Þjóðviljinn - 26.07.1972, Page 3
Miðvikudagur 2(i. júlí 15)72 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3.
Þessir sirupansar bættust i
dýrahópinn i Sædýrasafninu
s.l. laugardagskvöld. Þeir
voru áöur i dýragarðinum i
Alaborg, en upprunalega
koma þeir frá Suður-Afriku.
Það voru Sam vinnutrygg-
ingar og Samvinnubankinn
sem gáfu safninu fé til kaupa á
öpum.
Bókun
Islands
hjá
EBE
Þegar íslendingar
undirrituðu viðskipta-
samning við Efnahags-
bandaiagið á dögunum
gerði islenzka sendi-
nefndin sérstaka bókun
vegna fyrirvara Efna-
hagsbandalagsins um
lausn landhelgismálsins.
Bókunin er svohljóð-
andi:
,,Við undirritun samn-
ings Efnahagsbanda-
lagsins og íslands lýsir
Rikisstjórn íslands yfir
eftirfarandi:
„Ríkistjórn Islands vill
enn á ný itreka þá af-
stöðu sína, að viðskiptai-
vilnanir fyrir sjávaraf-
urðir eiga ekkert skylt
við fiskveiðiréttindi og
þar af leiðandi á ekki að
tengja þessi atriði sam-
an.
i 2. grein Bókunar nr. 6
áskilur Efnahagsbanda-
lagið sér rétt til að láta
ekki koma til fram-
kvæmda ákvæði varð-
andi tollalækkanir á
sjávaraf urðum nema
viðunandi lausn hafi
fengizt á landhelgismál-
inu. Vegna þessa ákvæð-
is lýsir Rikisstjórn ís-
lands þvi yfir, að hún
telur sér ekki fært að
fullgilda samninginn,
gema Efnahagsbanda-
lagið láti Bókun nr. 6
komatil framkvæmda,"
Hótanir
breyta engu
Rafvirkjar hvika
ekki frá fundarsamþykktinni
St|órn félags islenzkra
rafvirkja hefur nú svarað
bréfi Vinnuveitendasam-
bands Islands, en í bréfinu
var félaginu hótað mála-
ferlum og öðrum óþægind-
um, ef þaö drægi ekki til
baka samþykkt félags-
fundar rafvirkja frá 19.
julí. Sú samþykkt var efn-
islega á þá leið, að félags-
mönnum F.i.R. væri ó-
heimilt að vinna í nýlagna-
vinnu og við meiriháttar
breytingar, nema sam-
kvæmt ákvæðisvinnutaxta.
1 bréfl sinu vekur stjórn F.I.R.
athygli á þvi, að lausn verkfalls-
Framreiðslumenn
felldu samninga
Á félagsfundi í fyrra-
kvöld felldu framreiðslu-
menn hina nýgerðu samn-
inga, sem samninganefnd
félagsins hafði skrifað und-
ir með fyrirvara. Um 2/3
fundarmanna greiddu at-
kvæði gegn samningunum.
Um 45 framreiðslumenn sóttu
fundinn og er það um þriðjungur
félagsmanna.
Óskar Magnússon formaður
félagsins skýrði blaðinu svo frá i
gær, að þegar þessi úrslit um at-
kvæðagreiðslu félagsfundarins
lágu fyrir hefði sáttasemjari
spurzt fyrir um það, hvort ekki
væri mögulegí að viðhafia alls-
herjaratkvæðagreiðsluum samn-
ingana. Sagði Oskar, að stjórn fé-
lagsins myndi ræða það mál. — Af
þessu að dæma rikir nokkur ó-
vissa um framhald samninga-
málanna hjá framreiðslumönn-
Hraðað verði ljós-
myndun handritanna
Blaðinu hefur borizt eft-
irfarandi fréttatilkynning
um viðræðumar við Dani
um skiptingu handritanna:
„Nefnd sú er skipuð var af
menntamálaráðherra Danmerk-
ur til að skipta hinum islenzku
handritum i Árnasafni og Kon-
unglega bókasafninu i Kaup-
mannahöfn, hefur haldið fund á
Slettestrand i Han-héraði dagana
19.-21. júli 1972.
