Þjóðviljinn - 09.12.1970, Side 12
Nýi Dettifoss
kom í gær
Dettifoss, hið nýja skip Eim-
skipafélags Islands kom á ytri
höfnina kl. 18 í gærkvöld og
átti skipið að Ieggjast að bryggju
um kl. 20.
Skipið er með fullfermi af vör-
um og er því ætlað að halda
uppi reglubundnum hraðferðum
milli Rottierdam, Felixstowe,
Hamborgar og Reykjavíkur ásamt
systurskipi Dettifoss, sem nú er
í smíðum í Álabcxrg hjá sömu
skipasmíðatöð, dg er væntanlegt
í apríl á næsta ári. Dettifoss er
4400 tonn dead weight og mesta
lengd 95,54 metrar. Aðalvél
skipsins er smiðuð hjá Burmeist-
er & Wain og er 5 strokka tvi-
gengis dísellhreyfill, 2820 hestöfl.
Má gera ráð fyrir 14 sjómílna
ganghraða, þegar skipið er tfiull-
hlaðið. Til nýjunga má telja, að
aðalvél skipsins er stjórnað frá
brúnni. Þar er stórt stjómborð
útbúið fullkomnum tækjum til að
stjóma vólinni. Er Dettifoss ann-
að íslenzka sldpið útbúið svona
og hefur skírteini til að mega
sigia án þess að vakt sé í véla-
rúmi. Goðafoss var fyrsta skipið,
sem er flokkað UMS, enda eitt af
þeim skipum, er samið var um
við Aalborg Værft árið 1968 um
leið og samið var um Dettifoss
og systurskip þess.
Framlhald á 9. síðu.
Dr. Róber-t ásamt einsöngrvurunum Guðmundi Jónssyni, Sigurveigu Hjaltested og Sigurði Björns-
syni, svo og Árna Kristjánssyni tónlistarstjóra R ikisútvarpsins. (Ljósm. I>jóðv. A.K.).
Hljómburðarplötur við flutning 9. sinfóníunnar
Svo til uppselt á
tvenna hljómleika
■ Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og söngsveitin Fíl-
hartnónía ásamt einsöngvur-
unum Svölu Nielsen, Sigur-
veigu Hjaltested, Sigurði
A tvínnuleysi hefur
uukizt í nóvember
— um meira en helming í kauptúnum
■ Atvinnuleysi hefur aukizt víðast hvar á landinu í nóv-
embenmánuði og voru um síðustu mánaðamót á atvinnu-
leysisskrá á landinu öllu 1114 manns, en 637 í lok október.
Af kaupstöðunum voru flestir atvinnulausir á Siglufirði
235 og á Akureyri 175, en 102 í Reykjavík. í kauptúnum
hefur atvinnuleysi aukizt um helming í nóve’mber, úr 173
í októberlok í 355.
Þetta kemur fram í sfcýrslu
Félaigsmálaráðuneytisins og sést
þar að af 1114 atvinnulausum á
skrá í landinu eru 542 karlar og
572 konur. Mest er atvinnuleysið
á Siglufirði og eru þar 99 karlar,
þar aif 88 verkamenn og 5 iðnað-
armenn, og 136 konur á atvinnu-
leysisskrá og er þar orðið lang-
varandi aitvinnuleysi, þegar í
októþer voru 231 á skrá.
Á Akureyri eru skráðir 175
atvinnuilausir, 64 karlar og 111
konur, en voru 152 í lok október.
í Reykjavík hefur atvinnuleysi
ednnig aukizt, úr 83 á sferá í 102,
61 karl óg 41 kona. í kaupstöð-
unum hefur atvinnuileysið aukizt
mest í mánuðinum á Sauðár-
króki úr 11 í 73, Ólafsfirðj úr
engum í 69 og Húsavík úr eng-
um i 58. Alls eru skráðir at-
vinnulausir í kaopstöðunum
fjórtán 769 manns, 339 karlar og
430 konur, en voru alls 500 um
mánaðamótin okt./nóv.
