Þjóðviljinn - 04.09.1970, Blaðsíða 3
. »*u , ' 'I .- .
S-
FöstodStgur í.'-septembe'r 1970 — ÞJÓBVILJINN SlÐA 2
Þessar myndir birtu tsraelsmenn fyrir nokkru og kváOu þær á að sanna að myndirnar væru teknar eftir að vopnahléið gekk
sýna flugskeytastöðvar þær sem Egyptar hefðu komið sér upp í gildi og sagði talsmaður ísraelsku lierstjórnarinnar þegar hann
á friðlýsta svæðinu á vopnahlésmörkunum vestan Súezskurðar. sýndi fréttamönnum myndirnar að „þeir yrðu að taka þau orð
Það er ekki nema fyrir Sérfræðinga að geta greint á myndunum hans trúanleg“ að myndirnar væru teknar eftir að vopnahléið
hvað þær sýna en sérfróðir menn vefengdu ekkj að um væri að komst á. Nú fullyrðir Bandarikjastjórn að njósnaflugvélar þeirra
ræða flugskeytastöðvar og sýnir fyrri myndin staðinn áður en og njósnatungl hafi tekið enn skýrarj myndir sem taki af allan
flugskeytunum var komið fyrir en sú til hægri eftir að þeim vafa um að Egyptar hafi rofið vopnahlésskilmálana með þvi að
hafði verið komið upp. Hins vegar höfðu ísraelsmenn engin tök koma sér upp flugskeytastöðvum á hinu friðlýsta svæði
Horfur á að samningaumleitunum um
frið í Austurlöndum nær muni slitið
Bandaríkjastjórn kveðst hafa óyggjandi sannanir fyrir Idví að Egyptar
hafi rofið vopnahlésskilmálana — Talið er að ísrael slíti viðræðum
WASHINGTON 3/9 — Allar
horfur eru nú taldar á að
slitna muni, a.m.k. um sinn,
upp úr hinum nýbyrjuðu
samningaumleitunum í aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóð-
anna í New York, milli full-
trúa Egypta og ísraelsmanna
og dr. Jarrings, sáttasemjara
SÞ. Bandarikjastjórn til-
kynnti í dag að hún hefði nú
í höndum óyggjandi sannan-
ir fyrir því að Egyptar hefðu
rofið vopnaliléið með því að
koma sér upp flugskeyta-
stöðvum á friðlýsta svæðinu
við Súezsfcurð og talið er
víst að hinir herskáari ráð-
herrar í stjóm ísraels tnuni
nota tækifærið til þess að fá
meðráðherra sína til þess að
fallast á að samningaviðræð-
unum verði slitið.
McCloskey, talsmaöur banda-
ríska iutanríkisráöuneytisims, sagði
á fundi með blaðamönnum í
Washington í dág að enginn vafi
væri á því að Egyptar hefðu með
aðstoð Sovétríkjanna komið sér
upp ffliugskeytastöðvum á frið-
lýsta svæðinu, þveirt ofan í
áikvæði vtjpnaMéssamninigsins.
Yoru sýndar myndir sem teknar
hafa verið síðustu daga úr banda-
riskum njósnafluigvélum og
njósnatunglum sem fara yfir firið-
lýsta svæðið og kvað McCloskey
Kúba orðin meðal öflugustu
hervelda rómönsku Ameríku
LONDON 4/9 — Samkvæmt árs-
skýrslu hei'rannsóknarstofnunar-
innar í - London er Kúba með
öflugustu herveldum í rómönsku
Ameríku. Landið hefur þriðja
stærsta herinn í rómönsku Amer-
íku, flestar orrustuvélar' og llengri
herþjónustu en tíðkast í öðrum
löndum rómönsku Ameríku.
Brasilía, sem er stærsta land-
ið í rómönsku Ameríku hefur
stærsta herinn eða 194.350 menn
undir vopnuim. Argentína hefur
næstfjölmennasta herinn eða
137.000 henmenn, og Kúha er sem
fyrr segir nr. 3, með 109.500
manns undir vopnum. Kúbanar
eru helminigi fámennari en
Brasilíumenn. Mexíkó, sem er
annað stærsta land rómönsku
Ameríku hafur fjórða stærsta
herinn og telur hann 68.500
rnanns. Kólumtoía er . fimmta
landið í röðinni með 64.000 menn
undir vopnutm. því ‘ næst Ohile
með 61.000 henmenn og þá er
Perú með 54.650 hermenn.
Kúbanar eiga ■ 185 orrustuflug-
vélar, Perúmenn 129, Mexíkanar
120, Brasilíuimenn 110. Her Ven-
Söguleg
fæðing
ezúela á 75 orrustuflugvélar cg
argentínská herinn á 70.
