Þjóðviljinn - 17.10.1970, Side 2
2 SlÐA — IxTÖÐVILJINN — Laugardagur 17. október 1970.
ReykjanesmótiB í
handknattleik '70
Reykjanesmótið í handknatt-
leik stendur nú yfir. Sex leikj-
um er loláð í meistaraflökki
karla, en nú verður einnig
leikið í II. flokki karla. Er
aetlunin að auka þannig við
mótið smátt og smátt eftir því
sem tími og húsrými leyfir. Má
því búast við því að í fram-
tíðinni verði leikið heima og
heiman og í öllum flokkum í
Reykjanesmótinu í handknatt-
leik.
Úrslit einstakra leikja fram
að þessu eru sem hér segir:
Grótta—FH 17:25
IBK — Haukar 16:37
Grótta — Breiðablik 14:15
FH — IBK 29: 9
Breiðablik — IBK 14:25
Grótta — Haukar 21:22
Má búast við því að barátt-
an um fyrsta saitið í meistara-
flokknum standi milli hinna
gömlu keppinauta úr Hafnar-
firði, Hauka sem eru núver-
andi Reykjanesmeistarar og
hinna margreyndu kappa úr
FH, en þeir hyggjast nú saakja
gull í greipar nágranna sinna í
Firðinum. Sex lið taka þátt í
keppninni í II. fl. að þessu
sinni, en það eru: Stjarnan úr
Garðahreppi, Breiðablik úr
Kópavogi, Grótta af Seltjam-
amesi, Keflvíkingar og Hauk-
ar og FH úr Hafnarfirði.
Keppninni verður framhaldið
á morgun, sunnudaginn 18.
þ.m. og hefst kl. 18,00. Verða
þá leiknir sex leikir í II fl.,
Stjaman — Breiðablik, Grótta
— IBK, FH — Haukar, Stjam-
an — Grótta, Breiðablik — FH
og ÍBK — Haukar. Þá fer bg
fram einn leikur í mfl. milli
FH og Breiðabliks. Laugardag-
inn 24. október hefst keppnin
kl. 16,20 og verða þá leiknir
þessir leikir í II. fl.: Stjaman
— FH, Breiðablik — IBK,
Grótta — Haukar, Stjaman —
ÍBK, Breiðablik — Haukar,
Grótta — FH. I mfl. ledka
Breiðablik og Haukar.
Framhald á 9 síðu.
Rödd
húsbóndans
1 umræðunum á þingi í
fyrradag um hásætisræðu Jó-
hanns Haífsteins tók Hannibal
Valdiimarsson foimaður frjáis^
lyndra og vinstrimanna m'.a.
tiil máls. I ræðunni las hann
upp ályktun sem miðstjóm Al-
þýðusambands Isilands hafði
gert uim leyniviðrasður sínar
við ríkisstjómina, en blöðum
hafði fram að þeim tíma ver-
ið neitað um að þirta ályktun-
ina. I svarræðu sinni minnti
Jóhann Hafstedn Hannibal á
að hann mætti ekki blamda
þannig saiman tveimur hlut-
verkum sínum á hinu pólit-
ísfca leiksviðd, forsetastönfum í
Alþýðusambandinu og for-
mennsku í hinum frjáls/lynda
flokki. Hannibal varð nokkuð
litverpur og vandræðalegur
við þessar snuprur. Hann hetf-
ur vafalaust minnzt þess að
Jóhann gat fliutt umvamdanir
sínar af nokkru húsbóndavaldi
— Hannibal er forseti Al-
þýðusambandsins í umboði
Sjálfstæðísflöikksdns og Al-
býðufflokksins.
Að
halda fund
Eftir kosninigahrakfarimar í
vor skipaði miðstjóm Albýðu-
flokksins níu manna nefnd til
þess að fjalla um stöðu
flokiksins og áframhaildandi
stjómairsamvinnu. Nefndin
átti að skila áliti fyrir I5da
ágúst, en élitið birtist ekki
fyrr en í 'fyrradag — tveimur
mánuðum síðar. Vom það
raunar siíðustu forvöð þar
sem flokksþing Alþýðuflokks-
ins hófst í gær. Aða’tillaiga
nefndarinna.r er sú gagnmerka
hugimynd „að þingflokki Al-
þýðufflokksins verði fallið að
hafa frumkvæði að samneigin-
legum fundi þingHlokka Al-
þýðuflokksins, Samtaka frjéils-
lyndra og vinstrimainma og
Alþýðubandalagsins til þess
að raeða stöðu vinstrihreyfing-
ar á íslandd“.
Ekki er þess getið í állykt-
uninni hvort þingffloktour
Sjálfstæðisfflokksiins á ednnig
að vera á fundinum eða hvort
ætlunin er að skjóta honum
inn á milli hinna samedigin-
legu funda stjómarfloltkanna.
Not-
ið tækifærið!
Alþýðubandalagið hefurlagt
fram fruimvarp um verðstöðv-
un og eiga ákvæðin að gilda
frá þeim degi þegar frumvarp-
ið var birt. Jóhann Hafstein
hefur hins vegar með loðn-
um orðuim boðað að ríkis-
stjómin hyggi á verðstöðvun
síðar, til að mynda í nóvem-
ber. Þessi tilkynning Jóhanns
um væntanlega verðstöðvun er
afar athyglisverð. Hún er vís-
bending til allra þeirra sem
vilja hækka verð á vörum og
biónustu um að nú verði þeir
að flýta sér. Er ekki að efa
að fésýslumenn kunna vel að
meta þessa aðvörun forsætis-
ráðherra síns og hækka nú
allt hvað af tekur þaö sem
beir hafe á boðstólum.