Á Dalvík eru 11 karlar og 10
konur á atvinnuleysisskrá, annars
er atvinnuástand gott í stærri
kauptúnum, þ. e. þeim tíu sem
hafa yfir þúsund íbúa, í Grinda-
Framiiaild á 9. síðu.
Björnssyni og Guðmundi
Jónssyni flytja 9. sinfóníu
Beethovens undir stjórn dr.
Róberts A. Ottóssonar í Há-
skólabíói n.k. fimmtudags-
kvöld og á laugardag kl. 2,30
Nær uppselt er á báða tón-
leikana, og ekki hefur verið
tekin ákvörðun um, hvort
þeir verði endurteknir.
Sömu aðilar filuttu 9. sinfóní-
una fyrir nærfellt 5 árumrt, og
voru þá 5 tónleikar haldnir fyrir
fuilu húsi. Efitir því að dasma og
aðsókninni nú, virðist sem þetta
mieistaraverk eiigi óvenjumiikinn
hljómgrunn hjá Islendingum.
Væntanlega nýtur verkið sín enn
betur í flutningl nú en í fyrra
skiptið, því að Háskólabíó hefur
fengið nokkrar hljómburðarplöt-
ur, sem verða vígðar á tónleik-
unum á fimmtudag, og bæta þær,
að sögn dr. Róberts talsvert
hljómburðinn í salnum.
9. sinfónían er nú tekin til
flutnings meðfram vegna þess, að
á þessu ári eru liðin 200 ár frá
fæðingu Ludwigs van Beethpvens,
og er þess minnzt um allan
heim. Þetta er 10. verk hans, sem
Sinfóníuhljómsveitin tekur til
flutnings á árinu, en síðastliðið
vor filutti hún ásamt Fílharmón-
íu Missa Solemnis, og hefur auk
nokkurra píanókonserta Beet-
hovens flutt 3., 4., 5. og 7. sin-
fónfu hans o. fil.
Sigurður Björnsson, sem starf-
að hefur við óperuna í Kassel á
3. ár, er nýkominn til landsins
Framihjaild á 9 síðu.
Alþingiskosn-
ingar 1. eða 2.
sunnud. í júní
Heyrzt hefur að innan
stjórnarflolokanna fari nú
fram umræður um .það að
flýta kosningunum til al-
þingis að vori. Gert er ráð
fyrir því að kosningar til
þings séu eigi síðar en síð-
asta sunnudag 1 júní, en
síðustu allþingiskosningar,
1967, voru annan Sunnudag
júnímánaðar. Því mun nú
talið eðlilegt að hafa kosn-
ingar fyrr í sumar, þ. e.
1. eða 2. sunnudag júní-
mánaðar. Fari svo, þanf að
samþykkja sérstakt þingrof.
Miðvikudagur 9. desemiþer 1970 — 35. ángangur — 281. tölublað.
ÆskuiýisráB Islunds
komii á luggirnur
Menntamálaráðherra beðinn að hotta á það
■ Æskulýðsráð íslands, samkvæmt nýju'm lögium, var kos-
ið og skipað nú í nóvember og eiga þessir sæti í því: Hai-
steinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri UMFI, Skúli Möll-
er framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Islands, Bem-
harður Guðmundsson æskulýðsfullltrúi þjóðkirkjunnar,
Gylfi ísakson bæjarstjóri Akraness, og Örlygur Geirsson
fulltrúi, en ráðherra skipaði hann formann ráðsins. Verð-
ur starf æskulýðsfulltrúa ríkisins auglýst laust á næstunni.
