Þjóðviljinn - 29.01.1972, Blaðsíða 4
4 SlÐA —■ ÞJÖÐVILJINN — Laiugardagur 29. jainúair 1972.
IODVIUIIIIN
— Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóofrelsis —
C'gefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stióri: Eiður Bergmann.
R tstjórar: Sigurður Guðmundsson, Svavar Gestsson (áb.).
Auglýsingastjóri: Heimir tngimarsson.
Rjtstjóm, afgreíðsla, auglýsingar, prentsmiðia: Skólavörðustig 19. Simi 17500
(5 línur). — Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 15.00.
Kosningar í Dagshrún
j dag og á morgun fara fram kosningar í Verka-
mannafélaginu Dagsbrún. Nú um átta ára skeið
hefur stjórn Dagsbrúnar verið sjálfkjörin ár hvert
en áður fóru iðulega fram kosningar í félaginu og
var gerð hörð hríð að forustu félagsins, en æv-
inlega án árangurs. Dagsbrún átti 65 ára afmæli
á miðvikudaginn, og allan þann tíima hefur Verka-
mannafélagið Dagsbrún verið ótvírætt forusfufé-
lag verkalýðsins, bæði í Reykjavík og á landsmæli-
kvarða. I Dagsbrún hafa íslenzkir launaimenn séð
það vald sem líklegast er til að bera réttarkröfur
verkalýðsins fram til sigurs. Og í Verkamannafé-
laginu Dagsbrún hafa atvinnurekendur séð vald
sem þeir hafa óttazt og orðið að taka fullt tillit til.
Þannig er þetta enn í dag; þrátt fyrir margháttaða
gagnrýni sem stundum er borin fram innan Dags-
brúnar á félagsstjómina, neitar því enginn, að hún
hefur fylgt málum verkamanna rösklega eftir.
Stöðugur straumur fólks á skrifstofu Dagsbrúnar
allan ársins hring sýnir líba að stjóm Dagsbrún-
ar nýtur trausts meðal alls almennings.
gjað sem hefur gefið Verkamannafélaginu Dags-
' brún styrk á undanförnum árum og áratugum er
eining Dagsbrúnarmanna um forustu sína. Dags-
brun, sameinuð, er voldugt afl, en tvístrist lið
Dagsbrúnarmanna er voðinn vís — það mundu
ekki einasta Dagsbrúnarmenn merkja í kjörum
smum ef til kæmi. Það kæmi fram 1 kjörum alls
íslenzks verkalýðs. Þegar menn bera fram gagnýni
á stjóm Verkamannafélagsins Dagsbrúnr er ekki
nóg að einblína á það sem æskilegast er — menn
verða líka að taka tillit til þess hvað er mö'gulegt
og hvemig á málum er haldið í öðram verkalýðs-
félögum. í Reykjavik er til dæmis annað verka-
lýðsfélag álíka stórt ef ekki stærra en Dagsbrún.
Það er Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Allir
Dgsbrúnarmenn og félagsmenn í öðrum verkalýðs-
félöguim vita hver er munurinn á þessum tveimur
félögum og þess vegna er leitað til Dagsbrúnarfor-
usfunnar fremur en annarra félaga í mörgum til-
vikum. Það stafar af því að almenningur á Reykja-
víkursvæðinu veit að forusta Dagsbrúnar er traust
og til þess vísust að greiða úr hvers konar vanda-
málum. En vegna þessara starfa Dagsbrúnar-
stjómar hafa ýmis konar félagsmál setið á hakan-
um. Úr því verður að bæta, en það sern skiptir
meginmáli er að grundvallarstefnan er rétt
smærri gagnrýnisatriði era þar hliðarvandamél
sem ekki er rétt að móta afstöðu sína eftir. Það vita
allir stéttvísir verkamenn.
fljóðviljinn hvetur alla Dagsbrúnarmenn til þess
að fjölmenna á kjörstað í Dagsbrún til þess að
kjósa A-!istann; lista stjórnar og trúnaðiarráðs.
Verið minnugir þess að sameinuð fylking að baki
forustumanna Dagsbrúnar rnun enn geta unnið
"mikla sigra. Sundrang er verkamönnum háska-
ieg.
