Þjóðviljinn - 23.07.1972, Blaðsíða 6
6. StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2J. júll 1972
Sagt er aö allur hinn siðmenntaði
lieimur sé að drukkna i eigin sorpi og
skit. Ilvort sem leitað er friðsælla
fjallavatna eða út á mitt Atlanzhaf,
allsstaðar hefur iðnmenningin losað sig
við úrgangseíni, sem ógnar lifi jurta,
dýra og manna.
Fyrir nokkrum árum var hugtakið
mengun litt þekkt fyrirbæri meðal
þorra manna á Vesturlöndum.
Síðustu árin hafa þessi mál aftur á
móti verið m jög til umræðu, enda hefur
hin augljóslega eyðingarhætta, sem nú
hlasir við á stórum svæðum, vegna
megnunar, hrist heldur betur upp i
mönnum.
I>að sem gerir megnun svo óhuggu-
legt lyrirbæri er að hún ekki af einni til-
tekinni ástæðu né á tilteknum afmörk-
uðum svæðum. Allsstaðar þar sem
iðiivæðingin liel'ur komizt á fót, i öllum
liiinim vestræna heimi, hefur mengunin
sýnt sina svörtu loppu i einhverri mynd.
Nýlega er komin út bók hér á
landi undir nafninu Mengun og
standa samtökin Landvernd að
útgáf'u hennar.
Um þessa bók segir svo á kápu-
siðu: Meö þessari bók hefur
Landvernd útgáfu tækifærisrita
um umhverfisvernd, sem nefnast
Rit Landverndar. Er það einn
höfuðtilgangur samtakanna að
stuðla aö fræðslu um þessi mál
enda verða þau ekki leyst án al-
mennrar þekkingar og sameigin-
legs átaks þeirra, sem finna til
ábyrgöar gagnvart umhverfi
sinu.
Bók þessi sem er 207 blaðsiður
er safn erinda sem flutt voru á
ráðstefnu um mengun sem haldin
var i Reykjavik dagana 27. og 28.
febrúar 1971. Krumkvæði að
þessari ráðstefnu átti Landvernd,
en til samvinnu viö samtökin voru
lengin Rannsóknarráð rikisins,
Náttúruverndarráð og Eiturefna-
nel'nd rikisins.
f upphafi bókarinnar er birt
skýrsla sú sem fram-
kvæmdanefnd ráðstefnunnar
samdi að henni lokinni, en þar er
að finna ylirlit um niðurstöður
ráðstefnunnar og lillögur um
Iramtiðarstarf Landverndar að
mengunarmálum.
Yfirsýn yfir ástandið
. Á. .fe , ... . :
” -- - —"... ~
Verðtryggið
peningana núna-
byggið seinna
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Spariskírteini ríkissjóðs eru nú til sölu hjá bönkum, sparisjóðum
og verðbréfasölum.
Aðalkostir eru:
að þau eru eina verðtryggða sparnaðarformið, sem á boð-
stólum er,
að höfuðstóll tvöfaldast með vöxtum á 14 árum en skírteinin eru
innleysanleg hvenær sem er eftir fimm ár,
að höfuðstóll, vextir og vaxtavextir eru verðtryggðir,
að þau jafngilda fjárfestingu í fasteign, en eru fyrirhafnar- og
áhyggjulaus,
að þau eru skatt- og framtalsfrjáls.
Athygli er vakin á því, að kjör skírteinanna eru óbreytt
í þremur síðustu útgáfum frá ársbyrjun 1971.
1 ávarpi formanns Land-
verndar, Hákonar Guðmunds-
sonar yfirborgardómara, við
selnfngu ráðstefnunnar, sem birt
er i bókinni segir hann tilgang og
markmið ráðstefnunnar vera að
fá yfirsýn yfir áslandið á landi, i
lolti og á sjó. og hvar mengun geti
helzt orðið. Þannig sé svo hægt að
byggja upp þá andspyrnu sem
þurfi. Og sé þá fyrst og fremst af-
staða almennings sé bæði jákvæð
og virk. en til þess þurfi að miðla
fræðslu og þekkingu um eðli og
áhrif mengunar.
Það sé þvi vel til fallið að
erindin sem l'lutt verði svo og um-
ræðurnar sem fari fram verði
undirstaða sliks fræðslukerfis.
1 hinum ýmsu erindum kemur
það l'ram, að tsland er ennþá til-
tölulega laust við mengun, sem sé
m.a. að þakka legu landsins,
strjábýli og l'ólksfæð og litilli iðn-
væðingu. Það er þó ljóst af
sumum erindanna, að rannsóknir
á mengun eru l'remur stutt á veg
komnar. Á það skal aftur á móti
bent. að hinir islenzku visinda-
menn, sem um þessi mál fjalla
hala bæði næga þekkingu og
reynslu til þess að fylgjast með og
rannsaka mengun og mengunar-
valda, að ekki sé nú talað um
allar þa>r niðurstöður sem liggja
lyrir af rannsóknum erlendra
visindamanna i þeim löndum þar
sem mengunarvandamálið er
orðið augljóslegra og áþreifan-
legra.
Þrátt fyrir þetta hefur einum of
litið verið gert af þvi að fara að
ráðum þeirra eða hirða um að-
varanir þeirra, þó að þeir manna
bezt hali getað rökstutt mál sitt.
