Þjóðviljinn - 19.08.1972, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 19.08.1972, Blaðsíða 6
6. StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. ágúst 1972 ■ Við höldum áfram frásögn af því, hvernig Kommúnistaf lokkur Italíu starfar að fram- gangi sósíalískra mark- miða í héraðinu Emilía- Romagna, þar sem flokk- urinn er í aigiörum meiri- hluta. ■ Kommúnistar segjast ekki ætla að skapa „Rauða eyju" á miðri ítalíu, en þeir segjast engu að síður vinna að sósíalískri byltingu, og franskur áhorfandi greinir frá frammistöðu þeirra. ■ Þeir leggja áherzlu á að ný stórfyrirtæki séu rekin á samvinnugrundvelli af þeim sem starfa við þau. ■ Þeir reyna að gera borgir og bæi að „sam- félögum sem eru mann- sæmandi" ■ Þeir reyna að fá allan almenning með til þátt- töku í mörgum smáum sigrum en áþreifanlegum, „draga smám saman tennurnar úr hákörlum auðvaldsins". ■ Þeir semja vopnahlé við kaþólska kirkju og bjóða andstöðuflokkum virka þátttöku i stjórn. ■ Með þessu móti reyna þeir að þoka öllu sam- félaginu til eins 'konar italsks sósíalisma. Vurksmiftjuverkamenn á fundi: Drögum lennurnar úr hákörlunum. SÍÐARI HLUTl SÓSLALISMI Á ÍTALSKAVÍSU — 1 gær var þar frá horfið að segja frá hverfaráðum þeim sem kommúnistar hafa komið á fót i Hologniu og fleiri borgum Kauða beltisins svo nefnda. Krönsk kona, sem búsett er i Bologníu, vildi koma syni sinum, þriggja ára gömlum, fyrir á barnaheimili. italska rikið fæst ekki sjálft víð rekstur forskóla- stofnana heldur lætur kirkjuna um það. Borgaryfirvöld i Bologníu hafa hins vegar komið á fót eigin barnaheimilum, en það er ekki rúm fyrir alla, og þvi ganga fyrir börn mæðra sem vinna úti. Þessi franska kona vann ekki úti en hún vildi að sonur sinn lærði iliilsku sem fyrst, til að verða siðan ekki á eftir i barna- skóla. Hún fór á borgarstjórnar- skrifstofurnar lil að útskýra mál sitt. — Það er ekki okkar mál að leysa þetta, þér skuluð snúa yður að hverfisráðinu þar sem þer eigið heima, það er það sem ræður. Kranska konan segir svo frá, að þrátt fyrir feimni hafi hún farið á vettvang og útskýrt mál sitt — og þeir i hverfisráðinu játuðu að hún hefði rétt fyrir sér. Þetta er eitt dæmi um meðákvörðunarrétt á hinum emilianska vegi til sósial- ismans. Jarðsamband og fjölmiðlar — Það er ljóst, segir Guido Kanti, að hvorki i austri né vestri íylgir sjálfur almenningur eftir pólitisku valdi. Við verðum að leita, gera tilraunir sem leitt geti til sanns lýðræðis — þegar öllu er á botninn hvolft er það einmitt ný aðferð til pólitisks starfs, sem við erum að Íeita að. Kommúnistar vilja komast hjá þvi að fólki finnist að stjórnkerfið sé lokað og fjandsamlegt embættismannabákn, og leita i öllum áttum að möguleikum til að gera það að þjónustustofnun i vit- und manna. Litið dæmi: i hverju hverfi er hægt að ganga að öllum eyðublöðum sem menn kunna að þurfa á að halda til útfyllingar — það tekur ekki nema sekúndur að iá þaö sem menn vantar. Þetta er ekki mikið, en menn taka eftir þessu. Þá sjá yfirvöldin til þess að ölt lög og tilskipanir séu skrif- uð á svo ljósu máli, að ,,það sé eins auðvelt að lesa Lögbirtingar- blaðið og myndasögur”. Og tyrfið sérfræðingamál er reyndar horfið úr slikum textum. En nú er spurt hvort þessi við- leitni að láta sem flesta taka bátt i Guidu Kanti, forsætisráðherra Emilíu: Við viljuin santstarf við alla. Cir leiksýningu i Bolognlu um liinu merka leiðtoga italskra koiiiniúnista. Granisci. ákvörðunum leiði ekki til þess, aö sá hraði, sem nútimanum er tal- inn eiginiegur, gufi upp i enda- lausum kjaítagangi'! — Við eigum um skriffinnsku eða lýðræði að velja, segir einn af starfsmönnum flokksins, og skriffinnskan er alltaf miklu verri. Það er rétt, að maður eyðir oft miklum tima i að tala viö illa upplýst fólk. En i þessum umræð- um fær það upplýsingar og við höfum gagn af þeim af þvi að viö vitum þá betur hvert skoöanir manna stefna. Og við setjum allri umræðu timamörk. Borgar- stjórnin setur fram áætlun og fær hana almannasamtökum og segir um leið: þiö hafið mánuð til að taka ákvörðun. En svona samstarf við fólkið gerir ráö fyrir öflugum fjölmiðl- um. Og nú vill svo til að helzti fjölmiðillinn sem menn lesa i héraöinu, blaðið II Resto del Carlino, erfeigu þesssama marg- miljónara Monti, sem kommún- istar unnu af sykurverksmiðjuna i Ravenna. Þetta blað lesa menn þegar þeir drekka kaffið á morgnana, og það er liklega eitt al'turhaldssamasta og smáskit- legasta