Þjóðviljinn - 19.10.1971, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 19. otfctaber 1971 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA J J
Stjörnuspá
fyrir næstu
viku
HRÚTURINN
Ef að konan þín ætiar að
berjia þig skialtu segja:
Sk'ammja stund verður hönd
höggi fegin.
NAUTH)
Þú ert búinn að gleyma
þvá að það er koníakspeli á
baík við bækumar í efstu hill-
,:unni. Bættu úr þessari van-
ræikslu.
TVÍBURARNIR
Þú skalt ekki súta það að
þú komst ekki á baUið. Ef að
þú hefðir farið þá hefðir þú
verið sleginn í rot
KRABBINN
Yfirmaður þinn mun ekki
brosa við þér þegar þú kem-
ur í vinnuna á mánudiags-
morgun en þú skalt bara
taka því með karlmennsku og
hiuigprýði.
LJÓNIÐ
Þú færð fleiri konur (eða
karla) til laigs við þig en í
síðustu viku. Passaðu bara að
ofreyna þig ekki.
MÆRIN
Reyndu að misbjóða ekki
Getraunum með ágizkunum
þínum.
VOGIN
Það getur ekki nema tvennt
gerzt; annaðhvort batnar á-
standið eða það versniar,
nerna hvorttveggja sé.
SPORÐDREKINN
Það borgar sig betur núna
að karjpa nýjar flöskur en að
tærma þaer áteknu.
BOGMAÐURINN
f þessari viku er sérstak-
lega heppileg staða fyrir þig
með Júpíter í þriðja húsi ef
þú hefðir hug á að skipu-
leggja skattsvik, bóhaldsfals
eða hafa rangt við í spilum.
STEINGEITIN
Reyndu að vera kurteis
enda þótt það stríði grimmt
á móti eðli þínu eins og þú
veizt
VATNSBERINN
Vonandi geturðu farið á
kvennafar án þess að verða
til almenns athlægis.
FISKARNIR
Þú skalt skipta um tann-
kremstegund og svitaeyði og
þá muntu verfSa langMfiur í
landinu.
um agndofa og steinihljóðra mat-
argiestanna.
— Þú komst. Og þú hittir
hana eftir að við skildum í
gærkvöldi, klukkan ellefu. Er
það ekki, Gi'llis, er það ekki?
Hann er risinn á fætur. Hann
hörfar frá borðinu og héldur
áram að hrópa:
— Þú hittir hana... og... þú
myrtir hana.
11.
BÆRINN UNDRAST
Sunnudagshneykslið á hótel-
inu lognaðist út af fyrir til-
stilli eða aðfarir Ohisters Wijks
og góðborgaramir voru agn-
dofa dögum saman.
— En hvað gerði hann þá?
— Ekki neitt.
— Ekkd nedtt? Það er fráleitt.
Ekki hefur hantn látið þennan
tónlistargepil standa þama gaspr-
andi og ásaka GiUis Nilson fyrir
morð?
— Nei, auðvitað ekki. Hann
leiddi hann út. Áður en nokk-
ur vissi, var haran búinn að
leiða hann fram í anddyrið.
— Hvom þeirra, Nilson eða
Bodé?
— Eiginlega béða tvo.
— Og svo?
— Svo kom hann inn aftur,
fékk sér heljarstóran skammt af
nýrnajafningnum og fór aft-
ur til Almi Graan og móður
siinnar.
— Hvað þá? Kom Ihann inn
strax aftur?
— Tja, eiginlega. Það var
engu líkara... hvemig á ég að
orða það. ,.. en hann tæki þetta
ekki alvarlega Og þegar hann
var búinn að borða og gleypa
í sig sjö bolla af kaffi stakk
hann af tií Stokklhólms.
— En sú ósváfni Hvað þprf
hann að • vera að flæjast í
Stokkhólmi þegar fólk er að
kála hvert öðru hér í Skógum?
Þessu hefði Wijk lögreglufor-
iragi getað aindimæilt; það var alls
ekki sannað að neinn hefði
myrt Evu Mari Hessér og það
var heldur ékki í hans verka-
hring að sanna það. Reyndar
hafði hann fuindið lögreglufull-
trúa frá héraðslögreglunni í and-
dyrinu og hafði afhent horaum
æsta tónskáldið og keppinaut-
inn.
Þessar röksemdir hefðu þó
ekfci dugað til fyrir bæj-
arbúa. Þeir halda áfram að
spyrja og velta vöngum og gagn-
rýna.
21
— Af hverju gerist ékki raeitt?
Hvað eru allir þassir lögreglu-
menn að gera?
— Og enginn fasr að vita
neitt. Þetta sem stendur í Skóga-
tíðindum er tóm tjara. „Tuttuigu
og fimm ára gömul koraa lézt
meðan Hornið hans Hylands
stóð yfir. Dánarorisök óljós‘*.
Hvað í ósköpunum kemur Lenn-
art Hyland þessu máli við, það
er þó líklega ékki hann sem
hefiur drepið hana.
