Þjóðviljinn - 13.05.1970, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVTUINN — Miðvikudagur 13. mai 1970.
— málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóSfrelsIs
Otgefandl; Útgáfufélag ÞlóSviljans.
Framkv.stjórl: EiSur Bergmann.
Rltstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Slgurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Slgurður V Friðþjófsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýslngastj.: Olafur iónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Siml 17500
(5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Verðskulda refsingu
^ugljóst er að ráðamenn Alþýðuflokksins finna nú
brenna á sér reiði aldraðs fólks og öryrkja vegna
þeirrar smánarlegu hækkunar á tryggingabótum
sem ákveðin var á þingi í vor. Hækkunin nam
aðeins 5,2% enda þótt kaupmáttur bótanna hefði
rýmað um a.m.k. 15%. Hafa Alþýðuflokksmenn
nú gripið til þess ráðs að kenna samstarfsflokki
sínum um, og í eintaki af Alþýðublaðinu sem
borið var í öll hús í Reykjavík á laugardaginn
var er komizt svo að orði: „Hefur hvað eftir ann-
að risið ágreiningur anilli Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins um almannatryggingar'nar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur viljað halda bótum
trygginganna uiðri og jafnvel lækka þær, en Al-
þýðuflokkurinn hefur beitt sér fyrir hækkun
þeirra. Þegar Alþýðuflokkurinn hreyfði því síðast,
að hækka þyrfti bæ'tur trygginganna töldu Sjálf-
stæðismenn það óþarft! Allir þegnar þjóðfélags-
ins hefðu orðið að sæta lífskjaraskerðingu og því
væri ekki nema eðlilegt, að sú kjaraskerðing bitn-
aði einnig á bóta-þeguim trygginganna. Slíkt var
sjónarmið Sjálfstæðisflokksins.“
þingmenn og ráðherrar Alþýðuflokksins geta
ekki firrt sig ábyrgð á þennan hátt. Þegar
frumvarp ríkisstjómarinnar um 5,2% hækkun á
bótum almannatrygginga var lagt fyrir þing,
lögðu stjórnarandstæðingar til að hækkunin yrði
15%. Þar var um lágmarkstillögu að ræða sem
ekki var unnt að gagnrýna sem yfirboð. Örlög
þessarar tillögu ultu á Alþýðuflokknum. Bæru
þingmenn hans eins mikla umhyggju fyrir kjör-
uim aldraðs fólks og öryrkja og Alþýðublaðið vill
vera láta, var verulegur þingmeirihluti fyrir þess-
ari hækkun, og ríkisstjómin hefði þá orðið að
framkvæma hana. En þingmenn Alþýðuflokksins
brugðust; þeir greiddu allir sem einn atkvæði
gegn því að bætur almannatrygginga hækkuðu
um 15%. Þá ábyrgð geta þeir ekki umflúið með
því að fela sig á bak við Sjálfstæðisflokkinn.
þingmenn Alþýðuflokksins munu bera því við að
stjórnarsamstarfið hafi verið í hættu; þeir hafi
orðið að kaupa ráðherrastólana því verði að níð-
ast á málstað aldraðs fólks og öryrkja. En þessi
réttlæting fær ekki heldur staðizt; engum dett-
ur í hug að Sjálfstæðisflokkurinn hefði þorað að
setja slíkt mál á oddinn skötmmu fyrir kosning-
ar. Skýringin er sú ein að það vantaði raunveru-
legan áhuga og einbeittni hjá ráðamönnum Al-
þýðuflokksins. Þeir hafa stjómað tryggingamálum
í heilan áratug, á mesta velmegunarskeiði sem ís-
lendingar hafa lifað, og látið það viðgangast að
við höfum dregizt lang’t aftur úr öðrum Norður-
landaþjóðfélögum á þessu mikilvæga sviði. Því
verðskuldar fomsta Alþýðuflokksins refsingu sem
um munar í þeim kosningum seim framundan em.
— m.