blað á ttaliu. Að visu er gefin útsérútgáfa af l'Unitá, blaði Kommúnistaflokksins, fyrir hér- aðið, en þaö er ekki nóg. Menn hafa i hyggju að stofna nýtt dag- blað, en það er ekki unnt að gera fyrr en eftir tvö ár og enn er eftir að ná inn nauösynlegu fé. Þá er útvarpið eftir og svo „ólöglegt” sjónvarp. Nú vill svo til aö hinum megin við Adriahafið eru við völd félagar og vinir — Júgóslavar. Það hefur að visu ekki alltaf verið talað vel um þá — en sieppum þvi. Og Júgóslavar fengu þá ágætu hugmynd að stofna auglýsinga- sjónvarp, sem útvarpar á itölsku og er öllum sendum beint að Emiliu. En þá var annað mál óieyst: hvernig átti að fá frétta- ritara fyrir stöðina i Emilíu? Svo er San Marino fyrir aö þakka Svo vel vill til að margir góðir kommar i Emiliu hafa áhuga á kvikmyndagerð. Ahugamanna- flokkur, vopnaður litlum tökuvél- um, sendir á hverjum degi fram- leiðslu sina til Júgólsiaviu i fréttadagskrá, sem þar er gengið frá. Móttökuskilyrðin eru ekki nógugóð i öllu héraðinu. Það þarf endurvarpsstöö, en hana má ekki reisa, þvi að þaö heyrir ekki undir héraðsstjórnina heldur landstjórn i Róm. En þá vill enn svo vel til, að i héraðinu miðju er fjallalýð- veldið San Marino (4.195 ibúar) — kannski þeir vildu vera svo vænir að... Meira má ég ekki segja þvi að samningum er ekki lokið, en vei þeim, sem i Emilíu segir það upp i opið geðið á kommúnista, að San Marino sé ekki fullvalda riki! Guido Fanti, forsætisráðherra Emilíu, litur svo á að hér sé um að ræða mikilvægt mál — að brjóta niður miðstjórnarfyrir- komulag italska sjónvarpsins og útvarpsins, sem væri að hans dómi eðlilegur fylgifiskur héraðaþróunar. Satt að segja er það svið ófund- ið þar sem Guido Kanti reynir ekki að auka völd héraðanna. Lögin hafa veitt héruðunum tak- mörkuð völd, en það er enn eftir að lesa þessi lög niður i kjölinn, leggja út af þeim, gripa til hvers konar reglugerða, gamalla og nýrra. Og Kanti og hans menn eru snjallir við þessa iðju og eru þegar byrjaðir á þeirri aðferð aö láta landsstjórnina mæta orðnum hlut. Strax eftir að kosið var til héraðsþinga 1970 og áður en héraðsstjórnir tóku við völdum formlega myndaði Emiliustjórn „áætlunarskrifstofu héraðsins”, sem á að fást við áætiunargerð i öllum greinum og þó einkum iön- aði. Reyndar falla iðnaðarmál ekki undir þau mál sem afhent voru héraðsstjórnum. En um þaö gaf Emilíustjórn út skjal, þar sem án allrar blygðunar er borið á móti þvi, að hægt sé að beita miðstjórnarvaldi og stjórnarskrá til að kveöa niður „lýðræöislega áætlanagerð á héraðsgrundvelli — þvert á móti getur enginn tekið af héraðinu þá ábyrgð sem það ber á þróun i iðnaði”. Samvinna á öllum sviðum Sama er að segja um bankana. Samkvæmt lögum hefur héraðs- stjórn ekkert yfir þeim að segja. En þetta ber ekki að taka alvar- lega segja þeir, sem Emiliu ráða. Hvernig er hægt að framkvæma lýöræðislega þróun efnahagslifs- ins án þess að breyta stöðu lána- stofnana og samsetningu banka- stjórna? Það er hlutverk almenn- ings að stjórna sparifénu...” Ég var hissa á hinum skjótu umsvifum kommúnista i þessum efnum: eiga þeir ekki á hættu að þessar ráðstafanir snúist gegn þeim? Ég spurði þingmann Kristilegra demókrata: Finnst yður ekki að þeir taki sér of mikil völd? Þessi hægrisinni og sannur son- ur sins héraðs svaraði: „Þeir hafa rétt fyrir sér. Héruðin fá ekki völdin fyrirhafnarlaust. Menn verða sjálfir að taka þau i sinar hendur”. — Viö spennum bogann eins hátt og við getum, segir Guido Fanti. Hann veit að i þessari orustu mun hann ekki standa einn uppi, og hann sér svo til að hann verði ekki einangraður. A héraösþinginu, þar sem Kommúnistaflokkurinn er i rif- legum meirihluta, hafa komm- únistar ekki lagt undir sig forsæti i öllum nefndum eins og þeir hafa rétt til. Þeir hafa boðið meirihluta þessara staða andstæðingum sin- um, einnig Kristiiegum demókrötum, og þeir hafa tekið viö þeim. Kommúnistar segja viö þá: „Viö leitumst ekki eftir þvi að drottna yfir ykkur þótt við höfum afl til. Við viljum samstarf við ykkur á öllum sviðum.” Og til að sanna, að hér séu ekki sagðar lygasögur, hafa þeir sjálfir frum- kvæði um málamiðlun. Og þaö er erfitt að bera ekki traust til þeirra, þegar þeir bjóða andstæð- ingum sinum hluta af sinu eigin valdi. Andstæðingarnir eru fyrst og fremst Kristilegir demókratar, Hvemig tekst ítölskum kommúnistum að fylgja eftir boðorðinu: Völdin til fólksins?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.