Þjóðviljinn - 24.02.1970, Síða 10
JQ SÍÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Þriðjudagur 24. febrúar 1970.
stundum dálítíð óvenjulegt.
Öll höfðum við lagt fram til
veizlubaddsdns það sem við gát-
um. Þarna voru niðursoðnir á-
vextir og sulta úr ribsi og sól-
berjum. amerískt saltað flesk,
sem hafði þann furðulega eig-
inleika að bráðna í pottinum
og leggjast ofaná sem þriggja
tommu þykkt fitulag. Ennfrem-
ur Kongote, geitamjólk og flat-
brauð sem lyftiduft var látið í
og auk þess dálítið af berjum
og fékk við það heitið „kaka“.
Auðvitað áttum við líka soðið
nautakjöt í dósum. en' það var
svo andstyggilegt á bragðið að
engu var líkara en það hefði
verið soðið niður með húð og
klaufum.
Það var enginn bakari í Cali-
eo þegar hér var komið, en
blessuð frú Schmitt hafði bakað
brúðkaupstertu. Þegar búið væri
að slkipta henni í þrjú eða fjög-
ur hundruð parta yrði sj álfsagt
munnbiti handa öllum gestun-
um. Hún var þakin þykku lagi
af púðursykri, vættum í rommi.
Meðan á þessu stóð sat Curr-
ency stillileg og föl með brúð-
arsveig sinn á höfðinu og ég gat
ekki að mér gert að vona að hún
væri strax farin að sjá eftir öllu
saman. En auðvitað gerði hún
það ekki. Hún var bára dálítið
taugaóstyrk yfir aililri þessari há-
væru kátínu og hálfærð af há-
reystinni.
Það var þegar búið að drekka
allt of mikið. þótt flestir væru
í góðu og vinsamlegu skapi. I
einu hominu á danssalnum
hvein f sekkjapípunni og í öðru
var leikið á svanaflautu. Alls
staðar var fólk að dansa, mest-
megnis karknenn hver við ann-
an. Það var spaugilegt að sjá
tvo gullgrafara snúast hvor um
annan með skeggin út í loftið
og handleggina teygða eins og
dælusveifar.
Yfir allan hávaðann ómaði há
og skær tenórrödd Jimma
maðkaflugu. Hún var skerandi
Gamla krönan
fullu verögildi
BÚKA
MARKAÐURINN
Iðnskólanum
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslustofa
Kópavogs
Hrauntungu 31. Sími 42240.
Hárgreiðsla. — Snyrtingar.
Snyrtivörur.
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18, III. haeð (lyíta)
Sími 24-6-16.
Perma
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-9-68
ruth park:
gull
í
tá
48
eins og lúðurhljómuir og yfir-
gnæfði ævinlega öll önnur hljóð.
Sumir drekka vín og aðrir gófla
gin
og gleypa Iíka\ við svartadauða.
Aðrir heimta pilsner, — en
æðsta óskin mín
er yfrið nóg af gullinu rauða.
Og síðan tóku gullgrafararnir
undir i kór:
Við siglum í suður og norður
og sláumst upp á kraft.
En ekkert eflir eins þrekið
og angandi romm í saft.
Allan tímann hafði ég setið
eins og brúða hjá móður minni
og nokkrum öðrum konum og
bölvað leiðindunum með sjálfri
mér. Mér hundleiddist þær a!l-
ar og samankipráðat varit
þeirra. þegar þær töluðu um
fósturlát. skortinn á þjónustu-
fólki og dýrðina sem þær höfðu
verið vanar heima fyrir.
Allt í einu sá ég frú Schmitt!
koma eins og risaköngurló fram-1
undan sviðstjaldinu og kalla Pig
litla og Currency burt frá há-
tíðahöldunum. O® við umhugs-
unina um að bráðlesa yrðu þau
alein sem nýgift hjón og hann
myndi faðma hana eins og hann
hafði faðmað mig daginn i skóg-
inum, hefði ég getað gargað af
reiði og afbrýði. Einkum þar
sem ég vissi að Currency myndi
ekki vera hrædd eins og ég
hafði verið. Ég reis á fætur í
skyndi. 1
— Hvert ertu að fara, Tatty?