Hugmyndir um kvikmyndasjóð
og heildarlög um kvikmyndir
Þingnefnd lýsir yfir að aðkallandi sé að styðja íslenzka kvikmyndagerð
Q Þingmenn úr öllum flokkum, óskipt mennta-
málanefnd neðri deildar Alþingis, lýstu yfir í
þinglokin því áliti að „aðkallandi“ væri að „styðja
íslenzka kvikmyndagerð og nauðsyn að taka það
imál til ýtarlegrar athugunar til að finna því fram-
tíðarskipan.“
Við uimræður og afigreiðslu á
stjómarfrumvarpinu um breyt-
in®u á lögunum um sikeimimit-
anaskatt á nýloknu Alþingi var
beirri hugmynd komið á fram-
fasri að stoifna baeri kvik-
myndasjóð tíl sityrktar innlend-
um kviiomyndum, og nauðsyn
bseri til að sett yrði þeigar á
nassta þingi hedMarflöiggjöf um
kvifcmyndir, í líkingu við kvik-
myndaiöggjöf grannlandanna.
Frumvaxp rfkisstjómarinnar var
eingönigu fllutt vegna kvairtana
eigenda kvikmyndaihúsa um að
beir væru hættir að græða á
húsum sínum og þótti ríkis-
stjóminni sjálfsagt að iækka
opinber gjöld þeirra fyrst svo
væri kwmið! Vanandi verða
umræðumar á Alþingi til þess
að komið verði á ýtarlegri lög-
gijöf um þetta mikilvæga svið
í nútíma þjóðfélagi, og verði
löggjöf Norðurflandanna höfð
þar til hliðsjónar sem eðliiegt
má teljast, verður það að sjálf-
sögðu lögfestur sá nútíma-
skilningur, að kvikmyndaihús
eigi ekki ednigönigu að vera
gróðaillnd fýrir braskara og
engu skdpti hvaða rusl er sýnt,
heldur verði hverjum þeim sem
rekur kviikmyndaihús settar
skýrar lagareglur til aðhaílds í
vali mynda, þannig að menn-
ingairhlið kvikmyndanna fái
að njóta sín, að kvikmynda-
húsin sóu rekin ek;ki einungis
sem afþreyingarhús heldur líka
sem menningiarstofnaimr.
★ Stuðningur við innlenda
kvikmyndagerð
Magnús Kjartansson lýsti í
umnæðumuim tillögu sem hann
hetfði sýnt í menntamálamefnd
neðri deildar, en ekki náðist
samstaða um. Hetfði hann held-
ur kosið að mennitaimáiameflnd
Jéti álit í ljós á þessu mikil-
væga máli í sflimennum orðum,
en að halda tillögu sdmni til
stredtu að þessu sinni og flytja
hana á Alþingi, en um málið
Hæstu vsnjiingar
í Happdrætti Hf
Mánudaginn 11. maí var dregið i
5. fiokki Happdrættis Háskóia Is-
Iands. Dregnir voru 4.200 vinning-
ar að f járhæð 14.200.00,00 krónur.
Hæsti vinningurinn, fjórir 500.
000,00 króna vinningar, komu á
númer 31690. Tveir miðar voru
seldir í umboðinu á Akureyri oig
tveir í Borgamesi.
100.000,00 krónur komu á númer
33381. Vom allir miðamir af því
númeri seldir í Aðalumboðinu í
Tjamargötu 4.
(Birt án áfbyrgðar).
SængrurTatnaðiir
HVÍTTTR og MISLITUR
LÖK
KODDAVER
GÆSADÚNSSÆNGUR
ÆÐARDÚNSSÆNGUR
(yiðil*
SKÓLAVÖRÐUSTtG 21
var fjaílað á síðustu amnadög-
um þingsins.
Menntamóilanefnd neðri deild-
ar sagði í nefndaráltii sínu m,
a.: „Nefndin telur aðkallandi
að styðja íslenzka kvikmynda-
gerð og nauðsyn að taka það 4>
mál til ýtarlegrar athugunartil
að finna því framtíðarskipan“.
★ Kvikmyndasjóður verði
stofnaður
Tillaga Magnúsar var á þá
leið að skemmtanaskatturinn af
kvikmyndahúsum rynmd í sér-
stakan kvikmyndasjóð. Tiliag-
an í heild var þannig:
„Skemimtanasfcattur skv. 2.
gr., 2. flokki, rennur til kvik-
myndasjóðs, sem heyri umdir
menntamálaráðuneytið.
í stjóm sjóðsdns eiga sæti
fimm menn skipaðir af ráð-
herra tíl fjögurra ára í senn.