ísilenzk sj ávarpláss hringinn
í kringum landið, þau byggja
tilveru sína fyrst og fremst á
‘sjávarafla En þrátt fyrir þess;a
ótvíræðu staðreynd þá eru
skólamál og skólafræðsla þess-
ara staöa • algjörlega slitin úr
ölluim tengslum við þann
grundvöll s^m lif fólksins og
tilvera byggisit á. Hér eru
sikólayfirvöld landsins á algjör-
um villigötum og enganveginn
hlutverki sínu vaxin, við
fræðslu á uppvaxandi kynslóð.
Hér á íslandi ætti að veita
einhverjia fræðslu um undir-
stöðuatvinnuvegina strax í
efstu bekkjum bama®kóla og
upp í gegnum hig almenna
skólakerfi. Þessi vönfcun í
skólakerfinu stuðiar að frá-
hvarfi frá okkiar lífsnauðS'yn-
legustu atvinnuvegum og
mö'guleikium þeiira fyrir ein-
staklinginn og þjóðina. Ef við
ætlum okkur að búa sem sjálf-
stæð þjóð á íslandi í framtíð-
inni, þá er fyrsita skilyrði sem
fullnægja þarf og fuilnægja
verður, að fraéða uppvaxandi
kynslóg um undirstöðuatvinnu-
vegi okkar og möguieika þeirra.
Myndin
Skóiamál og sjávarútvegur ern á dagskrá í fiskimálum Jóhanns J. E. Kúlds í dag.
er frá Stykkishólmi.
Skólamál sjávarpláss
Skólakeríið þarf að verða í
sem nánustum tengslum við
þa'ð líf sem í landinu er lifiað.
En það er nú eitthvað annað,
en að það sé þannig uppbyggt.
Það er fyrst og fremst sjávar-
útvegurinn sem atvinnu'grein,
en undirstaða hans er sgó-
mannastéttin, sem leggur fram
beint og óbeint (ag stærsta
hluta) þá miklu fjármuni sem
í skólakeríið bafa farið og
fara. Hér fer ekkert á milli
mála. Þó er það svo að æðri
menntun á fslandi hefur al-
gjörlega sniðgengið þarfir
sjávarútvegsins, um það vi'tn-
ar deildaskiptingin innan Há-
skólans. Þar er fátt sem minn-
ir á sjávarútveg og sérþarfir
hans. Stofnun fiskiðnaðarskól-
ans á s.l. hiausti er spor í
rétta átt En það þarf meira
ag gera. en að stofnsetja slík-
an skóla, það þarf líka að
búa honum fullkomna aðsföðu
til kennslu en það hefur ekki
verið gert eimþá. En eins og
ég tók fram hér að framian,
þarf að hefja kennslu í at-
vinnusögu landsins strax í efri
bekkjum bamaskólans og upp
í gegnum skyldunámið. í gegn-
um þessa fræðslu mundi upp-
vaxandi kynslóð öðiast nýja
innsýn og nýjan skilning á
þýðingu sjávarútvégs á fs-
landi, sem nú vantar, sökum
þess ag fræðsluyfirvöld lands-
ins hafa ekki gert sér grein
fyrir þýðingu þessa máls. fram
að þessu.
Hér er stórt verkefni fyrir
hinn nýja mBnntamálaráðherra.
Magnús Torfa Ólafsison, sem
kominn er af forvígismönnum
bænda og sjósöknara í ættir
fram, að marka nýja stefnu í
skóliamálum sem væri meira í
samræmi við þarfir landsdns
og þess lífs sem í land'inu er
lifað. Það er ekki nokkur vafi
á því, að nnenningarleg upp-^
byggins okkar þjóðfélags á ^
bverjum tíma er bundin getu
u n d i r stöðua t vinn uvega okkar.
Og fram að þessu hefur orðið
að sækja það fjármagn að |
stærsta hluta tíl sjávarútvegs- j
ins og svo verður í náinni
framtíð Undirstöðufræðsla um
þarfir, getu og möguleikia þessa
Sængurfatnaður
HVfTUK OG MISLITUR
LÖK
KODDAVER
GÆSADÚN SSÆN GUR
ÆÐARDÚNSSÆNGUR
SKÓLAVÖRÐUSTfG 21
íiskimál
yeftir Jóhann J. E. Kúld,
atvinnuvagar er því ekkert
einkiamál sjávarútvegsims, held-
ur þjóðarimnar allrar og í sam-
ræmi við það, þarf að undir-
bú.a þetta mál
Sjávarútvegsráð-
herra Noregs stóð
við ummæli sín um
E.B.E.
