Þjóðviljinn - 28.11.1971, Page 8
g SÍÐA — Þ.TÖÐVTLJ1NN — Sunnudagur 28. náveanber 1971.
heimífístæki
Um og eftir seinni heimsstyrjöldina urðu geysi-
miklar tækniframfarir í eldhúsum þessa
lands sem og utan þeirra, og á skömmum tíma var
síðustu leifum gömlu eldhúsmenningarinnar
útrýmt. Ýmis gömul heimilistæki hafa eflaust
farið á haugana einsog hvert annað rusl þegar
vélrnar voru keyptar, og hafa víst fáar
húsmæður séð eftir þeim.
Sem betur fer hefur ötulum starfsmönnum
Þjóðminjasafnsins tekizt áð forða einhverju af
þessum gömlu hlutum frá glötun og hafa stillt
þeim upp til sýnis í sölum safnsins, og ýmsan
fróðleik eiga þeir líka til í pokahorninu um
notkun hlutanna. En hér ætlum við ekki að fara
út í þá sálma, heldur sýna nieð nokkrum
mynduim þessi gömlu áhöld, sem margt núlifandi
fólk hefur reyndar kynnzf af eigin raun, við
hlið nýjustu gerða af heiimilistækjum.
Fyrirrennara frystikista og kæliskápa er raunar
ekki hægt að sýna á mynd, en gamlar
aðferðir við að geyma mat eru reyndar almennt
þekktar enn, þ.e. söltun, reyking, kæsing o.fl.,
sem er enn í fullri no'tkun.
GOMUL HEIMILISTÆKI OG NY
VERÐ Á HEIMILISTÆKJUM
Hér á eftir fer verðlisti yfir nokkrar tegundir heimil-
istækja, sem valin voru af handahófi. rétt til þess að gefa
nofkkra hugmynd um það hvað þessir hlutir kosta.
FÖNIX — Atlas kæliskápar: 190 lítra kr. 22.980,00, 360
lítra kr. 36.450,00. — Atlas frystikistur: 210 1. kr. 25.930,00,
310 1. kr. 31.280,00, 410 1 kr. 36.980,00. — SAG-eldavélar:
kr. 24.170,00, Atlas eldavélar: kr. 24.000,00. — Ballerup
hrærivélar: kr. 11.380,00. Grillofn (Grillfix): Kr. 11.800,00.
DRÁTTARVÉLAR — Frigor frystikistur: 275 1. 27.270,00,
380 1. kr. 31.470,00, 460 1. kr. 35.770,00. Siera kæliskápar:
155 1. kr. 17.500,00, 200 1. kr. 21.635,00, 275 1. kr. 28.775.00.
Tveggja hurða kæliskápar (kælir og frystir): 225 1. kr.
25.980,00, 275 1. kr. 28.410,00.
ELECTRIC — Kæliskápar: 7 kubikfet kr. 20.490,00, 9 kuib-
ikfet kr. 22.117,00, 9 kubikfet, 2ja hurða kr. 28.622,00, 10
kubikfet 2ja hurða kr. 30.240,00. — Uppþvottavélar: kr.
46.680,00. Þvottavélar: kr. 47.880,00. — Þurrkarar: kr.
38.270,00. — Ryksugur: kr. 11.533,00. — Úrgangskvamir:
kr. 10.156,00. — Kaffikönnur: kr. 3.379,00. — Brauðristar:
kr. 2.000,00. — R-ofnar: kr. 5.342,00. — Straujám kr.
1.157,00 og kr. 1.578,00. — Kr. 2.273,00 (gufustraujám).
PFAFF — Candy þvottavélar fyrir heimih: kr. 27.700,00.
Candy þvottavélar, fyrir fjölbýlishús kr. 42.600,00. Candy
þunfearar kr. 24.500,00. Candy uppþvottavélar kr. 32.400,00.
Itt frystikistur frá kr. 28.800,00 til 40.800,00. — Helkama
kæliskápar firá fcr. 19.900,00 til kr. 22.900,00. — Helkama
frystiskápar fcr. 25.900,00. — Pfaff-saumavélar frá kr.
10.500 Þ'I kr. 21.200,00. — Passap priónavélar kr. 20.950,00
(með borði)’. Passap prjónavélar kr. 38.650,00 (með mótor)’.
Þessar þrjáx myndir
sýna þrjú áhöld sem gerð
esru til þess að slétta lín og
annan þvott. Á minnstu
myndinni er elzta áhaldið,
trafakefli, elzta „strauvél“
sem þekkt er hér á landi.
Trafafceflið er í tveimur
hlutum, kefli sem þvottin-
um var vafið utanum og
fjöl, oft fagurlega útskor-
in, sem þvotturinn var
strokinn með. Á stóru
myndinni eru strauboltar,
sem hitaðir eru yfir eldi,
en þessi áhöld voru al-
mennt í notkun langt
frameftir þessari öld, og
sumstaðar eru þeir notað-
ir jafnvel ennþá, þar sem
rafmagn er enn ekki kom-
ið.
I