Slíkar aðvaranir um vænt-
anlegar efnahaigsráðstafainir
þættu stórhneyksli í öllum ná-
grannalöndum okkar og réð-
herra sem leyfði sér slifkt yrði
ekki vært. En betta er ekkert
einsdæmi á íslandi. Þannig
var gengislaskkunin 1968 boð-
uð með margra. ménaða fyrir-
vara og rikisstjiómin Jét bað
afskiptalausít bótt fjárplógs-
menn haignýttu þá vitneskju
sér til hins mesta ábata á
kostnað almennings. — Austri.
Bikarkeppni KSÍ:
Sígur á seinni hluta keppninnar
Ármann — Breiðablik í dag en Fram — Hörður og ÍBK — Valur á morgun
íslenzka landsliðið í knattspymu. sem lék gegn Frökkum í sum-
ar, og sennilega verða ekki miklar breytingar á því fyrir leik-
ina við Frakka í undankeppni Olympíuleikjanna á næsta ári.
1 dag og á morgun heldur
bdkarkeppni KSl áfram. Einn
Ieikur fer fram í dag og þá
mætast Ármann og Breiðablik
á Melavellinum, en á morgun
leika svo Valur og IBK í
Keflavík og Hörður frá Isa-
firði og Fram á Melavellinum.
Leikur Ármanns og Breiða-
bliks verður án efa skemmti-
legur. Þessi lið léku um síð-
ustu helgi og fengust ekki úr-
slit þrátt fyrir vítaspyrnu-
beppni, því að eftir venjulegan
leiktíma var jafnt, 2:2, ogeins
eftir framlengingu, og í víta-
spymukeppninni varð einnig
jafnt, 4:4.
★
Á morgun leikur svo Fram
gegn Isafjarðarliðdnu Herði, en
það lið vann Vestfjarðasvæð-
iskeppnina í bikamum og fór
þar með í aðalkeppnina. Eftir
öllum sólanruerkjum að dæma
ætti þessi leikur að verða
Fram-liðinu auðveldur, mun-
urinn á I. og 2. deildarliðunum
er það mikill.
Aðalleikur helgarinnar verð-
ur aftur á móti í Keiflavík á
morgun, þegar mætast lið Vals
og ÍBK í bikamum. Bikar-
keppnin er síðasta von Kefl-
víkinga til að ná í sigurverð-
laun á keppnistímabilinu og ör-
uggt má telja að þeir verði
erfiðir heim að sækja Aftur á
móti virðist Vals-liðið vera í
ham, enda hefur liðinu gengið
óvenju vel síðari hluta sum-
arsins, og um síðustu helgi setti
liðið markamet, er það sigr-
aði Þrótt frá Neskaupstað 15:0.
Ég spái jöfnum og skemmtileg-
um leik í Keflavik á morgun
og ekki er ótrúlegt að það liðið
sem sdgrar á morgun, leiki til
úrslita í bikarkeppninni.
— S.dór.
HEFUR TEPPIN SEM
HENTA YÐUR
TEPPAHUSIÐ
*
SUÐURIANDS-
BRAUT 10
*•
SÍMI 83570
Undankeppni ÓL í knattspyrnu:
íslendingar leika
gegn Frökkum
Eins og áður hefur verið
sagt frá, tekur íslenzka Iands-
liðið í knattspymu þátt í
undankeppni Olympíuleikanna,
sem lokið á að vera fyrir júní-
Iok næsta ár. Dregið hefur ver-
ið í riðla fyrri lotu undan-®-
keppninnar og leikur íslenzka
liðið gegn því franska.
Verra gat það verið másegja
um andstæðinginn. Við lékum
við Frakka landsleik í knatt-
spyrnu fyrir rúmu ári, úti í
Frakklandi, og unnu Frakkar
þá 3:2 og síðan, eins og menn
muna 1:0 í leik hér heima á
Laugardalsvellinum s.l. sumar.
Þar sem einungis áhugamanna-
lið eigast við í undankeppni
Olympíuieikanna, er alls ekiki
vonlaust að íslenzka liðiðsigri
það franska og komist i aðra
umferð. 1 fyrstu lotu eru rið'l-
amir í Evrópu 11 og hver mcð
tveimur löndum. Tvö lönd
komast beint í aðra umferð,
en það eru síðustu Olympíu-
meistarar, Ungverjar, og gest-
gjafar næstu Olympíuleika, V-
Þjóðverjar. 1 annarri umferð
undankeppninnar mætast sig-
urvegarar úr 1. og 2. riðli, 3ja
og 4ða o.s.frv. Þannig að ef
íslen2ba liðið sigrar það
franSka og kemst áfram mætir
það sigurvegara úr riðlinum
Sovétríkin — Holland.
Framhald á 9. síðu.
&
Eigum fyrirliggjandi
ódýrar Pípur — Spónaplötur — Báraðar
asbestplötur.
Ennfremur: Steypustyrktarjárn og -stál —
Þakjám — Þakpappa — Saum o.fl.
VERZLANASAMBANDIÐ H.F.,
Skipholti 37. Sími 38560.
Soluii
Jpfe HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR
— .«J| \ | m||I ánjómunstur veitir góða spyrnu
í snjó og hálku.
önnumst allar viðgerðir hjólbarða
* 8 ) J með fullkomnum tækjum.
Snjóneglum hjólbarða. i
GÓÐ ÞJÖNUSTA. — VANIR MENN. I
BARÐINN HF. |
1—— Ármúla 7. — Sími 30501. — Reykjavík, |