1 skýrslu stofnunarinnar segir
að Argentínumenn og Brasiiliu-
menn verji meira fé til land-
vama en fflest hinna smærri
Evrópuríkja, en Kúbanar verji
þó enn hærri fúlgum til hemað-
arþarfa. Árið 1969 runnu 6,1%
þjóðartekna til landvama.
Verður samningaumleitunum þeirra slitið?
Myndirnar eru af þeim þremur mönnum sem tekið hafa þátt í samningaumleitununum um frið í
Austurlöndum nær j aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna, frá vinstri eru það þeir Xekoah, full-
trúi ísraels, dr. Jarring, sáttasemjari SI», og El-Zayyat, fulltrúi Egyptalands. Viðræðurnar sem
fara þannig fram að Jarring gengur á milli hinna tveggja og talar við þá, hvorn í sínu lagi. hafa
nú legið niðri nokkra daga og allar horfur eru á að þær hefjist ekki aftuc um sinn að minnsta kosti.
Hreindýrin
Frmhald af 1. síðu.
verulega fækkun hreindýranna
að ræða-. Að sjólfsögðu er þessd
krafa um endurtalningu van-
traust á því að rétt bafj vetrið
talið í sumar, en það er vissa
mín að ef einhver breyting ver’ð-
ur á fjölda dýranna við endur-
talningu. þá munu þau fremur
reynasf færri en fleiri, því að
ekki er vist að bannið hafi ver-
ið toaldið
Það mjnu vera hótelstjórairn-
ir í Reykjávík fremur en bænd-
umir-sem fastast toafa sótt eft-
ir að veiðii hreindýranna verði
leyfð, og eftir því sem Þjóð-
viljinn hefúr frétt munu þeir
ætla að borga kostnáðinn af leit-
inni. Bændur rökstuddu kröfu
■sína um endurtalningu með því
að þeix hefðu orðið fyrir veru-
legum ágangi hredndýranna í
vetur og í vor og bendi það til
þess að fjöJdd þeirra sé meiri
en talið hef-nr verið, og hafi
þeir ýmsan skaða af þessum
áganifL ,,
engan vafa á að um fréklegt
brot væri að ræða af hálfu
Egypta og Sovétríkjanna, sem þá
styddu, á ákvæðum samningsins.
Bandaríkjastjóm teldi þetta mál
mjög alvarlegs eðlis, því að það
hefði aldrei verið ætlun hennar
að vopnahléið yrði tál að veikja
vígstöðu og varnarmátt Israels-
manna.
Sem dæmi um hve alvarlegum
augum væri litið á þetta mál í
Wakhington nefndi McCloskey að
sendiherra Bandaríkjanna í
Moskvu hefðj verið falið að bera
fram umkvörtun Bandaríkja-
stjómar við Gromyko utanríkis-
ráðherra sjálfan. Boð um þetta
voru send til Moskvu í nótt sem
leið, en ekki er vitað hvort
sendiherrann hefur enn haft
samband við Gromyko.
Styrkir stríðsfálkana
Þessi yfirlýsing Bandaríkja-
stjórnar mun vafalaust styrkja
mjög stöðu hinna herskáari með-
al ráðherra Israelsstjómarinnar,
en þar eru þau frernst í flokki
Golda Meir forsætisráðherra og
Dayan landvamaráðheiTa.
Israelsk blöð skýrðu frá því í
dag að Dayan hefði á dögunum
lagt til á róðuneytisfundi að
Israelsmenn gerðu leifturárásir á
hinar nýju flugskeytastoðvar sem
Egyptar væru að koma sér upp,
en hann myndi nú vera fallinn
frá því, þar sem Egyptar væru
nú undir það búnir að taka á
móti ísraelsku árásarflugvélun-
um. Hins vegar er talið líklegt
að Dayan komi fram þeirri skoð-
un sdnni sem meirihluti stjórnar
ísraels hefur verið andvíg til
þessa, að hún svari aðgerðum
Egypita með þvi að slíta þeim
samningaumleituivum við þá sem
farið hafa fram í New York
undanfarið.
Gefið sjálfdæmi
Sennilegt er taiið, sagði írétta-
ritari brezka útvarpsins í dag,
að á fundi ríkisstjómaonnar á
sunnudaginn kemur muni þeim
Meir og Dayan gefið sjálfdæmi
um öll viðbrögð ísraelsmanna og
muni Tekoah, samningamaður
ísraels, ekki halda aftur til New
Yonk, fyrst um sinn a. m. k.,
en hann hefur verið heima sáð-
ustu daga til að gefa stjórn sinni
skýrslu um viðræðumar.
Veik slaða Nassers?
