. Fyrst um sinn verður skrifstofan opin dag- ■■ lega klukkan 17 til 22. Síðar er áformað, að ■ skrifstofan verði opin allan daginn. ■ ■ v Sími skrifstofunnar er 42565. FRAMKVÆMDANEFNDIN. ' ’ ■ : .■■: f.r.S r '4 Utgeriarmenn Athygli skal vakin á því að engar síldar- nætur verða afhentar út af verkstæðum vorum nema gegn staðgreiðslu. Landssamband íslenzkra netaverkstæðiseigenda. Komið og sjáið kappreiðar og géðhestakeppni

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.