Þjóðviljinn - 15.09.1971, Side 2

Þjóðviljinn - 15.09.1971, Side 2
2 SIÐA — ÞJÖÐVTLJOCBÍN — MiðvfkMJáagHT 15. septemlbair 19TL Tottenham hafði kennslu í sóknarleik 11000 áhorfendur fengu að sjá dýrasta lið Englands sigra Keflvíkinga 6:1 í gærkveldi Q Sjaldan hafa menn fengið að sjá eins glöggt og í gærkvöld hve hyldjúp gjá er á milli atvinnu- manna og áhugamanna í knattspymu, þegar dýr- asta lið Englands, Tottenham, með leikmenn upp á 800 miljónir ísl. króna sigraði ÍBK á Laugar- dalsvellinum 6:1 í UEFA-bikarkeppninní. Greini- legt var að Tottenham-liðið lék ekki á fullum hraða, en samt var það svo, að mikið hefði ekki þurft til að mörkin yrðu 10. Það skal þó sagt Keflvíkingum til hróss að þeir börðust eins og hetjur gegn ofureflinu og það eitt að skora mark hjá Toitenham er afrek. Chivers og Ástráður j baráttu um boltann. 1 því besta haustveðri sem haegt er að hugsa sér. logni og hita, komu 11000 áhorfendur á Laugardalsvöllimi til að sjá Tótténham og IBK leika. Á rhéðal þeirra voru 250 áhang- endur Tottenham, er állan leik- inn hrópuðu eða sungu hvatn- ingar og aðdáunarsöngva um sína memn og þessi litli hópur hafði bétur en 10700 Islending- ar í hvatningarhrópunum. Þeár gerðu þó meira en hvetja sína menn, þeir fögnuðu öllu þvi, sem vel var gert í leiknum og skipti þá ékki máli hvort það voru leikmenn Tottenham eða IBK er gott gerðu, því var fagnað jafnt. 1 byrjun leiksins leituðu Tóttenham-menn fyrir sér um SCNDIBILASTOÐIN HF styrkleika andstæðinganna og virtist það edni tíminn í leikn- um, er þeir léku af fullum krafti. í>egar þeir höfðu fundið að hér var ekiki við sterkt lið að etja, á mælikvarða atvinnu- manna drógu þeir af sér eða eins og einn áhorfenda sagði: — þeir fá peninga fyrir það, sem þeir eru að gera og hver legg- ur meira á sig i vinnu en hann þarf? — Þetta má eflaust til sannsvegar færa, í það minnsta lék liðið aldrei á fullum hraða að sögn þeirra er séð hafa Tottenham leika í ensku 1. deildarkeppninni, þar sem andstæðingamir eru af sama gæðaflokki og þeir. Keflvik- ingar urðu fyrir því óhappi að missa Vilhjálm Ketilsson útaf í fyrstu mínútunum.. Hann meiddi sig svo alvariega í fyrsta návíginu er hann lenti í strax á 2. mínútu. Það var „kóngurinn á White Hart Lane*' Alan Giliean, sem skoraði fyrsta mark Tottenham. Bókumarkaður Helga Tryggvasonar, Amtmannsstíg 2 Opinn aftur I fllll mm Þorsteinn Ólafsson ver hér eitt af mörgum skotum Tottenhamleikmannanna í leiknum. Þorsteinu eftir fremur slaka byrjun. sig er á leið leikinn, É|| jrajll ■' i r* ■>w iví ||i Martin Chivers skaut þrumu- skoti að'marki, Þorsteinn varði en hélt ekki boltanum sem hrökk til Giizean og hann ýtti honum innfyrir iínuna 1:0. Stephen Perryman innherji var í „dauðafæri" á 9. mínútu en skaut ■ jrfir, og nokkrum simnum á næstu mínútum brást Tottenham-mönnum bogaiistin inní vítateig og ekkeri gerðist fyrr e5n á”25. mínútu. Þá gaf Gilzean vel fyrir mark- Ið og 40 miljóna króna maður- inn Ralph Coates, er Totten- ham keyptl frá Burnley í vor, skoraði glæsilegt mark með skalla 2:0. Loks á 30. mínútu komust Keflvikimgar í marktækifæri, er Steinar Jóhannsson skaut hörku skoti af nokkuð löngu færi, boltinn stefndi í mark- homið niðri en Pat Jennings markvörður varði af snilld. Keflvíkingamir léku að sjálf- sögðu vamarieik, en mér fannst þeir of ragir að sækja og það sýndi sig í þau fáu skipti, sem það var reynt skipulega, kom- ust þeir í færi eða uppundir vitateig