Þjóðviljinn - 10.10.1971, Blaðsíða 16
Fjórtán bátar fengu
sæmilegan síldarafla
norður af Eldey í fyrri-
nótt. Ennfremur 20 míl-
ur vestur af Surtsey. Var
heildarafli þeirra um
200 tonn.
I gær átti að salta 35 tonn úr
Þorsteini RE h.já BÚR hér í R-
vík. Þá var Helga RE væntanleg
til Þorlákshafnar um hádegi í
gær með 15 tonn. Átti söltun hjá
Ihgimundi h.f. að hefjast um kl.
14 í -gær svo að saltað var á
tveimur stööum hér á höfuðborg-
arsvæðinu í gær.
Þá lögðu bátarnir ennfremur
upp afla til söltunar í Vest-
mannaeyjum, Þorlákshöfn,
Grindavík og Keflavík.
Þessir bátar fengu afla í fyrri-
nótt á Eldeyjarbanka og suður
a.f Surtsey: Þorsteinn RE 35
tonn, Bergur 6 tonn, Hafrún RE
25 t. örfirisey 15 tonn, ísleifur
IV 9 tomi, Hrafn Sveinbjarnar-
son III 6 tonn Jóm Finnsson
GK 5 tonn, Óskar Magnússon
AK 25. tonn Höfrungur AK III
30 tonn, Ólafur Sigurðsson AK
15 tonn, Gullberg VE 10 tonn,
Guðbjörg GK 9 tonm, Sigurpáll
GK 14 tonn, Helga RE 15 tonn.
Afli bátanna er nokkuð mis-
jafn og eru þeir misjafnlega
heppnir frá degi til dags. Á
föstudagsnóttina fékk Ólafur
Sigurðsson frá Akranesi 100 tonn
af síld vestur af Surtsey, en fékk
svo nóttina eftir á sömu slóðum
15 tonn í nótina.
I fyrrinótt öfluðu bátarnir bezt
á Eldeyjarbanka og nóttina áður
höfðu 12 bátar fengið um 600
tonn á þremur stöðum við Suð-
urland m.a. á Breiðamerkur-
djúpi.
Von var á síldarleitarskipimu
Hafþóri til Reykjavíkur í gær
vegna smávegis bilunar. Hjálmar
Vilhjálmsson, fiskifræðingur
stjórnar síldarleit á Haflþóri og
var haft eftir honum í gær, að
síldar hefði orðið va.rt a Jökul-
djúpi auk áðurnefndra veiði-
svæða. Síldin hafi staðið djúpt
og hún verið erfið viðureignar.
Hins vegar væri síldin stór og
falleg og tilvalin til söltunar
Um 15 bátar eru komnir á síld-
veiðar hér við Suðurland. g.m.
,Enginn Islendingurá
hlut / álbræðslunni'
Viðtal við Hermann Guðmundsson
Framhald af 1. sídu.
Við leituðum álits Her-
manns á lengingu orlofs í 4
vikur eins og segir í stjórnar-
sáttmála.
— Við höfum barizt fyrir
því á undanförnum árum að
lengja sumarleyfistímann, en
þetta má ekki verða sýndar-
mennska hjá fóiki. Margir hafa
ekki tekið orlof undanfarin ár
af því að launin hafa verið of
lág. Ég tel þýðingarmest að gera
fólM kieift að fara í sumarleyfi,
hvort sem tíminn er langur eða
skammur. Þá tel ég rétt að til-
taka minnst 24 vinnudaga sem
orlof á ári á sama tíma og bor-
in er fram krafa um 5 daga
vinnuviku. Það er ekki raun-
hæft að tala um 4ra vikna oriof
án þess að tiltaka vinnudaga-
fjöldann um leið.
Mér finnst ekki fjarstæða að
verkalýðsh reyf i n g i n skipuleggi
sjálf orlofsferðir verkafólks,
bæði innamlands og utan og
verkafólk eigi þá kost á því að
skipta orlofstímanum á vetur og
sumar.