Loftmengun og veður
Eitt af þeim atriðum sem Is-
lendingar hafa státað sig af er
hreint og tært loft, sem tekið
hefur verið sem sjálfsagður
hlutur. I erindi sinu um loft-
mengun og veður segir Flosi
Hrafn Sigurðsson veður-
fræðingur. að loftmengun sé
miklu minni hér á landi en i
flestum nágrannalandanna. en
þar sem við stöndum á þröskuldi
iðnvæðingar beri að fara að öllu
með gát, ef við eigum að lifa
áfram við hreint og tært
andrúmsloft. Þvi verði að aðga^ta
vel mengunarmyndun i verk-
smiðjum og iðjuverum með
heppilegum vinnsluaðferðum og
hreinsitækni. Siðan segir orðrétt:
,,i þriðja lagi er svo einnig hægt
að ná dýrmætum árangri og
foröast alvarleg mistök með þvi
að beita veðurrannsóknum við
staðarval nýrra iðjuvera, sem
mengunarhætta fylgir. Heppi-
legar veðuraðstæður ætti hins
vegar ekki að minu áliti að nota
fyrst og fremst til að komast hjá
hreinsiútbúnaði og verksmiðju-
kostnaði umfram það, sem eðli-
legter, nú i nýjum verksmiðjum i
öðrum löndum. Miklu fremur ætti
að hagnýta skynsamlegt staðar-
val og góð veðurskilyrði til að við-
halda hér hreinu og tæru
andrúmslofti, þrátt fyrir nauð-
synlega iðnvæöingu.”
I erindi Harðar Þormar, efna-
fræðings um rannsóknir á loft-
mengun hér á landi er ljóst að
ýmislegt mætti betur fara i þeim
efnum, en hann segir á einum
stað: „Þess ber þó að geta, að
loftið er ekki alltaf svo hreint og
ferskt, sem bezt verður á kosið,
og má þar m.a. minna á sildar- og
fiskmjölsverksmiðjurnar, sem
blásið hafa daunillum gufum út i
umhverfið, enn fremur áburðar-
verksmiðjuna i Gufunesi, sem
hefur i tvo áratugi dreift
eitruðum köfnunarefnisoxiðum út
i loftið i næsta nágrenni Reykja-
vikur i magni, sem mér telst til,
að nemi um 500 tonnum á ári.
Enda þótt mér sé ekki kunnugt
um neinn teljandi skaða af
völdum þessara efna né telji
ástæðu til að ætla, að þau valdi
heilsutjóni, i þvi magni, sem hér
um ræðir, þá tel ég, að ástæða
hefði verið til þess strax frá upp-
hafi að íylgjast með mengun frá
verksmiðjunni og áhrifum
hennar, einkum þar sem skað-
leysismörk köfnunarefnisoxiða i
lofti eru mjög óviss og umdeild.”
En þvi miður er það svo að Is-
lendingar eru ekki leusir við
mengun á öðrum sviðum. Má þar
nefna mengun frá sorpi og
holræsum, sem viða er mjög
ábótavant og hafa rannsóknir á
svæðinu i kringum Reykjavik
sýnt fram á töluverða mengun ai
þessum sökum.
Óhreinsað yfirborðsvatn
Islendingar hafa einnig haldiö
þvi fram að hér á landi væri vatn
tærast og bezt i heimi og skal ekki
um það deilt, en samt sem áður er
ýmsu ábótavant þar lika. Dr.
Sigurður H. Pétursson gerla-
fræðingur segir m.a. svo i erindi
sinu um gerlamengun i vatni:
„Stærsta vandamálið varðandi
mengun vatns á Islandi i dag er
að finna á þeim stöðum, þar
sem enn er notað óhreinsað yfir
borðsvatn til neyzlu. Við sltka af-
stöðu búa 11% landsmanna,
þeirra sem eiga heima i þéttbýlis-
stöðunum. En þetta yfirborðsvatn
mengast ekki af frárennsli þétt-
býlisins sjálfs né frá iðjuverum,
heldur frá jarðveginum i grennd
við vatnsbólin. Mengun á
sýklum á þessum svæðum getur
þvi aðeins orðið vegna umferðar
smitbera, manna eða dýra.”
Einnig telur Þóroddur Th.
Sigurðsson vatnsveitustjóri i
erindi sinu um neyzluvatnsöflunj
og mengun vatrisbóla að neyzlu-
vatnsöflun bargra byggðarlaga á
Islandi sé allsendis ófullnægjandi
hvað vatnsgæði snertir og i sum-
um tilfellum einnig hvað vatns-
magni við kemur.
Það sem hér hefur verið tekið
er þó aðeins hluti af þvi efni sem
fjallað er um i áðurnefndri bók
Landverndar um mengun. Margt
annað hefði eflaust verið ástæða
til að minnast á, en þess er enginn
kostur. Aftur á móti væri öllum
hollt og skylt að kynna sér efni
þessarar bókar. Við segjumst
vilja búa i landinu okkar, við tært
loftið, hreint vatn og fagurt um-
hverfi, en þvi miður virðist oft
annað i raun. Vart yrðu það fögur
eftirmæli, ef hægt yröi að segja
með sanni að við hefum eyðilagt
landið og öll þess gæði vegna
græðgi og athugunarleysis.
Frárennsli er viða ófullkomið og óhreinkar bæði fjörur og sjó. Eini
opinberi sjóbaðstaður landsins er nú lokaður vegna mengunar.