Samtímis þessu héldur áfram
úlfúðin og ágreiningurinn milli
araba innbyrðis. Blaðið „A1
Ahram‘‘ í Kaíró sem jafnan er
talið túlka sjónanmið egypzku
stjórnarinnar hvatti í dag stjóm
Jórdaníu til þess að koma á eðli-
legum samskiptum milli sín og
samtaka skæruliða sem hafa að-
alstöðvar sínar í Amman, höfuð-
borg Jórdaníu.
Fréttaritari brezka útvarpsins í
Kaíró sagði í dag, að þar væri
talið að vaxandi andstaða sam-
taka landfllótta Palestínubúa
gegn öllum viðræðum við ísrael
hefði veikt aðstöðu Nassers, en
hins vegar aukið áhrifavald
stjómar Iraks, sem frá upphafi
heflur verið andvíg hvers konar
viðræðum við Israelsmenn
GAUTABORG 3/9 — Á sjúkra-
húsi í Gautaborg fæddist í dag
stúlka eftir 34 vikna meðgöngu-
tíma utan legs. Talið er að þetta
sé í fyrsta sinn, sem utanlegs-
fóstur sér dagsins ljós, en stúlkan
var heilbrigð í alla staði eftir
fæðinguna. Læknar sjúkraihússins
skáru móðurina upp og náðu
barninu lifandi
Skipti á
stríðsföngum
KALIFORNlU 2'9 — Skýrt hefur
verið frá því opinberlega í
Bandaríkjunum, að Sovétríkin
hafi lofað að hlutast til um, að
Norður-Vietnamar. hafi skipti • á
föngum við Bandaríkjamenn. Frá
þessu skýrði geimfarinn Frank
Borman, og kveðst hann hafa
tryggingu frá Sovétstjómdnni
fyrir því, að hún muni gera
sitt til að leysa stríðsfangavanda-
málið. Borman sagði, að saknað
væri 1600 Bandaríkjamanna- í
Indókína, og vonast væri til, að
um 500 væru enn á lífi. Enn-
fremur sagði hann, að miílli 8—9
þúsund Norður-Vietnamar væru
striðsfangar í Suður-Vietnam.
SKIPAlirGCRÖ KIKISINS
Ms. BALDCR
fer til Snæfellsness- og Breiða-
fj'arðarhafna mi'ðvikudaiginn 9.
sept. Vörumóttaka mánudag og
þriðjudag.
Verkfull hafnarverkamannu
í Rotterdam stendur ennþá
ROTTERDAM 3/9 — Verfcfalil
hafnairverkamianna í Rotterda.m
stendur enn yifir, enda þótt ein-
hverjir af hinuim 16.000 verk-
fallsmiönnum hafi sniðgengið
ráð verkalýðsifélaga sinna og
haldið til vinnu, þegar atvinnu-
rekendur höfðu boðið 25 gyllina
launahækkun á viku.
Talsmenn verkilýðsiflólaigianna
telja, að það hafi verið um 1.000
verkamenn, sem sneru aftur til
vinnu, en sögðu jafnfnamit, að
hinir ætluðu að hald;, barátt-
unni áifiram, en þeir krefjast 75
gyllina launahækkunar. Til stað-
festingar á þeirri kröfu fóm þeir
mótmælagöngu til aðaíbsakistöðva
atvinnurekenda í kvöld.
Áhafnir dráttaribáta í Rotter-
daimlhöfn, sem gerðu samúðar-
verkfaill til að styðja kiröfur
verkamahnahna, sneru aftur tál
vinnu sinnar í dag.
Auglýsing
,x.'dfök&QjŒ<'í\.
um meðferð forsetavalds í fjarveru
forseta íslands.
Forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, fór
í dag í opinbera heimsókn til Danmerkur.
í fjarveru hans fara forsætisráðherra, for-
seti Sameinaðs Alþingis og forseti Hæsta-
réttar með vald forseta íslands samkvæmt
8. grein stjórnarskrárinnar.
í forsætisráðuneytinu, 2. sept. 1970.
JÓHANN HAFSTEIN.
Knútur Hallsson.
Starfsstúfka óskast
Starfsstúlku, ekki yngri en 20 ára, vantar í vist-
heimili ríkisins að Breiðuvík, V-Barðastrandar-
sýslu. Allar nánari upplýsingar gefur forstöðu-
maður heimilisins. Sími um Patreksfjörð.
Reykjavík, 3. sept. 1970.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Frá Sam vinnuskóianum
Bifröst
Samvinnuskólinn Bifröst byrjar starfsemi sína
mánudaginn 21. september. Nemendur mæti í skól-
anum þann dag fyrir kl. 18,00 (kl. 6 e.h.). Norður-
leið h/f tryggir sérstaka ferð til Bifrastar. Verður
lagt af stað frá Umferðarmiðstöðinni kl. 14,00 (kl.
2 e.h.) umræddan dag.
Skólastjóri.