Verkalýðshreyfingi'n á Norð-
urlöndum hefur fest kaup á hús-
éignum á sólarströnd Spánar eða
Kanaríeyjum og mér finnst
ekki fjarstæða að koma upp
slfkri aðstöðu í suðrænum lönd-
um eins og byggð eru oriofshús
úti í sveitum á vegum samtak-
anna.
Það er ótrúlega stór hluti af
verkafólki, sem tekur ekki sum-
arleyfi og nýtur ekki þeirrar
hvíldar og hressingar, sem það
þarfnast frá streitu hversdags-
ins í lífi nútímafólks. Þetta þarf
að breytast hjá verkafólki.
Ein af kröfum verkafólks að
þessu sinni er kauptrygging fyr-
ir tímavinnufóilik. Þessi krafa hef-
ur mesta þýðingu fyrir vérica-
konurnar hér í þéttbýliskjarnan-
um ó Suðuriandi. Ennfremur
fyrir verkaíólk úti á landi sem
býr oft við skerta atvinnu og er
kallað út hluta úr degi hverju
sinni, sagði Hermann.
Að lokum vikum við talinu
að þeirri kröfu um endurskoð-
un á greiðslu kaups í veikinda-
og s'lysatt'lfellum og ákvæði
samninga um slysatryggingar.
— Vitaskuld ætti. tryggingalög-
gjöfin að vera það fullkomin, að
við ættum ekki að þurfa að
standa í samningum við a.t-
vinnurekendur um þessa hluti,
sagði Hermainn. Nú er farið
fram á, að verkamenn haidi ó-
skertum iaunum, ef þeir veik-
ist — eftir fyrsta starfsár 60
daga á ári — eftir 5 ára starf
120 daga á ári — eftir 10 ára
starf 180 daga á ári. Þá verði
vinnuveitanda gert skylt að
greiða allan sjúkrakostnað og
læknishjálp verkafólks í slysa-
tilfellum og vegna atvinnusjúk-
dóma. Þá beri vinnuveitendum
að tryggja verkafólk fyrir slys-
um á vinnustöðum og nemi bæt-
ur til aðstaindenda kr. 750 þús-
und miðað við dauða eða 1 milj-
ón kr. við 100fl,n örorku. Verka-
fólk fái sömu bætur fyrir slys
er henda á leið þess milli vinnu-
staða og heimila. Eru þetta hóf-
lc-gar kröfur. g.m.
— Hvað eigfa Islending-
ar mikinn hlut í álverk-
smiðjunni í Straumsvík
og hverjir eiga þar hlut?
Fyrir svörum varð
Halldór J. Jónsson, verk-
fræðingur.
UMRÆÐU-
FUNDUR
/ í vetur verða starfrækt-
J ir á vegum Alþýðubanda-
I lagsins í Reykjavík um-
í ræ’ðuhópar með svipuðum
/ hætti og var síðastliðinn
* vetur. Hóparnir verða
^ tvenns konar: Umræðu-
^ hópur um fræðikenningu
/ sósiialismians og umræðu-
Í hópur um verkalýðsmál.
^ Fundur til undirbúningis
i þessu starfi verður hald-
l inn n.k. miðvikudagskvöld
7 ki. 8,30 í Lindarbæ uppi.
\ Verður þar fjallað nánar
1 um starfsfyrirkomulag hóp-
i anna.
/ Þeir ’ sem hyggjast taka
\ þátt í þessu starfi eru
\ hvattir til að fjölmenna á
4 miðvikudagskvöldi'ð.
\ Alþýðubandalagið í Rvik.
Korkiðjan: Einangruð rör
SÍMI 23200 — SKÚLAGÖTU 57 — REVKJAVÍK
STÁLRÖR VS’ — 6”
Svört, galvanisieruð
HLÍFÐARKÁPA, 90 — 250 mm
Polyethylen (PEH)
SAMSETNINGAR
Skotmúffur og gúmmíhringir
GREINIHLUTIR
Hné og lé, þenslumö'guleikar
Plastíðjan: Einangruð rör
SÍMI 993116 — EYRARBAKKA
EINANGRUN, U R E T H A N
Hitaþol > 140*0 ■
Vatnsdrægni < 4% V
Varmialeiðni .< a,02 Kcal/mkl. °C
Það á cnginn Islcndingur hlut
í álverksmiðjunni. Alusviss á öll
lilutabréfin Það voru sett sér-
stök lög í sambandi við álverk-
smiðjuna. samningurinn um liana
var undanþcginn þeim iögum
scm gilda hér á landi uin það að
Islendingar verði að eiga mciri
hluta í fyrirtækjum, sem erlend
fyrirtæki stofnsetja hér á landi.