Mér kom það engian veginní
á óvart þegar útvarpið flutti
þá fregn. að Knut Hoem sjáv-
arútvegsráðherra hefði sagt af
sér, sökum ágreinings um inn-
gönguskilyrðin í Efnabags-
bandalagið. Á lamdsiþinginu í
Norges Fiskarlag á s.l. hausti
í Þrándheimi var inmgangan í
bandalagið tii umræöu og tals-
vert hitamál á þinginu. Þeir
sem barðastir voru í andstöð-
unni gegn bandalaginu vildu
þá strax láta siíta samning-
um við bandalagið um inn-
gönguna. Meirihlutinn vildi sjá.
hverju hægt væri að ná gegn-
um samnimgana, en setti það
sem ófrávíkjanlegt skilyrði ef
til samninga yrði gengið, að
Norðmenn héldu 12 míln.a
landhelgi fyrir sig eina um
alla framtíð Sj ávarútvegsrá'ð-
berramn lýsti sig samþykk'an
þesisu sjóniarmiði og kvaðst ekki
mundi samþykkja samninga
nema tryggilega væri frá þessu
gerngið. Afsögn ráðherrans er
því í algjöru samræmi við um-
mæli hans á þinginu og þau
loforð sem bann gaf þar. Að
hans dómi, er ekki trygigt að
Norðmenn haldi 12 mílna land-
helgi fyrir sig eima, a.g 10 ár-
um liðnum.
Knut Hoem er frekar ungur
miaður og lögfræðdnigur að
menntun Hann var áður starfs-
m'aður og lögfrseðilegur ráðu-
mautur hjá Norges Fiskarlag.
Það er ekki ótrúlegt, að þessi
orðheldni Hoems og endanleg
afsfaða hans til Efnabagsbandia-
lagsmálsins, muni styrkja stöðu
hans hjá sjómönnum og út-
vegsmönnum í Noregi, en um
leið mun þessi afstaða skerpa
þær andstæður sem fyrir voru
í norsfca Verkamannafiokkmum
í afstöðunni til inngöngunniar í
Efn ahagsban daliaei ð.
Þá verður að telja afsögn
ráðherrains áfiall fyrir þá siem
harðast sækja ixmgönguna og
viljia fóma talsiverðu fyrir
hana ef á þarf að halda Það
er haft fyrir satt, að allir
stjórxunálaflokkar í Noregi séu
skiptir í skioðunum á þessu
rnáli, uitan flokkur Bortens
fyrrverandi fiorsætisráðberra,
sem talinn hefur verig sitanda
einhuga giegn inngöngunni.
Um endanlega afstöiðu norsku
þjóQarinnar til málsins ríkir
aLgjör óvissa nú. en hún mun
koma fram í þjóðaratkvæða-
greiðslu sem fram fer um
málið. Úrslit þeirrar atkvæða-
greiðslu eru ekki lagalega bind-
andá fyrir Stórþingið og rík-
isstjómina. En miargir telja
ag úrslit atkvæðagrei'ðslunn'ar
hjá þjóðinni ráði" nrálinu til
lykta, þrátt fyrir það, þar sem
engínn þingmeirihiuti mundi
voga, að vdrða þjóðarviljia að
vettugi.
©3©
SemiBÍLASrÖÐINHf
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skulagótu 32
MÓTORSTILLINGAR
' Ú:! , l jQSA.STlLllMGAR
Latiö stilla i tima. 1
Þliot og örugg. biónusta. I '
W&fíM
Tilso
Sólaðir NYLON hjólbarðar til sölu.
SUMARDEKK — SNJÓDEKK
Ýmsar stærðir ó fólksbíla ó mjög hagstæðu
verði. Full óbyrgð tekin ó sólningunni.
Sendum um allt land gegn póstkröfu.
ÁRMÚLA 7
SÍMI 3050! REYKJAVÍK.