Þjóðviljinn - 15.07.1972, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 15.07.1972, Qupperneq 6
6. SÍÐA — ÞJOÐVILJINN, Laugardagur. 15. júll. 1972 Yfirlit yfir baráttuna fyrir stœkkun landhelginnar r l 50 milur Þann 24. maí 1958 náðist sam- komulag i þáverandi vinstri rikis- stjórn um að gefa út reglugerð um 12 milna fiskveiðilögsögu við Island. Þáverandi sjávarútvegs- ráðherra, Lúðvik Jósepsson, undirritaði siðan reglugerðina þann 30. júni og var hún gefin út. Reglugerðin gekk i gildi kl. 12 að- faranótt hins 1. september. Nokkru áður fluttu allar þjóðir togara sina útfyrir 12 milna mörkin — nema Bretar. Þeir höfðu haft i hótunum áður og stóðu nú við þær. Þeir hófu vopnaða árás á Islendinga, stærsta rikið innan Atlanzhafs- bandalagsins i Evrópu gerði árás á það minnsta. Hér er óþarfi að rifja þá sögu upp, um hina svi- virðilegu framkomu brezku her- skipana og hlálegar „veiðar” þeirra undir herskipavernd. Sú saga er enn i fersku minni. Með útfærslu landhelginnar i 12 milur varð landhelgin 69.809 ferkm. og óx um 26.904 ferkm. Með þessari útfærslu náðist mikilvæg friðun fyrir fiskistofnana og útfærslan var glæsilegur sigur i sjálfstæðis- baráttu Islendinga. Rétturinn til landgrunnsins Með ályktun Alþingis frá 5. mai 1959 um landhelgismál var þvi lýst yfir að afla skyldi viður- kenningar á rétti Islands til land- grunnsins alls. Þaðhefir þvi verið yfirlýst stefna þjóðarinnar, að allt hafsvæðið yfir landgrunninu yrði islenzk fiskveiðilandhelgi. Landgrunnið við tsland er glögglega aðgreint frá öðrum landgrunnum með djúpum út- hafsálum. Það er álitið að landgrunnið, hafið yfir þvi, botnsvæði og landið sjálft, sé ein liffræðileg heild. Verðmæti alls þessa svæðis, botnsins hafsins og landsins, eru eign islenzku þjóðarinnar. Hún ein getur sett reglur um hag- nýtingu þeirra. Þvi hefur stundum verið haldið fram aðlandgrunnið nái aðeins út á 400 m dýpi. Það er ekki rétt,og að halda þvi fram getur haft i för með sér háskalega afsláttar- stefnu. Það eru engin alþjóðalög um viðáttu landgrunns og enn deilt um það, hve langt það nær. Sumar þjóðir telja landgrunnið jafnvel ná út á 600 m dýpi og enn aðrar eru með mun viðtækari mörk. La ndhelgissa mningarn- ir frá 1961. Árið 1961 gerði viðreisnar- stjórnin landhelgissamning við Breta og siðan Vestur-Þjóðverja. Með þeim fengu þessar þjóðir heimild til að veiða i islenzkri fiskveiðilögsögu á afmörkuðum FRA 12MILNA LANDHELGI UR

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.