☆
I aðalsamningi um Isal stend-
ur m.a.: Alusviss er haimilað sem
einkastofnanda og einkahluthafa,
eð'a að fengnu sám'þykki ríkis-
stjónnairinnar með þátttöku allra
hluthafa, ásamt einum eða fleir-
um minnihiluta hluthöfum, að
láta stofnsetja ísal með saimningi
þessum o.s.frv. Síðan segir um
hlutafé Isal: Innboa-gað hlu.tafé
Isals eins og það er ákveðið á
hverjum tíma, skal aldrei vera
m.inna aö fjárhæð etn sem jafn-
gildir þriðjungi bókfærðra fasta-
fjármuna þess. Upphaílegt hluta-
fé Isals má auka hvenær sem
er eiftir því sem rekstur Isa.ls
kreíst í samræmi við ákveðnar
samþykktir l>ess. Hlutafé Isals
má lækka hvenær sem er með
breytingum á samþykktum þess,
á þann hátt er í þeim greinir
O'g þanmig að hiutafé Isals skal
eklki lækka niðuríyrir þá fjár-
hæð er jafngildir þriðjungi af
bófcíærðuim eignum þess. HQuba-
bréf ísals skal gefa út og skrá
á nafin Alusviss (og þau eru nú
öll skráð á Alusviss) og ef Alu-
sviss fer fram á það, og ríkis-
sitjóirnin samþykkir það, mó nota
nafm eins eða fleiri minnihluta
liluthafa, enmfremur má Alusviss
með samþykki ríkisstjómarinnar,
selja og framselja. hlutabréf Is-
als að því tilskildu þó, að eft-
ir slíka útgáifu eða sölu, skal
Alusviss aldrei eiga minna en
51% þeirra útistandandi hluta-
bréfa er hafa atkvæðisrétt í Is-
al.
Síðan segir: Álusviss, eða
minni hluta hluthafa. er óheim-
ilt að seljá, framselja eða veð-
setja hlutabréf í ísal nema með
samþykki rfkisst.iórnarinnar.
Fasistar berja á
fasistum
Foringi uppreisnarmannanna
í Azul í Argentínu Carlos Car-
cia offursti, gafst upp í dag á-
ssmt liði sínu, enda var það
vænlegast þar eð tíu þúsund
manna herlið stjórnar Lanusses
forseta var á leiðinni til að
berja uppreisnina niður. Upp-
reisnarmennimir voru aðeins um
tvö þúsund talsins og hefðu
því naumast haft roð við stjóm-
arhernum, sem hafði fjörutíu og
sex franska skriðdreka og sjö-
t.íu og fimm þungar fallbyssur
sér til halds og trausts. Ekki
kom til manndrópa i uppreisn-
artí'li'auninni, og menn Carcia
gófust upp átakalaust.
Kínamálin á Allsherjarþinginu:
„Eins og að spila
golf á tunglinu"
Tsjá-sjú-kæ, utanríkisráðlierra Taiwan situr liér hugsi og lilýðir
á umræður um Kínamálið.
— Hvernig þróast málin þarna,
t.d. Kínamálið? — spurðum við
Jónas Árnason úti í New York
í gærmorgun.
— Þeir sem bezt vita telja,
að handarísku tillögumar fói í
hæsta lagi 58 atikvæði, 62 eða
63 rífci munu greiða atikvæði á
mó'ti Bandaríkjamöninum og með
albönsku tillögunni. Sennilega
munu' 12 eða 13 ríiki sitja hjá.