í fyrirspurnartíma Alþingis í
gær var m. a. svarað fyrirspurn
Jónasar Árnasonar hvað liði
framkvæmd laganna um æsku-
lýðsmál. Minnti Jónas á að sam-
kvæmt lögum þessum sem af-
greidd voru s. 1. vor skal stofng
sérstakt æskulýðsráð ríltisins og
skal hlutverk þes vera að skipu-
leggja og samræma opinberan
stuðning við æskulýðsstarf í
landinu og örva starfsemi þeimra
samtaka sem að æskulýðsmálum
vinna; að leitast við að samræma
æskuilýðsstarfsemi félaga, skóla
og sveitarfélaga og stuðla að sam-
vinnu þessara aðila um assku-
lýðsmál og efla þá til sam-
eiginlegra átaka uim lausn ákveð-
inna verkefna. Það á að gera til-
lögur til menntamólaráðlherra um
fjárveitingar til æSkulýðsmála.
Þá er því ætlað að efna til um-
ræðufunda og ráðstefna um
æskulýðsmál eigi sjaldnar en einu
sinni á ári; að safna gögnum um
æskulýðsmál hérlendis og er-
lendis, fylgjast með þróun þeirra
mála, og láta í ljós umsagnir til
stjórnvalda um mál sem varða
æskulýð og æskulýðsstarfsemi.
Framhald á 9. síðu.
Bréf um framkomu lögreglunnar í Reykjavík:
Lætur óátalið að troða fána
frelsishreyfingar niður í svaðið
Stórsigur vinstriaflanna í
Pakistan markar tímamót
Yfárgnæfandi sigur sósíalistaflokksins í Vestur-
Pakistan og sjálfstjórnarsinna í austurhlutanum
★ Þjóðviljanum barst í gær
undirritað bréf með yfirskriftinni
„Lögreglan tekur pólitíska af-
stöðu“ og er þar f jallað um þann
atburð' er ungur maður reif fána
þjóðfrelsishreyfingarínnar í Suð-
ur-Vietnam, af stúlku sem var
að safna fé í Pósthússtræti. Ungi
maðurinn Ict sér ekki nægja að
taka fánann af stúlkunni, heldúr
traðkaði hann niður í svaðið,
segir í bréfinu. „Hvað kemur
lögreglunni við? Tii hvers er
hún? Hvert cr hlutverk hennar?“,
er spurt í bréfinu af því tilefni,
að lögreglan neitaði að skipta
sér af aðgerðum mannsins.
Undir bréfið rita Sigurður O.
Brynjólfsson, Jens B. Baldiuxs-
son, Elísabet Jónasdóttir og Helga
Jónasdóttir. Segir í bréfinu að
s. 1. föstudag haifi félagar úr
Vietnamhreyfingunni saifnað fé í
Pósthússtræti. Hafi lögregluþjón-
ar gengið framihjá söfnunarfólki
og látið söfnunina afskiptalausa.
Nú ber þarna að ungan mann
Dg rifiur nióur íána Þjóðtfrelsis-
fylkingar Suður-Vietnam af
stúlku, sem hélt á fónanum.
„Hann leggiur filaggið niður og
stiliir sér ofaná það og traðkar
það niður í bleytuna. Síðar man-
ar hann fóíLk að ráðast á sig
og ná þar með fiánanum. Félagar
höfðu lítinn áhuga á barsmíðum
og biðja hinn þess vegna að láta
fánann af .hendi með góðu. Hinn
neiitar en heldur áfram að mana
fólk til slagsmóla. Þegar sýnt
þótti að vinurinn vildi ekki skila
fánanum, fór einn félagi Viet-
namihreyfingarinnar inn á Lög-
reglustöð“.
„Þar inni endurtók hann firá-
sögn sína og biður lögregluna
hjálpar við að ná aftur fónanum.
Svar iögregluþjónanna var á þó
lund, að þetta kæmi lögreglunni
ekki nokkium skapaðan hlut við,
þeir vildu ekkert skipta sér aíf
þessu, hreyfingarfélagar hefðu
bara átt að halda fánanum hærra
upp. Eftir noktour orðastoipti, þar
sem lögreglan hélt fram af-
skiptaleysi sínu í þessu máli,
fór hreyfingarmaðurinn út, enda
var engrar hjálpar að vænta
frá vörðum laganna.