— Að tala við ungfrú Callagh-
an, mamma.
— Talaðu ekki við neinn af
þessum rustíkusum.
— Drottinn minn dýri, sagði
Jimmi maðkafluga og steig nið-
ur af tunnunni til að fylgjast
með gleðskapnum. — Það er
eins og hún sé með munninn
fullan af bartöflustöppu.
— Þegiðu! sagði Alick frændi
og dró munnvikin niður eins og
hann hefði bitið í súra plómu.
Alick frændi var einn af
drykkjubræðrum Jimma maðka-
flugu og það var auðfundið að
hann vildi ekki fá hann upp á
móti sér. En ungfrú Callaghan
hafði heyrt þetta, og hún eld.roðn-
aði. Hún klemmdi saman munn-
inn og reyndj að dylja það hve
særð hún var. vegna þess hve
margir voru viðstaddir. En hún
fór að stíga dansinn hægar "og
loks stanzaði hún alveg.
— Ég ætti að loka á þér kjaft-
inum að eilífu, sagði Alick
frændi við Jimma maðkaflugu,
en raddhreimur hans vair ..afsak-
andi og enginn kraftur á bak
við.
-— Ó, herra Swan, farið ekki
að eiga við þetta meindýr mín
vegna, sagði ungfrú Callaghan
með áherzlu en það var þó auð-
séð af svip hennar. að það var
einmitt það sem hún vildi.
Augún i Jimma maðkaflugu
glóðu. Ögrunin var honum að
skapi og af því það voru hans
ær og kýr að ganga of langt,
hoppaði hann aftur upp á tunnu
sína og söng:
Ég held hún Crammy Callaghan
sé orðin ung á ný
og ætli sér að dansa upp að
hnjánum.
En hún er eins og fuglahræða,
enginn neitar því,
og allir karlmenn flýja burt á
tánum.
Já, allir karlmenn flýja burt á
tánum!
Jæja, ég veit ekki hvað Alick
frændi hefði gert í málinu, en
Jimmi maðkafluga hafði að
minnsta kosti steingleymt Tipp-
eraxypiltunum. Með herópið
„Cailaghan“ á vörum, æddu
þeir. þvert yfir dansgólfið. Sá
stærsti þreif í hendur Jimma og
hélt þeim fyrir aftan bakið á
honum og sagðf-vingjarnlegia '■ við
kunningja sinn.
— Svona, Pat, gefðu honum
nú það semí"hann'\á< skilið! Og
síðan kom smávaxnasti tri í
heimi, varla meira en hálfur
annar metri, og dansaði yfir að
Jimma veslingnum og tók til við
að diangla í magann á honum.
— Veslings Pat fær svo sjald-
an að boxa vild sina, sagði stóri
írinn til skýringar og að svo
mæltu lyfti hann Jimma hátt
á loft eins og mjölf>oka og bar
hann út og Jimmi engdist og
sparbaði allt hvað af tók. Við
lögðum við eyrun til að heyra
skvampið, en hávaðinn úti var
of mikill, því að nú lýstu nokkr-
ir gullgrafarar yfir því, að
þeir styddu Jmma. meðan aðrir
slógust í hóp hinna hefnigjörnu
Tipperarypilta. Ungfrú Callagh-
an var svo himinlifandi yfir öllu
þessu uppi'standi herm.ar vegna.
að hún kunni engin önnur ráð
en falla í yfirlið. Hún var borin
burt í hina áttina og það olli
álíka gauragangi þeim megin.
— Áfram piltar! öskraði Alick
frændi. — Hátíðin er ekki á
enda. Þetta er njtt að byrja.
Þeyttu nú sekkjapípuna al-
mennilega, Jock, og ég skal
sýna ykkur Hálendingadans af
fínustu sort.