Búizt er við, að Bandaríkjamenn
fái það alls ekiki fram að til-
laga þessi verði tekin til at-
kvæðagreiðslu; albainska tillagan
komi því næst til atkvæða-
greiðslu, verði samþykkt og
bandaríska tillagan verði -bar
með úr sögunni. Hugsanlegt er
að Bandarífcin flytji ttllögu jffl
að albanska tillagan verði borirt
upp í tvennu lagi, fyrst sá part-
ur sem kveður á um aðild Pek-
ing, síðan seinni parturinn, b-c.
Taiwan fái sætið. Efcki er talið
líklegt, að sú málsmieði'erð verði
samlþykkt. Það er t.d. auðheyrt
á Skandinövunum að þeir munu
styðja að tillagan komi fyrir í
einu lagi.
— Þýðir það að Peking fari
þar mcð inn og Taivvan út?
— Jó, það getur varla leikið
nokkur vafi á þessu lengur.
Bandaríkin eru að tapa málinu
— jafmvel þó öll bandaríska
ser.dinefndin verji „öllum vöku-
stundum sínum“ („all our wak-
ing hours“) — eins og ambassa-
dor Bandaríkjanna George Bush
orðaöi það í samkvæmi, sem
fulltrúar New York héldu oktkur
■nokkrum S.Þ.-fulltrúum um dag-
inn — eyði öllum mínum vöku-
stiindum í það að reyna að
tryggja Taiwan áfram sæti hér
sem einhvei'skonar extra Kína.
— En hv>aö segja Taivvan-nienn
sjálfir? Heyrist ekkert í þcim?
— Þeir era hinir reiðustu, ekki
sízt í garð Baindaríkjaman'na, fyr-
ir að vilja nú loks viðui-kenna
þennan slump af Kínverjum. (I-
búatalan hleypur í sætum nianna
hér frá 700 miljónum upp { 850
miljónir) sem býr á meginland-
inu.
Þessi ræða Bush. sem ég
minntist á, var auðheyrilega stii-
uð á þá Taiwan-búa, sem þarna
voru allmargir viðstaddir. Og í
gær þegar fulltrúi Taiwan, Tsjá-
sjú-kæ, var búinn að tala (hann
kvaðst ætla að bíða með að
ræða aðaldeilumálið þangað til
sérstök umræða um það hefsf, —
saigði ékkert sérstakt) — þá raojk
Bush strax yfir þveran salinn til
að taka í höindina á honum. Það
geklc mdkið á. Og þegar Bush
kom aftur í sæti sitt, sendi hann
Alan Shepard, sem á sæti í
bandairísku sendinefndinni alla
þessa löngu leið til að sýna. að
hann væri líka ánægður meö
raeðuna. Alan Shepard er geim-
fari sem kunnugt er og spilaði
golf á .tunglimu, mjög geðfelldur
maður. Það er synd að hann
skuli þurfa -að standa í því að
hressa uipp á þessa Kínapólitík
Ameríkana, se<n í rauninni er
álíka tilgangslaus eins og að
spila golf á tuinglinu.
Alþýðubandðlagið
Akranesi
Alþýðubandalagið á Akranesi
heldur fund í Rein mánudaginn
11. október kl. 21.
Fundarefni:
1. Yfirlit yfir kostnað végna
alþingiskosninganna.
2. Almcnn félagsmál,
3. Félagssarfið i vetur.
4. Vestlendingur.
5. Kosning fulltrúa á lands-
fund Alþýðubandalagsins.
FIILAGAR, fjölmennið'.
Stjórnin.
Hættatimi
fer í hönd
Lögregilan á Selfossi sagði
blaðinu í gær, að nú færi só
tírrli í hörtd þegar skepnur liéldu
sig mjög við vegkanta og rás-
uðu gjarnan yfir vegina. „1 gær
var ekið á hest og hainn drepinn
skammt frá Vorsabæ. og við
Sogsbrú var ekið á kind og hún
skilin eí'tir slösuð á veginuirí1,
sagði lögreglan. „Það væri ekki
úr vegi að óminna bílstjóra
vegna þessa og biðja, þó um
að aka varlega“, sagði lögregl-
an að lokum.
4