Eftirtalin samtök tilnefna einn
mann hvert í stjórn sjóðsins:
samtök kvikmyndaihúsaeigenda,
samitök kvikimyndagerðarmianna,
Bandalag. íslemzkra listamamna
og samtök kyikmyndaklúbba,
en ráðherra skipar formann
kviikmýndasjóðsíns án tilmefn-
ingar. Á sama hátt skal skipa
jafnmarga varamenn.
IButverk sjóðsins er:
a) að styrkja og efla ísílenzka
kvikmyndagerð með beinum
fjórstyrkjum, lánum, ábyrgð-
um og vefðlaunum
b) að korna á fót kvikmynda-
safni, sem heimilt skal aðsiýna
kvikmyndir sínar á sýningum.
sem umdanþegnar eru ölllum
opinberum gjöldum
c) að verðiauna kvikmynda-
hús, sem fram úr skara við
val á góðum erlendum og inn-
lendum kvikmyndum, svo og
baimamiyndum, til sýninga.
d) að stuðla á ammam hátt
að bsettri kvikmyndamenningu.
Menntamálaráðherra sfcal
setja regflugerð, sem nánar
kveður á um sitarfsemd kvik-
myndasjóðsins“.
I umræðunum á þingi um
skemmtamaskattmn sættu eig-
endur og stjórar kvikmynda-
húsa harðri gagnrýni alþingis-
manna fyrir menningarleiysd í
myndavaili bíóanma.
MELAYOLLUR
Rey k javíkurmótið:
í dag kl. 20,00 leika
FRAM-.KR
Mótanefnd.
J
■ ■ 3
! ] 1 Frumboðslistur við bæjarstjórnarkosning-1
urnur ú Suuðúrkróki 31. muí 1970 ! ■ ! ■ S m
■ ■ ■ A-listi D-listi
Alþýðuflokkur Sjálfstæðislokkur
1. Erlendur Hansen. 1. Guðjón Sigurðsson.
2. Bingir Dýrfjörð. 2. Halldór Þ. Jónsson.
3. Jón Karlsson. 3. Björn Daníelsson.
4. Dóra Þorsteinsdóttir, 4. Friðrik J. Friðriksson.
5. Einar Sigtryggssón. 5. Kári Jónsson. ;
6. Elínborg Garðarsdóttir. 6. Pálmi Jónsson.
7. Sigmundur Pálsson. 7. Erma Ingólfsdóttir.
8. Helga Hannesdóttir. 8. Árni Guðmundsson.
9. Friðrik Friðriksson. 9. Bjöm Guðnason.
10. Sigurrós Berg Sigurðard. 10. Minna Bang.
11. Haukur Jósefsson. 11. Vilhjálmur Hallgrímsson.
12. Kristinn Bjömsson. 12. Ólafur Pálsson.
13. Guðbrandur Frimannsson. 13. Jón Nikódemusson.
14. Magnús Bjarnason. 14. Sigurður P. Jónsson.
j B-listi G-ltisi
Framsóknarflokkur Alþýðubandalag
1. Guðjón Ingjmundarson. 1. Hulda Sigurbjörnsdóttir.
2. Marteinn Friðriksson. 2. Hreinn Sigurðsson.
3. Stefán Guðmundsson. 3. Haukux Brynjólfsson.
4. Kristján Hansen. 4. Lára Angantýsdóttir.
5. Stefán B. Pedersen. 5. Ari Jónsson.
6. Sveinn M. Friðvinsson. 6. Steindór Steindórsson.
7. Sæmundur Hermannsson. 7. Elías B. Halldóxssoti
8. Dóra Magnúsdóttir. 8. Fjóla Ágústsdóttir.
9. Magnús Sigurjónsson. 9. Ögmundur Svavarsson. 7
10. Ingimar Antonsson. 10. Jón S. Jónsson.
11. Pálína Skarphéðinsdóttir 11. Jónas Þór Pálsson.
12. Pálmi Sighvatsson. 12. Hjalti Guðmundsson.
• 13. Egill Helgason. 13. Valgarð Björnsson.
14. Guttormur Óskarsson. ■ ■ ■ 14. Hólmfríður Jónasdóttir. • ■
5 " ■ Kosið verður í ■ ■ ■ Félagsheimilinu Bifröst.
Kjörfundur hefst kl. 10 árdegis og lýkur honum kl. 11 síðdégis. ■ ■ ■ l ■ ■
■ Kjörstjómin á ■ Sauðárkróki, 5. maí 1970
Ámi Hansen Þórir Stephensen Jón H. Jóhannsson. 1 i
l
I