Vatnsslagur í
Kaupinhafn
KAUPMANNAHÖFN 25/7.
Forstjóri vatnsveitu Kaup-
mannahafnar hefur ráðizt gegn
auglýsingaherferð vöruhússins
Irma fyrir norsku drykkjarvatni.
í auglýsingunum segir að vatn
úr krönum borgarinnar sé hreins-
að yfirborðsvatn og þótt það dugi
til þvotta sé það óhæft i kaffi eða
til drykkjar yfirleitt.
Forstjórinn lét menn bragða á
fimm glösum af vatni hjá Irma i
dag. Það sem bezt bragðaðist var
úr krönum Kaupmannahafnar —
en i hinum fjórum glösunum var
norskt uppsprettuvatn.
Nefndin fjallaði um grundvall-
aratriði varðandi hina fyrirhug-
uðu skiptingu, og fól fundarstjóra
að láta danska menntamálaráðu-
neytinu i té danska þýðingu af á-
litsgerð frá þremur islenzkum
lögfræðingum.
Skiptanefndin var smmála um
að beina þvi að menntamálaráðu-
neyti tslands og Danmerkur, að
hún fái frjálsan aðgang að öllum
skjölum varðandi málið, enda
fari hún með þau sem trúnaðar-
mál.
Samþykkt var að beina þvi til
réttra aðila að öllum handrita-
númerum og táknunum verði
framvegis haldiðóbreyttum þó að
handritin skipti um geymslustað.
Ennfremur var samþykkt að
beina þeim tilmælum til mennta-
málaráðuneytis Danmerkur, að
hraðað verði ljósmyndum og við-
gerð handrita.
Eftir tillögu frá fundarboðamja
var samþykkt að hafa framvegis
á nefndarfundum fullkomið jafn-
ræði með fulltrúum beggja landa,
þannig að þeir skiptist á um fund-
arstjórn, og bæði tungumál séu
jafn-rétthá.”
Jónas Kristjánsson
Magnús Már Lárusson
Ole Widding
Chr. Westergard-Nielsen
Miðstjórn
Alþýðu-
bandalagsins
Fundur verður i miðstjórn Al-
þýðubandalagsins i kvöld kl. 8,30
að Grettisgötu 3. Dagskrá sam-
kvæmt útsendu fundarboði.
ins hafi i reynd byggzt á þessari
samþykkt félagsfundarins og
hefði viðsemjendunum verið það
ljóst að slik yfirlýsing hefði verið
forsenda fyrir undirritun samn-
inganna af hálfu Félags isl. raf-
virkja.
Bréf Félags islenzkra rafvirkja
til Vinnuveitendasambandsins
dagsett i gær, 25. júli, er á þessa
leið:
,,Sem svar við bréfi yðar dags.
20. júli 1972, þar sem skorað er á
Félag tslenzkra Kafvirkja að
draga til baka fundarsamþykkt
gerða á fjölmennum félagsfundi i
F.t.R. 19. júli 1972, lýsir stjórn
F.t.K. yfir eftirfarandi:
F.l.K. mun að sjálfsögðu ekki
draga fundarsamþykkt þessa til
baka og breyta hótanir yðar um
málssókn á hendur félaginu þar
ongu um.
Stjórn F.t.K. litur svo á að
iausn verkfa'.ls rafvirkja hafi
raunar bygg/.t á þessari fundar-
samþykkt og hafi yður og um-
bjóðendum yðar. F.L.K.R. og
L.Í.K.jverið það ljóst áður en
samningar voru undirritaðir að
yfirlýsing af hálfu F.t.R. er væri
efnislega samhljóða umra'ddri
fundarsamþykkt væri ákvörðun-
arástæða af hálfu F.t.R. fyrir
undirritur. og samþykkt nýgérðra
samninga.