— Það væri nær að þjarma
að hinum sjónvarpsmanninum.
Af hverju taka þeir hann ekki
fastan?
1 húsi Antonssons í sfcugga
kirkjugarðsins er það umfram
allt síðari spurningin sem er
til umræðu á þriðjudagskvöldið.
Hákon Hesser hefur verið spurð-
ur svo ótal margs um ótal smá-
atriði í lífi Evu Mari að hann
getur hæglega svarað fleiri
spurningum. Þrátt fyrir ná-
kvæmnisvinnu tæknimanna og
rannsóknarsérfræðinga gerist
séralítið, af þeirri einföldu á-
stæðu að eran ríkir alger ó-
vissa um flest atriðin í sam-
bandi við andlát eiginkonu hans.
Þar til skýrsla lögreglulæknis
Hggur fyrir eru því lögreglan og
dagblöð stödd í eins konar tóm-
rúmi. EðUJegur dauðdagi eða
ekki? Það er ástæðulaust að
gera þetta að æsifrétt, ef það
kynni svo að koma í ljós að
aHs ekki sé um afibrot að ræða.
Bezt að bíða átekta.
Og fólk fær að bíða.
Það dregst að skýrslan sé
lögð fram.
Hákon er örþreyttur og mið-
ur sín hann er hokinn og álút-
ur, glaðlega brosið er með öHu
horfið, brún augun sljóleg.
Berit Edman fyllist skelfingu
þegar hún sér hann. Hún hugsar
með sér:
— Mikið befiur hann verið
hrifinn af henni. Mikið saknar
hann hennar!
Það er Ragnhildur sem hefur
beðið Berit að líta til þeirra,
hún hefur áhyggjur af syninum,
andHt hennar með breiðu kinn-
beinunum hefur líka á sér
þreytumerki.
Hún er sú eina sem er svart-
klasdd. Anti röltir fram og aftur
um stofuna í röndóttum uHar-
slopp. Hákon er klæddur bláum
nankinsbuixum og rúskinsrjakka,
sjálf er Berit kftædd græna
skíðabúningnum síum til hlífð-
ar vaxandi kuldanum.
Þau reyndu að hressa sig á
kaffi og nýbökuðum vínarbrauð-
um, en samræðumar eru treg-
ar og óeðlilegar. Loks sleragir
Berit sér út í það og fer að
tala um Evu Mari.
— Hafa þeir... hafa þeir
enga hugmynd um hvemig hún
dó?
— Nei segir Hákon með fá-
látri beiskju.
— Og ekki hvenær það gerðist
heldur?
— Nálægt miðnætti eftir
því sem Severin lsaknir álítur.
— Þegar ég fór, segir Berit,
var klukkan fjórðung yfir sex.
Þessi hversdagslega athuga-
semd vekur allt í einu feikna
athygli.
— Þú! Hákon téfour nasstum
andköf. Varet þú hjá henni...
þennan dag?
— Já. Ég ætlaði að hjálpa
henni að elda matinn. Handa
þér. En þú komst ekfci. Við fund-
um bara miða sem á stóð að þú
værir farinn í akstur.
— Varst það þú, spyr Ragn-
hildur, sem lagðir á borð? Á
eldhúsborðið... handa henni oe
þér... ?
— Nei. Ljósa hárið flaksast til,
svo ákaft hristir hún höfuðið.
Henni var mikið í mun að Josna
við mig í skyndi — og þess
vegna fór ég burt, enda þótt
eldhúsið væri fullt af gúrfcum
og raefcjum og vf'nflöskum og
dýrlegum nautalundum. Við ...
við ætluðum að búa til tum-
bauta. Með hvítlauk.
öllum að óvörum segir Anti
það sem máli skiptir, enda
þótt hann hafi setið hálfsofandi
í stól langa stund.
— Mikið í mun að losna við
þig... hvers vegna þá? Urðuð
þið ósáttar? ,
— Nei, nei... hún bað mig
bara um að fara
— Var hún ekki búin aö
bjóða þér í mat?
— Jú, en hún sá sig um
hönd. AJlt í einu sfcipti hún um
skoðun. „Ég er vant við látin
í lcvöid,“ sagði hún.
útvarpið
Þriðjudagur 19. októbcr 1971:
7,00 Morgunútvarp: Veðurfregn-
ir kl. 7,00, 8,30 og 10,10. Prétt-
ir kl. 7,30, 8,30, 9,00 og 10,00.
Morgunbæn kl. 7,45. Morgun-
stund bamainna kl. 8,45: Sig-
ríður Eyþórsdóttir eradar lest-
ur sögunnar af „Kóngsdóttur-
inni fögru" eftir B.iama M.
Jónsson (8). — TJtdráttur úr
foirustugreinum dagblaðanna
kl. 9,05. Tilkynningar M. 9,30.
