Þjóðviljinn - 15.07.1972, Blaðsíða 1
Laugardagur 15. iúlí 1972 — 37. árg. —155. tölubl.
Alþýðubankinn hf
ykkar hagur
okkar metnaöur
LÖGSAGA
LYSTAR
ÍSLANDS
Kl. 3 e.h. í gær undirritaöi sjávarútvegs-
ráöherra Lúövík Jósepsson reglugeröina
um 50 milna fiskveiöilandhelgi við ísland
og lagöi þar meö hina formlegu lagalegu
hönd á það/ að 50 mílna fiskveiðiland-
helgi sé islenzk lög er komi til fram-
kvæmda 1. sept. n.k.
Lúövík lauk ávarpi sínu við undirritun-
ina á þessa leið: „ Einhuga þjóð, sem veit,
aö hún hefir réttan málstað, sem skilur,
aö hún er aö berjast fyrir lifi sínu, veröur
ekki sigruö. Einhugur okkar og fullkomin
samstaöa mun þvi færa okkur fullan sigur
í landhelgismálinu."
Um leiö og þessi reglugerö um
50 milna fiskveiðilandhelgi er
sett, eru settar reglur um tvö sér-
stök friðunarsvæði innan 50 milna
markanna, annað út af Norð-
austurlandi, þar sem algert
bann er á togveiðum i april og
mai, hitt er á Selvogsbanka þar
sem allar togveiðar eru bannað-
ar, einnig fslendingum, frá 20.
marz til 20. april. 1 reglugerðinni
eru engar hömlur settar á veiöar
islenzkra togara umfram tog-
veiðilögin frá 1967, nema hvað
fyrrnefnd tvö svæði snertir. Tog-
veiðilögin falla úr gildi um ára-
mót og mun Alþingi þá setja ný
um veiðar islenzkra togara á
beltinu frá 12-50 milur. Lúðvik tók
fram á blaðamannafundinum, að
setning reglugerðarinnar væri
ekkert lokaorð, verið væri að
framkvæma það sem Bretar
vissu, — að lýsa formlega yfir 50
milna lögsögu, en við værum enn
reiðubúnir til samninga. Lúðvik
lýsti fullyrðingar AP-fréttastof-
unnar um að nærvera hans hefði
slitið samningaviðræðunum, sem
staðlausar og út i bláinn.
Avarp Lúðvfks við undirritun
reglugeröarinnar er birt á 2.siðu
Pjóðviljans.
Lúðvik Jósepsson ráðherra staðfestir reglugerðina um 50 mflna fisk-
veiöilandhelgi með undirskrift.