Fyrir uitan var allt við það
sarna: Drengurinn stóð enn á
fánanum og bað menn lemja
sig til að ná fánanum. Þá steig
hann ofan á fiánastöngina, svo
hún brotnaði. Endirinn á þessu
varð þó sá, að hreyfingarfélagar
náðu til sín fónanum án óspekta
og raunar án þess að snerta
óróasegginn. Það var þó mest
fyrir mdidi því hinum var alvara
með slagsmálin".
Síðan er í bréfinu fjallað um
skyldur lögreglunnar og vitnað
er 34ðu greinar laga um með-
ferð opinberra mála, 5ta kafla
um lögreglumenn og upphaf
rannsóknar: „Hlutverk þeirra
(lögreglumanna) er að halda uppi
lögum og reglu, greiða götu
manna, þar sem það á við,
Framhald á 9. síðu.
KARACHI 8/12 — Stórsigur
vinstriaflanna í Vestur-Pak-
istan, sósíalistaflokks Bhutt-
os, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, í fyrstu frjálsu
þingkosningunum í landinu
og alger yfirburðasiguir sjálf-
stjórnarflokks Mijuburs
Rahmans í austurhluta
landsins hefur vakið mikla
athygli og kann að sögn
fréttamanna að hafa víðtæk
áhrif á allan gang mála í
Suður-Asíu.
í kvölld var Ijóst orðið að
lHotklkur Bhuttos, sósaalistaflokkur
múhameðsmanna, sem telst rót-
tæk-ur og hefur haft náið sam-
band við kínversika kommúnista
myndi fá mákinn meirihluta
þeirra sæta á samibandsþinginu
sem Vestur-Pakistönum er ætlað,
eða að öllum líkindum 87 þing-
sæti af 119.
Ef allt verður mieð fiellldiumun
Bhutto bera höfuð og herðaryf-
ir aðra stjórnmálaforingja í Vest-
ur-Patoistan, stærri og mlfclu
Bhutto, leiðtogi sósíalista, sigurvegarinn í Vestur-Pakistan.
Yahya Khan
auðugri hluta landsins, þótthann
sé fiámennari, en yfirburðir Aw-
ami-bandailags sjálfi&tjómarsinna
í Austur-Pakistan sem toretfjast
aukinnar sjólfstjói’nar og lausnar
undan ofurvaildi auðmanna og
forréttind'astétta í Vestur-Pakist-
an vom þó enn meiri, því að
bandálagið hlaut 151 af 153 sæt-
urn landshlutans á samibands-
þinginu.
Awamifloklkurinn hefur þannig
hreinan irieirihiuta á sambands-
þinginu og mun vafalaust knýja
fram kröfur sínar um aukna
sjálfstjórn Austur-Pakistans. Tal-
ið er að h&nn muni leita sam-
starfs við flokik Bhuittos semmun
fús til að ganga að sjólfstjóm-i
arkröfum Austur-Pakistana. Tak-
ist ekíki samtoomulag þeirira á
milHi er etofci annað sýnna en
aö landið klofni í tvö rifci.
Allar lfkur eru taldar á að
þeir geti náð samtoomulagi oger
á það bent að þeir hafi hatft
með sér góða samvinnu í kosn-
ingabaráttunni.
Yáhya Khan hershöifðingi sem
farið hetfur með völd í lamdimi
síðan Ayub Khan var steypt af
stóli í marz í fyrra hefur gefið
sambandsþinginu 120 daga firest
til að tooma sér saman um ný
stjómlög tfýrir landið.
Kona fyrir bíl
Kona varð fyrir jeppabifreið
í gærmorgun á Ti-yggvagötu.
Gekk hún á ská yfir götuna og
ók bíllinn á hana. Konan hand-
leggsbrotnaði og meiddist á and-
liti. Var hún flutt á Borgarspítal-
ann. Konan heitir Svava Jakobs-
dóttir.
í gær var ekið á kyrrstæðíí
Opel-bifreið við Templarahúsið,
Barónsstígsmegin. Bifreiðin stór-
skemmdist á hliðinni og sá sem
ólk á toama og statok atf.
\
W