M.a. af framangreindum á-
stæðum telur stjórn F.t.K. að
margumra'dd fundarsamþykkt sé
fyllilega lögmæt og itrekar að frá
henni verður ekki kvikað.”
(undirskriftir)
Að sögn Magnúsar Geirssonar,
formanns Félags islenzkra raf-
virkja, er nú mikil eftirspurn eftir
rafvirkjum. Fjöldi félagsmanna
hefur farið i ákvæðisvinnu eftir að
verkfallinu lauk, og Magnús
kvaðsl ekki hafa ástæðu til að
;rtla annað en að samþykkt Ifé-
lagsins yrði virt og hótanir Vinnu-
veitendasambandsins breyttu
engu þar um, eins og bent væri á i
bréfinu sem stjórn félagsins hefur
nú sent frá sér.
Settur
landgræðslu-
stjóri
Svcinn Kunólfsson búfræði-
kandidal hefur verið settur til að
gegna starfi landgræðslustjóra,
frú 17. júli s.l. að telja.
Stefán Il.Sigfússon, fulltrúi
landnámsstjóra, starfar jafn-
framt frá þvi i marzmánuði s.l.
sem fulltrúi landgræðslustjóra.
Sveinn Kunólfsson er fæddur
1946, sonur Runólfs Sveinssonar
sem gégndi starfi sandgræðslu-
stjóra á undan Páli Sveinssyni
landgræðslustjóra, sem nú er ný-
látinn. — Sveinn lauk kandidats-
prófi i Skotlandi árið 1970 og var
þá ráðinn til landgræðslunnar.
Siöastliðinn vetur dvaldist hann
við framhaldsnám i Bandarikjun-
um.
Kópavogsapótek
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til kl.
2, sunnudaga'milli kl. 1
og 3.
Simi 40102.
Óskemmtileg „skákfrétt”
Kristján Hauksson, 15 ára
piltur, leit hér inn á blaðið til
okkar og sagði okkur frá dálitið
sérstæðri lifsreynslu, sem hann
varð fyrir inni við Laugardals-
höll á sunnudaginn var.
Þegar ská ksn illin ga r nir
Spasski og Fischer komu til
leiks nokkru fyrir kl. 5 var
Kristján einn i hópi þeirra sem
voru fyrir framan Laugardals-
liöll að horfa á þá ganga i höll-
ina. ,,Ég stóð þarna klofvega yf-
ir hjólið mitt og studdi höndum
fram á stýrið”, sagði Kristján.
„Þegar Spasski birtist klappaði
ég fyrir honum eins og margir
aðrir, sem þarna voru. Þá veit
ég ekki fyrri til en fulloröinn
ræöstaftan að mér, þrifur i hjól-
ið og dregur það snöggt afturá-
bak, svo að ég missti fótanna og
skall kylliflatur á planið. Rétt i
þessum svifum kom lögreglan
þarna að. Hún sagði ekki annað
en að hér mætti ekki vera með
nein læti! sagði ekkert við þann
sem þarna réöst á mig alger-
lega að tilefnislausu. Og meðan
ég var að brölta á fætur forðaði
hann sér bara i mannþröngina.
Ég sá bara, að hann var af-
myndaður af reiði. Hefði ég ekki
verið búinn að sjá hann þarna
áður við að eggja fólk til að
klappa fyrir Fischer, þá hefði ég
haldið að þetta væri einn úr lif-
verði hans!! En það sagði mér
maður, sem þarna var, að þetta'
væri þekktur borgari hér i bæ.”
Kristján skýrði okkur frá
nafni þéssa manns, en þar eð við
höfum ekki aflað okkur annarr-
ar vitneskju um þctta atvik
munum viöekkigeta nafns hans
að sinni, en eftirlátum lesendum
að gefa honum einkunn fyrir
svona framkomu. — Kristján
kvaðst hafa haft tilkenningu i
öðru hnénu eftir fallið.