Tottenham, en það var bara svo sára sjaldan að þeir þorðu að sækja. A 31. mínútu kom svo mark númer þrjú og það var enski Iandsliðsmaðurinn Alan Mull- ery, sem það skoraði, eftir að Gilzean hafði sleppt boltanum framhjá sér innan vftateigs og hann hafnaði hjá Mullery er var óvaldaður á marktcig og hann átti ekki í neinum erfið- leikum með að koma boltanum f markið, 3:0. Á 40. mínútu munaði ekki nema hársbreidd að fjórða markið kæmi þegar bafcvörður-- inn Cyril Knowles skaut í þverslá úr aukaspymu rétt ut- an vítateigs, og á síðustu mín- útunni var markakóngur Tott- errham, Martin Chivers í „dauða færi“ en skaut yfir og staðan í leikhléi var því 3:0. Strax á 1. mínútu síðari háilf- leiks komst Steinar Jóhannsson innfyrir Tottenhamvömina en skaut yfir af riokkuð löngu færi. Á 9. mínútu átti Ohivers fast skot, sem Þorsteinn varði í hom, en svo á 13. mímútu kom fjórða markið. Þetta var hroðalegt klaufa- mark, sem Mullery skoraði með skoti af 35 tll 40 metra færi. Þorsteinn varði boltann en missti hann úr höndum sér og í markið. 4:0. Fimmta markið kom svo um 4 mínútum siöar og það var Giizean er það skor- aði sitt annað mark í leiknum og var það gert með skalla eft- ir að boltanum hafði verið varpað langt inní vítateiginn úr innkasti. 5:0. Á 22. minútu áttu Keflváking- ar eitt sitt bezta tækifgsri, er Steinar Jóbannsson skaut fima föstu skoti en Jennings varði með naumindum í hom. Loks á 31. mínútu kom mark- ið sem allir biðu eftir. Þeir Steinar og Gisli Torfason léku vel saman upp völlinn, Gísli kom í færi og skaut mjög fiistu skoti, sem Jennings varði en hélt ekki og Ólafur Júlíusson, er fylgdi vel á cftir, náði bolt- anum og skoraði við gífurleg fagnaðarlæti áhorfenda. Þetta var fallegt mark og sérlega vel að bví unnið. Mínútu síðar átti Gilzean skot í þverslá og þar munaði sannarlega litlu að sjötta mark- ið kæmi. Og þótt manni finnd- ist nú nóg komið átti „kóng- urinn“ Gilzean eftir að skora sitt þriðja mark og var það á 40. mínútu eftir nokkurt þóf innan vítateigs, 6:1. Þetta urðu svo lokatölur leiksins, auðvitað sanngjam sigur og sizt of stór. Þótt þama léki dýrasta lið Englands með iandsliðsmann í nær hverju rúmi hélt maður að meira sæ- ist af góðri knattspymu og vel útfærðum leik en raun varð á. Þeir menn, sem mesta hrifn- ingu vöktu vorj Alan Gilzean og var hann að mínum dómi bezti maður liðsins, Alan Mull- ery, mjög skemmtilegur leik- maður og Mike England mið- vörður. Þá var mjög skemmti- legt ari sjá hvemig bakvörð- urinn Knowles lék og munu aðrir vart hafa leikið bakvarð- arstöðuna betur hér á Laug- ardialsvellinuim. Baiph Coates var og einniig mjög skemmtileg- ur meðan hann var inná, en hann meiddist og varð að yfir- gefa völlinn snemma í síðari hálfleik. Af Keflvíkingunum,-þgr, rGísli Torfason af og var hann eini maðurinn í liðinu er virtist hafa í fullu tré vicj aityinpii- mennina. Þeir Guðni Kjart- ansison og Einiar Guijnarsson áttu einnig góðan leik, sem og Ástráður Gunnarsson bak- vörfSur, en auðvitað var þetta leikur varaarmannanna. Þor- steinn Ólafsson virtist óstyrk- ur í markinu lengi framan af. en undir lokin sótti hann sig og varði þá mjög vel. Dómari var irskur, D. Bar- rett að nafni og dæmdi sér- staklega vel, var nákvæmur og sjálfum sér samkvæmur allan tímann. — S.dór Hörku skot Cyril Knowles hafnaði i þverslá og boltinn sást hrökkva út á völlinn aftur.,

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.