— Hvað um stúlkuna? hróp-
aði einhver. Og um leið þrifu
mig sterkar hendur og mér var
lyft upp á borðið við hliðina á
Alick frænda. Ég var alveg
stjörf og mállauá af ringlun og
feimni, þegar ég sá öll þessi
glottandi andlit og starandi augu
augu fyrir framan mig og allt í
kring, og ekki sízt andlitið á
móður minni og skelfingarsvip-
inn á henni. sem litlu pifurnar
á svörtu 'ekkjuhettunni hennar
undirstrikuðu.
Einhverra hlu-ta vegna reið
þetta baggamuninn. Ég var al-
veg utan við mig eftir allt sem
gerzt hafði. Ég gat ekki látið
sem ég sæi ekki öll aðdáunar-
augnaráð þessara gullgrafara,
sem þráðu kvenfólk svo ákaft.
Ég leit á Alick frænda og á and-
lit hans kom gamii svipurinn,
einkonar sambland af stríðni og
kátínu.
— Tatty er dálítið feimin,
piltar, hvislaði hann og bar hönd
fyrir munninn;
— Ég er ekkert feimin, svar-
aði ég þrjózkulega og u,m ieið
upphóf sekkjapípuleikarinn
blástur sinn.
Jæja, þegar ég skýrði firá því
í kofa fjárhirðisins, að ég gæti
ekkeirt annað en eldað mat, þá
sagði ég ósatt. Ég hef alltaf ;ver-
ið dugleg að dansa. Við dönsuð-
um oft heima beear við vorum
ein. Eins og aðrar stúlkur á mír
um aldri kunni ég alla dansana
í söngvabókinni. Ég veit lífca
að ég var léttari á fæti en flest-
ar þéirra. Og þótt Alick frændi
hefði stirðnað ögn með aldrin-
um, þá va-r hann samt bezti
dansherra sem hægt var að
Glertæknihf. simi:26395
FramleiSum tvöfalt einangrunargler og sjáum
um ísetningar á öllu gleri.
Höfum 3ja, 4ra og 5 mm gler, útvegum opnan-
lega glugga. — Greiðsluskilmálar.
6LERTÆKNI HF. Sírríi: 26395.
Ingólfsstrœti 4.
—
En ekkert eflir eins þrekið
og angandi romm í saft.
Ungfrú Callaghan var að
dansa jig og Alick frændi sem
kominn var í mildara skap af
margnefndu rommi í saft, h-orfði
á og kiappaði í takt. Litlu gljá-
burstuðu svörtu skórnir hennar
skutust út og inn milli feHin-g-
anna á pilsinu hennar og bönd-
in á hettunni henna-r sveifluð-
ust eins og svipuóla-r.. svo hratt
hringsneri-st hún.
En ekkert eflir elns þrekið
og angandi romm í saft.
— Hviss, orgaði Alick frændi
og stikiaði inn í danshringinn
með ungtfrú Callaghan og bukk-
aði sig og beygði á klunnalegan
hátt. Ungfrú Ca-liaigan þó-tti
þetta svo spaugilegt að hún
gle.ym di að stilla sig um að
brosa.
BÓKABÚÐIN
HVERFISGÖTU 64 — tilkynnir:
Mikið úrval af eldri forlagsbókam. Sum-
ar af þessum bókum hafa ekki sézt í
verzlunum í mörg ár.
Danskar og enskar bækur í fjölbreytíu
úrvali. — Komið og sjáið og kynnizt bók-
unum og hinu lága verði.
BÓKABÚÐIN
/
HVERFISGOTU 64.
Þvoið hárið úr LOXENE-Shampoo - og flasan fer
AXMINSTER býður k*[ör viS allra hœfi.
GRENSASVEGl 8
SIMI 30676.
CJ
TIL ALLRA FERflA
Dag- viku- og
mánaöargjald
i
Lækkuð leigugjöld
22-0-22
■Vf BÍLALEIGAN
MJAIAltl'
RAUDARÁRSTÍG 31
Vetrarútsalan
sténdur yfir.
GÓÐAR VÖRUR Á GJAFVERÐI.
Ó. L.
Laugavegi 71 — Sími 20141.