Þingfréttir kl. 9,45. — Létt
lög leikira milli ofangreindra
talmálsJiða, en kJ. 10.25 Nor-
næn tónHst: Fílharmoníusveit-
in í StoklkhóJmi Jeikur Seren-
ötu op. 31 í F-dúr eftir Wil-
helm Stenhammar; Rafael
Kubelik stj. (11,00 Fréttir). —
Tom Krause syngur lög eftir
Jean Silbalius; Westchester-
sinfóníuliljóimsveitin leikur
Sinfóníu nr. 6 „Sinfonia Sem-
plice“ eftir Carl Nielsen; Si-
eglfried Jjandau stj.
12,00 Dagskráin — Tónleifcar —
Tilkyinraingar. —
12,25 Fréttir og veðuirffireginir —
Tilkynningar — Tónleikar —
13.15 Húsmæðraþáttur Dagrún
Kristjánsdóttir flytur.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Síðdegissagan: „Hjáfrönsk-
um stríðsföngum í Weingart-
en“. Séra Jón Sveinssom
(Norani) segir frá ferð í fyrri
hetonsstyrjöld: Haraldur Hann-
esson hagfr. les þýöingu sína.
15,00 Fréttir — Tilkynningar —
15.15 Ungversk tónlist: Ung-
verska fílharmomíusveitin leik-
ur Danssvítu eftir Bartók; An-
tal Dorati stjómar. Kórar
ungverska útvarpsins syngja
kórlög eftir Kodály; Zoltán
Vásárhelyi stjómar. Julius
Katchen og FíJharmoníusveit
sjónvarpið
Þriðjudagur 19. október 1971.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Kildare læknir. Kildare
gerist kennari. 5. og 6. hluti,
sögulok.
21.25 Einsöngvarakór. Níu ein-
söngvarar, Guðrún Tómas-
dóttir, Svala NieJsen Þuríður
Pálsdóttir, Margrét Eggeris-
Luradúna leika TiJbrigði um
vögguvísu op. 25 eftir Dohn-
ányi; Sir Adrian Boult stj.
17,00 Fréttir. — Tóraleikar.
17.30 ..Þættir af önnu Signði“
eftir Guðrúnu Guðjónsdóttór.
Höf. flytur síðari hluta.
18,00 Fréttir á ensfcu.
18,10 Tónleikar. — Tilkynniingar
18.45 Veðurfregnir. — Dagskrá
kvöldsins.
19,00 Fréttir — Tilkynningar.
19.30 Frá útlöndium. Magnús
Þórðarson og Tómas Karls-
son sjá um þóttinn.
20.15 Lög unga fóJksdns. Raign-
heiður Drífá Steinþórsdóttir
Irynnir.
21,05 Iþróttir. Jón Ásgeirsson
sér um þáttinn.
21,25 Islenzk tónlist. t>orvaildur
Steinigrimsson, ÖJafur Vignir
Albertsson og Pétur Þorvalds-
son leika Tríó fyrir fiðlu, pí-
anó og selló eftir Sveinbjöm
Sveirabjömsson.
21.45 Fræðsluþættir Tannlækna-
félags Isl. (endurt frá s. I.
vetri). — Gumraar HeJigason
talar um mataræði og tann-
skemmdir, IngóJfur Amarson
um tannverk og Birgir Dag-
finnsson um vamir gegntamn-
skemmidum.
22,00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. — Á Land-
mararaaafrétti 1937, frásögn
Guðjóns Guðjónssonar. Hjalti
Rögnvaldsscn les (1).
22,35 Jbétt lög. Pálmaluradar-
hJjómsveit dansika útvarpsins
ledkur; Svemd Lundvig stj.
22,50 Á hljóðbergi. Nýhafnor-
skáldið Siiglfred Pedersen í
Ijóði og söng.
23,30 Fréttir í stuttu móli. —
Dagsfcrárlok. —
dóttir, Ruth Magnússon, Garð-
ar Cortes, Hákon Oddgeirsson,
Halldór ViJhelmsson og Krist-
inn Hallsson syngja ísienzk
Jög. Undirleik annast Ólafur
Vignir Albertsson.
21.45 Sjónarhom. Umræðuþátt-
ur. Umsjónarmaður Ólafur
Ragnarsson.
22.35 Dagskrárlok.
Ceríð góð kaup
Herrajakkar kT. 2700,00 Terylenebuxnr herra kr.
900.00. Bláar manchetskyrtur kr 450.00
Sokkar með þykkum sðlum, tilvaldÍT fvrir sára og
sjúka fætur og einnig fvrir íhróttafólk.
Sendum gegn póstkröfu.
LITLI-SKÓGUR
Snorrabraut 22 — Sími 25644.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi BRETTl — HURÐIR — VÉLALOK
og GEYMSLULOK á Volkswagen i allflestum litum.
Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið
verð. — REYNIÐ VIÐSKIPTIN.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar,
Skipholtl 25. — Sími 19099 og 20988.
RÚSKINNSllKI
Rúskinnslíki i sjö litum á kr. 640,00 pr. meter
Krumplakk i 15 Htum, verð kr 480 pr. meter.
Sendum sýnishom um allt land.
LITU-SKÓGUR
Snorrabraut 22 — Simi 25644.